Morgunblaðið - 12.05.1979, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ1979
Knattspyrnulid Akranoss kom hcim ígærdat' úr lengstu keppnisferð sem íslenskur íþróttahópur hefur farið.
Ileimferð hópsins frá Indónesíu tók 35 klukkustundir. Var liðsmönnum vel fagnað af eiginkonum og börnum
er heim var komið og færðir hiómvendir. Ljósmynd Kristján.
Sparisjóður Norðfjarðar:
Aukning umsvifa meiri
en nokkru sinni áður
Vilja friða
Faxaflóa
fyrir botn-
sköfum
AkraneHÍ. 11. maí.
KJARTAN Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra hélt fund með
útvegsmál hér á Akranesi í
gærkvöldi. Guðmundur Pálma-
son útvegsmaður setti fundinn
og hélt ræðu, sem fjallaði um
helstu áhugamál okkar Akur-
nesinga á þessum sviðum.
Ráðherrann skýrði málin frá
sjónarhóli ráðuneytisins og
svaraði spurningum, en margir
fundarmenn tóku til máls og
voru forvitnir um framtíðar-
horfur. Það sem einkenndi þó
fundiiin framar öðru var áhugi
manna og rökfastar ræður
byggðar á reynslu um að Faxa-
flói yrði friðaður fyrir botnsköf-
um í framtíðinni. - júiíuh.
STARFSEMI Sparisjóðs
Norðfjarðar efldist mjög á
síðasta starfsári og umsvifin
jukust meira en nokkru sinni í 59
ára sögu sjóðsins, segir í yfiriiti
um starfsemi hans árið 1978.
Aðalfundur Sparisjóðs
Norðfjarðar var haldinn 21. aprfl
síðastliðinn og flutti stjórnarfor-
maðurinn Rcynir Zoega,
gjaidkeri. skýrslu stjórnar fyrir
liðið starísár. Sigfús
Guðmundsson. sparisjóðsstjóri.
iagði fram og skýrði ársreikn-
inga sparisjóðsins.
Innstæðuaukning varð á árinu
meiri en nokkru sinni fyrr eða
225.4 milljónir króna, sem er
56.4% aukning og voru heildar-
innistæður sparisjóðsins komnar í
624 milljónir króna um síðastliðin
áramót. Innstæður sparisjóðsins
hafa nær fjórfaldast á fjórum
síðustu árum. Hlutfallslega hefur
aukningin orðið mest á vaxta-
aukareikningum, sem meira en
tvöfölduðust á árinu. Þá jukust
innistæður á ávísanareikningum
um nær 67% á árinu. Einstakling-
um og félögum, sem skipta við
sparisjóðinn reglulega með inn-
lánsviðskipti, fjölgaði verulega á
árinu og voru 400 nýir reikningar
stofnaðir á árinu.
Heildarútlánaaukning jókst um
42.65%. og nam kr. 350.1 millj. í
árslok. U.þ.b. 500 ný lán voru veitt
á árinu og fjöldi víxilskuld-
bindinga um 1.500. Meginhluti
lánveitinganna eða um 70% af
útlánum eru lán til íbúðabygginga
og íbúðakaupa.
í árslok var staða sparisjóðsins
góð gagnvart Seðlabanka Islands
og nam innstæða á viðskiptareikn-
ingi þá kr. 150.4 milljónum og
hafði hækkað um 86.5 millj. kr.
Bundið fé sjóðsins í Seðlabanka
jókst úr 95 milljónum í 139.9
milljónir eða um 42.7%. Þannig
námu heildarinnistæður sjóðsins
hjá Seðlabankanum í árslok um
kr. 290.2 milljónum. Tekjur sjóðs-
ins urðu samtals 193.2 miilj. og er
þar um 131.4%. aukningu að ræða.
Á sama tíma tvöfölduðust vaxta-
gjöldin. Tekjuafgangur sparisjóðs-
ins þrefaldaðist frá fyrra ári og
rekstrarhagnaður nam 72.9
milljónum. Reynir Zoéga var
endurkjörinn formaður sjóðs-
stjórnar.
