Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 14

Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979 Olafur Hansson prófessor sjötugur Meðal íslendinga hafa á öllum öldum verið menn sem þjóðsögur mynduðust um í lifanda lífi. Orð- fimi sumra varð tilefni þessa eða afrek af öðru tagi. Nokkrir nutu þekkingar sinnar, sem talin var með ólíkindum. Einn þeirra er afmælisbarn dagsins Ólafur Hansson prófessor. Ólafur fæddist í Reykjavík hinn 18. september 1909 og er af borg- firskum og norskum ættum. Hann tók stúdentspróf árið 1928 og stundaði síðan háskólanám í Osló og Berlín og lauk eand. mag. prófi frá Oslóarháskóla árið 1933. Síðan hafa kennslustörf verið viðfangs- efni hans, þótt drjúgur tími hljóti einnig að hafa farið til fræðiiðk- ana og ritstarfa. Ólafur var skóla- stjóri gagnfræðaskólans á Nes- kaupstað 1934—36, en réðst þá að Menntaskólanum í Reykjavík og kenndi þar sögu og þýzku unz hann var skipaður prófessor í almennri mannkynssögu við Há- skóla Islands. Þá grein hafði hann reyndar kennt þar um árabil, er hann fékk prófessorsembættið eða frá 1951. Af ritverkum Ólafs munu kennslubækur hans þekkt- astar svo og bækur hans um heimsstyrjöldina síðari og bækur í bókaflokknum Lönd og lýðir Mannkynið og Noregur. Þá hefur Ólafur samið Árbók íslands í Almanaki Þjóðvinafélagsins und- anfarin mörg ár, en það verk er með þeim hætti, að skráning þess hlýtur að krefjast mikils tíma og árvekni. Hér að framan er sagt að kennsla hafi verið lífsstarf Ólafs. Hann var skemmtilegur kennari, sem kunni, eins og alþekkt er, að vekja áhuga nemenda sinna á námsefninu og jós ótæpt af fróð- leiksbrunni sínum í kennslustund- um. Enginn skyldi þó halda að kennsla Ólafs hafi einkennst af fróðleikstíningi einum. Hann hafði geysigóða yfirsýn í kennslu- greinum sínum og dró fram aðal- atriði á skipulegan hátt. Munu þeir nemendur sem nutu kennslu hans í þýzku sem byrjendur í 3. bekk, vera á einu máli um að skýrleiki hans í kennslu nafi auðveldað þeim að mun að tileinka sér undirstöðuatriði þessa erfiða tungumáls. Samband hans við nemendur var og með þeim hætti, að kynnin af kennaranum hvöttu þá til dáða. Yfirburðir kennarans í kennslugreinunum voru á allra vitorði, en sjálfur vildi Ólafur ekki mikið úr því gera, notað frekar hæfileika sína til þess að byggja upp sjálfstraust nemenda sem auðveldlega hefðu getað fyllst minnimáttarkennd gagnvart þeim, enda var auglýsinga- mennska eigin verðleika Ólafi fjarri skapi. Ólafur virðist hafa áhuga á ólíklegustu hlutum og lætur sér fátt óviðkomandi eins og góðum húmanista vel gegnir. Honum lætur jafnvel að rabba um ferða- lög sín um landsbyggðina á árun- um fyrir stríð, sem refskák og baktjaldamakk stjórnmálamanna nútímans. Öll umræðuefni eru rædd af hleypidómaleysi og án boðunar stórasannleika eða heimsfrelsunar, enda líklegt að Ólafur hafi fyrir löngu komist að þeirri niðurstöðu að Messíasar- hlutverkið væri ekki öllum hent. Þetta hefur ekki breytzt þótt æviárin séu orðin jafnmörg og raun ber vitni um. Undirritaður vill nota þetta tækifæri til þess að senda Ólafi, frú Valdísi Helga- dóttur konu hans og Gunnari syni þeirra innilegar hamingjuóskir vegna þessa tímamóta í ævi hans. L.B. Þeir eru mér hver öðrum minnisstæðari sögukennarar mín- ir í gagnfræða- og menntaskóla, Knútur Arngrímsson, Sverrir Kristjánsson og Ólafur Hansson prófessor, menn sömu kynslóðar og miklir húmanistar. Nú er Ólafur sjötugur í dag og lætur þá af sínu langa og farsæla