Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 Ólafur G. Einarsson, alþingismaður: Sterkari ríkisafskipti — veikara atvinnulíf Ilér fara á eftir nokkur efnisatriði úr framsögu ólafs G. Einarssonar, alþingismanns. fyrir minnihlutaáliti fjárhagsnefndar um frumvarp forsaetisráðherra í neðri deild Alþingis í gær. Stiklað er á stóru í ræðu þingmannsins og ýmsu sleppt rúmsins vegna í blaðinu, sem hafa verður í huga við lesturinn. Nýju vinnubrögðin — óvirðing við Alþingi ólafur G. Einarsson (S) mælti í gær fyrir nefndaráliti minni- hlutans í fjárhags- og viðskipta- nefnd neðri deildar um efnahags- frumvarp forsætisráðherra. Hann sagði fjárhagsnefndir beggja deilda hafa haldið marga fundi um frumvarpið. Fulltrúi hinna „nýju vinnubragða", Karl Steinar Guðnason (A), hefði sýnt nefnd- inni og Alþingi þá óvirðingu að mæta aðeins á einum hinna sam- eiginlegu nefndafunda. Hann hefði metið meira að þinga úti í bæ með ónafngreindum félaga, með viðkomu í pylsuvögnum, sem frægt væri orðið. Fyrir þessum vinnu- brögðum standa þeir, sem boðuðu siðvæðingu í störfum þingsins, sagði Ólafur. Efnisatriði frumvarpsins ÓIGE sagði frv. forsætis- ráðherra hafa tekið veigamiklum breytingum í sáttameðferð hinna stríðandi afla í ríkisstjórninni en ekki í verðhjöðnunarátt. Fyrsti kaflinn væri í engu breyttur en hann væri nánast stefnuyfirlýsing og óþarfur sem lagaákvæði. Öðr- um kafla væri hins vegar breytt í verulegum atriðum. Kjaramála- ráði væri kippt burt en meira og minna óljós ákvæði um samráð aðila vinnumarkaðar sett í staðinn. Þessum kafla hefur Vinnuveitendasambandið mót- mælt og telur hann útiloka raun- verulega aðild þess að umfjöllun um Kaup- og kjaramál á þessum vettvangi. Þriðja kaflanum um ríkisfjármál var einnig breytt. Allur máttur hafi verið fjarlægður úr 8. gr. Nú standi þar „tekið til endurskoðunar" og „kannað að hve miklu leyti" og annað álíka út í loftið, ásamt fyrirvörum í allar áttir. Endurskoðanir, sem um sé rætt, megi framkvæma án sér- stakra lagaákvæða. Fimmti kaflinn sé bæði nýr og óskýr. Hann fjalli um kerfi áætlana, sem sé svo flókið, að óframkvæmanlegt sé í raun. Ef þessar áætlanir eigi að vera vísbendandi, séu laga- ákvæðin óþörf, en ef þau eigi að vera fyrirskipandi sem margt bendi til, séu þau of óljós og óskýr. Aætlanagerð af þessu tagi á sér ekkert fordæmi í nágrannalöndum okkar, sagði hann. Sjötti kaflinn, um peninga- og lánamál, hefur breytzt. Bætzt hefur inn í hann veikjandi máls- liður í 30. gr., sem gerir ákvæðin um aukningu peningamagns nánast marklaus. Annars eru í kaflanum stefnumið, sem annað tveggja er að finna í Seðlabanka- lögum eða stjórnin getur sett sér án lagasetningar. Eina ákvæðið, sem lagasetningu þurfti um, heimild til aukinnar bindingar, hefur verið fellt niður úr upphaf- legum drögum. Sjöundi kaflinn um verðtryggingu sparifjár og láns- fjár er óbreyttur. Þessi kafli mun saminn í Seðlabanka. Kaflinn sem heild er allflókinn og hefði þurft að vera einfaldari. Ólafur vitanði til umsagnar Vinnuveitendasam- bandsins varðandi kaflann um vinnumarkaðsmál, m.a. til- kynningarskyldu með 2ja mán. fyrirvara um samdrátt í starfsemi, sem