Morgunblaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 21 Smásagan kynnt 1 FÁUM DRÁTTUM. 183 bls. Mál og menning. Rvík, 1979. BÓK þessi inniheldur «tólf íslenskar smásögur í skólaút- gáfu», eins og segir á titilblaði, umsjónarmaður Njörður P. Njarðvík. Hann ritar bæði for- mála og fræðilegan inngang um smásöguformið yfirhöfuð. I for- málanum kveður hann val sagn- anna ekki byggjast «á því að gera grein fyrir þróun íslenskrar smá- sagnagerðar, heldur er reynt að sýna tjáningarform smásögunnar í ýmsum myndum.* Smásögurnar, sem Njörður hefur valið, eru þessar: Sunnudagskvöld til mánu- dagsmorguns eftir Ástu Sigurðar- dóttur, Farísearnir eftir Guðberg Bergsson, Lilja eftir Halldór Laxness, Grimmd eftir Halldór Stefánsson, Maður í tjaldi eftir Njörður P. Njarðvík Hannes Pétursson, Að enduðum löngum degi eftir Indriða G. Þorsteinsson, Stella eftir Jakob- ínu Sigurðardóttur, Síðan hef ég verið hérna hjá ykkur eftir Nínu Björk Árnadóttur, Píus páfi yfir- gefur Vatíkanið eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, Blátt tjald eftir Stef- án Jónsson, Saga handa börnum eftir Svövu Jakobsdóttur og Talað í rör eftir Véstein Lúðvíksson. Njörður getur þess í formálan- um að sögurnar séu allar samdar eftir 1930 og hafi hann viljandi miðað við það tímatakmark. Mið- að við þá forsendu hygg ég óhætt sé að fullyrða að valið hafi tekist vel. Gömlu meistararnir, Gestur Pálsson, Guðmundur Friðjónsson og Einar H. Kvaran, eru hér útilokaðir, allir sem einn. í virð- ingarskyni við Halldór Stefánsson er bókin heitin eftir fyrstu bók hans. í fáum dráttum. Og meir en svo, því umsjónarmaður útgáf- unnar kveður þann titil einneginn lýsa að nokkru smásöguhugtak- inu. Halldór var ágætur smásagna- höfundur, einn fárra íslenskra höfunda sem hafa helgað sig því formi öðrum fremur, ennfremur annar tveggja sem blésu nýjum lífsanda í smásöguformið á fjórða áratugnum. Hinn var Þórir Bergsson. En hann er ekki í þessari bók og þess sakna ég því hann var — þótt alþýðlegur væri — ólíkur öllum öðrum íslenskum smásagnahöfundum fyrr og síðar og ekki síður listfengur en t.d. Halldór Stefánsson. Ég segi þetta því fremur sem mér er kunnugt um að margt ungt fólk nú á dögum veit ekkert um aðrar bókmenntir en þær sem því eru kynntar í skólum og því fylgir veruleg ábyrgð að velja efni í svona bók. Legg ég því fremur áherslu á þetta þar sem ég tel þessa bók annars vel til þess fallna að ná því markmiði sem umsjónarmaður út- gáfunnar hefur sett henni: «að vekja áhuga ungs fólks á mjög svo heillandi bókmenntagrein sem ekki hefur verið í sviðsljósi íslenskra bókmennta um nokkurt skeið.» Til að ná þeim árangri álít ég að Njörður hafi gert rétt að velja ekki aðeins sögur eftir höf- unda sem hafa að mestu leyti fengist við smásagnaritun heldur líka aðra sem eru þekktari fyrir annars konar ritstörf. Þannig tel ég að Maður í tjaldi eftir Hannes Pétursson eigi vel heima í riti sem þessu enda þótt Hannes hafi aðeins sent frá sér eina smásagna- bók á móti sínum mörgu ljóðabók- um. Sögur Hannesar hafa alltaf staðið í skugganum af