Morgunblaðið - 01.11.1979, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 01.11.1979, Qupperneq 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Rítstjórnarfulltrúi Fróttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiðsla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aöalstræti 6, sími 22480. Sími83033 Kosið verður um skattastefnu Lofað var afnámi tekjuskatta af launatekjum. Efndirnar urðu afturvirkur skattauki 1978 og stórhækkaðir tekjuskattar 1979. Álagður tekjuskattur einstaklinga í ár (félög ekki meðtalin) nam 39 milljörðum króna brúttó en 29 milljörðum nettó. Jafnhliða vóru eignaskattar margfaldað- ir. 1978 kom 50% skattauki á eignaskatt einstaklinga og 100% skattauki á atvinnurekstur. Þessir skattar vóru enn auknir með nýjum lögum í ár. Álagðir eignaskattar á einstaklinga hækkuðu um 111% og á atvinnurekstur um 182% milli ára, ef skattaukinn frá fyrra ári er ekki með talinn. Að auki var lagður nýr skattur á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði. Óbeinir skattar, sem koma fram í vöruverði, svo sem vörugjald og söluskattur, vóru og hækkaðir, eins og heimilin í landinu hafa svo ríkulega orðið vör við í innkaupum sínum síðustu vikur og mánuði. Skatttekjur af benzíni og áfengissölu og aðrar skattaleiðir þróuðust á sömu lund. Tilgangur þessarar skattheimtu, sem kom fram í lægri ráðstöfunartekjum almennings og hærra vöruverði, var sagður sá að skila hallalausum ríkisbúskap 1979 og greiða niður skuldir við Seðlabanka. Efndirnar verða, að sögn Ólafs Jóhannessonar, fv. forsætisráðherra, í skýrslu um Þjóðhagsáætlun 1980, 5—6 milljarða króna rekstrarhalli ríkissjóðs 1979, sem að sjálfsögðu þýðir skuldasöfnun í stað skuldaniðurgreiðslu. Dæmigerður vinstri stjórnar árangur. Samkvæmt frumvarpi Tómasar Arnasonar að fjárlögum komandi árs á skattheimtan enn að aukast — og ekkert smáræði. Tekjur ríkissjóðs 1980 eru áætlaðar 100.000 milljónum króna hærri en í ár. Þessi tekjuhækkun á að koma fram um eignaskatt, tekjuskatt og skatta í vöruverði. Tómas sagði alla ráðherra fráfarandi stjórnar hafa átt meiri og minni þátt í mótun þeirrar skattastefnu, er frumvarpið ber með sér. Það er m.a. þessi skattastefna vinstri stjórnarinnar, sem kjósendur taka afstöðu til í komandi Álþingiskosningum. Hvítflibba-sósíalistar Morgunblaðið getur tekið undir með Þjóðviljanum, að sigurstranglegra hefði verið fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, ef hlutur forystumanna launþega í röðum sjálfstæð- ismanna, Guðmundar H. Garðarssonar og Péturs Sigurðs- sonar, hefði orðið meiri í nýafstöðnu prófkjöri flokksins í Reykjavík, og raunar á það sama við um Ragnhildi Helgadóttur. Hitt kemur úr hörðustu átt þegar þessi framboðsflokkur hvítflibbasósíalista reynir að gera sér mat úr þessum prófkjörsniðurstööum. Á síðasta þingi var aðeins einn verkalýðsfulltrúi í 14 manna þingliði Alþýðubandalags- ins. Og sýnt er, að verkalýðsrekandinn Guðmundur J. Guðmundsson verður sá eini úr félagsramma Verkamanna- sambandsins, sem skipað verður í líklegt þingmannssæti á framboðslistum flokksins. Svanur Kristjánsson, lektor, birti árið 1976 í Þjóðviljan- um úttekt á hlut verkafólks í framboðsmálum