Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 + Móöir okkar og amma, MARGRÉT ÁRNADÓTTIR, Iré Kálfatjðrn, andaöist löstudaginn 6. apríl. Ámi Egilsson, Valur Egilsaon, ömótfur Ámaaon. + Maöurinn minn. EDWARD CAUDWELL lést laugardaginn 31. mars. Jaröarförin hofur fariö fram. Halga Caudwall. t Eiginmaöur minn og faðir okkar, GUÐMUNOUR KRI8TJÁNSSON, VatnshoKi 2, lézt 8. þ.m. í Landspítalanum. VskJfs Brandsdóttir sg bðrn. t Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir, GUOMUNDUR GRÍMSSON, húsgagnasmföamsistarí, Laugavsgi 100, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni miövikudaginn 11. apríl kl. 13.30. Stsfanfa RunóHsdúttir, Útfar Guómundsson, Frsyja Jóhannsdóttir, Guórún Guómundsdóttir, Öm Sigurósson. Útför ÓSKARS 8IGURHANSSONAR, uX|*ih|Aa W B ISf 1 ■ tUB | frá Brimnasi, Vastmannaoyjum, sem andaöist 1. apríl fer fram frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 11. apríl kl. 3. Fyrir hönd brœöra hans og annarra vandamanna, Ágústa Einarsdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, ÁRNI YNGVI EINARSSON fyrrvsrandi framkvamdaratjóri á Rsykjalundi veröur jarösunginn frá Lágafellskirkju miövikudaginn 11. apríl kl. 2 s.d. Þeim sem vildu minnast hans er bent á S.f.B.S. Fyrír mína hðnd, bama okkar og annarra vandamanna, Hlfn Ingólfsdóttir. + Útfðr fööur míns, ÞORBJARNAR INDRIÐASONAR onrwowijori, Karlagótu 10, Raykjavfk, fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 12. apríl kl. 13.30. Fyrir mína hðnd og annarra vandamanna. Vióar Þortajðmsson. Lokað í dag kl. 2:30—4:00 vegna jarðarfarar ANDRÉSAR INGÓLFSSONAR Helga Kristjánsdótt- ir — Minningarorð Fædd 20. september 1912 Dáin 4. aprfl 1979 Hinn 4. apríl síðastliðinn lést í sjúkrahúsi í Reykjavík Helga Kristín Kristjánsdóttir, Reyni- hvammi 24, Kópavogi, eftir þunga legu. Helga Kristjánsdóttir var fædd í Reykjavík 20. september árið 1912 og voru foreldrar hennar þau hjónin Valgerður Halldóra Guð- mundsdóttir og Kristján Helga- son, verkamaður, hér í bæ. Var Helga þriðja í röðinn af börnum þeirra hjóna, sem urðu alls sex talsins, en þau voru Gústav Kristjánsson, Kaupmaður í Drífanda, kunnugur maður á sinni tíð, en látinn fyrir nokkrum árum. Einar Kristjánsson, óperusöng- vari, sem lengi starfaði sem söng- vari við ríkisóperurnar í Þýzka- landi og seinast áður en hann lést við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn, en þá var Einar fluttur aftur heim til Islands að afloknum miklum söngferli, Helga Kristín, húsmóðir í Reykjavík, sem nú er kvödd, Júlíus Kristjánsson, verslunarmaður, sem einnig er látinn. A lífi eru þeir einir eftir af barnahópnum, þeir Bragi Kristjánsson, forstjóri hjá Pósti og síma, og Baldur Kristjánsson, píanóleikari. Þau hjónin Valgerður Halldóra Kristjánsdóttir og Kristján Helga- son voru bæði fædd sama árið, 1879, og létust með skömmu milli- bili, hún árið 1944 eftir nokkur veikindi, en Kristján árið 1945, í bílslysi. Man ég vel eftir þeim hjónum, sérstaklega þó Kristjáni sem var fallegur maður sem bar sig vel, en þau hjónin bjuggu seinustu árin sem þau lifðu á Hringbrautinni, skammt frá húsi foreldra minna í verkamannabústöðunum. Þau voru vandaðar manneskjur og komu stórum barnahópi til ágætra mennta og frama, og er frá þeim kominn fjöldi fólks sem nú er upp á sitt besta. Sönggáfa og tónlistar- gáfa er auk annars ríkjandi meðal afkomenda þeirra, eins og þeir vita er til þekkja, þótt eigi gerðu allir tónlistina að sínu ævistarfi. Helga giftist ung, eða innan við tvítugt, Magnúsi Ingimundarsyni, húsasmíðameistara, miklum