Ijóðum hans. En að mínu viti eru þær ekki síður athyglisverðar. Sögur Ástu Sigurðardóttur ætla að lifa, eiga það enda skilið. Ásta var sérstæð- ur og djarfur höfundur sem bæði galt þess og naut að vera á undan tímanum. Ánnars eru konur þarna einungis hálfdrættingar á við karla og býst ég við að það sé nokkuð í samræmi við hlutfallsleg afköst þeirra í smásagnaritun á tímabili því sem um ræðir. Stella eftir Jakobínu er ein besta saga hennar — prýðilega valið! Saga handa börnum hygg ég sé naum- ast besta saga Svövu, en hún er dæmisaga og þannig einkennandi fyrir þann frásagnarhátt sem Svava er raunar þekktust fyrir, samanber t.d. Leigjandann. En smeykur er ég um að útskýra þurfi fyrir mörgum táknmál sögunnar. Nína Björk er af annarri kyn- slóð og annars konar. Hún mun vera leikmenntuð. Og einhvern veginn finnst mér saga hennar sniðin til upplestrar — helst leikara. Búkhljóðin í sögunni verða bara stafagrautur þegar sagan er lesin í hljóði. Eftir Laxness hefur Nirði þótt henta að velja Lilju. Skiljanlegt. Sú saga hefur verið kynnt með ýmsu móti. Og rök má leiða að því að hún höfði til ungs fólks betur en aðrar sögur Laxness. Og auð- velt er að fallast á útlistun Njarðar í inngangi: «Sagan sjálf er í rauninni aldrei sögð. Það er lesandinn sem skapar hana sjálfur bak við yfirborð atvikanna.* Njörður raðar höfundunum í stafrófsröð. Af því leiðir að bókin Bðkmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON endar á sögu eftir Véstein Lúðvíksson. Svo vill til að hann byrjaði sem smásagnahöfundur. Þær frumraunir voru bæði athygl- isverðar og skemmtilegar. Hins vegar sér maður nú að þær höfðu ekki mikið forsagnargildi um síðari verk Vésteins. Strax með annarri bók var hann búinn að stilla sig inn á allt aðra rás. Mér þótti fyrsta bók hans — smásög- urnar vekja of litla athygli en sumum síðari bókum hans hafa verið hampað umfram verðleika. Ég vona að það sé vegna verðleika hans sem smásagnahöfundar að hann fær nú rúm í þessari bók en ekki vegna annarra og óskyldra verka. Sem heild sýnist mér þessi skólaútgáfa vera vönduð. Og inn- gangur Njarðar er fyrst og fremst fræðilegur eins og vera ber en eigi að síður auðskiljanlegur hverjum meðalgreindum nemanda. Smá- sagan hefur legið í láginni undan- farið svo ekki veitir af að kynna ungu fólki hvað það í raun og veru er sem því nafni nefnist svo ekki sé meira sagt. Fötluð börn heimsækja Akureyri Kveðja til Kiwanisklúbbanna „Kaldbaks” á Akureyri og „Esju” í Reykjavík Að morgni 27. október s.l. hófst á Reykjavíkurflugvelli ævintýra- ferð hóps fatlaðra barna til Akur- eyrar. I hópnum voru liðlega tuttugu manns að meðtöldu fylgdarfólki. Á Akureyrarflugvelli tóku „Kaldbaksmenn" á móti hópnum. Var nú haldið af stað í skínandi björtu haustveðri í vel skipulagða ökuferð um sveitir Eyjafjarðar. Leiðsögumaður var Ingimar Eydal. Hann sagði frá staðar- heitum og sögu sveitanna og kunnu krakkarnir auðheyrilega vel að meta fróðleik hans og glettni. í Hrafnagilsskóla voru skátarn- ir sóttir heim en þeir héldu þar flokksforingjanámskeið. Hressi- legur hópur, sem