Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 45 7TT ^ ✓-> VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI Ór rw ujATnp\-a&'ij ir komið í stað góðra foreldra og verið minnugar þess að sá tími sem barnið er í uppvexti kemur aldrei aftur og þá hafið þið misst af dýrmætum tíma sem þið getið aldrei endurheimt. Anna. • Talað en ekkert gert „Mig langar til að vekja máls á því lága barnsmeðlagi sem ein- stæðar mæður fá frá feðrum barna sinna. Það er talað um að það þurfi að styðja þessar mæður en þar er ekki viljinn í verki meðan þsér fá í kringum 24 þúsund krónur á mánuði með barni á sama tíma og ráðherrar fá 6 milljón króna laun til að kaupa sér lúxusbíla. Að mínu áliti hefur alltof lítið verið rætt um þessi mál. Ég hef aðeins heyrt einn mann ræða þetta mál á opinberum vettvangi, Gunn- laug Torfason lögfræðing, er hann flutti erindi í útvarpinu. Þar talaði hann um að það væri mjög óhollt fyrir börn einstæðra mæðra að vera vakin upp snemma, áður en móðirin fer í vinnu, til þess að fara í fóstur og því þyrfti að hjálpa þessum mæðrum meira en raun ber vitni. Nú er ár barnsins og það er aðeins talað um að gera þurfi þetta og hitt en ekkert er gert fyrir börnin. Það er varla hægt öllu lengur að horfa upp á þetta ástand, eitthvað verður að gera til úrbóta. Ahorfandi. • Timburmenn Kona nokkur hafði samband við Velvakanda vegna greinar sem birtist í dálknum um forskrift fyrir drykkjumenn. Sagðist konan hafa uppskrift til að lækna of- drykkju og væri hún úr bók sem heitir „Læknisdómar alþýðunnar" eftir D.C. Jarvis md. Uppskriftin hljóðar þannig: „Maður á fimmtugsaldri hafði drukkið frá 26. desember til 10. janúar. Hann var í drykkjudái þegar komið var að honum. Hon- um voru gefnar 6 teskeiðar af hunangi, 20 mínútum siðar voru honum gefnar aðrar 6 teskeiðar og enn 20 mínútum síðar voru honum gefnar þriðju 6 teskeiðarnar. Þannig hafði hann fengið 18 te- skeiðar af hunangi á 40 mínútum. Hjá rúmi hans stóð flaska með slatta af sterku áfengi. Þremur klukkustundum síðar var áfengið ósnert. Hunangsgjöfinni var hald- ið áfram: Þrír skammtar, hver með 6 teskeiðum með 20 mínútna millibili. Morguninn eftir var hans vitjað klukkan hálf níu. Hann hafði sofið í einum dúr alla nóttina til klukkan hálf átta en það hafði ekki komið fyrir hann í 20 ár. En hann hafði lokið slattanum úr flöskunni. Nú voru honum gefnir 3 skammtar af hunangi, 6 teskeiðar með 20 mínútna millibili. Þá fékk hann linsoðið egg. 10 mínútum síðar fékk hann 6 teskeiðar af hunangi. Hádegisverður hans voru 4 teskeiðar af hunangi í byrjun máltíðar, glas af tómatsafa og stykki af hakkabuffi. Á eftir fékk hann 4 teskeiðar af hunangi. Kunningi hans færði honum flösku af sterku víni og var hún látin á borðið hjá kvöldmat hans. Hann ýtti henni frá sér og sagðist ekki vilja áfengið. Hann hefur aldrei bragðað áfengi síðan. Eitt kíló af hunangi hafði gert þennan mann, sem var drykkju- maður klukkan 7 að kvöidi, að alls gáðum manni á sólarhring. Al- þýðuheilsufræðin telur að drykkjufýsn stafi af kalíumskorti í líkamanum. Hunang er góður kalí- umgjafi og vinnur þannig á móti áfengisþorstanum og flýtir fyrir því að það renni af mönnum." Þessir hringdu . . . • Furðulegt nafn „Þau komu að norðan"??? Það var furðulegt nafn á sjónvarps- þætti laugardaginn 31. mars s.l. Norðlendingar áttu von á að sjá skemmtiþátt með Finni Eydal og hljómsveit hans og hefði það vissulega orðið góð tilbreyting frá vafasömúm poppþáttum undan- farið. Þátturinn sá sem birtist á skjánum hefði eins getað heitið Helgi P. og c/o þar sem hann átti kvöldið og djasssöngkona sem enginn vissi að til væri. Norðlendingur. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á Ólympíuskákmótinu í Buenos Aires í fyrra kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Kavaleks, Bandaríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og Hiibners, V-Þýzka- landi. 35. g6; — Dxg6, 36. f7! — og svartur gafst upp, því að hann á ekki völ á öðru framhaldi en 36 ... Bxf7, 37. Hxe8+ — Bxe8, 38. Hf8+ — Dg8, 39. Df4! og svartur á enga fullnægjandi vörn við hótuninni 40. De5 mát. HÖGNI HREKKVÍSI /K höG*n. ■ • /" Sá mest seldi áreftirár Einholti 6. Sími 18401. Gluggastengur í miklu úrvali úr trá og málmi. Þrýstistengur, rör og kappastangir Laugavegl 29, Slmar 24320 Og 24321

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.