Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.05.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ1979 29 Skemmti legar þulur og kvœði Mánuðirnir Janúar, febrúar mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember og desember. Tólf eru synir tímans, sem tifa fram hjá mér. Janúarer á undan með árið í faðmi sér. Febrúar á fannir, þá læðist geislinn lágt. Mars þótti blási oft biturt, þá birtir smátt og smátt. apríl sumrar aftur, >á ómar söngur nýr. maí flytur fólkið og fuglinn hreiður býr. júní sest ei sólin, )á brosir blóma-f jöld. júlí baggi er bundinn og borðuð töðugjöld. I ágúst slá menn engið, 9g börnin tína ber. í september fer söngfugl og sumardýrðin þverr. í október fer skólinn að bjóða hörnum heim. í nóvember er náttlangt í norðurljósa geim. Þótt desember sé dimmur dýrleg á hann jól. Með honum endar árið og aftur hækkar sól. Margt er það í þessu kvæði, sem gaman er að ræða um við börnin t.d. hvernig sólin hækkar á lofti og birtir af degi, hvernig atvinnuhættir voru hér áður fyrr, um farfuglana — og að skólinn byrjaði yfirleitt í október o.s.frv. En igeíunn w Snuna'v’J (Mér {innst 5'[5 settí a5 verð; í héreftir hjáJ\ meicSvirði Hér aX It hann hama 09 W VerSur ekki ^ Ifyrir ranu ónæð jí öðru lagijX Mhrmgi ég ÍÉ|| ■ lógreglona cg l Ispt hang hand-J Itaka Bjamg ® [od alla hma J tessa' frábæru tJI< ur Philippusar eru ajtvitö sam’pykfe ,\lerið vellqomnir, rwenær Ssm erj ’ut f búö fynr ,, cg éftir aÓ hringt Inefur vei<5 í Iðqgpna ei' komið a<5 skilnaÖ arstondinm Vilhjálnuir G. Skijlason skrifar nm lyf Lyfjahandbókin (Vítamín V) B12-vítamín (framh.) Hreint B12-vítamín er rautt, kristallað efni, sem hefur mjög flókna byggingu, er var ekki þekkt í smáatriðum fyrr en 1955 og er eina þekkta efnið, sem finnst í lifandi vef og inniheldur kóbalt. Þessvegna er samheiti lyfsins kóbalmín (t.d. cyanókóbalamín og hydrox- óbalamín). B12-vítamín er virkt í mjög litlum skömmtum og venjulegur dagskammtur er á bilinu 2—8 míkrógrömm. Þess- vegna ætti venjulegt fæði að innihalda nægilegt magn af þessu vítamíni og auk þess fram- leiða þarmagerlar verulegt magn af því. Það er nú vitað, að þegar illkynja blóðskortur kem- ur í ljós, hefur hann þau áhrif, að sjúklingurinn getur ekki nýtt það magn af B12-vítamíni, sem er í fæði hans og myndast í þörmum vegna þess að efni skortir, sem myndast í slím- himnu maga undir venjulegum kringumstæðum. Þetta efni er kallað „instrinsic factor", þ.e. efni, sem myndast í líkamanum. Einnig er framleiðslu magasýru ábótavant. Það magn af B-vítamíni, sem finnst í lifur, er aðeins um það bil 1 míkrógramm (1/1000 úr millígrammi) í hverj- um 100 grömmum af lifur. Framleiðsla þess í miklu magni hlaut því að verða mjög dýr. En árið 1948 kom það í ljós, að örvera, sem framleiðir berklalyf- ið streptómycín getur einnig framleitt verulegt magn af B12-vítamíni. Með þessari aðferð er nú hægt að framleiða víta- mínið í miklu magni á skaplegu verði. Helztu matvæli, sem inni- halda B12-vítamín eru lifur og aðrir vefir úr dýrum, en í jurtum finnst ekkert af því. Vítamínið er nauðsynlegt til þess að rauðu blóðkornin myndist með eðlileg- um hætti í beinmerg, en einnig er það nauðsynlegt til eðlilegrar starfsemi taugakerfis og slím- himna. Ef vítamínið er ekki til staðar í nægilegu magni í bein- merg, myndast óeðlilega stór forstig rauðra blóðkorna og til- svarandi, stór rauð blóðkorn losna síðan út i blóðbrautina. Þetta leiðir til illkynja blóð- skorts á taugakerfi, sem leiða til dauða á nokkrum árum, ef ekki er að gert. Á þessu er nú ráðin bót með því að gefa hreint B12-vítamín sem