Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 15
og starfsmaðurinn. Það er ekki „frelsisskerðing" manns, þótt ann- ar kjósi að skipta ekki við hann. Er það ekki „frelsisskerðing" með sömu rökum að láta konu hafna sér „án þess að hafa gert nokkurn skapaðan hlut af sér“? Kjarni málsins er sá, að frelsi eins manns takmarkast af sama frelsi annars, starfsmaðurinn á ekki kröfu á forstjórann, maðurinn ekki á kon- una. Talad um fyrir Kínverjum? Þröstur segir: „Sú gerð hagkerf- is sem byggir á umtölum er ekki á dagskrá hér, en sem dæmi um slíka haggerð má t.d. nefna Kína.“ Þessi skilgreining er dæmalaus. Er talað um fyrir stjórnarandstæð- ingum í Kína? Öðru nær. Reynt er að heilaþvo þá. Kínaveldi hefur verið alræðisríki frá 1949, hvort sem það verður það í framtíðinni eða ekki. (Á Þröstur við heilaþvott, þegar hann notar orðið „umtöl- ur“?) Þröstur getur lesið lýsingar tveggja íslendinga, sem dvöldu lengi á Kína, á stjórnarfarinu og „umtölunum", Jóhanns Hannes- sonar prófessors í bæklingnum Friðarhugsjónum og friðarstefn- um 1953 og Skúla Magnússonar í Rauðu bókinni — leyniskýrslum SÍA 1963. Markaöskerfid og fátæktin Þröstur segir: „Jafnvel England á nítjándu öld sem var blómaskeið frjálshyggjunnar, fór ekki var- hluta af þessu. Hið hreina mark- aðskerfi þess tíma leiddi til slíkrar eymdar og fátæktar að setja þurfti fátæktarlög og koma á svokölluð- um velgerðarfélögum sem áttu að reyna að halda líftórunni í þeim sem ekkert gátu fengið frá þjóð- félaginu (markaðnum), því að þeir höfðu ekkert til að bjóða í staðinn. Vestrænar þjóðir hafa allt frá því að markaðskerfið festist í sessi verið önnum kafnar við að stoppa upp í þau göt sem það skildi eftir." Til þess eru tvær ástæður, að þessi skoðun Þrastar er röng. I fyrsta lagi hefur það verið marghrakið af sagnfræðingum og hagfræðingum, að kjör almennings hafi versnað á fyrra helmingi nitjándu aldarinn- ar vegna iðnbyltingarinnar. Þau bötnuðu, eins og Friedrich A. Hayek, T.S. Ashton og fleiri sýndu í bókinni Markaðskeríinu og sagnfræðingunum (Capitalism and the Historians, Chicago Uni- versity Press 1954, en um þá bók reit ég grein í Mbl. 22. apríl 1978, sem Þröstur getur lesið). Og kjörin bötnuðu fremur vegna vaxtar at- vinnulífsins, aukningar fram- leiðslunnar, en aðgerða ríkisins eða verkalýðssamtakanna. Tölur sýna, að lítið sem ekkert samband er á milli kjarabóta og kjarabaráttu. í öðru lagi fóru Vesturlandabúar út úr nauðþurftaskipulaginu inn á allsnægtaskipulagið, þegar mark- aðskerfið varð til, verkaskiptingin og viðskiptafrelsið skiluðu ævin- týralegum árangri. Við getum reyndar eins litið til samtíðarinn- ar og sögunnar: Hvers vegna eru lífskjör þrisvar sinnum betri í Bandaríkjunum, landi einka- rekstrarins, en Ráðstjórnarríkjun- um, landi ríkisrekstrarins? Eignarréttur og tekjuskipting Þröstur segir: „Viðskiptavaldið byggir völd sín á eignarrétti sem enginn hefur atkvæðisrétt um.