Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
Játar að hafa banað
félaga sínum með hnífi
Sambýliskona hins
látna einnig urskurð-
uð í gæzluvarðhald
— Lögreglunni gert
viðvart nokkrum tím-
um eftir morðið
þrjátíu ok sex ára gamall
Reykvíkingur, Þráinn Kristjáns-
son, verkamaður, Hverfisgötu 34,
viðurkenndi við yfirheyrslur og
fyrir dómi í gær að hafa hanað
Svavari Sigurðssyni, 56 ára göml-
um, með hnffi í fyrrnefndu húsi,
en þar var Svavar heitinn einnig
til heimilis. Þráinn var í gær
úrskurðaður í gæzluvarðhald til
1. júnf eða f 60 daga í sakadómi
Reykjavíkur og jafnframt var
honum gert að sæta geðrannsókn
á tfmabilinu. Þá var sambýlis-
kona Svavars heitins, 59 ára
gömul, úrskurðuð í gæziuvarð-
hald til 2. maí, eða f 31 dag.
Hennar þáttur í málinu er ósann-
aður, að sögn rannsóknarlögregl-
unnar, en grunsemdir hafa vakn-
að um að hún eigi aðild að því, en
hún hefur við fyrstu yfirheyrslur
þverneitað.
Mjög miklir áverkar voru á líkinu
þegar lögreglan var kölluð á vett-
vang á sunnudagskvöldið. Voru djúp-
ir og langir skurðir og stungur á
kviði, síðu og hálsi og er talið að
Svavar heitinn hafi látist mjög
fljótlega eftir að honum voru veittir
þessir miklu áverkar. Morðvopnið er
beittur eldhúshnífur af nýrri gerð,
langur og oddmjór og með rauðu
plastskafti. Er hnífurinn í vörzlu
Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem
fer með rannsókn málsins. Að sögn
Þóris Oddssonar vararannsóknarlög-
reglustjóra er alls óljóst hver er
ástæða þessa hroðalega verknaðar
en Þráinn Kristjánsson mun hafa
látið að því Iiggja, að það hafi verið
ósk Svavars að hann yrði sviptur lífi.
Mun rannsóknarlögreglan kappkosta
í rannsóknum sínum að finna ástaeð-
una fyrir þessu voðaverki. Þess má
geta að fólkið hafi haft áfengi um
hönd áður en atburðurinn varð.
Lögreglunni barst tilkynning um
Atburðurinn gerðist á efstu hæð hússins Hverfisgata 34,
lengst til ha-gri á myndinni.
íbúðinni
atburðinn klukkan 21.56 á sunnu-
dagskvöldið. Hins vegar er talið
fullvíst að Svavari hafi verið veittir
áverkarnir síðdegis sama dag eða
nokkrum klukkustundum áður. Það
var Þráinn sjálfur sem hringdi í
vinnuveitanda sinn og tilkynnti hon-
um um atburðinn um kvöldið. Vinnu-
veitandinn mun ekki hafa trúað
Þráni í fyrstu en þegar hann hafði
aftur hringt í vinnuveitandann og
ítrekað frásögn sína hafði vinnuveit-
andinn samband við lögregluna.
Lögreglan fór strax að Hverfisgötu
34, bakhúsi, þar sem atburðurinn
varð. Fann hún Svavar liggjandi í
blóði sínu á eldhúsgólfi íbúðar á 3.
hæð. Hafði hann þá verið látinn í
nokkrar klukkustundir að því er
talið er. Engin skýring hefur heldur
fengist á því hvers vegna Þráinn og
sambýliskona Svavars kvöddu ekki
lögreglu strax á staðinn. Þráinn og
konan voru strax handtekin og flutt
á brott.
Svavar Sigurðsson var sem fyrr
segir 56 ára gamall, fæddur 13.
nóvember 1922. Hann var strætis-
vagnastjóri að atvinnu. Hann lætur
eftir sig uppkomin börn.
Þráinn er einhleypur. Hann hefur
ekki áður komið við sögu hjá lögregl-
unni. Þráinn og Svavar bjuggu báðir
á Hverfisgötu 34 og voru kunningjar.
Flugmenn FIA boða 10 daga verkfali:
Stödvar verkfallið
tíu þúsund manns?
FÉLAG ÍSL. atvinnuflugmanna
hefur tilkynnt að samfelld
vinnustöðvun verði á leiðum
Flugleiða innanlands og til
Norðurlandanna frá því aðfarar-
nótt laugardagsins 7. aprfl og til
þriðjudagsmorguns 17. aprfl.
