Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 1
40 SIÐUR OG LESBOK 106. tbl. 66. árg. ____________________LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1979______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins. Schmidt kanslari: Thatcher verður ekkert lamb að leika sér við Londun, Oxíord, 11. maí. AP. Rcuter. HELMUT Schmidt, kanslari Vestur-Þýzkalands, sagði á blaðamanna- íundi í London í dag að honum sýndist sem Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, yrði „ekkert lamb að leika sér við“. En hann bætti því við að kannski fyndist henni Þjóðverjar nokkuð harðskeyttir líka. Carter hittir Brezhnev í fyrsta skipti Washington. 11. maí Moskva. CARTER forseti Bandaríkj- anna og Bre/hnev forseti Sovétríkjanna munu koma saman til fundar í Vín dagana fimmtánda til átjánda júní svo framarlega sem heilsa Sovétleiðtogans leyfir. Tilkynnt var í Hvíta húsinu í dag að Carter og Brezhnev, sem nú er sjötíu og tveggja ára að aldri, myndu undirrita nýj- an samning um hömlur við framleiðslu kjarnorkuvopna, SALT tvö, og ræða heimsmál og samskipti þjóðanna. Fréttin barst fljótlega í kjölfar yfir- lýsingar hinnar opinberu sovésku fréttastofu, Tass, að fundurinn væri ráðgerður en ekki fastákveðinn, en þessi fyrirvari mun eiga við ótryggt heilsufar Brezhnevs. Þetta verður átjándi fundur bandarískra og sovéskra leið- toga en fyrsti fundur Brezhn- evs og Carters. Síðasti heims- leiðtogafundur var haldinn í Vín 1961 er John F. Kennedy skiptist á skoðunum við Nikita Krushchev. Austurrísk yfirvöld sögðust í dag ekkert ætla að spara til í öryggisefnum, en Kreisky kanslari mun hafa lagt hart að leiðtogunum að hittast í Vín. Heimildir innan Hvíta hússins hafa sagt vonir standa til að leiðtogarnir komi saman reglu- lega hér eftir. Aðalritari Atlantshafs- bandalagsins, Joseph Luns, sagði í dag að fundur þessi kynni að valda þáttaskilum í samskiptum þjóðanna tveggja og sagðist hann hlakka til að sjá lokatextann að samkomu- laginu. Viðskipta- samningur Pekinic. 11. maí. AP. Reuter. FULLTRÚAR stjórna Bandaríkj- anna og Kína undirrituðu í dag nýjan viðskiptasamning ríkjanna. I samningunum eru meðal annars ákvæði um endurgreiðslu á upptekn- um eignum Bandaríkjamanna við valdatöku kommúnista 1949 og leyfi til handa Kínverjum að leysa úr bandarískum bönkum frystar inn- stæður þeirra þar. Schmidt og Thatcher efndu til blaðamannafundarins að loknum viðræðum sínum og gerðu þar grein fyrir þeim málum sem borið hafði á góma hjá þeim. Þau voru sammála um að nauðsynlegt væri að styrkja samvinnu landanna á sem flestum sviðum. Þau hefðu rætt um Atlantshafsbandalagið og m.a. vikið að því mikilvægi sem Tyrkland gegndi vegna legu sinn- ar. Einnig var Efnahagsbandalagið mjög á dagskrá þeirra og Schmidt sagði að Vestur-Þjóðverjar væru reiðubúnir að ræða við aðildarfé- laga sína í EBE um hugsanlegar breytingar og umbætur en hann féllist ekki á að við grundvallar- stoðum þess væri hróflað. Einnig var rætt um olíumál og Schmidt sagði að ýmislegt benti til þess að þjóðir þær sem ekki réðu olíulind- um myndu verða að eyða æ hærri Wa.shinKton. 