Morgunblaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 Rússi biður Svía um hæli Stokkhólmi, 31. október. AP. ÞRJÁTÍU og sex ára gamall sovézkur verkíræðingur hefur beðið um hæli i Svíþjóð sem pólitískur flóttamaður að sögn sænska utanríkisráðuneytisins. Hann var í hópi nokkurra so- vézkra tæknifræðinga sem komu til Svíþjóðar til að kynna sovézka tækni og heimsókn þeirra er nýlokið. Fulltrúi sovézka sendiráðsins hefur beðið um leyfi til að hitta manninn en slíkt leyfi verður því aðeins veitt að verkfræðingurinn samþykki það að sögn talsmanns utanríkisráðuneytisins. Árás á sendiráð í San Salvador Sovéska rannsóknaskipið í ljósum logum eítir áreksturinn. Símamynd AP Árekstur sovézkra skipa á Stórabelti Kaupmannahöín, 31. október. AP. SOVÉZKT leiðangursskip á leið til Suðurskautssvæðisins, „Olenck" rakst í dag á sovézkt oliuflutningaskip á Stórabelti og eldur kom upp i þvi. Af 99 sem voru um borð var 94 bjargað í önnur skip. Vitað er að einn maður beið bana. en þriggja var saknað. Tveir menn brenndust alvarlega en fjórir fengu minni hrunasár. Niels Bagge, talsmaður siglinga- máladeildar iðnaðarráðuneytisins, sagði, að „01enek“ hefði siglt röng- um megin norður eftir Stórabelti milli Sjálands og Fjóns, það er vinstra megin, og það hefði valdið slysinu. Olíuflutningaskipið „General Shkodunovich" gat haldið ferð sinni áfram á ákvörðunarstað, til danska hafnarbæjarins Abenrá. Það var með tvo danska hafnsögumenn um borð, en eginn hafnsögumaður mun hafa verið um borð í „01enek“, Dimmviðri var þegar slysið var en sæmilegt skyggni. Sex tímum eftir áreksturinn var enn mikill eldur í „01enek“ og mikill halli kominn á skipið. Benzíntunnur og gasgeymar sem nota átti í leiðangrinum sprungu. I skipinu voru 1.600 tunnur af gasolíu, 200 gasgeymar, 1.000 lítrar af parafín- olíu og 20 súrefnisgeymar að sögn danska umhverfismálaráðuneytis- ins. Skipstjóranum, Vladislav Ivanov, var bjargað um borð í sænska ferju og fluttur með þyrlu til Korsör. Hann hafði verið lengi í köldum sjónum og var væstur mjög að sögn yfirvalda. Igor Vrontsov, fyrsta stýrimanni, var einnig bjargað og hann sagði fréttamönnum, að eldur hefði komið upp miðskips strax eftir sprenging- una og björgunarbátarnir hefðu brunnið. Sjö konur voru um borð og þeim var bjargað, en þær fengu tauga- áfall. Samkvæmt sovézkum heimildum sigldi „Olenek" frá Leníngrad á laugardag og átti að koma við á Kanaríeyjum og í Suður-Ameríku á leið sinni til suðurskautsins. Að sögn „Pravda" er „01enek“ fyrsta skipið sem Rússar senda í 25. leiðangur sinn til Suðurskautssvæðisins með mannafla og útbúnað til Druzhn- aya-stöðvarinnar við Weddel-haf. Nokkur önnur skip eiga að fara í nóvember. Leiðangurinn á að rannsaka mengun í andrúmsloftinu á Suður- skautssvæðinu og samsetningu jarðkjarnans á þessu svæði. Gert er ráð fyrir að Austur-Þjóðverjar, Pólverjar, Bandaríkjamenn og Jap- anir tækju þátt í leiðangrinum. San Salvador. El Salvador. 31. október. AP. UM 300 vinstrisinnar réðust á bandaríska sendiráðið í San Salvador í nótt, skutu aí byssum og hrópuðu: „Við skulum taka sendiráðið,“ að sögn yfirvalda. Bandarískir landgönguliðar Árásin á sendiráðið fylgdi í og hermenn stjórnarinnar kjölfar frétta fratWashington beittu táragasi til að bægja í burtu árásarmönnum sem klifruðu yfir girðinguna við sendiráðið en voru hraktir í burtu áður en þeir gátu ruðzt inn í bygginguna. Hermenn og brynvarðir bílar komu á vettvang til þess að verja sendiráðið eftir árás- ina. Tveir landgönguliðar særðust lítils háttar en enginn úr árásarliðinu. Minnst 24 biðu bana og um 100 særðust í skotbardögum vinstrimanna, sem efndu til götumótmæla, og öryggis- sveita stjórnarinnar um það bil einum sólarhring áður en árásin á sendiráðið var gerð. Fréttir herma, að vinstri- sinnar, sem hafa 12 menn í gíslingu í verkamálaráðuneyt- inu