Robert Havemann.
Rudolf Bahro.
Mótmæla opinberlega fang-
elsun Havemanns og Bahros
ísinn og ísnefnd-
in í kapphlaupi
til Raufarhafnar
Raufarhöfn. 11. maf.
HÉR er nú alit að fyllast af ís
eina ferðina cnn og velta menn
því helzt fyrir sér þessa stundina
hvort verði á undan ísinn eða
hafísnefndin. ísinn hefur í dag
þrýstst út úr Þistilfirði undan
austangolunni og ef svo heldur
sem horfir vcrður höfnin hér
lokuð um miðnætti. Haffsnefndin
var í dag á Bakkafirði. Vopna-
firði og Þórshöfn. en er væntan-
leg hingað til fundar í dag.
Trúlegast láta þorskveiðibát-
arnir sig lokast úti ef höfnin
lokast og landa í staðinn á Þórs-
höfn, en þar hefur ísinn mjög
minnkað í dag. Ef þetta færi eftir
yrði að aka aflanum hingað frá
Þórshöfn eins og Þórshafnarbúar
hafa mátt sækja afla sinna b
hingað að undanförnu.
Afbragðsgóður afli hefur verið í
þorskanetin hér að undanförnu
miðað við árstíma og grásleppu-
afli, sem venjulegast hefur verið
farinn að minnka um þetta leyti,
hefur verið mjög góður síðustu
daga. Til dæmis kom einn bátur-
inn að í gær með 10 tunnur, en á
bátnum eru tveir karlar og ein
kona. Þrjú skip eru væntanleg
hingað um helgina, Rauðinúpur,
mjölskip og lýsisskip. Þó svo að
höfnin lokist fyrir bátana gera
menn sér vonir um að þessi stærri
skip geti brotist í gegn.
Hér er mjög gott veður í dag,
hæg austangola og fallegt veður,
en hins vegar minnkar snjórinn
ekkert hér á Raufarhöfn og nær
víða upp á miðja húsveggi.
— Helgi
UM ÖLL lönd Vestur-Evrópu og
vi'ðar í heiminum er nú að hefjast
almenn undirskriftasöfnun undir
áskorun á stjórnvöld í Aust-
ur-Þýskaiandi. Þýska alþýðulýð-
veldinu DDR, að þau lýsi yfir
almcnnri sakaruppgjöf til handa
pólitískum föngum. í áskorun-
inni eru sérstaklega nefndir tveir
kommúnistar sem háfa verið í
haldi vegna pólitískrar afstöðu
sinnar, þeir Robert Havemann
eðiis- og efnafræðingur og Rudolf
Bahro hagfræðingur og heim-
spekingur. Sama dag og skipu-
leggjendur greindu fjölmiðlum
frá upphafi undirskrifta-
söfnunarinnar. 10. maf s.l. bárust
fregnir um það að Havemann
væri frjáls ferða sinna. og er það
merki þess að mótmæli vinstri
sinna undanfarin ár gegn með-
ferðinni á Ilavemann hafi nú
skilað árangri.
Stjórnmálamenn, rithöfundar
og aðrir listamenn, menntamenn,
vísindamenn og forystumenn
verkalýðssamtaka standa að hinni
nýju áskorun um sakaruppgjöf í
Austur-Þýskalandi, sem tengd er
30 ára afmæli Þýska alþýðulýð-
veldisins á komandi hausti. Níu
íslendingar eru í hópi þeirra sem
undirrituðu áskorunina áður en
tilkynnt var um hana opinberlega.