stungulyf með vissu millibili það sem eftir er ævinnar og getur þá viðkomandi einstaklingur haldið fullri heilsu. B12-vítamínskortur er alltaf til staðar hjá þeim, sem hafa illkynja blóðskort, en auk þess getur hann komið í ljós, ef sá hluti maga, sem framleiðir „intrinsic factor“ er fjarlægður með uppskurði, ef sá hluti sjúk- dóma í þessum hluta þarma. Einnig er hugsanlegt, að harð- soðnar jurtaætur fái B12-vítamínskort, þar eð það finnst ekki í jurtaríkinu eins og áður greinir. Fólinsýra Fólínsýra, sem á íslenzku mætti kalla blaðsýru, en stofn- inn er dreginn af latneska orðinu folium, sem merkir blað, er venjulega flokkuð með B-vítamínum. Þessi sýra er nauðsynlegur hluti fæðu og finnst í miklu magni í lifur, geri, grænum blöðum (þar af nafnið blaðsýra) og grasi. Þegar árið 1931 var vitað, að viss tegund af illkynja blóðskorti orsakaðist af skorti á vissu efni, sem finnst í geri. Árið 1941 var þetta efni unnið í hreinni mynd úr spínati. Þessi sýra hefur þýðingu fyrir efnaskipti próteinefna og kjarnasýra, en það eru mjög flóknar sýrur, er finnast í frumukjarna og eðlileg myndun þeirra er forsenda fyrir eðlilegri frumuskiptingu. Fólínsýra hefur þessvegna þýðingu fyrir allar frumur líkamans, en mest er hún fyrir nýmyndun rauðra blóðkorna í beinmerg. Venjuleg- ur dagskammtur fólínsýru er 0,4 mg, en eykst um helming við þungun og hjá brjóstamæðrum. Fólínsýruskortur er sjaldgæf- ur og kemur í ljós sem truflun á frumuskiptingu, sem einkum kemur fram á blóðmyndandi líffærum. Ennfremur koma í ljós einkenni frá meltingarvegi (niðurgangur, megrun). Fólín- sýra myndast af þarmagerlum í ristli, en nýtist illa. Á hinn bóginn frásogast hún vel frá smáþörmum. Helzta hætta á fólínsýruskorti er vannæring, sjúkdómar í meltingargöngum, sem koma í veg fyrir nýtingu vítamínsins og þungun, sem eyk- ur þörfina eins og áður minnst á. Einniggetur mikil alkohólneyzla og langvarandi notkun lyfja gegn niðurfallssýki valdið fólín- sýruskorti. Eitureinkenni eru ekki þekkt. Vítamínlyf, sem inniheldur fólínsýru er Tablettae folicae 5 mg (fólínsýrutöflur 5 mg). Askorbínsýra, C-vítamín Fyrstu áreiðanlegu heimildir um lækningu skyrbjúgs eru frá árinu 1536, er franski landkönn- uðurinn Jacques Cartier hafði vetursetu með mönnum sínum í Kanada. Rúmlega eitt hundrað manns fengu skyrbjúg og inn fæddir Indíanar ráðlögðu þeim að bleyta furunálar í vatni og drekka seyðið. 1 örvæntingu sinni fylgdu menn Cartiers þessu barnalega ráði, sem varð þeim til lífs. Tveimur öldum síðar hóf skozkur herlæknir að nafni James Lind að rannsaka áhrif grænmetis og nýrra aldina á skyrbjúg, sem þá var mjög algengur meðal brezkra sjó- manna. Árið 1757 skrifaði hann bók um rannsóknir sínar og þar bendir hann á, að hægt sé að lækna skyrbjúg með því að gefa appelsínur og sítrónur. En eitt- hvað virðast upplýsingar Lind hafa vafizt fyrir heilbrigðisyfir- völdum því að fyrst árið 1804 var það gert að skyldu að gefa brezkum sjómönnum daglega skammt af sítrónum eða safa úr aldini náskyldrar jurtar, sem á ensku heitir lime (Citrus aurantifolia á latínu) og hefur grænt aldin, til þess að fyrir- byggja skyrbjúg. Af þessu er dregið slanguryrðið limey (læmingi), sem upphaflega merkti enskur sjómaður, en merkir nú Englendingur. Á árunum 1907—1910 heppn- aðist Holst og Frölich í Noregi að færa sönnur á með dýra- tilraunum, að skyrbjúgur stafar af vítamínskorti og árið 1928 framleiddi Szent-György efnið nýrnahettuberki, káli og appel sínum, sem hann sannaði að væri hið löngu eftirsótta C-víta- mín árið 1932 (framh.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.