Alþýðubanda- lagsins. Niðurstaða hans var sú að hlutur verkafólks hefði lækkað úr 20% hjá gamla Sósíalistaflokknum — um meira en helming — eða niður fyrir 10% hjá Alþýðubandalaginu. Hann taldi þá 72% frambjóðenda Álþýðubandalagsins úr hópi menntamanna, blaðamanna og forstöðumanna fyrir- tækja og stofnana. Ekki virðist vegur verkafólks hafa vaxið hjá Alþýðubandalaginu síðan 1976 nema síður sé. Framboð Alþýðubandalagsins eru yfirleitt ráðin af þröngum flokksklíkum, þar sem fjöldaáhrif koma ekki til. Hér í Reykjavík var að vísu viðhaft forval, sem þó náði aðeins til flokksbundinna og skuldlausra félaga í Alþýðu- bandalagsfélaginu. Þetta orð skuldlausra minnir á þá takmörkun mannréttinda frá fyrri tíð, er þeir einir fengu að kjósa, sem tekjuskatt báru. Vissulega er hægt að stýra framboðsniðurstöðum betur að vilja flokksforystu með þessum hætti en með opnu prófkjöri. Engu að síður verður niðurstaðan sú hjá Alþýðubandalaginu, að eini verkalýðs- fulltrúinn í líklegu sæti hjá því er Guðmundur J. Guðmundsson, hvort sem hann svo höfðar til verkafólks sem alþingiskandídat eða ekki. Þetta er öll þessi verkalýðsreisn. Svo að ekki sé nú talað um þá þróun, að allt bendir til að alþýðubandalagsþingmaðurinn úr röðum kvenna í Reykjavík sé liðin saga — a.m.k. í bili. Höfum minnkað tap á utanríkisversluninni — segir Odvar Nordli um árangur verðstöðvunarinnar í Noregi -VIÐ TELJUM að sjá megi þegar nokkurn árangur verð- og launastöðvunarinnar í Noregi, sem verið hefur að undanförnu og mun ljúka um áramót þegar hún hefur staðið í hálft annað ár, sagði Odvar Nordli forsætisráð- herra Noregs í samtali við Mbl. -Þegar í dag má segja að tekist hafi að minnka veru- lega allar verðhækkanir og hafa þær lækkað úr 9% í 5% að meðaltali sé litið til langs tíma, við höfum minnkað verulega það tap sem var á utanríkisverslun- inni, höfum aukið útflutn- ing á okkar hefðbundnu útflutningsvörum og erum nú með jákvæðan vöru- skiptajöfnuð. Auk þessa hefur okkur tekist að halda fullri atvinnu allan tímann, en það er eitt af höfuð- markmiðunum, sem sett var þegar verðstöðvuninni var komið á. Hvað tekur við þegar verðstöðvun lýkur um ára- mótin? -Enn er of snemmt að segja nokkuð til um hvað tekur við. Á næstunni fara í hönd samningar við aðila vinnumarkaðarins og þá verður farið að ræða spurn- ingar um launahækkanir svo og auknar verðhækkan- ir, en á þessu stigi er ekki hægt að segja neitt til um hvað þær samningaviðræð- ur hafa í för með sér, sagði Nordli að lokum og vildi hann aðspurður ekki ræða um Jan Mayen málið. Ljósm. ÓL.K.M. Odvar Nordli forsætisráðherra Noregs Frá fundi forsætis- og samstarfsráðherra Norðurlairda: Samkomulag um norrænan vinnumarkao einn af horn- steinum norrænnar samvinnu Engin ákvörðun um Nordsat ennþá ÁRLEGUM fundi forsætisráðherra Norðurlanda og ráðherranefndarinnar lauk í Reykjavík í gær og var þá haldinn fundur með fréttamönnum þar sem greint var frá helstu málum fundanna, en jafnframt þeim hélt forsætisnefnd Norðurlandaráðs fund m.a. til undirbún- ings næsta þingi ráðsins er halda á í Reykjavík og á fundi hennar með forsætisráðherrunum var fjallað um mikilvægustu málin á sviði norrænnar samvinnu næsta