og efnahagsráðuneytinu, hafi lagt undir sig mennta- málaráðuneytið í gær og hafi 20 starfsmenn þess og gesti í haldi. Mondale leggur til atlögu við Kennedy Atlanta, Georgiu, 31. október. AP. WALTER MONDALE varafor- seti sagði í gærkvöldi, að ekki væri hægt að réttlæta þá ákvörðun Edward Kennedys öidungadeildarmanns að bjóða sig fram gegn Jimmy Carter forseta og að barátta þeirra gæti orðið svo hörð að repúblik- ani yrði kosinn forseti á næsta ári. Varaforsetinn, sem var sam- starfsmaður Kennedys í 12 ár, sagði að á næstu mánuðum mundi hann nota allar helgar og öll kvöld til að berjast fyrir málstað Carters. Hann sagði að milli Carters og Kennedys væri enginn raunveru- legur málefnaágreiningur og að hver sá maður sem hefði verið forseti síðustu þrjú ár væri í vanda staddur nú vegna yfir- standandi erfiðleika. „Verðbólgan væri eins mikii þótt Kennedy væri forseti núna... Hann hefur engan raun- verulegan málefnagrundvöll," sagði Mondale. Mondale sagði að baráttan gegn Kennedy hefði verið já- kvæð fram til þessa en kvaðst hafa „barizt oft á ævinni... og Mondale fólk skiptist í fylkingar í fjöl- skylduerjum og þær væri erfitt að jafna“. Jafnframt sagði Kennedy í gærkvöldi, að hann hefði flýtt fyrirætlunum sínum um að fara gegn Carter þar sem hann hefði verið búinn að taka ákvörðun fyrir fullt og allt og að engin ástæða væri til að draga hana á langinn. Kennedy Hann kvaðst „afskaplega þakklátur" Jane Byrne borgar- stjóra í Chicago, Dick Clark fv. öldungadeildarmanni frá Iowa og starfsmannafélagi fjármála- ráðuneytisins, sem er skipað 70,0000 félögum, fyrir að lýsa yfir stuðningi við sig. Frú Byrne hafði áður lýst yfir stuðningi við Carter en dró þá yfirlýsingu til baka. Aðstoðarráðherra í dómsmálaráðuneytinu, J. Will- iam Heckman Jr., hefur einnig lýst yfir stuðningi við Kennedy. Dick Clark er gamall banda- maður Kennedys og var forstöð- umaður flóttamannaáætlunar stjórnarinnar í Washington en sagði af sér til að taka þátt í kosningabaráttunni með Kenne- dy. Clark sagði að hann hefði ætlað að vera hlutlaus í kosn- ingabaráttunni. En hann kvaðst hafa talið að það hefði verið ábyrgðarleysi að vera hlutlaus í jafn þýðingarmikilli kosninga- baráttu. Hins vegar tilkynntu Edward King, ríkisstjóri demókrata í Massachusetts, heimaríki Kennedys, að hann mundi styðja Carter. En King er íhaldssamur og hefur aldrei verið í náðinni hjá stuðningsmönnum Kenne- dys. í Atlanta sagði sr. Martin Luther King eldri, faðir mann- réttindaleiðtogans, að hann stæði við stuðningsyfirlýsingu sína við Carter þrátt fyrir beiðni um stuðning frá Kennedy. um að Bandaríkjastjórn væri reiðubúin að bjóða „umtals- verða“ aðstoð við stjórn E1 Salvador, þar á meðal táragas, til að gera henni kleift að ná stjórn á ástandinu. Veður víða um heim Akureyri Amtterdam Aþena Barcelona Chícago Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúealem 2 13 19 17 19 15 9 12 -1 29 31 Jóhannetarborg 25 Liasabon 19 Las Palmas 22 London 14 Madrid 17 Majorka 17 Malaga 22 Nýja Dalhi 32 Naw York 11 Óaló 1 París 12 Rio da Janeiro 38 Rómaborg 12 Raykjavlk 3 Stokkhómur 5 Sydnay 25 Tókíó 21 Toronlo 6 Vancouver 12 Vagna truflana vantar á skeytíö marga ataói aam vanjulaga aru maö. alakýjaö rigning akýjað skýjað skýjaó haiöakírt þoka miatur snjókoma bjart bjart bjart skýjað lóttakýjaö bjart bjart lóttskýjaó haiöskírt bjart bjart skýjaö skýjaó akýjaö akýjaó skýjaó akýjaö skýjaö bjart bjart bjart 6 f órust r £* r • X • i f arviðri New York, 31. október. AP. SEX manns biðu bana og um það bil helmingi fleiri slösuðust í miklu hvassviðri, snjókomu, rign- ingum og fellibyljum í hlutum Nembraska, Colorado, Kansas, Oklahoma og Texas í nótt. Snjókoman var svo mikil í Colorado, að þar var skíðastaður opnaður og skaflar voru allt að þriggja metra háir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.