11. maf. Reuter. SOVÉZKI andófsmaðurinn Alexand- er Ginzburg sagði { dag að hann teldi ekkert benda til þess að stefnu- breyting væri að verða hjá sovézkum stjórnvöldum hvað snerti mannrétt- upphæðum allt að 40% af þjóðar- tekjum í orkugjafa að minnsta kosti um sinn. indi. þó svo að hann hefði verið látinn laus úr fangelsi. Ginzburg sagði að sú mannrétt- indahreyfing sem væri starfandi í Sovétríkjunum væri liður í „óstöðv- andi þróun“ og að nýir félagar gengju stöðugt í samtökin og því væri starf- andi innan þeirra góður kjarni, þótt margir andófsmenn og félagsmenn hreyfingarinnar lentu í fangelsi. Hann sagði að hann væri enn veik- burða og óstyrkur enda hefði þessi skyndilega ákvörðun að sleppa hon- um komið algerlega flatt upp á hann. Ginzburg sagði þetta á fundi hjá bandarískri þingnefnd sem á að hafa það verksviö að fylgjast með fram- kvæmd Helsinki-samkomulagsins. Fjögur myrt New Yurk. 11. maí. AP. Reuter. CIIARLES Frankel fyfrvcrandi aðstoðarráðhcrra í Bandarfkja- stjórn. sem sagði af sér á sínum tíma til að mótmæla Víetnamstríð- inu. var einn fjögurra fórnarlamba. sem ræningjar myrtu í einu út- hverfa New Yorkborgar í gær. Frankel sem var 62 ára að aldri og kona hans fundust skammt frá heimili sínu í Hamlethverfi og skammt þar frá fannst látinn 21 árs gamall maður sonur auðjöfurs í borginni og aldin frænka unga mannsins. Thorpe borið óblíðlegt vitni London. 11. maí. Reuter. LAGT var á ráðin um morð með byssukúlu eða hægdrepandi eitrun við læstar dyr í neðri málstofu brezka þingsins. Þetta var framburður vitnis í réttarhöldunum í dag yfir fyrrverandi leiðtoga Frjálslyndra, Jeremy Thorpe. Hinn fimmtugi Thorpe er sakaður um misheppnaða til- raun til að láta myrða sýningar- manninn Norman Scott, en Scott á að hafa hótað að gera pólitískan frama leiðtogans að engu með því að ljóstra upp að þeir hefðu haft kynmök saman. Stjórnmálamaðurinn ásamt þremur öðrum ákærðum hefur haldið fram sakleysi sínu en verði þeir sekir fundnir eiga þeir yfir höfði sér tíu ára fangelsis- vist. Fyrsta vitnið í réttarhöldun- um í dag var Peter nokkur Bessell, er kom sérstaklega frá Kaliforníu þar sem hann er búsettur. í vitnisburði sínum gat hann meðal annars um fund í þinghúsinu árið 1968 en þá var hann sjálfur félagi Frjálslyndra flokksins í Bretlandi: „Það væri ekki meira níðingsverk en að lóga veikum hund,“ hermir Bessell að Torpe hafi sagt og átt við Scott. „Síðan er hægt að urða líkið í tinnámu." Bessell segist hafa reyn.t að telja Tórpe hughvarf. Hafi þeir átt annan fund árið eftir ásamt öðrum hátt settum manni í flokknum, David Holmes. „Thorpe bað mig að loka dyr- unum,“ segir Bessell, „hann stakk upp á því að Holmes þættist vera fréttaritari frá vestur-þýzka tímaritinu „Der Spiegel". „Síðan á Thorpe að hafa sagt við Holmes.: „Ginntu hann á afskekktan stað og skjóttu hann.“ Bessell segir Holmes hafa brugðið mjög við uppástunguna. Hafi þeim tveimur tekizt að koma leiðtoganum í skilning um að byssuhvellur kynni að valda of miklum hávaða. „Það verður þá að byrla honum eitur," sagði Thorpe, „þú getur laumað því í drykkinn hjá honum, David á kránni." Hlátur braust út í réttarsaln- um í The Old Bailey er Bessell sagði Holmes hefði þá bent á „að það kynni að verða óskemmtilegt ef Scott félli dauður á hlið og út af stólnum." Engin stefnubreyting í mannréttindamáliim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.