væri óframkvæmanlegt, því enginn sæi fyrir um aflabrögð eða ýmsa aðra þætti, sem sveiflum yllu í atvinnuháttum okkar. Verðlagskafli frumvarpsins Ólafur deildi hart á allt fráhvarf frá ákvæðum nýrra laga um verðlagsmál, sem taka ættu gildi síðar á þessu ári. Vitnaði hann til orða verðlagsstjóra á fundi nefndarinnar. Orðrétt sagði hann: Hver hefur reynsla okkar orðið af slíkum afskiptum ríkisvaldsins af verðákvörðunartöku. I stuttu máli hefur reynslan orðið sú, að afskipti ríkisvaldsins hafa orðið heimil á eðlilega verðmyndun, verðákvarðanir hafa dregist og jafnvel verið orðnar óraunhæfar þegar þær loksins hafa komið. Við höfum dæmi um, hvernig pólitísk afskipti hafa á klaufalegan hátt sett ýmsar afgreiðslur í hnút. Verðlagsstjóri hefur gert grein fyrir hvernig komið er fyrir inn- flutningsversluninni útseldri vinnu iðnmeistara og sumra iðn- fyrirtækja en á þetta er ekki hlustað. Það er sorglegur mis- skilningur ríkisstjórnarinnar, að gleyma því að verðlagsyfirvöld eru að fást við afleiðingar en ekki orsakir og að það dregur ekki úr verðbólgunni þótt einstakir ráð- herrar og síðan ríkisstjórn eyði dýrmætum tíma sínum í að ræða verðhækkanir. Störf verðlagsnefndar felast fyrst og fremst í því að fást við afleiðingar af gerðum, sem þegar eru orðnar að staðreyndum. Nefni ég sem dæmi' launahækkanir, erlendar verðhækkanir, gengis- fellingar, gengissig, vaxtahækkan- ir og fleiri orsakir, sem óhjá- kvæmilega hafa áhrif til hækkun- ar á verðlagi. Nefndinni er ætlað að veita nauðsynlegt aðhald til þess að hamla gegn því að umræddar kostnaðarhækkanir fari meira út í verðlagið en brýn nauðsyn krefur. A hinn bóginn er það ekki nema að mjög litlu leyti á valdi verðlags- nefndar eða annarra verðlagsyfir- valda að vega að sjálfum rótum verðbólguvandans, sem vitaskuld er mest aðkallandi úrlausnarefnið. Það verkefni er að mestu leyti á valdi allt annarra aðila í þjóð- félaginu en verðlagsyfirvalda að leysa. Samkv. lögunum nr. 56/1978, var ákveðið að verðlagsráð starf- aði á faglegum grundvelli óháð geðþóttaákvörðunum ríkisstjórn- arinnar. Mér sýnist með þeim breytingum á þeim sem nú á að fara að samþykkja eigi að halda áfram þessum pólitísku afskiptum af störfum verðlagsráðs. Þessu er ég algjörlega andvígur og tel að það standi þeirri ríkisstjórn nær sem lögbundið hefur 40% verð- bólgu á þessu ári, að ráðast ein- göngu að orsökum þeirrar verðbólgu, í stað þess að krukka á handahófskenndan hátt í einstak- ar verðákvarðanir, sem neytendur verða síðan að gjalda í hærra vöruverði. Niðurstöður • I sem stystu máli sagt má segja, að fyrstu sex kaflar frumvarpsins séu með öllu óþarfir. Þar er um að ræða atriði, Sem þegar eru fram- kvæmd eða unnt er að framkvæma án lagasetningar og um er að ræða hreinar stefnuyfirlýsingar, sem lagaákvæði eiga ekki við um. Það má raunar segja, að með þessum ákvæðum, í þessum köflum og raunar ýmsum fleirum sé verið að súrra saman stjórnarsamstarfið, setja í lög loforð um, að þetta og hitt skuli gert og manni sýnist, að lítið vanti annað heldur en refsi- ákvæði í frv. um refsingar á hendur þeim stjórnarliðum sem víkjast undan því að standa