Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 V aldamaður í Kreml í ónáð í tilkynningu stjórnarinnar seg- ir að Ryabov hafi fengið nýtt starf þar sem nauðsynlegt sé að efla yfirráðuneytið Gosplan sem hefur yfirumsjón með öllu efnahagskerf- inu. Leonid Brezhnev forseti gagn- rýndi Gosplan fyrir sex mánuðum og sagði að það fengi aukin völd til að laga bágborinn efnahag Rússa. I Gosplan verður Ryabov annar tveggja staðgengla Nikolai Baiba- Áður en lögbirtingablað stjórn- kovs. Ryabov hefur verið einn 27 Moskvu, 9. aprfl. AP. EINN yngsti valdamaðurinn í Kreml, Yakov P. Ryabov, yfir- maður sovézka hergagnaiðnaðar- ins, var óvænt settur af í dag. Ryahov var í staðinn skipaður fyrsti aðstoðaryfirmaður ríkis- skipulagsnefndarinnar og þessi ráðstöfun er talin enn eitt dæmi um þá viðleitni að binda enda á frama efnilegra og ungra valda- manna. arinnar skýrði frá þessu í dag var talið víst að Ryabov kæmi sterk- lega til greina í mikilvæg embætti í miðstjórninni. En nú er talið að honum verði vikið úr hinni vold- ugu framkvæmdastjórn kommún- istaflokksins. valdamestu manna Sovétríkjanna og hefur staðið í tengslum við Andrei Kirilenko sem gegnir oft störfum Brezhnevs þegar hann er veikur eða fjarverandi. Þeir eru báðir frá Sverdlovsk í Úral-fjöll- r Uganda: Fjórir vestrænir blaðamenn drepnir Nairobi, 9. aprfl. AP — Reuter. UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Uganda sagði í dag, að fjórir útlendingar hefðu verið handsamaðir og skotnir til bana f Úganda og þar með virtust staðfestar fregnir þess efnis að fjórir vestrænir fréttamenn hefðu vcrið teknir af lffi. í tilkynningu ráðuneytisins sagði, að fjórir „erlendir málaliðar, einkennisklæddir og vopnaðir“ hefðu verið skotnir er þeir voru að reyna að komast inn 1 Úganda frá Kenya. Þessar fregnir komu daginn eftir, að fyrstu fréttir höfðu borizt af því, að tveir sænskir og tveir vestur-þýzkir blaðamenn hefðu verið gripnir eftir að hafa komizt inn í Úganda, sem hefur verið lokað vestrænum fréttamönnum síðan í október. Blaðamennirnir sænsku voru Karl Bergman frá Svenska Dag- bladet og Arne Lemberg frá Expressen, Wolfgang Stiens frá Stern og Hans Bollinger frá franska fréttamyndafyrirtækinu Gamma. Það voru starfsfélagar fjór- menninganna í Kenya sem fyrstir komu með fréttirnar. Þeir sögðu, að blaðamennirnir fjórir hefðu leigt sér bát sl. fimmtudag til að komast með leynd inn í Úganda yfir Viktoríuvatn. Óstaðfestar heimildir segja, að mennirnir hafi komist nálægt höfuðborginni Kampala á föstudag en verið handteknir og síðan umsvifalítið 3kotnir. Sömu heimildir sögðu, að lík þeirra hefðu verið látin liggja umhirðulaus í sólarhring eftir að þeir voru líflátnir. í fréttum helgarinnar um bar- daga í Úganda sagði að skothríð væri sem undanfarna daga umhverfis Kampala en ekki ýkja mikið inni í borginni. Þá sagði að Alsírstjórn hefði augsýnilega beitt áhrifum sínum til að fá Libyu- mennina til að draga úr stuðningi sínum við Amin. Fréttum ber ekki saman um verustað Amins forseta en álitið er að hann sé í Jinja. Ingrid Bergman Laurence Ollvier John Wayne Oscarverðlaunin afhent á morgun: F ær Ingrid Bergman Oscar í fjórða sinn? Los Angeles, 9. aprfl. Reuter. AP. ÞRJÁR KVIKMYNDASTJÖRNUR sem samanlagt eru meira en 200 ára verða að öllum líkindum mest í sviðsljósinu á morgun, þegar hin hcfðbundna