Morgunblaðið - 02.08.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
11
innlendum skipum eru slík, að
forsendur eru brostnar fyrir
útgerð."
Ríkisstjórnin gæti
sprungið hvenær
sem er
— Telur þú líklegt að ríkis-
stjórnin springi á þessu máli?
„Ég hef nú búizt við því annan
hvern dag frá því að hún var sett
á laggirnar að hún springi og
það gæti reyndar gerst hvenær
sem er. Annars held ég, að
alvöruerfiðleikar eins og við nú
horfumst í augu við, verði frem-
ur til að halda henni saman en
hitt.“
— Finnst þér ekki að fors-
endur samvinnu ykkar við
Alþýðuflokkinn séu brostnar
með þessum aðgerðum
Kjartans?
„Ég vil nú ekki segja að þær
séu brostnar. Ég vil alla vega
trúa því, að það takist að greiða
úr þessari vitleysu, ef ekki, þá er
ekki gott að segja tii um hversu
þungt þetta mál vegur.“
— Er þessi sveigjanleiki
ykkar, sem styðjið þessa ríkis-
stjórn, ekki einsdæmi að þínu
áliti?
„Nei, það held ég ekki. Við
höfum viðmiðun frá Italíu og ég
held að slíkur sveigjanleiki þurfi
ekki ætíð að vera neikvæður."
— Hvernig er atvinnumálum
háttað hér á Reyðarfirði?
„Við erum lausir við atvinnu-
leysi, en hér er ekki það sem
kalla mætti rífandi atvinna. Við
fáum fisk úr hálfum skuttogara
á móti nágrannabyggðarlögun-
um og einnig höfum við nokkra
þjónustustarfsemi. Aðsetur
Vegagerðarinnar á Austurlandi
hér vegur þó þyngst til öryggis
atvinnulífsins."
Olíuhækkunin hrein
ósköp fyrir
landsbyggðarbúa
— Nú ert þú þingmaður
dreifbýlisins. Hvert er þitt álit á
síðustu aðgerðum ríkisvaldsins,
olíuhækkununum, og hvernig
kemur hækkunin við fólk úti á
landsbyggðinni?
„Ég vorkenni ekki fólki á
hitaveitusvæðum, þó olían
hækki, en þetta eru hrein ósköp
fyrir landsbyggðarbúa og aðra
þá sem kynda þurfa hús sín með
olíu. Það getur kostað eina fjöl-
skyldu á milli 60—70 þús. kr. á
mánuði, og það fer síðan eftir
fjölskyldustærð, hversu endur-
greiðslur frá hinu opinbera eru
háar. Varðandi benzínhækkun-
ina þá er nú ætíð verið að ræða
um að skattleggja eyðsluna og er
það ekki best gert með þeirri
hækkun?"
Varanlegt slitlag
á hringveginn
ekki allsherjarlausn
Helgi á sæti í fjárveitinga-
nefnd Alþingis og spurði ég
hann í lokin, hvort honum
fyndist því fé, sem tekið er af
umferðinni, vera rétt varið?
„Nei, það er nú það. Ég held að
allir gætu sætt sig við að borga
hátt benzínverð, ef meiri hluta
af því sem rennur til ríkisins
væri látinn i Vegasjóð. Við
reyndum í fjárveitinganefnd í
vor að fá nokkra lagfæringu á
þessu. I stað þess að samdráttur
átti að vera 12% á fjárhæðum til
Vegasjóðs, eins og öðru, þá var
upphæðin samþykkt nokkurn
veginn óbreytt frá fyrri fjárlög-
um. En það er sama í þessu eins
og með olíuna. Þetta er allt mun
erfiðara úti á landsbyggðinni.
Mikið er rætt um að leggja
varanlegt slitlag á hringveginn
eins og það sé allsherjarlausn í
vegamálum landsmanna. Á
sama tíma eru bændur svo til
algjörlega einangraðir stóran
hluta ársins af því að ekki er
akfært heim til þeirra. Þeir eru
ekki að krefjast varanlegra vega,
aðeins að fá að halda sambandi
við umheiminn, þannig að
spurningin um röðun fram-
kvæmda kemur þarna upp, eins
og í fleiri málum."
F. P.
Sfif-
tilboð:
Frítt fyrir einn
í 5 manna hópi.
Útborgun 40. þús.
Eftirstöövar á 5 mán.
Sérstakur
barnaafsláttur.
Gildir aöeins fyrir
nokkur óseld sæti til
Costa del Sol 14. og
22. sept. Lignano 9.
sept. og Portoroz 9.
sept.
^ sérhæft starfs-
fólk Útsýnar aöstoöa
ykkur aö velja réttu ferðina meö hag-
stæöustu kjörum og greiösluskilmálum.
Flug á loftbrúnni
til Miöjaröar-
hafsins kostar
minna en akstur
kringum landiö.
Austurstræti 17, II. hæð símar 26611 og 20100.
TORREMOLINOS
Brottför alla föstudaga. Vinsælasti sólbaðsstaöur í Evrópu. Besta loftslag álfunnar meö öruggt
sólskin.
Útsýn býöur bestu gististaö-
ina á lægsta veröi og orö-
lagða þjónustu. Úrvals kynn-
is- og skemmtiferö meö íst.
fararstjórum. Liföu lífinu lif-
andi í Útsýnarferö.
Frábærir gististaðir
El Remo glæsilegar íbúðir. Santa
Clara lúxusglstistaöur. Iris vand-
aöar nýtízku fbúöir í fögru og
rólegu umhverfi. Tamarindos
þægilegar íbúöir skammt frá vin-
sælustu skemmtistööunum.
Akureyri
Aöalsteinn Jósepsson,
Verslunin Bókval,
Kaupvangsstræti 4,
S: 96-22911 — 22734.
UMBODSMENN UTSYNAR
Húsavík
Einar Olgeirsson,
Hótel Húsavík.
S: 96-41220.
Egilsstadir
Ólafur Guómundsson,
Kennslutækni s.f.
Laufási 8.
S: 97-1217.
Höfn Hornafirdi
Þorgeir Kristjánsson,
Verslunin Þel,
Svalbardi 1. S: 97-8144.
Ves tmannaeyjar
Siguröur Guömundsson,
Bröttugötu 35.
S: 98-1782.
Selfoss
Jón Ingi Sigurmundsson,
Kirkjuvegi 25.
S: 99-1273.
Akranes
Ólafur B. Ólafsson,
Bókaverslun Andrésar
Níeissonar,
Skólabraut 2. S: 93-1985.
Ólafsvík
Emanúel Ragnarsson,
Ólafsbraut 65.
S: 93-6254.
Bolungarvík
Ólafur Kristjánsson,
Vitastíg 20.
S: 94-7175.
Saudárkrókur:
Árni Þorbjörnsson,
Smáragrund 1.
S: 95-5160.