fór létt með að skemmta krökkunum og fá þau með í leik og söng. Að skemmtun lokinni voru veittar pylsur með öllu og gos. Sérlega vinsælt. Áfram var haldið út í sólskinið og næst var skoðuð kirkjan að Grund, sem er stærsta timbur- kirkja á íslandi. Ekið var hjá kirkjunni að Möðruvöllum, þeirri sömu og fauk hér um árið, en var flutt að nýju á sinn gamla grunn. Staðarbyggðin, sú gróskumikla sveit, var framundan og var barið dyra á hinu snyrtilega bændabýli Stóra-Hamri. Þar var hópnum vel tekið og fengu krakkarnir að litast um í 30 kúa fjósi, hlýða á „sam- sönginn" í hænsnahúsinu og skoða reykhús þar sem kjötið er reykt uppá gamla mátann. Ilmurinn úr reykhúsinu fylgdi okkur unz hringferðinni lauk inná plani Iðnskólans á Akureyri. Þar biðu fleiri „Kaldbaksmenn" með eigin bíla. Nú skiptist hópurinn og dreifðist inn á einkaheimili þeirra félaganna. Þar var dvalist í góðu yfirlæti með fjölskyldunum til kl. 3, en þá aftur farið á stúfana og sameinaðist hópurinn á ný í veitingastofunni Bautanum. Húsráðandinn — Hallgrímur — tók hópnum af mikilli gestrisni og bar fram ljúffenga máltíð, af þeirri hæversku og hlýju sem honum er lagið. Þökk sé einnig aðild bæjarstjórnar Akureyrar í máltíð þessari. Það var saddur og sæll hópur sem hélt nú í leikhúsið. Þar var sýning á „Galdrakarlinum í Oz“ og var hópurinn nú í boði Leikfélags Akureyrar. Mikið var hlegið og oft haldið niðri í sér andanum, þegar ekki þótti útséð um hvor myndi sigra að lokum — góða nornin eða sú vonda. Úr leikhúsinu aðstoðuðu „Kaldbaksmenn" okkur áfram út á flugvöll og haldið var heim á leið eftir óvenju viðburðaríkan dag. í flugvélinni heyrðist sagt: „Ö mamma ég vildi að við værum að leggja af stað norður á Akureyri núna.“ Einnig skal komið á framfæri þökkum og beztu kveðjum til félaga í Kiwanisklúbbnum Esju, en þeir veittu rausnarlegan styrk til ferðarinnar. Flugleiðum hf. er þakkaður afsláttur af fargjöldum. Frumkvæði að ferðinni átti Krist- inn Guðmundsson og var hann jafnframt fararstjóri. Að lokum sendum við „hlýjar sunnankveðjur" þeim „Kaldbaks- mönnum" og fjölskyldum þeirra, sem tóku þannig á móti hópi fatlaðra barna fjórða árið í röð. Jóhanna Stefánsdóttir. Notaður 19 feta Shetland, árg. 78 meö vagni og vél. Benco Bolholti 4, 3. 21945. Pappírsbleija — plastbuxur / 5 stæröir TUNGUHÁLS111. SÍMI 82700. ÞuiTbMja lUMt barninu htoypir raka út ( ytri pappiraiðgin, aam taka við mikilli vaatu Afaatar piaattiuxur koma i vag fyrir að fötinbtotnl Baminu liður val mað Pampara btoiju hún paaaar val og barnið or purrt. SUÐURLANDSBRAUT 10. SÍMAR; 83330 - 83454 ð Ifökull hf. Höfum fengiö nokkra Plymouth Volaré Premi- er Station árgerö 1980. í bílunum er 6 cyl. 3,7 lítra vél, sjálfskipting, vökvastýri, aflhemlar, litaö gler, rafhituö afturrúöa, farangursgrind, delux frágangur í hólf og gólf og m. fl. í sparaksturskeppni Bifreiðaíþróttaklúbbsins eyddi þessi 6 cyl. 3,7 I vél aöeins 10,73 I pr. 100 km. Plymouth Volare er neyslugrannur lúxusbíll. Verö pr. 29.10.79 ca. kr. 8,7 milljónir. CHRYSLER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.