afhending Oscarsverðlauna fer fram. Þessir leikarar eru þau Ingrid Bergman, Laurence Olivier og John Wayne. Ingrid Bergman er yngst þeirra þriggja, 61 árs. Taldar eru sterkar líkur á því, að hún fái Oscarsverðlaunin fyrir leik sinn í sænsku myndinni Haustsónatan eftir Ingmar Bergman. Hún yrði þá fyrsti leikarinn sem fengi þessi verðiaun fjórum sinnum. Laurence Olivier, sem er 71 árs að aldri, er í hópi þeirra karla sem líklegastir þykja til að fá Oscar fyrir beztan leik í aðalhlutverki, hann fyrir leik sinn í „The Boys from Brazil". John Wayne er jafnaldri Oli- viers. Hann mun afhenda verð- laun fyrir beztu kvikmyndina og er talið að það verði hápunktur hátíðarinnar. Wayne hefur ekki sézt á almannafæri um hríð, enda gekkst hann ekki alls fyrir löngu undir mikinn uppskurð og var meginhluti magans numinn brott vegna krabbameins. Hann hafði áður fengið krabbamein í lungu og annað lungað skorið burt og einnig var gerð á honum ekki alls fyrir löngu mikil hjartaaðgerð. Meðal mynda sem eru taldar koma helzt til greina eru „The Deer Hunters", „Heaven Can Wait“, „Coming Home“, „Mid- night Express" og „An Unmar- ried Woman". Meðal karla sem líklegir eru til að koma sterk- lega til greina auk Oliviers eru John Voight fyrir „Coming Home“, Robert de Niro fyrir „The Deer Hunters" og Warren Beatty fyrir „Heaven Can Wait“. Aðrar leikkonur en Ing- rid Bergman sem sagðar eru koma til greina eru Jill Clay- burgh fyrir „An Unmarried Woman", Jane Fonda fyrir „Coming Home“, Geraldine Page fyrir „Interiors" og Ellen Burstyn fyrir „Same Time Next Year“. Schmidt skelfingu lostinn yfir Carter New York, 9. aprfl. Reuter. KANSLARI Vestur-Þýzkalands, Helmut Schmidt, er óttasleginn vegna frammistöðu Carters Bandaríkjaforseta sem forystu- manns Atlantshafsbandaiagsins, ingar vestur-þýzku stjórnarinn- ar. Þetta kemur fram í nýjustu útgáfu vikuritsins „Time“. „Forsendur hins tortryggnislega andrúmslofts var sú ályktun „Hendur mínar eru ekki ataðar blóði 99 Teheran, 9. aprfl. AP. AMIR Abbas Hoveida fyrrverandi forsætisráðherra, sem byltingar- dómstóil dæmdi til dauða á laugardag og lét taka af lifi skömmu síðar, varð glaðlegur og brosmildur stjórnmálaleiðtogi en að dómi byltingardómstólsins var hann tákn um allt það sem írönsku þjóðinni mislikaði hjá keisarastjórninni. „Hendur mínar eru ekki atað- Hoveida er léiddu til þess að ar blóði eða peningum," sagði Hoveida dómurum sínum 15. marz, síðast þegar hann kom fram opinberlega. „Eg er kom- inn af trúuðu fólki og hef alltaf staðið við trúarlegar skyldur mínar. Eg hef meira að segja farið til Mekka í pílagrímsferð og ég á afar trúaða gamla móður." Hoveida var 57 ára gamall, menntaður í Frakklandi og tal- aði reiprennandi ensku, frönsku, þýzku og arabísku. I augum margra var han.i tákn um sókn írans frá fátækt til velsældar vegna olíuauðs landsins. Hann var forsætisráðherra í 12 ár, frá 1965 til 1977, eða bæði fyrir og eftir hinar miklu hækkanir sem urðu á olíuverðinu 1973 er færðu Iran gífurleg auðæfi. Notkun þessa auðs hefur verið grund- völlur ásakananna á hendur hann var dæmdur til dauða. Hann var sakaður um að hafa gert slæma lánasamninga sem hafi verið hagkvæmari fyrir Bandaríkin og önnur erlend ríki en Iran og stinga fé í eigin vasa. Hann var einnig sakaður um heróínsmygl og njósnir í þágu Bandaríkjanna „zionisma". Auk