Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1979 13 KSSR.JWS BANKASTR/FTI 7 SIMI 29122 AÐALSTRÆTI 4, SiMI 15005. Höfuðpersónan er Tevye mjólk- urpóstur. Eins og segir í leik- skrá, þá er hann í rauninni harmleikspersóna. „Lífið er honum þungbært og raunum þess tekur hann ekki létt. En Scholom Aleichem ljær honum opnar sjónir, sem greina þann broslega tvískinnung, sem stjórnar tilveru hans, andstæð- ur þess sem er og hins sem ætti að vera.“ Þennan sanntrúaða Gyðing, sem rökræðir þá hluti gjarnan við skaparann með ómótstæðilegum hætti, leikur Sigurður Hallmarsson af maka- lausri snilld. Það er ekki of fast að orði kveðið að segja, að hann gefi sig verkinu á vald, svo að fjölmennið á sviðinu nýtur hans sem bakhjarls, sækir þrótt til hans. En styrkur Sigurðar sem leikara er m.a. fólginn í því, að hann forðast allan stjörnuleik, honum tekst jafnvel að hverfa í hópinn þegar við á, gætir þess að stela aldrei senu frá öðrum og þá allra síst þeim, sem aldrei hafa á svið komið fyrr. Eigi að síður finnur maður, að töfrar hans sem listamanns setja sterkan blæ á sýninguna í heild. Hárnákvæm svipbrigði, öruggar hreyfingar, framsögn og síðast en ekki síst söngur eru með þeim glæsibrag, að seint mun mér úr minni líða. Sigurður hefur helgað leiklistarlífi á Húsavík krafta sína í nær þrjá áratugi og ásamt með hæfileika- mönnum eins og Ingimundi Jónssyni unnið hvert afrekið á fætur öðru á þröngu leiksviði í gömlu húsi. Enginn, sem sá, gleymir samleik þeirra í Herr Puntila und sein Knecht Matti eftir Bertold Brecht. Síðar á þessu ári verður Sigurður fimmtugur og því verður ekki annað sagt, að en Fiðlarinn sé verðug sýning til heiðurs þessum ágæta listamanni á Sigurður Hallmarsson (Tevye mjólkurpóstur) og María Axfjörð (Chava, ein fimm dætra hans). merkum tímamótum. 22 leikar- ar koma fram í sýningunni og auk þess kór, dansarar og hljómsveit. Það yrði of langt mál, ef gefa ætti hverjum manni einkunn og ekki ástæða til þess. En mér kemur í hug, af því að hér að framan var nefndur einn af frumkvöðlum neorealismans í ítalskri kvikmyndagerð, Fellini, að raunar fara forráðamenn Leikfélags Húsavíkur eins að og þeir ítöksku snillingar, þegar þeir velja í hlutverk. Þeir fara þá um bæinn og sjá út persónur, sem falla inn í hlutverkin, en um það er ekkert hirt, hvort þær hafi stigið á fjalirnar fyrr. Þannig mun Hrefna Jónsdóttir, sem leikur Goldu, konu Tevyes, aldrei hafa komið á leiksvið áður. En hún býr yfir þeirri reisn og rödd, sem hæfa hlut- verkinu og áhorfendur efast ekki um að þarna er móðir dætranna fimm og hin ákveðna eiginkona Tevyes. Og dæturnar eru fallegar stúlkur og frjáls- mannlegar með góðar söngradd- ir. Þegar talið er saman, þá munu einsöngvarar vera 16 að tölu og enginn fer út af laginu. Margir hafa góðar raddir og eru söngvanir. Ingimundur Jónsson sem leik- ur ekki að þessu sinni, hefur æft sönginn, stjórnar honum og er jafnframt einn af hljóðfæraleik- urunum. Er þar vel á haldið, svo hugþekk lög Jerry Bock njóta sín og eru í samræmi við svip sýningarinnar. Einari Þorbergs- syni, sem leikstýrir þessari viða- miklu sýningu hefur tekist frá- bærlega vel að skipuleggja hana við erfiðar aðstæður, þar sem leikarar, sem biða innkomu, verða að raða sér í mjóan stiga að tjaldabaki, en hann liggur niður í búningsherbergin á neðri hæð hússins. Einar er vel menntaður leikhúsmaður, hefur stundað nám í listdansskóla Þjóðleikhússins í níu ár og auk þess lokið prófi frá Leiklistar- skóla sömu stofnunar. Þótt hann sé ungur maður, ekki þrítugur, þá er Fiðle- 'nn 15. leikritið sem hann lt :stýrir. Það fer ekki á milli mála, að þáttur dansarans nýtur sín best í verki Einars. Hann hefur svo sannarlega kennt fólkinu að hreyfa sig og dansarnir eru að mestu leyti samdir af honum með hliðsjón af aðstæðum. Það er ótrúlegt, að svo stór hópur skuli geta hreyft sig svo létti- lega og óhindrað á þessum litla fleti og áhorfendum finnst allt í einu eins og húsið hafi stækkað. T.d. er flöskudansinn í brúð- kaupinu framinn af furðulegri íþrótt. Eg vék fyrr að þing- eyskum félagsanda; en ljóst er, að í ekki stærra bæjarfélagi er varla hægt að ná saman sam- stilltum hópi til að þjálfa svo stór hópatriði, nema félags- þroski sé almennur og viljinn mikill. Að tjaldabaki starfar og stór hópur, sem ekki kemur fram á sjónarsviðið, en er log- andi af áhuga og fórnar tóm- stundum sínum af fúsleik og gleði, til þess að listin fái notið sín. Öll stækka þau Húsavík. Óhætt er að óska Húsvíkingum til hamingju með það, að leik- stjórinn skuli setjast þar að og hygg ég, að Einar hafi þegar gert sér grein fyrir þvi, að hann hafi fundið fyrirheitna landið við Skjálfanda. — Sigurður Hallmarsson er ekki einungis leikari, heldur er hann og lið- tækur með pentskúfinn og prýða myndir hans fjölmörg heimili hér á Norðurlandi. Kemur það því gjarnan í hans hlut að sjá um gerð leikmyndar. Það hefur hann gert í þetta sinn og er ósvikin „chagölsk stemming" yfir sviðinu, en sagt er að myndir málarans March Chagall hafi öðru fremur verið kveikjan að því að Joseph Stein valdi ævintýrið um Tevye mjólkurpóst og gerði söngleik. — Ljósameistarar stóðu sig með sóma. Sannfærður er ég um það, að enginn mun sjá eftir því að eyða kvöldi í Leikhúsi Húsavíkur og það hafa margir lagt á sig erfitt ferðalag af minna tilefni, en þessari ágætu sýningu. Að leiks- lokum er ekki fráleitt að hrópa hrifinn eins og fyrrum yfirvald Þingeyinga og leiklistarfrömuð- urinn, Júlíus Hafstein, þegar hann sá gott skot hjá ungum Húsvíking, sem hitti beint í mark: „Bravó! Capó!“ FYRIRFERÐALITIL EN FULLKOMIN Olympia SGE 45 rafritvélin hefur kosti stórrar skrifstofuvélar þótt hún sé bæði minni og ódýrari. Fram og SBM) aftur dálkaval, 44 lyklaborð, 8 endurtekn - j9r ingalyklar, hálft stafabil til »r. 3B leiðréttinga o.m.fl. Rétt vél fyrir þann sem hefur lítiö pláss en mikil verkefni. Leitió nánari upplýsinga. Olympia Intemational KJARAIM HF skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, sími 24140 Lelkllst eftir BOLLA GÚSTAVSSON í LAUFÁSI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.