heið- ursmanni, en hann var sonur Ingimundar Péturssonar, fisk- verkunarmanns í Reykjavík, og Jórunnar Magnúsdóttur. Magnús Ingimundarson hafði um langt skeið mikil umsvif í iðngrein sinni og rak auk annars lengi húsgagnaverkstæði í Ein- holti 2 ásamt öðrum, þar sem fjöldi manns hafði vinnu, en hefur nú dregið saman seglin að mestu, enda kominn undir sjötugt. Þau Helga og Magnús Ingi- mundarson eignuðust fjögur börn en þau eru Ingimundur Magnússon, ljósmyndari, kvæntur Lilju Gunnarsdóttur, Kristján Magnússon, ljósmyndari og píanó- leikari, kvæntur Pálínu Oddsdótt- ur, en þeir Kristján og Ingimundur eru tvíburar. Dóra Magnúsdóttir, sem gift er Guðna Kristjánssyni, og svo Jórunn Magnúsdóttir, sem var yngst, og er gift Jóni E. Baldvinssyni verslunarmanni. Hefði ég kosið að gera ættum þessa fólks ítarlegri skil, en til þess var tíminn of naumur að þessu sinni. Ég kynntist þeim hjónum Helgu og Magnúsi Ingimundarsyni þegar ég var innan við fermingu, en þá bjuggu þau með barnahópinn í litlu vinalegu timburhúsi að Sól- vallagötu 45, en ég hafði þá kynnst sonum þeirra Ingimundi og Kristjáni, sem eru á líku reki og ég sjálfur en dæturnar voru yngri. Þau Helga og Magnús héldu svoleiðis heimili að maður fór eiginlega ekkert aftur, eftir að maður var einu sinni kominn þangað inn fyrir dyr, og gilti það um fleiri stráka, sem í nágrenninu bjuggu. Vinir barnanna og kunn- ingjar gengu út og inn eins og húsráðendur ættu í þeim hvert bein líka, eða ríflega það. Þarna ríkti glaðværð og gestrisni, líka kyrrlát alvara, þegar það átti við. Skömmu eftir að ég varð þarna heimilisfastur, eða heimilisvinur, eins og það heitir víst á réttu máli, reistu þau Helga og Magnús nýtt hús við hliðina á því gamla, eða að Sólvallagötu 43, en húsið, sem var stórhýsi á þeirra tíma mæli- kvarða, reistu þau ásamt Pétri Ingimundarsyni, stýrimanni, bróð- ur Magnúsar, og konu hans, Sigur- björgu Pálsdóttur, en þau hjón eru enn á lífi og búa á sama stað. Ríkti ágæt eining milli heimilanna og bræðranna og ef maður leggur augun aftur sér maður þetta hús verða til í sólskini á ótrúlega skömmum tíma. Þetta var ævintýrahús, því bræðurnir fengu ágætar vistarver- ur á jarðhæð hússins og þar var oft margt um manninn og stund- um hávaöasamt, að ekki sé nú meira sagt, því húskrossar voru margir þá. Þetta var rausnarheimili og látið var vel að börnum. Þetta voru miklir tímar, annað verður ekki sagt, og ég hygg að sá kærleikur sem á þessu heimili ríkti og umgengnishættir allir hafi haft nokkur áhrif á lífskoðun og fram- vindu hjá fleirum en mér, í hinum stóra vinahópi er þarna gett út og inn. En leiðir skilja. Gamla vinalega timburhúsið var flutt burt, þegar nýja húsið kom. Ég veit ekkert hvað af því varð. Það aðeins fór, og svipaða sögu er að segja um okkur hin, þegar tíminn kom, sundraði lífskallið kunningjahópnum, fugl- ar flugu, ný heimili voru stofnuð + Móöir okkar, tengdamóölr, amma og langamma HALLDÓRA KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR, Hvarfisgðtu 16, Raykjavik, andaöist í Landspftalanum 27. marz 1979. Útfðrin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auösýnda samúö og sórstakar þakkir færum viö hjúkrunarfólki og læknum deildar 4-C Landspítalanum fyrir alúölega umönnun. Páll Halldórsson, Indfana Þórtiallsdóttir, PáUna Halldórsdóttir Benoto, Sigrún Halldórsdóttir, Gfsli Gfslason, Halldór HalkJórsaon, Bryndfs Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. og smá saman leystist hópur unga fólksins upp í ný heimili og leið- irnar gengu í sundur. og þó, sú vinátta er menn stofna til