Dagana fram að helgi verða verk-
föll á einstökum flugleiðum á
þessum leiðum.
— Við höfum gefið ríkisstjórninni
frest þrisvar sinnum að beiðni
þriggja ráðherra sagði Björn
Guðmundsson formaður F.I.A. í
samtali við Mbl. og meðan við
sjáum ekki að sá frestur hafi verið
notaður .grípum við til þessara
aðgerða. Við teljum okkur standa í
nákvæmlega sömu sporum og í
janúar sl. þegar þessar aðgerðir
okkar hófust og ekki bólar enn á
neinni hreyfingu í þá átt að ná
samningum. Þess vegna sjáum við
okkur ekki annað fært en herða að
og okkur finnst líka að Flugleiðir
hafi ekki sýnt lit, þeir hafa boðið
okkur 2 flugstjórastöður hjá Arnar-
flugi, en nú er allt útlit fyrir að þær
verði dregnar til baka og ekki staðið
við það frekar en ýmislegt annað
munnlegt eða skriflegt samkomulag
sem gert hefur verið.
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða kvað þessar samfelldu
verkfallsaðgerðir flugmanna hafa
mjög mikil áhrif nú þegar svo mikil
Rádherrar líta svo á að
af nám áf angahækkun-
ar nái ekki til BSRB
ENDANLEG gerð frumvarps
Ólafs Jóhannessonar um stjórn
efnahagsmála og fleira kveður á
um að laun í marz skuli verða
grunnlaun við gildistöku
frumvarpsins sem laga. Síðan
segir í frumvarpinu: „Grunnkaup
þetta skal haldast óbreytt þar til
um annað hefur verið samið,“ sem
þýðir að umsamdar
áfangahækkanir eru teknar af
með frumvarpinu. Vaknar þá sú
spurning. hvort samkomulag það,
sem BSRB gerði við
ríkisstjórnina um að það félii írá
3% áfangahækkun gegn auknum
samningsrétti, sé ekki brostið,
þar sem 3% verða væntanlega
þegar afnumin með lögum, er
allsherjaratkvæðagreiðsla BSRB
fer fram í maí.
Morgunblaðið spurði Kristján
Thorlacíus, formann Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, um
þetta atriði í gær. Hann kvað
samkomulagið ekki brostið, þar
sem ríkisstjórnin hefði lýst því
yfir, að samkomulagið, sem
ríkisstjórnin hefði gert við BSRB,
stæði, þannig að atkvæðagreiðslan
skæri úr um það, hvort BSRB
fengi aukinn samningsrétt eða 3%
áfangahækkun. Kristján sagðist í
gær hafa átt viðræður við
forsætisráðherra og
fjármálaráðherra um þetta atriði
og sögðu báðir ráðherrarnir að
þessi væri skilningur þeirra.
Kristján kvað þá hafa báða gefið
yfirlýsingu um að 3%
áfartgahækkun BSRB yrði ekki
tekin af, ef samkomulagið yrði
fellt.
Kristján Thorlacíus kvað
fulltrúa BSRB hafa farið fram á
það, að orðalag frumvarpsins um
þetta atriði yrði gert skýrara með
breytingartillögu, en hann kvaðst
ekki vita hvort slík
breytingartillaga yrði flutt. Hins
vegar hefði verið tekið skýrt fram
af báðum ráðherrunum, að
samkomulagið byggðist á því að
félagar í BSRB gætu valið um 3%
eða aukinn samningsrétt. „Við
hefðum talið, að nauðsynlegt hefði
verið að skýra þetta ákvæði
laganna," sagði Kristján, „en þrátt
fyrir þetta ákvæði, hafa
ráðherrarnir sagt að
samkomulagið stæði af hálfu
ríkisstjórnarinnar og ég vil leggja
áherzlu á, að þá yfirlýsingu höfum
við fengið í dag.“
ferðalög færu í hönd, sem jafnan
væru kringum páska. Flugleiðir
hafa ráðgert að fljúga 55 aukaferðir
dagana 6.—17. apríl sem bætast við
um 100 áætlunarferðir þessa daga.