starfi við að fræða ungt skólafólk um sögu heimsins. Allir þessir ágætu menn koma oft í huga minn, þegar minnzt er frábærra lærifeðra, gagnmenntaðir hver á sína vísu og sérstæðir persónuleikar. Fræðslustarf þeirra var sam- tvinnað á margan hátt og kom einna bezt fram í því, að þeir höfðu nána samvinnu um að rita kennslubækur í sögu fyrir skóla- stig þau, sem þeir höfðu haslað sér völl á: Knútur og Ólafur sömdu rit fyrir gagnfræðaskóla, sem notuð voru árum saman og hefur þar enginn farið fram úr þeim síðan, en Sverrir og Ólafur báðir saman eða Ólafur einn rituðu sögubækur fyrir menntaskóia. Af þessu má sjá, að áhrif þeirra hafa verið mikil í mótun söguþekkingar á okkar tíð, og það er ekki lítilsvirði, því að án sögulegrar þekkingar í mörgum greinum getur enginn skilið, hvað þá kveðið upp dóm um það, sem gerist í nútíðinni. Sagan er óhjákvæmilegur grundvöllur þess, að menn líti fordómalaust á hlutina og geri sér grein fyrir því, að fátt er nýtt undir sólinni. Með sögulega þekkingu og skilning að bakhjarli skynja menn, að hlutirnir, — hvort sem um sögu- legar persónur, kenningar eða viðburði er að ræða, — eru ekki annað hvort góðir eða vondir, svartir eða hvítir, réttir eða rang- ir, heldur oft á tíðum allt þar á milli. Ég nefni þetta hér vegna þess, að mér finnst þessi skilningur hafi alla tíð verið dæmigerður fyrir Ólaf Hansson, svo að þeir nemendur, sem hafa notið fræðslu hans og kennslu hafa fengið drjúgt veganesti í lífinu. Sögu má kenna með ýmsum hætti, og Ólafur hafði sinn persónulega hátt á í menntaskóla, sem manni kom á óvart í byrjun og kunni kannski ekki að meta nægilega þá stundina, en hefur síðar sann- færzt um, að var ótvírætt árangursrík leið að markinu og stórgagnleg. Við minnumst þess ætíð nemendur hans, er hann kom hress og glaður í bragði inn í skólastofuna, lét nemendur rekja stuttlega lexíu dagsins, en eyddi síðan drjúgum hluta tímans í að fræða okkur um alþjóðleg orö og hugtök, sem sett hafa mark sitt á stjórnmála- og menningarsöguna frá fornöld til nútíðar. Þessa aðferð hafði hann svo fullkomlega á valdi sínu, beitti henni áreynslu- laust og á eðlilegan hátt, án þess að hafa nokkra bók við að styðj- ast, því að þekking hans er ótrú- lega víðfeðm og minnið svo traust að með ólíkindum er, enda má óhikað segja, að þegar sögukenn- ari lætur kennslubókina ekki stýra alfarið kennslu sinni, upp- hefjist hið sanna nám. Nemendur alla þekkti Ólafur fljótlega betur en nokkur annar og kunni skil á þeim út í yztu æsar og er það ekki lítilsverður stuðningur fyrir kenn- ara í samskiptum við fjölbreyttan nemendahóp. Hann hafði einlægt svör við spurningum okkar, — það var aldrei komið að tómum kofan- um, þar sem Ólafur var. Þess vegna er hann okkur öllum óvenjulega eftirminnilegur, og það, sem manni kann að hafa fundizt áfátt í gamla M.R., hverfur eins og dögg fyrir sólu, þegar minnzt er kennslunnar hjá Ólafi Hanssyni. Ég er einn í hinum stóra og þakkláta hópi menntaskóla- nemenda hans. Hér við bætist, að hann var einnig kennari minn í mannkynssögu í Háskóla íslands um nokkurra ára skeið, og þar átti ég enn betur eftir að kynnast nýrri hlið á sérstæðum kennara, sem kunni bæði fag sitt, staðreyndir sögunnar, og hafði hæfileika til að miðla þeim til stúdenta sinna og vekja áhuga þeirra í þeirri grein, sem þeir höfðu kjörið sér. Um leið urðu kynnin persónulegri og nánari en verið hafði í menntaskólanum, og þau kynni urðu líka enn frekar til að stækka manninn í augum