áratug. Samstarfsráðherrarnir, sem fara með málefni er snerta samvinnu Norðurlandanna greindu forsætisráðherrunum frá gangi mála og var helst fjallað um samvinnu á sviði efnahagsmála, samnorrænar rannsóknir, norræna sjónvarps- hnöttinn Nordsat og samvinnu á sviði stórframkvæmda. Þá bar á góma þær umræður er farið hafa fram milli landa EBE og EFTA, möguleika á þróun samvinnu þeirra í milli og hversu mikilvæg þessi viðleitni væri fyrir Norður- löndin. Á fundi með fréttamönnum kom fram að lokið er Nordsat könnuninni og háfa tæknileg, fjárhagsleg, lögfræðileg og menningarleg atriði verið kynnt ráðherrunum, en sögðu þeir að ekki væri unnt að taka endan- lega afstöðu til skýrslunnar fyrr en umsögn hvers lands lægi fyrir. Norræna rannsóknaráðið á sviði efnahagsmála á nú að leggja grundvöll að aukinni sam- vinnu með rannsóknum á efna- hagssviðinu og voru forsætisráð- herrarnir sammála um þýðingu þeirra rannsókna og er hafin könnun á því hvort gas og olía er finnast kynni utan Norður- Noregs, gæti haft þýðingu fyrir þróun atvinnulífs í Norðurkollu. Hefur m.a. verið rætt um hlut Norræna fjárfestingarbankans í þessu máli. Einn af hornsteinum nor- rænnar samvinnu kváðu þeir vera samkomulagið um norræn- an vinnumarkað, sem hefur nú staðið í aldarfjórðung og sagði Lise Östergaard, einn samstarfs- ráðherranna, að yfir ein milljón manna hefði notfært sér þann möguleika að flytjast milli Norð- urlandanna og taka upp störf þar og hefðu þessir flutningar ekki haft áhrif á atvinnuleysi í löndunum. Danir lögðu til að fundum norrænu forsætisráðherranna og samstarfsráðherranna yrði fjölgað og hlaut sú tillaga ein- róma fylgi og lögðu forsætisráð- herrarnir áherslu á að þróunin næsta áratug krefðist meira samstarfs og örari samskipta á öllum sviðum norrænnar sam- vinnu. Einnig var af hálfu Dana greint frá að til athugunar væri að taka upp sumartíma í Dan- mörku 1980 til samræmis við Þýskaland og verður kannað í Noregi og Svíþjóð hvort mögu- leikar eru til samræmingar á tíma. Þá létu forsætisráðherrarnir í ljós ánægju sína yfir því að ráðherranefndin, samstarfsráð- herrarnir, mennta- og menning- armálaráðherrarnir hafa komið á kerfisbundinni rannsókn á möguleikum norræns samstarfs á sviði hagnýtra- og undirstöðu- rannsókna. Hefur komið í ljós að Norðurlöndin hafa hvert á sínum stað verið að leysa ýmis vandamál með kostnaðarsömum rannsóknum og sé ljóst að með aukinni samræmingu megi koma í veg fyrir tvíverknað. Einnig var greint frá því að hugmyndir séu uppi um að efla samvinnu milli Norðurlandanna með það fyrir augum að verða betur samkeppnisfær á alþjóðavett- vangi til að taka að sér ýmsar stórframkvæmdir í öðrum lönd- um. Forsætisráðherrar Norðurlanda greindu frá helstu málum er til umfjöllunar voru á fundum þeirra með samstarfsráð herrum og forsætisnefndinni. UómS. ói.k.m. