Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 Guðrún Birgisdóttir, fjölmiðlafræðingur: skrifar um börn og barnamenningu: Barnaár — ár fulloröinna — fyrir börn og með bömum Fólksfjölgunarár, kvennaár, fæðuár, vatnsár og nú barnaár. Sumir kunna að spyrja, hvort ekki sé komið nóg af slíkum „árum“. Aðrir telja, að með þessu sé aðeins verið að minna á tilveru Sameinuðu þjóðanna (Sþ) sem stofnunar, en jafn- framt verið að breiða yfir getu- leysi Sþ til að ráðast að rótum aðsteðjandi vandamála í heim- inum í dag. Aðildarríki Sþ hafa af og til samþykkt að helga einstök ár einhverju sérstöku málefni. Oft- ast hefur verið um brýn alþjóð- leg vandamál að ræða, sem ekki hafa komið um of við kaunin á einhverju einu eða fáum aðild- arríkjum. Þótt erfitt sé að meta árangur slíkra „ára“, er það engum vafa bundið, að þau hafa vakið marga til umhugsunar, áhugi almennings á einstökum málum hefur aukist og hafnar eru þýðingarmiklar baráttuher- ferðir. í þessu tilviki er kvenna- árið eflaust nærtækasta dæmið. Árið 1979 ér helgað málefnum (vandamálum) barnsins í veröld nútímans með öllum sínum hróplegu andstæðum. Vandamál barnsins eru fjölþætt og flókin, reyndar svo samtvinnuð vanda- málum fullorðinna, að vart má sundur skilja. Erfitt er að fjalla um vandamál barnsins ein- angrað og úr tengslum við mannréttindamál almennt. Því er hætt við, að umræða um raunveruleg vandamál á barna- ári verði yfirborðskennd og mót- ist af tillitssemi vegna þess, hve mannréttindamálin eru póli- tískt viðkvæm um þessar mund- ir. Það er ekki ætlunin að fara í saumana á vandamálum barns- ins í þessum greinarstúfi. Mark- miðið er að bregða upp mynd af fjölbreytileik vandamálsins og viðra nokkrar hugmyndir um, hvernig bregðast megi við á Islandi á barnaári til að vekja athygli og auka skilning á vandamálum barna yfirleitt. Tildrög alþjóð- legs barnaárs Árið 1979 eru 20 ár liðin frá því að Sþ gáfu út yfirlýsingu um réttindi barna. Þessi yfirlýsing bryddar á vandamálum, sem einkum eiga við börn í þróunar- löndunum. I 10 greinum eru dregin upp þau grundvallarrétt- indi, sem öll börn ættu að hafa án tillits til kynþáttar, húðlitar, trúar eða stjórnmálalegs- og félagslegs uppruna. Þessi rétt- indi eru m,a. félagslegt öryggi, næg og næringarrík fæða, heim- ili, heilsugæsla, menntun ásamt vernd og umhyggju. I lok 10. greinarinnar er einnig minnst á, að börn eigi rétt á að alast upp í anda skilnings og þolinmæði, í friði og alþjóðlegu bræðralagi. Næstum 20 árum eftir sam- þykkt þessarar yfirlýsingar búa milljónir barna heimsins ennþá við aðstæður, þar sem þessi réttindi eru aðeiris fjarlægur draumur. Þess vegna var á 31. allsherjarþingi Sþ 1976 sam- þykkt tillaga um að helga árið 1979 börnum heimsins. Markmið alþjóð- legs barnaárs I ályktun frá Sþ kemur fram, að á alþjóðlegu barnaári skuli reynt að marka skýrari línur í allri umfjöllun um málefni í þágu barna. Þetta geti væntan- lega orðið til þess að auka skilning á þörfum barna og að tekið verði meira tillit til þeirra við félagslegar, fjárhagslegar og pólitískar ákvarðanir. Höfuðmarkmiðið er að reyna að vekja athygli og skilning sem flestra á því, að góð meðferð og umhyggja fyrir börnum í dag er grundvöllur betri og réttlátari heims í framtíðinni. Ríkisstjórnir aðildarríkjanna og öll