nemandans vegna góðvildar hans og hlýleika, hins manneskjulega þáttar, sem er ómetanlegur fyrir ungt og óharðnað fólk. Allt þetta hefur fengið frekari staðfestingu í því samstarfi, sem við Ólafur höfum átt í Háskólanum eftir að ég varð þar prófdómari í sögu fyrir nokkrum árum. Fyrir það samstarf er ég einnig þakklátur, það hefur verið lærdómsríkt og ég sakna þess, að það skuli ekki vera lengra. Nú þegar prófessor Ólafur er orðinn sjötugur og lætur því af starfi fyrir aldurs sakir, eru engin ellimörk á honum að sjá, hann er jafn lifandi og áhugasamur um samtíðina og minnugur á fortíðina sem áður, og það er ósk mín, að hann eigi marga góða daga framundan til að auðga anda sinn og velta fyrir sér mannlífinu á sinn filosofíska og humoristíska hátt af þeim sjónarhól, sem langt og farsælt líf hefur skilað honum upp á. A þessum merkisdegi í lífi Ólafs eru þeir ófáir, sem senda honum hlýjar kveðjur og mikla þökk fyrir ógleymanlega kennslu og kynni. Persónulega vil ég segja, að það hefur verið mér óblandin ánægja að hafa átt hlut að útgáfu af- mælisrits honum til heiðurs sjötugum; það kemur út nú í dag, á afmælisdaginn, á vegum Sögu- félags en að tilhlutan Sagnfræði- stofunar Háskóla Islands, Sagnfræðingafélagsins og Sögu- sjóðs Menntaskólans í Rpykjavik. Rit þetta, sem nefnist Söguslóðir, er allviðamikið og í það rita 25 fræðimenn, nemendur og sam- starfsmenn prófessors Ólafs, sem vilja með því auðsýna honum verðskuldaða viðurkenningu sína og þökk fyrir kennslu hans og framlag í þágu sagnfræði á íslandi. Ritinu fylgir heillaóska- listi með meira en eitt þúsund nöfnum og ber fátt skýrara vitni um þann stóra aðdáendahóp, sem Ólafur á um allt land. í Söguslóð- um er og að finna skrá yfir ritsmíðar Ólafs og er það langur listi nær hálfrar aldar ritferils, sem sýnir, að hann hefur ekki setið auðum höndum um dagana, þótt kennslunni væri sleppt. Ég sendi Ólafi Hanssyni og fjölskyldu hans einlægar hamingjuóskir og kærar kveðjur á þessum tímamótum í lífi hans um leið og ég vonast til að mega eiga með honum samstarf og njóta kunningsskapar hans lengi enn. Einar Laxness. Fyrir meir en þrjátíu árum varð kunningjum mínum í Menntaskól- anum í Reykjavík tíðrætt um sögukennara sinn Ólaf Hansson. „Hann veit allt“ sögðu þeir með aðdáun. Enn í dag ljóma andlit námsmeyja Ólafs, er hann berst í tal. Frá æskuárum hef ég metið sögu mest allra námsgreina og þarafleiðandi litið upp til sagn- fræðinga. Mér var því forvitni á að sjá með eigin augum títtnefndan Ólaf Hansson. Einn góðan veðurdag gekk ég uppað gamla M.R. ásamt kunn- ingja mínum og var þar vokandi um hríð utan dyra í von um að sjá þennan dýrðarmann. Og mér varð að ósk minni: Ólafur kom útúr skólanum að nokkrum tíma liðn- um. Ég einblíndi á manninn, er hann gekk sem leið liggur niður í Lækjargötu, mikill og glæsilegur að vallarsýn. Þessum manni lang- aði mig til að kynnast. Fyrsti samskipti okkar Olafs voru þó lítt persónuleg, raunar spaugileg. Ég sat í stúdentsprófi í eðlisfræði í M.R. vorið 1953. Prófið hófst 15 mínútum síðar en ákveðið var. Ég sat lengi, var orðinn einn eftir í skólastofunni ásamt Ólafi Hanssyni, er sat yfir. Skyndilega gekk hann til mín og sagði: „Eruð þér ekki að verða búinn, tíminn er liðinn." Ég sagðist eiga rétt á að sitja 10 mínútum lengur og svar hans kom eldsnöggt: „Reynið þá að flýta yður.