— Þetta ylli mikilli truflun hjá
fleirum en Flugleiðum, sagði
Sveinn, þetta er ein mesta ferða-
helgi ársins og ég er smeykur um að
margir, bæði einstaklingar, félög og
stofnanir verði illa úti verði af
þessu samfellda verkfalli. Má þar
nefna fólk sem ætlað hefur milli
staða, gististaði sem áætla góða
nýtingu þessa daga, skíðafólk, t.d
skíðavikuna á ísafirði og landsmót-
ið þar. Ekki er hægt að gefa neina
hugmynd um fyrir hversu miklu
tjóni félagið verður, en benda má á,
að jafnan hefur verið vel bókað í
þessar ferðir um páskana. Samtals
er sætaframboð þessa daga 7.344
sæti og það gefur því auga leið hver
áhrif það hefur ef ekki tekst að
halda ráðgerðri áætlun. Sama er að
segja um millilandaflugið, þar er
jafnan vel bókað á þessum árstíma.
I dag verður ekki flogið til Egils-
staða, Norðfjarðar, Kaupmanna-
hafnar eða Oslóar, á miðvikudag
verður ekki flogið til Vestfjarða eða
Hafnar í Hornafirði eða London, á
fimmtudag ekki til Norðfjarðar,
Vestmannaeyja, Egilsstaða eða
London og á föstudag verður ekkert
flug til Norðurlands, Óslóar,
Stokkhólms, Glasgow eða
Kaupmannahafnar og þá um
kvöldið tekur við samfellda verk-
fallið sem áður er getið.
Magnús H. Magnússon félags-
málaráðherra kvaðst ekki geta
horft upp á áhrif sem slíkt verkfall
hefði í för með sér og kvaðst taka
málið upp á fundi ríkisstjórnarinn-
ar í dag. Var hann ekki bjartsýnn á
að samkomulag næðist, en taldi að
ríkisstjórnin yrði að beita sér af
meiri hörku en áður, þrátt fyrir að
það væri á margan hátt örðugra en
áður og að engum þætti gaman að
setja lög um þess konar efni ef til
þess kæmi.
Svavar Sigurðsson
Alþýðubandalags-
menn á Suðurlandi:
Treysta sér
ekki að ver ja
ríkisstjómina
SAMBAND ungra sjálfstæðis-
manna og Æskulýðsnefnd Al-
þýðubandalagsins höfðu ákveðið
fyrir nokkrum dögum að halda
fundaröð víða um land í kapp-
ræðuformi þar sem rætt yrði um
frjálshyggju. varnarmál og efna-
hagsmál, en nú hefur orðið að
fresta nokkrum fundum vegna
þess að alþýðubandalagsmenn
treysta sér ekki að sinni til
kappræðna við unga sjálfstæðis-
menn og á Suðurlandi er það svo
að Æskulýðsnefnd Alþýðubanda-
lagsins hefur tilkynnt að þeir
treysti sér ekki til kappræðu-
fundar við unga sjálfstæðismenn
þar sem þeir geti ekki varið
aðgerðir núverandi ríkisstjórn-
ar. Verður því ekki af kappræðu-
íundi æskulýðsnefndar Alþýðu-
bandalagsins og ungra sjálf-
stæðismanna sem átti að halda á
Selfossi n.k. fimmtudag en ræðu-
menn þar af hálfu sjálfstæðis-
manna áttu að vera Hilmar
Jónasson frá Hellu, Valdimar
Bragason frá Selfossi og Þor-
steinn Pálsson úr Reykjavík.
Synti í
slorþró
STARFSMAÐUR Fiskimjöls-
verksntiðjunnar í Vestmannaeyj-
um var hætt kominn þegar hann
féll ofan í fulla slorþró í gær þar
sem snigill var í gangi. Fór
maðurinn, sem er á sjötugs aldri,
á bólakaf og lenti í sniglinum, en
gat krafsað sig upp á yfirborðið
og synt í slorinu að bakkanum
þar sem hann sýndi það þrekvirki
að vega sig upp við erfiðar að-
stæður vægast sagt slorugur upp
fyrir haus. Ekki varð honum
meint af.
Síðasta
DAS-húsið
dregið út
SÍÐASTA DAS-húsið sem verð-
ur vinningur hjá Ilappadrætti
DAS að minnsta kosti um sinn,
verður dregið út ídag, en DAS
hefur ákveðið að hafa ekki
fieiri hús sem vinninga, heldur
verða fleiri háir vinningar í
stað húsverðs sem nú er komið
upp í 40—50 millj. kr.