samtök, sem hafa með börn að gera, eru hvött til þess að leggja sitt af mörkum. Hvert ríki fyrir sig móti herferðir og starfi einnig með sérvandamál barna sinnar eigin þjóðar, en Sþ með UNICEF í fararbroddi sér um baráttuherferðir á alþjóð- legum grundvelli. Vandamál barnsins Drjúgan skerf af vandamálum sínum fær barnið í vöggugjöf. Börn líta heimsins ljós í fyrsta sinni mismunandi velkomin. Að- stæður þær, sem foreldrarnir búa við hafa í flestum tilfellum afgerandi áhrif á líf og afkomu barnsins. Hvað þetta snertir eru andstæðurnar geysimiklar milli iðnvæddra landa og þróunar- landa. I dag eru 1.5 milljarður barna undir 15 ára. Það er meira en V4 hluti af íbúum jarðar. % hluti þessara barna vex upp í þróunarlöndunum, hverra til- vera er allt önnur en til dæmis barna á íslandi. Þess ber að geta, að vissulega eru miklar andstæður milli einstakra þró- unarlanda sem og innan hvers lands fyrir sig. Sama gildir fyrir hin svokölluðu iðnvæddu lönd. 500 milljónir barna í þróunar- löndunum líða fæðuskort. Lífs- líkur þeirra eru hverfandi í samanburði við lífslíkur barna hinna svokölluðu iðnvæddu landa. 5. hvert barn sem fæðist nær ekki að upplifa 5 ára af- mæli sitt og nái börnin að komast á legg blasa við önnur vandamál s.s. hungursneyðir, þrældómur og farsóttir, auk þess sem jafnvel lágmarks- menntun eru forréttindi sem mjög fáir njóta í þessum lönd- um. 200 milljónir barna læra aldrei að lesa né skrifa. Þau sem komast á skólabekk yfirgefa hann oftast fyrir 12 ára aldur, til þess að byrja á daglegu striti fyrir mat sínum (ef þá einhver er). Þetta eru helstu vandamál, sem börn þróunarlandanna fá í vöggugjöf. Þau eru engan veginn sama sinnis og vandamál flestra barna í hinum iðnvæddu lönd- um, þar sem öll mannleg vanda- mál eru annars eðlis. Það er brýnt að verkefni barnaárs beinist að börnum þriðja heims- ins, en það má ekki heldur verða til þess að við lokum augunum fyrir vandamálum barnanna heima fyrir, sem bæði eru mörg og margvísleg. Hver eru þá helstu vandamál barna í iðnvæddum löndum? Lífslíkur og allur aðbúnaður er í flestum tilvikum ósambærilegur við það sem almennt er í þróun- arlöndunum. Samt virðist af nógu að taka. Hér koma til áhrif neysluþjóðfélagsins, þar sem samkeppnin er svo yfirgengileg að maðurinn gleymir oft að vera maður. Þetta bitnar óneitanlega á börnunum bæði beint og óbeint. Þeim er sjálfum ýtt út í ómannúðlega samkeppni í skóla og leik að hætti fullorðna fólks- ins, og streita hversdagsleikans kemur í veg fyrir eðlilega og æskilega samveru barna og full- orðinna. Ef byrjað er á dagvist- unarstofnunum eru þær oft ómannúðlegar geymsluþrær í stað þess að stuðla að auknum félagslegum þroska barnanna. Skólarnir ítroðslustofnanir, tómstunda- og skemmtanatilboð andlaus og fábreytileg og svo mætti lengi telja. Arangursríkt barnaár Það er af nógu að taka þegar hugað er að málefnum barna heimsins. Við með okkar vel- ferðarvandamál, sem oft koma hart niður á börnunum, og vandamál barna í þróunarlönd- unum þar sem neyð og fátækt ræður ríkjum eru óheyrileg. Hvar eigum við þá að taka til höndum á barnaári? Hvernig getum við forðast að barnaár kafni í auglýsingum, barnahá- tíðum og yfirborðskenndu hjakki fullorðinna um að gera þetta og gera hitt af því að það sé nú einu sinni barnaár? Augljós eru