“ Hann á sennilega við eignarrétt- inn á framleiðslutækjunum, sem meistari hans, Karl Marx, taldi skipta fólki í tvær fylkingar, borgara og öreiga. En eignarrétt- urinn skiptir ekki eins miklu máli og umráðarétturinn: Hvorir ráða meiru, eigendur hlutabréfanna í stórfyrirtækinu (sem eru í lagaleg- um skilningi eigendur framleiðslu- tækjanna) eða sérþjálfaðir stjórn- endur fyrirtækjanna? Sannleikur- inn er sá, að Þröstur hefur þrátt fyrir allan sinn áhuga á byltingum , ekki tekið eftir „þekkingarbylting- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 15 unni", sem svo er kölluð. Lang- flestir nútímamenn eru hvorki borgarar né öreigar í skilningi Marx, lifa ekki af eign á fram- leiðslutækjum eða sölu handafls, heldur af þekkingu sinni, þeir eru sérfræðingar, stjórnendur eða iðn- aðarmenn. Þekkingin er eign þeirra, og hún skiptir mestu máli í flóknu mannlífi tæknialdarinnar. Þröstur segir einnig: „Eðli mark- aðsviðskipta valda því að ójöfn eignaskipting er mikil og fer vax- andi.“ Munurinn á eignaskiptingu markaðskerfis og miðstjórnar- kerfis er í sem fæstum orðum sá, að í markaðskerfinu eiga sumir einstaklingar meira en aðrir, en í miðstjórnarkerfinu á ríkið allt, en einstaklingarnir ekkert. Þröstur er sennilega sammála mér um það, að eign sé lítils virði, nema hún gefi af sér tekjur. En tekjuskipt- ingin er síður en svo ójafnari í löndum markaðskerfisins en mið- stjórnarkerfisins, ójöfn tekju- skipting er því engin röksemd gegn markaðskerfinu. Og hvar er meiri ójöfnuður en þar, sem neyzluvalið er ekki frjálst? Stórfyrirtækin Þröstur segir: „Ég sagði hér að framan að völdum í þeim ríkjum sem byggðu á einkaeign og markaðskerfi væri tvískipt milli ríkisvalds og viðskiptavalds. Það er einmitt þessi tvískipting valds- ins sem kemur í veg fyrir að hægt sé að útvíkka núverandi lýðræðiskerfi. ,t Lýðræði í þess orðs fyllstu merkingu og stórfyrir- tæki eru í reynd ósamrýmanleg.“ Tilvera stórfyrirtækja er engin röksemd gegn fræðilegu markaðs- kerfi, því að hún er ekki í anda frjálshyggju eða dreifingar hag- valdsins, og færa má söguleg rök fyrir því, að tilvera þeirra sumra sé vegna ríkisafskipta, annarra vegna tækninnar. Ég er sammála Þresti, ef hann telur, að ríkið verði að tryggja hag neytenda, líta eftir stórfyrirtækjunum, finna ráð við þeim vanda. En hættulegasta ráðið er að þjóðnýta þau, þannig að öll stórfyrirtækin verði að einu risafyrirtæki — ríkinu. Hvað getur stjórnarandstæðingurinn gert, ef stjórnin hefur bæði ríkisvaldið og hagvaldið? Hann verður bjargarlaus. Ég tek enn undir með Halldóri Laxness: „Ýmsir tala um borgarastéttina eins og hún væri kúklúxklan nr. 2, sumir jafnvel einsog hún væri kúklúxklan nr. 1, eða einsog siður var að tala um djöfla á miðöldum. En það er hætt við að þar sem henni er útrýmt komi miðaldirnar aftur með páfa sína, málbann, ritbann, listbann, stjórnmála- bann, rannsóknarrétt og trúvillingabrennur." Nýting audlindanna Þröstur segir: „Taumlaus ásókn í takmörkuð gæði leiðir til ófarn- aðar. Frjálshyggjustefna í auðlindamálum leiðir til tortímingar, skipulagshyggja getur ein bjargað okkur í þessu máli, hvað sem forneskjulegar kreddur segja þar um.