Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 pinrgmn Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveínsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fróttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiðsla Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aöalstrmti 6, sími 22480. Askriftargjald 3000.00 kr. á mánuói innanlands. 1 lausasölu 150 kr. eintakió. Kirkjuritið og Khomeini Morgunblaðið tekur ekki þátt í deilum innan kirkjunnar um túlkun trúarlegra atriða, en reynir að styðja við bakið á kirkju og kristni í forystugreinum sínum. Þar — og einungis þar — birtist afstaða Morgunblaðsins, en ekki í einstökum greinum eða fréttum, sem blaðið flytur lesendum sínum, eins og hver annar fréttamiðill. Þetta vita allir orðið nema rit- stjóri Kirkjuritsins, að því er virðist. Um það getur blaðið ekki orða bundizt lengur, enda ekki ástæða til. En áður en að því er vikið er ástæða til að benda á margyfirlýsta stefnu Morgun- blaðsins í málefnum kirkju — og kristni og hefur hún ekkert breytzt frá fyrsta fari. Blaðið er skjöldur kristindóms á íslandi. Nú nýverið var t.a.m. rætt í Reykja- víkurbréfi um kristindómskennslu í skólum, m.a. Kennaraháskólan- um, og bent á, að undirstöður íslenzks nútímaþjóðfélags væru kirkja, heimili og skóli — og lögð áherzla á yfirburði kristins boð- skapar. En allt slíkt virðist fara framhjá ritstjóra Kirkjuritsins. Augu hans eru haldin og hann sér ekkert nema það, sem fellur inn í „kirkjupólitíska" einsýni hans. Það virðist þurfa kraftaverk til að augu hans og sálufélaga hans fái sýn. En vonandi eru þeir ekki margir, svo hættulegt sem það gæti orðið kirkju og kristni til frambúðar. An kristins grundvall- ar í þúsund ár brystu stoðir menningar okkar. Vonandi koma hófsamir og sannkristnir kenni- menn í veg fyrir það. Af þeim er sem betur fer nóg innan kirkju og kristni. Kirkjan á ekki að vera dómstóll, heldur rúmgóð stofnun, eins og hún hefur verið. Og undir styrkri forystu biskupsins, herra Sigurbjörns Einarssonar, hefur hún gegnt ágæta vel mikilvægu hlutverki sínu á erfiðum tímum, enda er öðru fremur nauðsynlegt að efla trúarþrek í landinu á þessum guðleysis- og efnishyggju tímum. En ofstækið kemur úr einni átt og þaðan, sem sízt skyldi — frá Kirkjuritinu. Hefði ekki frekar verið ástæða til, að þetta opinbera málgagn Prestafélags íslands fjallaði ræki- lega um félaga Jesúm, eins og Morgunblaðið gerði, í stað þess að liggja hundflatt fyrir „félögum" þeirrar bókar og málgagni komm- únista, Þjóðviljanum. Það má með sanni segja, að skammt sé milli ólíkra öfga. Fullyrt er, að það hefti Kirkju- ritsins sem hér er til umræðu af gefnu tilefni, sé 3. hefti 1978. Eitthvað er það nú síðbúið. En af kynnum við ritstjórann mætti ætla, að þarna hafi orðið prent- villa. Líklega er þetta hefti frá 1678(!) En hversu lengi ætlar íslenzk kirkja — og klerkastétt landsins að láta það óátalið, hvernig séra Ouðmundur Óli Ólafsson stjórnar Kirkjuritinu í nafni þeirra aðila, sem bera ábyrgð á því ofstæki, reiði, heift og öfgum, sem ein- kenna þetta aðalmálgagn presta á Islandi? Ef enginn ritstjórnar- manna mótmælir öfgunum, verður að líta svo á, að sú rödd, sem þar heyrist úr heilögum barka þessa guðs útvalda ritstjóra, túlki skoð- un þeirra, sem þessu riti stjórna og á því bera fulla ábyrgð. Einatt hefur verið vegið að Morgunblaðinu og fleiri aðilum í riti þessu, sem virðist ekki skilja neitt annað en ofstækisfullar kröf- ur um einhverja úrelta „kirkju- lega“ auðsveipni, sem er tíma- skekkja hér á landi, þótt hún sé grundvöllur múhameðstrúarríkja á borð við íran. Þar ríkir trúarof- stæki, sem við höfum verið bless- unarlega laus við, nema þá helzt í Kirkjuritinu upp á síðkastið. En það má ritstjóri þess vita, að ofstæki hans hefur öfug áhrif, enda ókristilegt og í engu sam- ræmi við kenningar meistarans um umburðarlyndi og náungakær- leika. Andi Khomeinis svífur aftur á móti yfir vötnum Kirkjuritsins, ef vötn skyldi kalla. Síðasta hald- reipi ritstjórans er sú fullyrðing, að í Morgunblaðinu tróni „trúar- afturhald", þrátt fyrir „góð orð um betrun", eins og komizt er að orði. Þessi orð og þvílík eru bergmál aftan úr forneskju. Það er engu líkara en Khomeini sé hættur að stjórna islömskum ofstækistrúar- mönnum, sem