Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ1979 7 r Morgunljós veruleikinn Ekki er hœgt að ganga fram hjá Þeirri staðreynd að Þúsundir landsmanna ólu vonir t brjósti við myndun núverandi ríkis- stjórnar fyrir u.Þ.b. ári síðan. Þœr vonir byggð- ust á fögrum fyrirheitum um viönám gegn verö- bólgu, vinnufrið, kjara- bætur, launajöfnuö og af- nám rangsleitni í Þjóðfé- laginu. Þau fögru orð, sem krækt vóru á öngla vinstri flokkanna í vor- kosningunum á liðnu ári, hafa nú breytzt í and- stæðu sína. Einn af Þing- mönnum AlÞýðuflokks- ins, Vilmundur Gylfason, viöurkenndi í Þingræöu á dögunum, aö launastefna stjórnarinnar hefði brugðizt. Þessi ríkis- stjórn væri komin í sams konar „pólitískt gjald- prot“ og fyrri vinstri stjórnir; nú heföi aðeins tekið skemmri tíma, 8 mánuði, að ná Þeim botni. Einar Ögmundsson, formaður Landssam- bands vörubifreiðar- 1 Rœda Einars Ögmundssonar, formanns Landssambands vörubifreidastjórai á Akranesi 1. mai Heildarsamtökin hafa brugðist Launum þcirra scm vid skcrd- astan kost búa vcrdur ad lyfta svo yíó Ycrdi unad ■•kki unjlalriAiA rkalyfKvir ^■k» stjóra, sagði í 1.-maí ræðu á Akranesi (Þjóð- viljinn 5. maí al.): „Það er fullkomin ástæða til að vara núverandi ríkis- stjórn við Því, hér og nú, að sá Það ófrávíkjanleg stefna hennar aö skerða lægstu laun Þá hljóta leiðir að skilja milli verkalýöshreyfingarinnar og núverandi ríkisstjórn- ar. Þetta á aö vera alveg morgunljóst." Hver er svo árangurinn? Einar Ögmundsaon sagði ennfremur: „En nú vildi að vonum einhver spyrja: Hver hefur varð- staða heildarsamtaka launafólks verið? Hvað hefur ASÍ gert til að rétta hlut hinna verst settu? Svarið verður óhjá- kvæmilega petta: Heild- arsamtökin hafa brugð- izt.“ Tilvitnuö orð Vilmund- ar Gylfasonar og Einars Ögmundssonar, sem koma úr gagnstæðum örmum stjórnarsam- starfsins, falla Þó í sama farveg um árangur Þess. „Þetta módel af ríkis- stjórn hefur mistekist tvisvar áður,“ segir Vil- mundur. En Einar hnýtir verkalýðsforystunni aftan í stjórnarmistökin. Þeir, sem léðu stjórnar- flokkunum lió til að standa við stóru orðin; sáðu með atkvæðum sín- um til lofaðrar uppskeru, geta nú aö ári liðnu vitjað hennarl Þeir leita verð- bólguhjöðnunar, launa- jöfnunar, kaupmáttar- aukningar, afnáms tekju- skatta, upprætingar rangsleitni í Þjóöfélaginu. Og hvaö kemur svo upp úr grænmetisgarðinum? Margföld skattaupp- skera. í benzínverði, sem kemur hvað verst við all- an almenníng í dag, eru 56% verös ríkisskattar. Launajöfnuðurinn kemur fram í Þaklyftingum há- launa og kröfu (sem að vísu var hafnað) um 3% grunnlaunaeftirgjöf, ann- **Þetta módel af ríkis- ■stjórn -hefur mistekist tvisvar áður,? 9 sagði Vilmund- ur Gylfason arra, jafnvel hinna lægst launuðu. Órói á vinnu- markaði, sem er alvar- legri en oftast áður. Og mennirnir, sem ætluðu að gera hreint í Þjóðfé- laginu, hafa skjótlega gleymt erindi sínu á Þingi og í ríkisstjórn, una Þar við orðinn hlut. Þessi uppskera verður naumast falin í skjóli nýrra ráöherrabíla. Þessi uppskera sagði til sín í nýafstöðnum BSRB-kosningum. Atkvæöagreiðslan í BSRB er ekki sízt van- traust á ríkisstjórnina, sagði Vilmundur Gylfa- son á AIÞingi. Og hann bætti við: Þeir menn hafa ekki mikiö sjónsvið út i Þjóðfélagið, sem gera sér ekki Þá staðreynd Ijósa. Gróðurhúsiö v/Sigtún simi 36770 Mæðradagurinn er a morgun Innilegustu þakkir fyrir margvíslega vinsemd mér sýnda á áttræöisafmæli mínu 14. apríl s.l. Guö blessi ykkur öll. Sigurbjörg Sigurdardóttir frá Litla-Armóti. --------------------------------- Vestmannaeyingar Kvenfélagiö Heimaey heldur hina árlegu kaffisölu sína aö Hótel Sögu sunnudaginn 13. maí milli kl. 2—5. Allir Vestmannaeyingar 67 ára og eldri sérstaklega boönir velkomnir. Stjórnin. V________________________________/ Hið íslenzka prentarafélag Aðalfundur Hins íslenzka prentarafélags 1979 veröur haldinn í dag laugardaginn 12. maí 1979 í félagsheimilinu, Hverfisgötu 21 og hefst kl. 13.15. Dagskrá: 1. Lagðir fram til úrskurðar endurskoðaðir reikn- ingar félagsins. 2. Skýrsla stjórnar og nefnda um liðið starfsár. 3. Stjórnarskipti. 4. Kosning endurskoöenda. 5. Kosning ritnefndar Prentarans. 6. Nefndakosningar. 7. Lagabreytingar. Tillaga um úrsögn úr Alþýðusambandi íslands. 8. Önnur mál. Ráðning eftirlitsm&nns í Miðdal? Sameining bókargerðarfélaganna og hugsanleg félagsslit. Annaö, ef fram kemur. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinum og taka þannig virkan þátt í afgreiðslu og umræðum um sín eigin málefni. stjórnin. ÖRYGGIÐ ÖLLU OFAR! Líftryggingar, sjúkra og slysatryggingar. Líftryggingafélagið ANDVAKA varð 30 ára 9. maí s.l. t tilefni þess ákvað stjórn félagsins, að fólki, sem gengur í hjónaband frá og með þeim degi, verði gefin kostur á fyrstu milljón krónu tryggingar- upphæðar í HJÓNATRYGGINGU til eins árs án greiðslu iðgjalds, enda standist umsækjendur þær kröfu sem gerðar eru við töku líftrygginga hjá félaginu. Enn ein nýjung frá Andvöku þessi tímamót hefur félagið einnig hafið sölu á FRÁVIKSLÍFTRYGGINGUM. Þannig eiga nú flestir að geta fengið sig tryggða, jafnvel þótt þeir hafi fram að þessu ekki talið sig það hrausta,að þeir áræddu að sækja um líftryggingu. Hér er bætt úr brýnni þörf, og ástæða er til að ætla, að þessi nýja trygging fái jafn góðar móttökur og HJÓNATRYGG- INGIN, sem Andvaka tók upp árið 1976. Allar tryggingar okkar eru verðtryggðar. Iðgjald líftrygginga er frádráttarbært til skatts IJFTTOiC >C i\FEL\( ;io AIVDVAKA Gagnkvæmt vátryggingafélag Lif tryggingar, siukra - og slysatryggmgar Ármula 3 Reykjavik simi 38500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.