“ Þessi misskilningur er ótrúlega algengur. Gæði jarðar eru tak- mörkuð eins og Þröstur segir. En til eru tvær aðferðir fyrir menn að nýta þau. Önnur er að verðleggja þau á markaði, hin er að skammta þau. Þröstur kýs síðarnefndu aðferðina. En hvað geta þeir, sem skammta (og Þröstur ætlar senni- lega að vera einn þeirra), miðað við? Hvaða upplýsinga geta þeir aflað sér um framleiðslugetu fyr- irtækjanna og neyzluþörf ein- staklinganna? Sannleikurinn er sá, að þeir geta ekki miðað við annað en takmarkaða þekkingu sína, hagsmuni sína og hleypi- dóma. Ákvarðanir þeirra verða því óskynsamlegar, gæðunum er sóað. Reynslan sýnir, að mengunarvand- inn er miklu meiri og nýting auðlindanna verri í miðstjórnar- kerfinu en markaðskerfinu. Á markaðnum leysist þessi vandi svo, að gæðin hækka í verði, ef framboð þeirra minnkar, en það dregur úr eftirspurn eftir þeim. Verðbreytingar eru upplýsingar — en þær upplýsingar vantar, ef verðlagið er ekki frjálst. Þröstur getur lesið aukahefti Fjármálatíðinda 1975, safn fyrir- lestra á 22. þingi norrænna hag- fræðinga í Reykjavík, þar sem sýnt er, að þau rök ríkisrekstrar- sinna, sem sótt eru til auðlinda- þurrðar (en hún er reyndar mjög orðum aukin), eru ógild. Afturhaldssemi Alþýðubandalagsins Grein Þrastar er merkilegust vegna þess, að hún sýnir, svo að ekki verður um villzt, hve hann og aðrir Alþýðubandalagsmenn eru langt á eftir tímanum. Deilunum um markaðskerfið lauk í fræðileg- um skilningi á fjórða áratug þess- arar aldar, þegar helztu hag- fræðingar róttæklinga, Oskar Lange og Abba Lerner, svöruðu rökum frjálshyggjumannanna Ludwigs von Misess og Hayeks með því að smíða „markaðssósíal- isma“, tóku með öðrum orðum undir rök þeirra fyrir markaðs- kerfinu. En af stefnuskrá Alþýðu- bandalagsmanna í efnahagsmál- um má ráða, að þá dreymir enn um þjóðnýtingu, um miðstjórnarkerfi, um lausn alls vanda mannlífsins með skipulagningu. Þeir ætlast til þess, að þjóðin, sem á velmegun sína að þakka viðskiptum við aðrar þjóðir, hætti markaðs- búskap og viðskiptum við útlendar þjóðir, og hefji sjálfsþurftabúskap að hætti fornmanna. Þröngsýni, þjóðremba og afturhaldssemi setja mark sitt á mál þeirra: Sam- eignarsinnar Spánar, Ítalíu og Frakklands verða „evrópu- kommúnistar", sætta sig við Atlantshafsbandalagið, en Alþýðubandalagsmenn berjast gegn því. Santiago Carrillo, Enrico Berlinguer og jafnvel Georges Marchais deila á Kremlverja, en Lúðvík Jósepsson svarar, þegar Vísir spyr hann 15. júlí á síðasta ári um andófsmenn: „Ég óska ekki eftir því að segja eitt einasta orð um þetta". Vandi íslenzks atvinnulífs Vandi íslenzks atvinnulífs er einn: allt of hægur hagvöxtur, allt of lítil arðsemi fjárfestinga. íslendingar búa þó við miklu betri skilyrði en margar aðrar þjóðir, fengu gjöful fiskimið til tullra umráða á stjórnartíma Geirs Hallgrímssonar, eiga allt að því ónýttar orkulindir, og verkkunn- átta þjóðarinnar er ómæld. En hvers vegna eru fjárfestingarnar ekki eins arðsamar og með öðrum vestrænum þjóðum þrátt fyrir hin góðu skilyrði? Vegna þess að þær eru flestar opinberar fjárfesting- ar, beinar eða óbeinar, stjórnmála- mennirnir ráða þeim, én ekki þeir, sem reka fyrirtækin og hafa sér- þekkinguna, staðþekkinguna og verkkunnáttuna. Hin opinbera stjórn fjárfestinganna