nú tróna í Iran og hafi brugðið sér út hingað til íslands og stjórni nú guðlegum fjaðrapenna Guðmundar Óla. En það hefur aldrei hvarflað að ritstjóra Kirkjuritsins að finna orðum sínum stað. I Morgunblað- inu birtast margvíslegar skoðanir, einnig um kristin málefni og kirkju landsins og hefur hún ávallt átt — og mun eiga — skjól í blaðinu, hvað sem Khomeini Kirkjuritsins líður. Hann getur engan fælt frá Kristi. Kirkjan má þakka guði fyrir það. Ritstjóri Kirkjuritsins er ekki umburðarlyndur maður, heldur þröngsýnn, fullyrðingasamur og stóryrtur. í Fjallræðunni segir: Sælir eru hógværir, því að þeir munu landið erfa. Ritstjóri Kirkjuritsins og öfga- sinnaðir sálufélagar hans munu þvi ekki landið erfa, menn sem sízt af öllu eru hógværir. Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs synir kallaðir verða. Þeir sálufélagar verða því ekki kallaðir Guðs synir, menn sem fara með ófriði á hendur bræðrum sínum. En kannski verður himnariki samt þeirra, þrátt fyrir allt, því að í Fjallræðunni segir enn: Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki. Megi Guðs kristni vaxa og bless- ast í landinu um ókomnar aldir, þrátt fyrir reiðina og ofstopann í Kirkjuritinu. Megi ábyrgðarmenn þess og ritstjórn minnast orða Jóns biskups Vídalíns, sem einnig kom við sögu Skálholtsstaðar: „Hvernig fékk Jóab metorðum sínum haldið, nema með reiðinni, og var það honum þó ekki nema stundarfriður." Ennfremur: „En sá, sem reiður er, hann er vitlaus." Þá varar Jón biskup við því, að menn búi lengi að heiftinni, enda sé hún „eitt andskotans reiðar- slag“. Reiðin snýst einatt upp í hatur, og sá sem reiðist, gætir ekki tungu sinnar. Ekki hefur Jón biskup grunað, að sjálft Kirkjurit- ið ætti eftir að verða ein átakan- legasta sönnun þessara fullyrð- inga hans. Og þar sér þess jafnvel merki, að reiðin „verður að hatri í mannsins hjarta og súrnar þar inni“. En kæru guðsmenn, sem berið ábyrgð á reiði, öfgum og ofsa Kirkjuritsins, þér sem virðist ekki skilja umburðarlyndi, en ræktið ofstækið í anda Khomeinis og miðaldanna, minnist þeirra fylgi- kvilla reiðinnar, sem Jón biskup Vídalín telur upp, s.s. drambsemi og þrætu. Og til þess nú að reiðin haldi ekki áfram að úldna í hjört- um yðar, þá látið eigi sólina undirganga yfir reiði yðar. Farið að boði „hins gamla Platonis, er hann bauð þeim, sem reiður væri, að skoða sig, á meðan hann væri hvað grimmastur, og mundi hann hræðast sjálfan sig“. Lítið nú í þennan spegil Kirkjuritsins og hræðist það, sem þar blasir við. Kirkja og kristni eiga ekki skilið svo drambsaman spéspegil þeirra kenninga, sem Kristur boðaði. Það getur varla verið eftirsókn- arverðasta hlutskipti prests að „eiga góða heimvon" fyrir þá verðleika eina „að vera fátækur í anda“. Megi Kirkjuritið blómgast á öðrum forsendum. Og megi sá beiski reiðibikar Guðmundar Óla Ólafssonar verða tekinn frá kristnu fólki á Islandi. Hann færir engin fjöll úr stað. Fyllið heldur Kirkjuritið af þeim kærleika, sem trúir, vonar og umber. Krístrún sökk á nokkrum mínútum VARÐSKIPIÐ Ægir bjargaði þremur skipsbrotsmönnum úr gúmbjörgunarbátum á bátnum Kristrúnu frá ísafirði, en báturinn sökk á Faxaflóa er hann var á leið frá ísafirði til Reykjavíkur. Gerðist það síðdegis á laugardag og náðu varðskipsmenn á staðinn hálfri klukkustund eftir að Kristrún sökk. Báturinn var gerður út á rækju í vetur. — Þetta gerðist einhvern tíma milli hálfþrjú og þrjú, sagði Hörður Bjarnason skipstjóri í samtali við Mbl., en það kom alveg skyndilega heiftarlega mikill leki að bátnum. Við höfðum ekki tíma til að gera neitt nema ræsa dælur, en við höfðum fengið með okkur varadælu til ferðarinnar. Tíminn var annars enginn og við urðum að fara strax í bátana og sökk Kristrún á mjög skömmum tíma. Hörður sagði að þeir hefðu verið þrír um borð, vélstjóri og matsveinn ásamt honum og hefðu þeir verið á leið með bátinn til Reykjavíkur í viðgerð eftir að hann strandaði í vetur. Skipherra á Ægi var Helgi Hallvarðsson. Sjópróf verða í málinu í dag. Gúmbátarnir voru teknir um borð í varðskipið Ægi sem kom á staðinn um hálfri klukku- stund eftir að Kristrún sökk. — Ljósm. I.K. Skipverjar af Kristrúnu við komuna til Reykjavíkur. Ljósm. Emilía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.