Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 48
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 Þorskveiðibannið hefst í dag: Aðalfundur Flugleiða í dag: Ameríkuflug án milli- lendingar á íslandi? Raunverulegt rekstrartap um 3 milljarðar kr. á s.l. ári NIÐURSTÖÐUR rekstrarreikn- ings Flugleiða sem lagður verður fram á aðalfundi félagsins f dag sýna um 370 millj. kr. hagnað, en ef tekið er tillit tii annarra hliða í reikningum félagsins svo sem tjónabóta, kemur 1 ljós að raun- verulegt rekstrartap fyrirtækisins á s.l. ári er um 3 milljarðar króna. Valfells hafa boðið til sölu hluta- bréfaeign sína í fyrirtækinu, sem er veruleg og metin á 216 millj. kr. að nafnverði, en ekki er kunnugt um að nokkur tilboð hafi komið fram í þessi bréf sem tekið hafi verið. í sambandi við þau vandamál sem við er að etja í rekstri Flugleiða eru uppi hugmyndir innan félagsins um að hluti Ameríkuflugs verði án millilendingar á íslandi. Er hér bæði um að ræða sparnað svo og tillit til farþega. Á aðalfundinum í dag verður fækkað um tvo aðalmenn í stjórn Flugleiða og einn varamann sam- kvæmt fyrri samþykktum. Nær ekki til báta á N- og NA-landi KJARTAN Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra tjáði Morgunblað- inu í gærkvöldi að verið væri að safna gögnum varðandi könnun á frekari takmörkunum þorsk- veiða, en sem kunnugt er af fréttum hefur veiðst mun meira það sem af er árinu en á sama tima í fyrra og er aukningin um 50 þúsund lestir. Sagði Kjartan að ekkert hefði enn verið ákveðið um frekari takmarkanir, málið væri ekki komið á ákvörðunar- stig. Á hádegi í dag gengur í gildi bann við þorskveiðum og verður frá 10.—17 apríl bannað að hafa nokkur þorskfisknet í sjó enda þótt tilgangurinn sé að fiska aðrar tegundir en þorsk. Þá má hlutfall heildarafla skuttogara ekki verða yfir 15% þorskur í 7 daga á tímabilinu 10—20. apríl. Sjávarútvegsráðuneytið gaf í gær út undanþágu frá þessu banni er tekur til báta frá Norður- og Norðausturlandi. Er bátum, sem þar eru skráðir, heimilt að stunda veiðar þennan tíma þar sem hafís hefur hindrað veiðar þeirra. Gildir þetta um báta sem skráðir eru á svæðinu frá Horni að Gerpi, enda hafi þeir tafist frá veiðum um a.m.k. viku. Undanþágan nær ekki til skuttogara. Allmiklar viðsjár eru innan fé- lagsins og á aðalfundi þess í dag kemur m.a. til meðferðar tillaga frá Kristjönu Millu Thorsteinson þess efnis að Flugleiðum verði skipt upp á ný og flugrekstur Flugfélags íslands og Loftleiða verði með sama hætti og hann var er sameining fór fram, en félögin tvö hafi með sér samvinnu þar sem það hentar. Rökstuðningurinn fyrir þessari til- lögu er sá að þjóðhagslegum mark- miðum hafi ekki verið náð með sameiningunni. Þá er Morgunblaðinu kunnugt um að Sigurður Helgason og Sveinn Hlaut 800 þúsund króna sekt fyrir of smáa möskva LANDHELGISGÆSLAN vann um helgina við mælingar f afla togara sem voru á veiðum úti fyrir Horni, en þar reyndist undirmálsfiskur vera allmikill í aflanum. Voru allt milli 53—70% aflans undir 58 cm Vatnstítið í Vatnsdal NOKKUÐ hefur borið á vatns- skorti í' Vatnsdal að undan- förnu og hafa bændur víða þar þurft að aka heim vatni langar leiðir. Á það einkum við um bændur í Svína. atnshreppi. Að sögn fréttaritara Mbl. í Vatnsdal hefur verið mjög vatnslítið í vetur og vegna langvarandi frosta eru öll vatnsból frosin og þar sem einnig hefur lítið verið um snjó er þess ekki að vænta að úr rætist fyrr en hlýna tekur. Kvað fréttaritarinn frostið löngum hafa farið yfir 20 gráður og verið