er mein- semdin, en ekki lækningin eins og Alþýðubandalagsmenn halda. Ekki er fjárfest í arðsemi, heldur atkvæðum stjórnmálamannanna, sem hafa ekki og geta sennilega ekki haft annað viðmið en endur- kjörið. Afleiðingin af hinum hæga hagvexti verður sú, ef ekki verður að gert, að þjóðarbúskapur íslend- inga verður ekki samkeppnishæf- ur, kjör lakari en á öðrum Vestur- löndum, fólk flyzt úr landi, ellefu hundruð ára tilraunin mistekst, ævintýri íslenzku þjóðarinnar lýk- ur. Sjálfstæðisbaráttunni lauk ekki 47. júní 1944, einstaklingur lýkur ekki lífsbaráttunni með öðru en dauðanum, þjóð ekki sjálf- stæðísbaráttunni með öðru en uppgjöf. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sjálfstæðisbaráttunnar. Hann er flokkur þeirra, sem ætla ekki að gefast upp. Þess vegna hefur hann tekið markvissa stefnu á framtíðina: Endurreisn í anda frjálshyggju! Skorið úr skrúfu Varðskipsmenn á Tý komu Dagrúnu ÍS 9 til aðstoðar á Ilalanum 14. marz sl„ en þá hafði trollið flækzt í skrúfu togarans. Tók það varðskipsmenn sex tíma að skera úr skrúfunni. Þessar myndir af atburðinum tók Friðgeir Olgeirsson. Brldge eftir ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Reykjavíkur Lokið er tveim umferðum í meistarakeppni Bridgefélags Reykjavíkur og er staða sveit- anna þessi: Sveit stig Hjalta Elíassonar 39 Helga Jónssonar 38 Sævars Þorbjörnssonar 16 Sigurðar B. Þorsteinss. 12 Sigurjóns Tryggvasonar 10 Þórarins Sigþórssonar -1 Næsta umferð verður spiluð miðvikudaginn 18. apríl og hefst þá keppni í 1. flokki. Undankeppni íslandsmóts í sveitakeppni 1979 Undankeppni íslandsmóts í sveitakeppni í bridge verður haldin að Hótel Loftleiðum. kristalsal, dagana 11., 12. og 13. apríl nk. 24 sveitir hafa öðlast rétt tii þátttöku. Spilað verður í 4 riðlum. Tvær efstu sveitirnar í hverjum riðli kom- ast áfram í úrsiitakeppnina sem haldin verður seinast í apríl. í undankeppninni taka þátt 11 sveitir úr Reykjavík, 4 sveitir úr Reykjanesumdæmi, 2 sveitir úr Vesturlandsumdæmi, ein sveit af Vestfjörðum, ein sveit frá Norðurlandi eystra, tvær sveitir frá Austurlandi og tvær sveitir af Suðurlandi. Einnig eiga rétt til þátttöku íslandsmeistarar frá síðasta ári, sveit Hjalta Elíassonar. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgensen. Raðað hefur verið í riðla og eru þeir þannig skipaðir: A-riðill: 1. Hjalti Elíasson Rvk. 2. Steinberg Ríkharðsson Rvk. 3. Aðalsteinn Jónsson Al. 4. Jónas Magnússon Sl. 5. Vilhjálmur Vilhjálmsson Rnes. 6. Ólafur Lárusson Rvk. B-riðill: 1. Kristján Kristjánss. Al. 2. Sævar Þorbjörnss. Rvk. 3. Ármann J. Lárusson Rnes. 4. Halldór Sigurbjörnss. VI. 5. Þorgeir Eyjólfsson Rvk. 6. Sveinn Sigurgeirss. Rvk. C-riðill: 1. Halldór Magnússon Sl. 2. Sigurjón Tryggvason Rvk. 3. Alfreð Viktorsson VI. 4. Sigfús Árnason Rvk. 5. Helgi Jónsson Rvk. 6. Oddur Hjaltason Rnes. D-riðill: 1. Albert Þorsteinss. Rnes. 2. Ingimundur Árnason Nl. 3. Óðal (fyrirl. Guðm. Péturss). 4. Kristján Kristjánss. Rvk. 5. Einar Valur Kristjánss. V.fj. 6. Þórarinn Sigþórsson Rvk. (Mótanefnd BSf). Gamalt 1 fólk gengurJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.