við það, sem þetta frv. setur á loforða- listann. • I öðru lagi má nefna það, að nauðsynlegt er að endurskoða Ólafur G. Einarsson. lögin frá 1966 um verðtryggingu. Það hefði bezt verið gert með sérstakri lagasetningu um verðtryggingu og frágangur VII. kaflans um verðtryggingu eins og hann er nú er að ýmsu leyti mjög varasamur. • í þriðja lagi nefni ég, að um verðbætur á laun, sem VIII. kafl- inn fjallar um, þarf nýja laga- setningu, ef á að ákveða verðbætur með lögum. Hin leiðin er þó einnig til, að verðbætur ákveðist með nýjum samningum á milli aðila. • í fjórða lagi má nefna, að kaflinn um vinnumarkaðsmál, IX: kaflinn, er nýjung, sem orkar hins vegar mjög tvímælis. Miklu eðli- legra væri að setja sérstaka lög- gjöf um þessi mál heldur en að meðhöndla þau sem hluta af fjöl- þættri löggjöf. I fimmta lagi nefni ég svo kaflann um verðlagsmál, sem þrátt fyrir breytingar koll- steypir þegar samþykktum lögum um verðlagsmál. Eðlilegast hefði verið að breyta þeim lögum sér- staklega, ef vilji er fyrir hendi um það. • Og í sjötta lagi nefni ég svo það, sem segir um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins í XI. kaflanum. Hann felur í sjálfu sér ekki í sér neina marktæka breytingu frá núverandi lögum, heldur stefnu- mið. Og svo að því er segir um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins eða að því er hann snertir er bersýnilega um mikilvægar nýjungar að ræða og þess vegna nauðsynlegt að endurskoða sjálf Lögbundin 40% verðbólga 1979 lög sjóðsins eins og raunar er gert ráð fyrir í frv. og hafa um það samráð við samtök sjómanna. Gjaldþrot stjórnarstefnu Það er býsna einkennilega komið fyrir íslenzkri verkalýðs- hreyfingu, þegar hún gefur út yfirlýsingar í síbilju um það, að núvqrandi ríkisstjórn megi ekki fara frá vegna þess að hún hafi verið mynduð til þess að tryggja hagsmuni verkalýðshreyfingar- innar. Þáð skiptir ekki máli sem sagt, þótt ríkisstjórnin vinni þvert gegn því, sem hún hefur heitið þessum sömu aðilum, hún á bara að sitja. Það er ekki deilt um það lengur, hvort fremja eigi kauprán, það er deilt um, hversu mikið það eigi að vera. Og raunar hillir nú undir samkomulag í þeirri deilu. Þetta frumvarp er annars sönnun fyrir gjaldþroti þeirrar stefnu, sem ríkisstjórnin hóf störf sín með. Hún byrjaði á því að hækka laun síðan lækkaði hún þau aftur og dró úr vísitölugreiðslun- um. Niðurgreiðslur voru auknar fyrst í stað, nú er dregið úr þeim í áföngum. Skattheimtan var aukin strax á fyrstu dögum stjórnarinn- ar og við það stefnumið er hins vegar fyllilega staðið og bætt raunar sífellt við. Þetta frumvarp stefnir frjálsu athafnalífi í meiri hættu en áður hefur verið gert. Það gerist með ákvæðum frumvarpsins um aukin ríkisafskipti af atvinnulífinu, fyrirskipandi áætlunargerð og afskiptum ríkisstjórnar af verðlagsmálum. Sá vottur af sam- ræmdri stefnu í efnahagsmálum, sem fannst í fyrri frumvarps- drögum, hefur verið úr lagi færður með veikara orðalagi í ýmsum liðum. Ríkisstjórn, sem er sjálfri sér sundurþykk, getur ekki fram- fylgt heillegri stefnu í efnahags- málum, ef slík stefna væri þá til. Það skiptir þá ekki máli hvaða