í æsku hefur það umfram aðra, að hún þarfnast ekki stöðugrar næringar, eða samskipta, hún helst síung og þrýtur aldrei. En ég vil samt nota þetta tækifæri til þess að þakka fyrir mig, þakka góðar stundir, þakka það traust er mér og öðrum var sýnt og hina djúpu og innilegu vináttu við þetta dagheimili æsku minnar. Þau Helga og Magnús Ingi- mundarson bjuggu mörg ár á Sólvallagötunni, en fluttu síðan heimili sitt í stórhýsi er Magnús hafði reist í Einholti 2 hér í borg, en hús þetta stendur á horni Einholts og Skipholts, andspænis Myndlistarskólanum, ef einhverjir vita hvar hann er til húsa, en seinustu árin bjuggu þau að Reynihvammi 24 í Kópavogi og ástrík sambúð þeirra entist í nær því hálfa öld. Helga átti við heilsuleysi að stríða síðustu árin sem hún lifði, og var hið nýbyrjaða ár þó verst, það ár sem lífið fjaraði út og týndist. Naut hún sérstakrar um- önnunar í sjúkrahúsinu og hefur Magnús beðið mig að skila hér þakklæti til þeirra er hana önnuð- ust er hún var að kveðja lífið. I lærðri grein las ég um það, eftir frægan lækni, hvernig menn bregðast við dauða sínum. Hún sagði, en læknir þessi var kona, að nær allir lifandi menn skynjuðu dauða sinn á svipaðan hátt. Heim- urinn hrundi yfir þá með miklum gný. Sumir sáu ljós, en konan hafði setið við dánarbeð hundruða dauðvona sjúklinga. Ég veit að Helga hefur séð þetta ljós, svo vel þekkti ég hana, og ég vona að þeir sem mest hafa nú misst sjái líka þetta ljós á hinum döpru dögum, og bráðum er komið sumar aftur, með miklum söng og grösum. Jónas Guðmundsson Þegar vorið er á næsta leiti og gróðurinn fer að vakna til lífsins og blómin springa út, þá kvaddi mín ástkæra tengdamóðir okkur. En það var einmitt um þetta leyti árs er ég kynntist Helgu í fyrsta sinni fyrir 27 árum. Mér var boðið í kaffi í eldhúsið í Einholti. Svo liðu árin og barnabörnin komu hvert af öðru. Alltaf var jafn gott að koma til Helgu og Magnúsar, á hátíðarstundum kom fjölskyldan saman á heimili þeirra, þá var glatt á hjalla í stóru stofunni. Kristján sonur þeirra settist við píanóið og spilaði og þá var sungið og hlegið. Helga sagði okkur frá æsku sinni í vesturbænum, hjá foreldrum sínum Kristjáni Helga- syni og Valgerði Guðmundsdóttur, og bræðrum sínum, Gústaf, Ein- ari, Júlíusi, Braga og Baldri. En á því mikla menningarheimili var músíkin í fyrirrúmi og urðu þeir Einar óperusöngvari og Baldur píanóleikari landskunnir lista- menn. En mesta eftirtekt mína vakti er hún sagði frá föður sínum og áhuga hans á knattspyrnu, en hann var um árabil einn mesti og besti stuðningsmaður knatt- spyrnufélagsins Vals, og færði hann leikmönnum mfl. Vals kaffi í hálfleik um áraraðir. Minningar- sjóð stofnuðu Valsmenn um Kristján að honum látnum. Helga átti alla tíð sterkar rætur til Vals og fylgdist vel með öllu hjá þeim, og gladdist yfir velgegni þeirra. Margar ferðirnar var farið sumar eftir sumar í Húsafell og víðar um landið, til útlanda fórum við líka, var þá oft margt brallað og mikið hlegið. Ég minnist þess í Þýska- landi á ferð þar að ég var að tala við Þjóðverja og skildi ekki vel það sem hann var að segja, þá kom Helga og bjargaði málinu með sinni fljúgandi þýskukunnáttu. En nú er öllu lokið að sinni og minn- ingarnar hlaðast upp og söknuður- inn er mikill er eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma er kvödd í hinsta sinn með ást og virðingu fyrir allt sem hún var okkur. Mannkostir hennar voru miklir, aðdáunarverður styrkur í erfiðum veikindum en hún var ekki ein, Magnús eiginmaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.