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra: „Veiðarnar stöðvaðar nú með eðlilegum fyrirvara” REGLUGERÐ um stöðvun loðnu- veiðanna einhvern næstu daga verður gefin út í dag, að því er Kjartan Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið i gær. — Á grundvelli þeirra upplýs- inga og þeirra umræðna, sem fóru fram með hagsmunaaðilum í dag, þá hef ég gert ráð fyrir því, að loðnuveiðar verði stöðvaðar nú með eðlilegum fyrirvara. Er þá gert ráð fyrir, að við geymum okkur nokkurt magn til hrogna- tímans, eins og áður hefur verið gert ráð fyrir. Síðan verði farið í endurmat á loðnustofninum eftir áramót til að sjá hvort hægt verður að leyfa frekari veiðar. Ákvörðun um þetta leyti verður að öðru leyti kynnt á morgun, sagði sjávarútvegsráðherra. Kjartan Jóhannsson var spurð- ur hvort Norðmenn gætu komið til með að verða inni í myndinni varðandi stöðvun veiðanna eða þá meiri veiði en 600 þúsund tonn. Svar ráðherrans var svohljóðandi: — Ég tel, að Norðmenn séu þegar búnir að koma nógu mikið inn í myndina, þeir fóru sjálfir 35 þúsund tonnum fram úr því, sem talað var um að þeir veiddu, og þeir geta alls ekki gagnrýnt með neinum hætti stjórnun okkar á loðnuveiðunum, sem ég tel að hafi verið skynsamleg, þar sem vlð leitumst við að taka fyllsta tillit til hagsmuna annars vegar og fiskifræðilegrar þekkingar hins vegar. Tillögur um hámarksafla gætu breytzt eftir áramót Rætt við Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðing FISKIFRÆÐINGARNIR Hjálm- ar Vilhjálmsson og Jakob Jakobs- son lögðu á fundi með sjáv- arútvegsráðherra og hagsmuna- aðilum í sjávarútvegi í gær fram niðurstöður sameiginlegra rann- sókna, sem íslendingar og Norð- menn gerðu á stærð loðnustofns- ins 25. september til 5. október. Einnig var á fundinum lögð fram bráðabirgðaniðurstaða af rann- sóknaleiðangri, sem farin var i sama skyni á Bjarna Sæmunds- syni síðari hluta októbermánað- ar. Morgunblaðið ræddi í gær við Hjálmar Vilhjálmsson um niður- stöður þessar og fórust Hjálmari svo orð. — Að því er varðar sameigin- legu rannsóknirnar, þá varð niðurstaðan sú í stórum dráttum, að við töldum okkur hafa mælt um 950 þúsund tonn af loðnu á svæðinu ísland — Grænland — Jan Mayen í september-október. Þar af telst okkur til, að um 700 þúsund tonn sé hrygningarloðna, þ.e.a.s. loðna,sem hrygnir í vor ef hún fær að lifa svo lengi. Á grundvelli þessara talna var lagt til, að leyfilegur hámarksafli yrði 650 þúsund tonn í stað 600 þúsund tonna eins og áður hafði verið lagt til. — Hitt málið, sem við kynnt- um, var leiðangur á Bjarna Sæm- undssyni til stofnstærðarmælinga á loðnu síðari hluta þessa mánað- ar, sem lauk um síðustu helgi. Ég er reyndar ekki í stakk búinn til að skýra frá niðurstöðum hans í smáatriðum, en bráðabirgðaskoð- un á þeim gögnum, sem við fengum í þessum leiðangri, benda til að ástandið sé eitthvað skárra en fyrri mælingar höfðu gefið til kynna. Hins vegar getum við ekki lagt til hækkun á grundvelli þess- ara mælinga á þessu stigi og viljum bíða með frekari tillögur um breytingar á hámarksafla þangað til við höfum mælt hrygn- ingargönguna eftir áramót og ennfremur skoða endurheimtur loðnumerkja, sem nú eru óðum að berast. — Eitt af því.sem veldur okkur vandræðum í túlkun gagna er það hversu smá loðnan er núna og þar af leiðandi er nokkuð meiri óvissa að því er varðar þann hluta heildarstofnsins, sem við höfum verið að mæla og mun hrygna á næsta ári. Þetta skýrist þegar hrygningargangan hefur tekið á sig endanlega mynd upp úr ára- mótum og hrygningarloðnan skil- ið sig