“ Þetta fannst mér framlágum utanskólamanni, allt að því nagandi blýantinn yfir verkefninu, þunnar trakteringar! Mér rann í skap, en viti menn, hvað sem olli, þá lá lausnin á dæminu, sem ég glímdi við, allt í einu Ijós fyrir! Og ég var mannin- um þakklátur, er upp var staðið. Síðar átti ég eftir að kynnast Ólafi Hanssyni. Þá var ég nem- andi hans í sagnfræði við Háskóla íslands á árunum 1954—59. Á þau kynni hefur aldrei fallið skuggi. Skemmst er frá því að segja, að hann er einhver ágætasti maður, sem ég hef þekkt. Hann er stór- brotinn alþýðlegur höfðingi, vitur og allra manna lærðastur, minni hans greypt í stál, eins og alþjóð er kunnugt. Kannski hef ég dáðst mest að þekkingu hans á fólki, hvort heldur um er að ræða fjarlægar þjóðir og menningu þeirra eða einkenni ætta og ein- staklinga á íslandi. Mér er enn í fersku minni, hve undrandi ég varð, þegar hann rakti móðurætt mína eftir ferð um Jökuldal fyrir mörgum árum. Þá kom mér sjálf- um margt á óvart. Líklega er þó mest um hitt vert, hve góður drengur og hégómalaus maðurinn er. I þessari stuttu afmæliskveðju er ekki unnt að lýsa honum til neinnar hlítar, cn ekki mun of- mælt, þótt sagt sé, að fáir hafi haft varanlegri og djúptækari áhrif á nemendur sína — og ég hygg alla þá, er honum hafa kynnst — en Ólafur Hansson. Ólafur var eftirminnilegur sögukennari, bráðskemmtilegur, víðsýnn, laus við smásmygli. Fyr- irlestrana flutti hann blaðalaust, svo mikil var þekkingin og minnið trútt. I sögukennslunni, var mat hans á mönnum og málefnum hlutlægt. Hann predikaði aldrei, innrætti ekki skoðanir, en gefa stúdentum sýn tíl ýmissa átta, þannig að þeir gætu sjálfir dregið ályktanir. Hann hóf sagnfræðina sem grein aldrei til skýjanna berum orðum. Engu að síður fannst okkur stúdentum, undir handleiðslu hans, að sagan væri drottning húmanistiskra fræða og við sannfærðumst um, að þjóðir sem eiga sér sögu deyja ekki, þótt þær séu fátækar af þessa heims gæðum og yfir þær steypist hung- ur, hallæri og erlend áþján. Ólafur Hansson hefur ekki lagt metnað sinn í það að safna í kornhlöður, velferðar- og lífsþæg- indasjónarmið eru honum fjarri. Það er með hann sem forfeður vora ýmsa, er létu eftir sig lítinn veraldarauð en þeim mun meiri andleg verðmæti. Með þessum fáu orðum var ekki fyrst og fremst ætlað að mæra Ólaf sjötugan, enda ekki á mínu færi að gera það svo sem ég hefði viljað og vert væri. Það munu aðrir gera miklu betur, ekki síst Söguélagið, sem heiðrar hann í dag með útgáfu myndarlegs af- mælisrits. Þessi stutta afmælis- kveðja er einungis lítill þakklætis- vottur lærisveins til lærimeistara fyrir ágæta leiðsögn og ógleyman- leg kynni. Lifðu heill Ólafur. Ingólfur A. Þorkelsson. Tveir nemendur standa undir vegg hinnar sögufrægu byggingar, sem eitt sinn hýsti endurreist alþingi Islendinga, og nú í hálfa öld hefur verið samastaður skóla þess, sem hófst í Skálholti fyrir nær þúsund árum og táknar upp- haf siðmenningar á Islandi. Annar þeirra er nýsveinn og er að rekja vandræði sín fyrir eldri og reynd- ari vini sínum. Eitthvert „stór- mál“ sem í augum fullorðinsrá- anna kann að virðast hégómi er hlaupið í torleystan hnút. Farðu og ræddu þetta við Ólaf Hansson, hann vill okkur öllum vel, voru lokaorð hins eldri og reyndari. Utanbæjarpilturinn þurfti án efa talsvert að herða upp hug sinn til þess að kveðja dyra hjá háæru- verðugum menntaskólakennara á fimmta tug aldarinnar. Þetta var líka á tímum þéringa og manna- siða á íslandi. En sú alúð og vinsemd sem Ólafur sýndi þessum bráðókunna pilti, sem honum var

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.