Þeir eru: Ragnar Arnalds mennta-
málaráðherra, Svavar Gestsson
viðskiptaráðherra, Atli Heimir
Sveinsson tónskáld, formaður
Tónskáldafélags íslands,
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Verkamannasambands ís-
lands, Kjartan Ólafsson alþingis-
maður, varaformaður Alþýðu-
bandalagsins, Njörður P. Njarðvík
lektor, formaður Rithöfundasam-
bands íslands, Ólafur R. Einars-
son sagnfræðingur, formaður út-
varpsráðs, dr. Páll Skúlason
prófessor, forseti heimspekideild-
ar Háskóla íslands, Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur, forseti
Bandalags íslenskra listamanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem
íslendingar mótmæla opinberlega
fangelsun Havemanns og Bahros
og skora á austur-þýsk stjórnvöld
að láta þá og aðra oólitíska fanga
lausa.
Meðal aðila sem þar hafa látið til
sín heyra eru þessir:
L'Humanité málgagn Kommún-
istaflokks Frakklands, L'Unitá
málgagn Kommúnistaflokks Ita-
líu, Carillo formaður Kommún-
istaflokks Spánar, sagnfræðingur-
inn Elleinstein og heimspekingur-
inn Althusser fremstu hugmynda-
fræðingar í franska kommúnista-
flokknum, öll þrjú ítölsku verk-
lýðssamböndin, franska verklýðs-
sanbandið CGT sem er undir
áhrifum kommúnista, Samband
málmiðnaðarmanna í Vest-
ur-Þýskalandi IG Metall, forystu-
menn úr ítalska kommúnista-
Norræna félagið og æskan
Norræna félagið hyggst auka
samskipti æskunnar á Norður-
löndum. Reykjavfkurdeild félags-
ins hefur ákveðið að efna til
fundar f Norræna húsinu mánu-
daginn 14. maí n.k. kl. 20.30 til
að kynna námsmögulcika á Norð-
urlöndum og styrkveitingar til
sliks náms, einnig atvinnumögu-
leika á Norðurlöndum. ódýrasta
ferðamátann og hætturnar sem
mæta ungu fólki í stórborgum.
Innan Norræna félagsins er stór
hópur æskufólks. Félagið hefur
aðstoðað ungt fólk við að vistast á
lýðháskólum á Norðurlöndum og
haft milligöngu um styrkveiting-
ar.
Ungt fólk, eins og aðrir félag-
ar, hefur átt aðgang að afsláttar-
ferðum félagsins og félagið hefur
oft aðstoðað einstaklinga og hópa
við að sækja ráðstefnur ætlaðar
ungu fólki. Á vegum Norræna
félagsins og Æskulýðssambands
Islands starfar nefnd er sér um
norræn samskipti æskufólks.
Reykjavíkurdeild Norræna fé-
lagsins væntir þess, að ungt fólk
af höfuðborgarsvæðinu sæki áður-
nefndan fund, sem er öllum opinn
meðan húsrúm leyfir.
Aðalfundur Reykjavíkurdeild-
arinnar verður svo miðvikudaginn'
30. maí í Norræna húsinu.
flokknum svo sem Bolaffi ritstjóri
Rinascita og Lombardo-Radice,
Pietro Nenni forystumaður í
Sósíalistaflokki Ítalíu, Martinet
forystumaður í Sósíalistaflokki
Frakklands, Gerhard Schröder
formaður sambands ungra
jafnaðarmanna í Vestur-Þýska-
landi, fjölmargir þingmenn verka-
mannaflokksins breska, mennta-
menn, verklýðsleiðtogar og aðrir
félagsmenn í Kommúnistaflokki
Bretlands, heimskunnir rit-
höfundar og lista-menn: Simone de
Beauvoir, Heinrich Böll, Eduard
Goldstúcker, Gúnter Grass, Gra-
ham Greene, Arthur Miller, Mikis
Þeodorakis. (Fréttatilkynning).
Ragnar Lár
sýnir á
Akranesi
Ragnar Lár opnar í dag,
laugardaginn 12. maí, sýningu
á verkum sínum í Bókasafns-
húsinu á Akranesi. Sýningin
verður opin til mánudagsins
14. maí frá kl. 15 til 22. Á
sýningunni eru 50 myndir unn-
ar á s.l. vetri í vatnsliti, akryl
og olíukrít.
T
Sjálfsmynd eftir Ragnar.
i