lagaákvæði kunna að verða sett um slíka stefnu, henni verður aldrei framfylgt. Þetta frumvarp, ef að lögum verður, er þess vegna ekki líklegt til að færa okkur nær því marki að sigrast á verðbólgu eða auka jafnvægi í efnahagsmál- um og auka hagvöxt. Það eykur hins vegar ríkisafskiptin og miðstýringuna og grefur undan frjálsu athafnalífi. Það er svo í samræmi við þá stefnu stjórnar- flokkanna að skilja eftir sig sterkari ríkisafskipti en veikara atvinnulif. Minni hluti nefndarinnar flytur engar breytingartillögur. Slíkt er tilgangslaust, þar sem stjórnar- flokkarnir hafa þegar ákveðið að samþykkja frumvarpið eins og það er komið frá hv. Ed. Eins og hér hefur komið fram, hafa þó ein- stakir stjórnarliðar fengið heimild til þess að greiða atkvæði gegn einstaka greinum frv. Það gera þeir til þess að sýna sjálfstæði sitt og flokks síns gegn kaupráns- liðunum. Aðrir munu svo ekki tjá sig. Þeir hafa þegar gert það í dagblöðunum og eru ekkert að hætta á það hér í þinginu, þar sem hér eru nú viðkvæmir tímar og líf stjórnar- innar hangir á bláþræði. Egili Þorfinnsson: Aróður Þessa dagana rignir yfir mig alls konar sorpritum, stórum og smáum frá herstöðvaandstæðing- um sem innihalda gamla úrelta blaðrið „Island úr Nato herinn burt“. Þessi skrípaleikur hefur nú staðið í 30 ár, og þeir virðast ekkert hafa þroskast þessi 30 ár, þeir halda barnaleiknum áfram. Það er eins og þeir hafi gaman af því að hræða fólk með alls kyns sögum um kjarnorkusprengjur og álika þvættingi og alltaf minnkar hópurinn, sem leggur sig niður við að hlusta á þá, sem betur fer. Það er eitt sem hefur alltaf valdið mér miklum heilabrotum. Herstöðvaandstæðingar tala um herstöðvaandstæðinga kapitalistana í Sjálfstæðisflokkn- um og auðmagnið frá Bandaríkj- unum sem sé notað til alls konar landráðastarfsemi. En hvaðan kemur auðmagnið, sem fjármagn- ar áróður herstöðvaandstæðinga? Eg held að það séu fá félög sem stæðu fjárhagslega undir svona gegndarlausum áróðri eins og herstöðvaandstæðingar. Kjörorð kommúnista er: „Öreigar allra landa sameinist", og herstöðva- andstæðingar telja sig sennilega öreiga. En hvar fá öreigarnir peninga? Það eru ekki neinir smápeningar, sem þeir eyða I áróður. Herstöðvaandstæðingar lifa í sjálfsblekkingu. Þeir neita að Egiíl Þorfinnsson horfast í augu við sannleikann. Það eru allir vondir og allir vilja ráða yfir öllum nema þeir sjálfir. Þeir neita að horfast í augu við mikilvægi herstöðvarinnar. Þeir loka augunum fyrir peningunum sem við fáum í viðskiptum við varnarliðið. Ég held að það skaði ekki herstöðvaandstæðinga að hafa herstöðina hérna. Þeir mega vera fegnir því að það eru ein- hverjir sem vilja verja þá. Meira blaður: Engar herstöðvar á friðartímum segja þeir. Hvernig ætli þeim yrði við ef það væri engin herstöð hérna og einn dag- inn yrði ráðist á landið (t.d. Rússar) og það hertekið. Enginn til þess að verja landið. (Nema kannski hinir hugdjörfu frelsis- elskendur herstöðvaandstæðing- ar). Niðurstaða: Herstöðvaandstæð- ingar eiga að skipta um kjörorð. Island: varnarlaust land, opið fyrir öllu. Egill Þorfinnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.