Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ1979
5
Myndlista- og handíðaskólinn 40 ára:
Verk nemenda og Kurt Zier á há-
tíðarsýningu að Kjarvalsstöðum
MYNDLISTA- ojf handíðaskóli
íslands er 40 ára um þessar
mundir. f tilefni aí afmælinu
verður opnuð í dag árleg vor-
sýning skólans að Kjarvalsstöð-
um. Sýningin hefur ávallt verð
haldin í húsakynnum skólans en
er nú í öllum sölum Kjarvals-
staða.
Sýningin verður opnuð við
hátíölega athöfn í dag kl. 14 og
mun standa fram til sunnudagsins
20. maí. Hún er opin daglega frá
kl. 14—22. Nemendur Tónlistar-
skóla Reykjavíkur munu tvívegis
halda konserta á sýningartíman-
um, verða þeir nánar auglýstir
síðar Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Skólinn hefur gefið út sérstakt
afmælisrit sem til sölu verður á
sýningunni. I ritinu er saga skól-
ans rakin. Kemur þar fram, að
Ludvig Guðmundsson stofnaði
Handíðaskólann árið 1939 og var
hann fyrsti skólastjóri hans. Upp-
haflegt markmið hans var einkum
að sérhæfa kennara og kennara-
efni í teiknun hvers konar. Sama
ár réð Luðvig Kurt Zier að skólan-
um frá Þýzkalandi og var hann
lengi aðalkennari skólans og síðar
skólastjóri. Björn Th. Björnsson
samdi annál skólans í ritið.
í anddyri Kjarvalsstaða er
sýning á verkum Kurt Zier, sú
fyrsta hér á landi, en skólastjórn
þótti við hæfi að minnast þess
manns, sem hafði svo mikil áhrif á
þróun skólans.
Pétur Pétursson þulur:
Sigurdur og
sjöunda greinin
Það vafðist dálítið fyrir Pílatusi
á sinni tíð hvað væri sannleikur.
Sigurði Sigurðssyni er ekki þannig
farið hvað ósannindum viðvíkur.
Hann þekkir þau strax af viðkynn-
ingu. Sigurður les grein mína um
þátt fréttastofa útvarps og sjón-
varps með því að bera hana að
spegli. Þá verður niðurstaðan aug-
ijóslega öll önnur en hjá öðrum
lesendum.
Sigurður véfengir staðhæfingu
mína um að fréttastofur útvarps og
sjónvarps hafi ekki starfað sam-
kvæmt reglum (7. grein), er þær
kusu að leiða hjá sér blaðamanna-
fund Andófs 79 og einnig það, að
hvorug stofnunin gaf fulltrúum
okkar kost á að koma fram um leið
og leitað var álits aðila er stóðu að
atkvæðagreiðslu um málið, en þátt-
taka bundin við fulltrúa BSRB og
fjármálaráðherra. Ummæli Kristj-
áns Thorlaciusar hafa vakið al-
menna kátínu, er hann lýsti stjórn
BSRB sigurvegara í atkvæða-
greiðslunni. Það er niðurstaða er
fréttastoíurnar samþykkja sem
hina einu birtingarhæfu. — Þjóðin
veit annað og hlær að gambri Jóns
sterka: „Sáuð þið hvernig ég lagði
hann.“ Það er í sjálfu sér broslegt
að vera að elta ólar við málflutning
þeirra sem ættu heima á dagvistun-
arheimilum og róluvöllum í
þykjustuleik kjarabaráttu. En ef
því væri svo farið að þeir létu sér
nægja að skrifa í sandinn þá væri
málið ekki vert þess tíma er fer í
umræðu og deilur.
Þvert á móti efla þeir nú sem þeir
mega allskonar öfl til þess að rétta
hlut sinn að loknum ósigri. Synjun
fréttastofu sjónvarpsins við þeirri
málaleitan að fulltrúi Andófs fengi
að koma fram til jafns við formann
BSRB að lokinni atkvæðagreiðslu
er í beinu framhaldi af neitun
formannsins við þeim tilmælum
Sjónvarpsins að hann kæmi fram í
Kastljósi ásamt fulltrúa Andófs.
Helgi Helgason fréttamaður kvaðst
hafa sætt ámæli frá Kristjáni
Thorlacius fyrir þá hugmynd að
hann sæti fyrir svörum í sama
þætti og fulltrúi Andófs. Nú hafa
fréttastofur útvarps og sjónvarps
kosið að bera smyrsl á sárin með
því að leyfa einleik Kristjáns Thor-
laciusar, eða eigum við að segja
samleik og pantleik þeirra Kristj-
áns og Tómasar.