þess var Hoveida ákærð- ur fyrir hlutdeild í morðum Savak, leynilögreglu keisarans, en hann sagði dómurum sínum: „Ef þið finnið eitt einasta skjal sem sannar að forsætisráðherr- ann var viðriðinn skal ég sam- þykkja það og segja ekki orð í viðbót." Hann sagði áherzlu á að þegar fangelsi voru opnuð upp á gátt eftir byltinguna hefði hann get- að flúið land, en hann benti á að hann hefði gefið sig fram við byltingardómstóla Khomeinis af fúsum vilja. Hann virtist haldinn miklu sjálfstrausti í réttarhöldunum og kvaðst þess fullviss að hann væri ekki sekari af ákærunum á hendur honum en aðrir ráða- menn í Iran á dögum keisarans. „Ef þetta kerfi var óguðlegt þá var ég ekki einn,“ sagði hann. „Þeir voru miklu fleiri, þar á meðal menn sem sátu ekki í ríkisstjórninni.“ Hoveida var eindreginn stuðningsmaður keisarans og ýmsir íranir kenna honum um að hafa hvatt keisarann til að gera landið að meiriháttar herveldi í stað þess að einbeita sér að innanlandsmálum. Því var einnig haldið fram að Hoveida hefði gert írönsku ríkisstjórnina að hækju Banda- ríkjanna og annarra vestrænna ríkja. Hoveida vann einnig að endurskipulagningu Rastakhiz (Endurreisnarflokksins) sem keisarinn vonaði að gæti að lokum sameinað alla írönsku þjóðina. Fyrirhugaðar aðal- þrátt fyrir gagnstæðar yfirlýs- Schmidts að Carter hefði komið klaufalega fram við Moskvuyfir- völd er snurður hlupu á þráðinn í samskiptum Bandaríkjanna og So- vétríkjanna út af mannréttindum og Kína. Fann Schmidt sig í auknum mæli knúinn til að standa vörð um slökunastefnuna," segir í vikuritinu. Áhyggjur Vestur-Þjóð- verja, segir blaðið, hafa gert að verkum að þeir hafa leitað inn á sjálfstæðari, skeleggari brautir í alþjóðastjórnmálum „sem banda- rískir ráðameiin hafa ennþá ekki skilið". Samkvæmt frásögn „Time“ hef- ur nú í fyrsta skipti gætt orðróms og vísbendinga í Washington í þá átt að vissir ráðherrar vest- ur-þýzku stjórnarinnar daðri nú við hlutleysishugmyndir í því skyni að stofna til sérstakra tengsla við Moskvu. Segir blaðið það vera öðru fremur vandamál Vestur-Þjóðverja að jafna vogar- skálar milli slökunarstefnu gagn- vart Sovétríkjunum annars vegar og traustlegra varna í þágu Atl- antshafsbandalagsins hins vegar. bækistöðvar flokksins, gulur skýjakljúfur með þyrluflugvelli efst, standa hálffullgerðar í miðri Teheran, minnismerki um ófullgerða drauma keisarans. Hoveida hafði meistarapróf í stjórnmálavísindum og hag- fræði frá Brússel-háskóla og doktorspróf í sögu frá háskólan- um í París. Hann gekk í utanríkisþjónustuna 22 ára gamall og starfaði fyrst sem blaðafulltrúi í París og síðan í sendiráði Irans í Vestur-Þýzka- landi 1947—‘51. Hann aflaði sér frekari reynslu í alþjóðamálum á árunum 1952—‘58 þegar hann var háttsettur starfsmaður í flóttamannanefnd SÞ í Genf og var forstjóri íranska olíufélags- ins 1958. Flugræningi dæmdur UelBÍnki, 9. aprfl. AP. AARNO Lamminparras, 37 ára gamall Finni, sem rændi flugvél í eigu Finnair í innanlandsflugi í septembermánuði sl., var í dag dæmdur í sjö ára fangelsi. Auk þess var hann dæmdur til að greiða í bætur um tuttugu og fimm milljónir króna. Lamminparras var vopnaður skammbyssu og hafði haldið 49 manns í gíslingu í átján klukkustundir, þegar hann sleppti þeim og hafði þá engum verið gert mein. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.