Morgunblaðið - 12.05.1979, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAI1979
k HLAÐVARPINN .
SVANASÖNGUR 1 EYJUM:
Með bugti og beggingum...
ENNÞÁ Rerast ævintýri segir í
öllum góöum ritum og svo er meö
svanina tvo á Tjörninni í Her-
jólfsdal í Vestmannaeyjum. Um
miðjan si'ðasta mánuð var hand-
sömuð álft á flækingi suður við
Stórhöfða á Heimaey og nokkr-
um dögum síðar önnur vestur á
Hamri. Voru þær báðar fluttar á
Tjörnina í Herjólfsdal þar sem
kynni tókust með bugti og beyg-
ingum þegar önnur álftin fór að
hressast, en hún hafði augsýni-
lega verið sjúk. Síðan hafa þær
ríkt á Tjörninni í sátt og sam-
i lyndi og menn gera sér jafnvel
j vonir um að þær hefji búskap
I með hækkandi sól. í hirð svan-
anna á Tjörninni hafa þennan
tíma verið fjórir hettumávar.
Eyjamenn hafa fylgst vandlega
með tilþrifum gestanna í Daln-
um, en það hefur verið brýnt
fyrir börnum og unglingum að
leyfa fuglunum að vera í friði f
Dalnum.
Tilhugalíf á Tjörninni í Herjólfsdal. Ljósm. SigurKeir
Notad og nýtt i
Betra brókarlaus?
í Morgunblaðinu s.l. sunnudag hljóp prent-
villupúkinn undir bagga á sfðunni Gamalt og
gott með því að bæta um betur í meðferð
málsháttar Betra er berfættum en bókarlausum
að vera. eins og sézt á meðfylgjandi klausu.
jíslenzkir málshætti
Betra er berfættum en brókarlausum að vera.
Þeim dugir ekki dagur. sem drekka fram á nótt.
Sé. sem aldrei er forvitinn. verður aldrei fróður.
Sjaldan hlýzt gott af gestum.
Illt er að glettast við gæfumanninn.
Sjaldar kemur hiksti af huga góðum.
Flokkssjóðurinn
Fyrrverandi bæjarfulltrúi krata í Reykjavík
sem nú er fluttur út á land var beðinn að gefa f
flokkssjóðinn fyrir skömmu. Hann sendi eftir-
farandi með framlaginu:
Enn skal litla færa fórn
flokksvélarnar tifa.
Valt er undir vinstri stjórn
vinur minn að lifa.
ÚTSKURÐUR
ólafur hjá nokkrum af þcim fuglum sem hann hefur tálgað og
skoriö út í tré. Ljósmynd Mbl. Emilfa.
„Mesthefég
tálgað fugla”
Hann er nýlega orðinn fimmtán ára gamall og á ýmis
áhugamál eins og gengur hjá ungu fólki, en það sérstæða er að
hann grípur stundum í það að tálga og skera út fuglana í
fuglaflóru íslands og vinnur verkið listavel, hefur revndar
fengist við þetta dútl síðan han var fi—7 ára gamall. Ólafur
Sveinsson heitir hann, sonur Sveins ólafssonar myndskera á
Skeggjagötunni í Reykjavík.
„Ég gríp í það að skera út og
tálga, en undanfana mánuði hef
ég mest hallað mér að blýantin-
um. Áhugi minn fyrir teikningu
hefur aukizt. Ég kynntist ungri
listakonu, systur vinar míns, og
hún kom mér inn á sporið aftur.
Ég byrjaði að tálga og fikta á
verkstæðinu hjá pabba þegar ég
var 6—7 ára gamall. Munstur í
spýtur voru fyrstu viðfangsefnin
og ég byrjaði meira að segja á
mynd af gömlum skútukalli sem
var á árabát, en hún er ekki búin
ennþá, hefur legið á verkstæðinu
síðan.
Mér finnst gaman að fást við
þetta, grípa í þetta sem fikt
þegar áhuginn kallar. Mest hef
ég tálgað fugla."
Ólafur hyggst fara til Svíþjóð-
ar í sumar til að vinna þar þegar
Austurbæjarskólanum lýkur.
„Ég bjóst við á fá góða vinnu hér
heima, en í gær fékk ég hins
vegar kolssvart nei og þá þýðir
ekki annað en grípa til annarra
ráða.“
DANSAÐ AF LÍFI OG SÁL
Rokkandi amma
Didda með premur dætrum sínum. Frá vinstri: Guðbjörg Hjördís 14 ára, Guöný Erla 6 ára, Didda og Guðrún
Ósk 15 ára. Sigríöur Eva 18 ára býr í Vestmannaeyjum.