frá smáu loðnunni. — Við teljum, að þær upplýs- ingar, sem við höfum komið með í land, gefi til kynna að vænta megi einhverra breytinga á leyfilegum hámarksafla þegar við endurmæl- um eftir áramót og sem betur fer, þá virðist útlitið breytast í rétta átt, sagði Hjálmar Vilhjálmsson að lokum. FRÁ fundi með sjávarútvegsráðherrar fiskifræðingum, embættismönnum í sjávarút- vegsráðuneytinu og hagsmunaaðiljum í loðnuveiðum í gær. Emiiia). Kristján Ragnarsson formaður LÍU: „Eigum að nýta okkur nýjustu og beztu upplýsingar hverju sinni” — OKKUR finnst, að við eigum á hverjum tíma að nýta okkur þær nýjustu og beztu upplýs- ingar, sem fyrir hendi eru þegar við tökum jafn afdrifaríka ákvörðun og stendur til að taka núna, sagði Kristján Ragnars- son, formaður LÍÚ, í gærkvöldi. — Við fáum ekki skilið hvers vegna sjávarútvegsráðherra mið- ar ekki niðurstöður þess leiðang- urs, sem rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson var að koma úr. í sumarleiðangrinum á loðnan að hafa verið 500 þúsund lestir, 950 þúsund lestir í septemberleiðangr- inum og svo er 200 þúsund lestum bætt við núna eftir síðasta leið- angurinn. — Þar sem það var löngu ákveðið að Bjarni' Sæmundsson færi í loðnuleiðangur síðast í október til að gera sambærilegar athuganir og í fyrra og ég fæ því ekki skilið hvers vegna nú e/ ekkert tillit tekið til þessara niðurstaðna þessa leiðangurs heldur niðurstöðu fundar með norskum fiskifræðingi, sem sjáv- arútvegsráðherra sjálfur bað sérstaklega um að haldinn yrði. Mér finnst óeðlilegt í þessu efni að taka norsk ráð fram yfir íslenzk, sagði Kristján Ragnarsson. Á stjórnarfundi LÍÚ, sem hald- inn var síðdegis í gær, var sam- þykkt eftirfarandi ályktun: „Með tilvísun til niðurstöðu síðasta leiðangurs Hafrannsókna- stofnunarinnar um loðnurann- sóknir, sem lauk nú um síðustu helgi, leggur stjórn LÍÚ áherzlu á, að leyft verði að veiða 100 þúsund lestir til viðbótar, þannig að heild- arafli okkar í haust verði 500 þúsund lestir, sem er álíka afli og á síðastliðnu hausti. Stjórn LÍÚ mótmælir því, að miðað verði við niðurstöður úr norsk-íslenzkum leiðangri, sem farinn var áður og sjávarútvegs- ráðherra virðist vilja miða við. Niðurstöður þessara tveggja leið- angra eru mjög mismunandi og gefur íslenzki leiðangurinn tilefni til að óhætt sé að veiða allt að 200 þúsund lesta meiri afla en fyrri leiðangurinn, sem farinn var með Norðmönnum. Það er mat fiskifræðinga, að sambærilegur leiðangur í október á síðastliðnu ári hafi verið mjög marktækur um stofnstærð. Stjórn LÍÚ leggur áherzlu á, að haldið verði áfram að fylgjast með loðnu- göngum og ákveðið verði um framhald veiða eftir áramót þegar ljóst verður hve stór hrýgningar- árgangurinn verður, sem hefur göngu á hrygningarstöðvarnar. Stjórn LÍÚ vekur athygli á, að engir eiga jafn ríkra hagsmuna að gæta en útvegsmenn, að þess verði gætt, að loðnustofninn verði ekki ofveiddur og þvi beri að fara að öllu með gát. Mun erfiðara er að takmarka loðnuveiðar en aðrar veiðar vegna þess að loðnan geng- ur ekki nema einu sinni á miðin. Ef veiðarnar verða takmarkaðar um of er ekki hægt að vinna það upp síðar.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.