langvarandi frostakaflar nema að undan- teknum 3 vikum í febrúar. Með hinni öru f jölgun bíla undan- farin ár verður sífellt erfiðara að finna þeim stæði. Á það sennilega einkum við í miðborgarum- ferðinni í Reykjavík, og ekki batnar ástandið þegar snjórinn og klakinn varna notkun bíla- stæðanna. Þessum bílstjóra hefur samt ekki orðið skotaskuld úr því að renna sér álciðis uppá einn hraukinn og þar trónaði billinn í gær þegar myndinni var smellt af. — Ljósm. Georg. Hæstiréttur um rannsókn Hverfísgötu- morðsins: Varðhald konunn- ar staðfest en stytt HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær varðhaldsúrskurð yfir konunni sem úrskurðuð var í gæsluvarð- hald í sambandi við rannsókn morðmálsins á Hverfisgötu. í niðurstöðu Hæstaréttar segir að hinn kærði úrskurður skuli vera óraskaður, þó þannig að gæzlu- varðhaldstími verði ekki lengri en til miðvikudagsins 18. apríl n.k., en ekki til 2. maí n.k. Hæstiréttur hefur því stytt mögulegan varð- haldstíma um tvær vikur. Yfir- heyrslum í málinu er ekki lokið ennþá. og var ákveðið að loka hólfi vestan við friðaða svæðið í Reykjaf jarðarál allt að 7 daga. Áður hafði verið lokað svæði við Straumnes. Afli togaranna var allmikill og að sögn Landhelgisgæslunnar fengu togararnir allt að 20—30 tonn í togi. Jafnframt mælingum í afla athug- uðu varðskipsmenn vörpur togar- anna og kom í ljós að möskvar voru of litlir í skuttogaranum Stálvík SI 1. Var hann á sunnudag færður til Isafjarðar þar sem mál skipstjórans var tekið fyrir. Að sögn Guðmundar Sigurjónssonar fulltrúa lauk málinu með dómssátt og var fallizt á að greiða kr. 800 þúsund í sekt í landhelgissjóð. Það var neðsti hluti trollpokans sem var með of smáa möskva. Ýmir seldi í Þýzkalándi ÝMIR frá Hafnarfirði seldi afla sinn í Þýzkalandi í gær og fékk hann alls 48,3 ntilljónir króna fyrir 159 tonn afla. Þá hóf Karls- efni að selja í gær en átti sölu hans að ljúka í dag en hún var einnig í Þýzkalandi. I dag eru ráðgerðar tvær sölur í 'Bretlandi og ein í Þýzkalandi. Mánaðarfundur um flugslysið í Sri Lanka: Meirihluti tímans fór í um- ræður um vaUarins Stjórn flugvallarins tekin af flugmálastjóra Sri Lanka FJÖGURRA vikna rannsókn- arfundi vegna DC-8 flugslyss- ins 15. nóv. s.l. lauk um helgina á Sri Lanka. Rannsóknarfund- urinn var undir forsæti dómara frá Sri Lanka en þátt í honum tóku m.a. aðilar frá íslandi, Sri Lanka og Indónesíu. Vitna- leiðslum lauk í síðustu viku og eru aðilar nú að vinna skýrslur sem dómarinn mun fá í hendur áður en hann greinir frá niður- stöðum rannsóknarinnar. Er reiknað með að þær liggi fyrir í maílok. Islendingarnir fjórir sem sátu fundina á Sri Lanka eru komnir til Evrópu. Samkvæmt heimild- um sem Morgunblaðið hefur aflað sér fór meirihluti af tíma ráðstefnunnar á Sri Lanka í það að ræða aðflugskerfi flugvallar- ins sem íslenzka þotan átti að lenda á og annan búnað vallar- ins. Þá kom það einnig fram á fundinum að stjórn flugvallar- ins var tekin af flugmálastjóra landsins skömmu eftir flugslys- ið og innlendur flugstjóri var settur yfirmaður vallarins. Gegnir hann því starfi ennþá. Ekkert hefur komið fram í rannsókninni sem bendir til bilunar í flugvélinni sjálfri. Hleðslumenn töfðu innanlandsflugið TAFIR urðu í gærkvöldi á innan- landsflugi Flugfélags íslands til Akureyrar vegna fundar um kjaramál sem hleðslumenn efndu til í gærkvöldi. Lögðu þeir niður vinnu í um það 1 % klukkustund og á meðan biðu liðlega 40 farþegar eftir flugi til Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.