Umdeildar stofnanir eins og
Ríkisútvarpið afla sér ekki aukinn-
ar virðingar með slíkri framkomu
sem lýst hefir verið gagnvart fjöl-
mennum hópum er andæfa og
fylkja liði gegn yfirgangi. í þeim
hluta veraldar er ekki lýtur ritskoð-
un og hömlum í fréttaflutningi
nema að því er varðar mismun á
aðstöðu er fjárskortur ævinlega
hefir í för með sér, dytti engri
fréttastofnun í hug að kæfa slíkar
raddir er sannað hafa fjöldafvlgi
Nemendur í dagdeildum skólans
eru nú um 160 og rúm 500 á
ýmsum námskeiðum fyrir fólk á
öllum aldri.
Skólastjórar auk Luðvigs og
Kurt Zier hafa verið Hörður
Ágústsson, Gísli B. Björnsson,
Hildur Hákonardóttir og núver-
andi skólastjóri er Einar
Hákonarson.
Verk nemenda á 3-. og 4. ári voru f sérstökum sal. Þar gat að líta
þessar grfmur og eru mörg andlitin nokkuð kunnugleg. Við látum
lesendum eftir að finna út samlfkingarnar.
sitt með jafn áþreifanlegum hætti
og Andóf 79 gerði. Sigurður frétta-
stjóri nefnir fjölda félaga er gert
hafi samþykktir er gengu gegn
margnefndu samkomulagi. Ég vek
athygli hans á því að félag okkar
beggja reið á vaðið í því efni er það
samþykkti einróma fyr.st allra fé-
laga tillögu er ég lagði fram í
janúarmánuði ásamt félögum mín-
um mörgum í Starfsmannafélagi
Ríkisútvarpsins.
Osk mín um að við Andófsmenn
fengjum að láta rödd okkar heyrast
var ekki bundin persónulegu áliti
mínu. Hinsvegar höfðu öll dagblöð-
in leitað álits hjá mér og bjóst ég
við að fréttastofur útvarps og
sjónvarps vildu einnig gera þessum
málum skil. En auðvitað var þeim
velkomið að velja einhvern annan
sem talsmann okkar.
Starfsfélagar okkar Sigurðar í
stofnuninni eiga sér margvísleg
hugðarefni. Ekki hefir skort áhuga
þeirra og fréttastraum frá ýmsum
andófshópum þótt eigi njóti þeir
viðlíka fylgis og andófshreyfing
okkar sannaði í atkvæðagreiðsl-
unni.
Torfusamtökin, Arnarhólsfund-
ur, Laxárflokkur, o.fl o.fl. hafa
notið náðar sem við höfum ekki
orðið aðnjótandi. Vill ekki Sigurður
fréttastjóri skýra frá með hvaða
hætti þær hreyfingar tryggðu sér
tíma í útvarpi til túlkunar á mál-
stað sínum.
Fjölmiðlum ber ótvíræð skylda
til þess að veita í farveg sinn
umræðuefnum er varða alþjóð.
Sigur okkar andófsmanna hefir
vakið þjóðarathygli. Sjálft Alþingi
tekið málið á dagskrá.
Ríkisstjórnin riðar til falls, að
sögn þingmanna. En ekkert raskar
ró fréttastofa útvarps og sjónvarps.
Nema ef vera skyldi að það biði
fréttamanna á vaktinni að þurfa að
ómaka sig til þess að segja frá því
að. auk þess að Hekla sé væntanleg
til Raufarhafnar komi Esja til
Kópaskers.
I grein sinni tíundar Sigurður
vanrækslusyndir fréttastofunnar.
Það var ömurleg lesning.
„Fréttastofan leitaði ekki
álits... formælcnda fjölmcnnra
félaga ríkis- og bæjarstarfsmanna,
er andmæltu samkomulagi BSRB
og fjármálaráðherra og unnu að
því að samkomulaginu yrði hafn-
að, enda hefði þá fátt annað
komist að í fréttatfmum útvarps-
ins“.
Hver er ósannindamaður? Hver
hallar réttu máli? Hver skrumskæl-
ir niðurstöður atkvæðagreiðslunnar
með því að útvarpa einvörðungu
frásögn Kristjáns Thorlaciusar um
sigur forystunnar og engu öðru en
því? Hvað á betur við „fréttaflutn-
ing“ af þessu tagi en orð séra Árna
Þórarinssonar: „Þeir voru snilling-
ar í að ljúga með þögninni“.
Hér var ekki setið auðum höndum. Uppsetning sýningarinnar var á fimmtudaginn í fullum gangi og
auðséð var að nemendunum var annt um að öllu yrði vel fyrir komið.
Veislumatur,
skemmtiatriöi
Við bjódum stórsteikur sem smárétti.
Allt aföllu í mat og drykk.
Munið ókeypis sérrétt fyrir
börn 10 ára og yngri.
iili
„The Bulgarian Brothers“ skemmta
matargestum Esjubergs i kvöld kl. 6—9
og á morgun sunnudag kl. 12—2 og 6—9.
Þaö er ódýrt aö boröa hjá okkur
Verið velkomin
Ini