vandamál eins og barnið og umferðin, dagvistun- arvandamálið, ekki aðeins fleiri dagheimili heldur einnig betri. Róta þarf aðeins í því hver er hugsunin á bak við að setja barn sitt á dagheimili. Skólinn, stað- urinn þar sem börnin alast upp að miklu leyti samfara heimil- inu. Hér er af nógu að taka með tilliti til aukinnar samvinnu foreldra við þessar stofnanir samfélagsins. Hvernig væri að sjá nauðsyn þess í skólunum að taka einn (eða fleiri) tíma á viktt undir vandamál bekkjarins, þar sem rædd væru vandamál eins og námsefnið, agi og reglur, andinn í bekknum, eða annað viðeig- endi. Ræða mætti einnig vanda- mál barna almennt og börnin gætu fengið í hópum verkefni að kynna sér, og framsegja vanda- mál barna í hinum ýmsu lönd- um. Taka mætti tómstundamál- in fyrir, barnavinnu o.fl. út frá hugmyndum barnanna sjálfra og hvernig þau upplifa þetta. Hefur sá möguleiki verið at- hugaður að börn fengju fulltrúa í starfshópum þeim sem komnir eru í gang í sambandi við barna- árið? Nálægð barna þar myndi eflaust stuðla að nánari tengsl- um viðbörn almennt og því markvissari árangri. Við hin fullorðnu lifum allt of mikið í okkar sér „fullorðinna heimi" án þess að veita barninu inngöngu í þennan heim. Barnið lifir svo í sínum „barnaheimi". Það er kominn tími til að við kynnumst dálítið betur „heim- um“ hvers annars og tökum börn alvarlega, tökum tillit til þarfa þeirra eins og þau sjálf tjá okkur þær, en ekki aðeins þeirra þarfa sem við búum til handa þeim, án þess að vita hvort þessar þarfir séu raunverulega fyrir hendi. Annað brennandi verkefni eru börn og fjölmiðlar eða börn og barnamenning. Hér er einnig af nógu að taka í öllum þeim straumum, sem þar renna. Hvað er barna- og unglingamenning? Hvernig get- utn við haft jákvæð áhrif á það sem borið er á borð fyrir börn- in? Hvernig getum við forðast það að aðal lífsinnihald 6—18 ára barna og unglinga sé coca-cola, superman og ofbeldis- og glæpamyndir? Við verðum fyrst og fremst að gera okkur grein fyrir því, að barnamenn- ing er ekki aðeins flóð af tilboð- um til barna, kvikmyndir, bæk- ur og tónlist svo eitthvað sé nefnt. í barnamenningu eru fólgin þroska- og uppvaxtarskil- yrði barna, einnig hin ýmsu samveruform þeirra innbyrðis annars vegar og barna og full- orðinna hins vegar. Eins og áður sagði, lifa börn og fullorðnir að miklu leyti í ólíkum heimum. Það ætti því að vera eitt af aðalhlutverkum fjölmiðla að kynna þessa ólíku heima, færa börn og fullorðna nær hvert öðru. Væri því ekki úr vegi að helga börnum visst rými í fjölmiðlum, þar sem þau gætu komið sjálfvöldu efni á fram- færi. Ár fullorðinna í stað barnaárs? Ef staldrað er við stundar- korn og vandamál barna hug- leidd, kemur fljótlega í ljós, að börn eru þolendur. Þótt þau séu mörg að tölu í heiminum, hafa þau næstum engin tök á að gera sér grein fyrir vandamálum sínum, taka höndum saman og mynda hagsmuna- og þrýsti- hópa, þau yngstu í það minnsta ekki. Vandamál barna, svokölluð, eru sköpuð af fullorðnu fólki og eru því í reynd vandamál full- orðinna. Þeir einir geta leyst þau, en óviðunandi án hjálpar barnanna. Það vaknar því sú spurning, hvort ár barnsins ætti ekki öllu fremur að nefnast „alþjóðlegt ár fullorðinna", ekki aðeins í ár, heldur öll ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.