Morgunblaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 15 Paul Volkart, tormaöur bankaráös seölabanka Bandaríkjanna. Veróbréfamarkaöurlnn (Wall Straat. Nýtt met í kaupum og sölum á veröbréfum í kjölfar aögeröa seölabankans. kvæmdir og bjóða atvinnuleysi heim. Jimmy Carter, forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir stuðn- ingi við aðgerðir seðlabankans en hann skipaði Paul Volkert Hlöðuvík og hittu menn úr þessum hópi í skýlinu þar, voru útlend- ingarnir stórhneykslaðir á eigend- um að reka fólkið út þar sem ferðaútgerðarmaðurinn Dick Phil- ips hefði þetta hús á leigu, sem af íramansögðu má vera ljóst að eru algjör ósannindi. Síðar kom bréf frá Dick Philips, þar sem hann baðst afsökunar og kennir ensku fararstjórunum um allt og segist ekki hafa gefið leyfi til þess, að fólkið byggi í húsinu á þessum árstíma, en á honum má skilja, að annað mál væri ef fólkið væri þarna á ferð að vori til. En í bréfinu viðurkennir hann að hafa leyft því að koma saman til ráðagerða um áætlanir næsta dags í þessu umrædda húsi og sést á því, að hann telur sig hafa rétt á því að ráðstafa annarra eignum án nokkurs leyfis. í bréfinu nefnir hann „welcoming notice", en þess háttar tilkynning er hvergi í húsinu og því síður utan á því. Einnig viðurkennir hann, að bæði hann og hans ferðafólk hafi notað húsið fyrri ár, eins og við höfum vitað, þar sem við höfum hitt fólk, sem komið hefur að þessu fólki, jafnvel allt að 20 manns, og öllum vistum þess í húsinu, en eigendur lítið getað aðhafst, þar sem þeir höfðu ekki sjálfir komið að ferða- hópunum fyrr en í sumar. En nú finnst öllum tími til kominn að sporna við fótum svo svona komi ekki fyrir aftur og einnig að fá að vita hjá réttum aðilum hvort margumræddur Dick Philips eða aðrir hans líkar hafa rétt til að stunda þessa iðju hér á landi. Þ.e. að reka ferðaskrifstofu erlendis þar sem hann ráðstafar ferðum á Islandi og notar annarra eignir án leyfis. Ekki eru nein undur þó að hann hrósi sér af því að vera með ódýrari ferðir en aðrir. Einnig væri fróðlegt að vita hvort þessir erlendu ferðahópar formann bankaráðsins í sumar. Mikil verðbólga og yfirvofandi atvinnuleysi er þó ekki bezta veganesti hans í komandi kosn- ingabaráttu. hafa leyfi til þeirra rannsókna, sem þeir segjast stunda hér á landi og hvort ekkert eftirlit er með því hvað þetta fólk flytur með sér inn og úr landi. Hornstrandir eru dásamlegur staður og náttúran þar stórfeng- leg, enda mjög eftirsóttar af ferðamönnum. Er því sárt til þess að vita fyrir þá, sem þykir vænt um þessa staði og eiga þarna eignir, að menn skuli misnota það traust, sem fólki er sýnt með því að hafa húsin opin. Yfirleitt þarf ekki að kvarta undan umgengni, en viðkunnanlegra væri ef farar- stjórar eða ferðafólk almennt, sem á þessa staði leitar, hefði samband við eigendur húsanna þarna, ef það hefur hugsað sér að dvelja í þeim í „neyðartilfellum". Ófyrir- gefanlegt er að skipbrotsmanna- skýlin skuli vera jafn misnotuð og raun ber vitni. Aldrei verður of brýnt fyrir ferðamönnum, sem á þessar slóðir fara, að Hornstrandir eru friðað land og að miklu leyti í löglegri eign ýmissa aðila og er því óheim- ilt að bera skotvopn eða annan veiðiútbúnað en mikill misbrestur er á að ferðamenn taki þetta til greina eða fari að lögum. Einnig þarf fólk að gera sér grein fyrir því, að það þarf að vera með tjöld og nógan fatnað og vistir, en ekki treysta á skýli og veiði á Hornströndum eins og alltof margir virðast gera. Að lokum skal skýrt tekið fram, að hvorki Dick Philips né öðrum, sem ferðaskrifstofur reka, er heimilt að ráðstafa eða búa í húsum eða skipbrotsmannaskýl- um á Hornströndum nema að fengnu leyfi eða í neyðartilfellum. Rétt væri að landeigendur, Náttúruverndarráð og Slysa- varnafélag íslands tækju höndum saman um að þeirri misnotkun linni, sem alltof oft hefur átt sér stað á þessum stöðum. Akureyri: L A boðið að sýna á Norrænu leikhúsmóti Akureyri, 28. október. MÓT norrænna landshlutaleik- húsa, þ.e. atvinnuleikhúsa utan höfuðborga Norðurlandanna, verður haldið í Örebro í Sviþjóð dagana 3.-9. desember. Þangað er stefnt fulltrúum atvinnuleikh- úsa viðs vegar að af Norðurlönd- um, en nokkur leikhús hafa verið valin úr þeim hópi og þeim boðið að sýna þar. Meðal þeirra er Leikfélag Akur- eyrar, sem mun halda tvær sýn- ingar á sjónleiknum „Fyrsta öngstræti til hægri“ eftir Örn Bjarnason undir leikstjórn Þór- unnar Sigurðardóttur. Sýningar þessar munu njóta algers for- gangs á mótinu, enda hefur verið lagt mjög hart að L.A. að sækja mótið. Þar sem fjárhagur L.A. er næsta þröngur nú um sinn, var slíkt talið algerlega óhugsandi, nema ríflegur fararstyrkur feng- ist. Nú hefur félaginu borist stað- festing á því, að Norræni menn- ingarmálasjóðurinn muni kosta þessa leikför að öllu leyti, þ.e.' greiða fargjöld og uppihald leikar-; anna og allan annan kostnað, sem ferðin krefst. Er því afráðið, að leikför þessi verði farin. — Sv. P. HVAÐA MERKI ER ÞETTA MANNI? OT nol HJÁLPAÐU MANNA OG KONNU VIÐ AÐ FINNA RÉTTA NAFNIÐ Á ÞESSU MERKI. EF ÞÚ SENDIR RÉTTA LAUSN FÆRÐU SENDA SKEMMTILEGA LITABÓK FRÁ HAGTRYGG- INGU H.F. ÞÚ FINNUR MEIRA UM GET- RAUNINA AFTAR í BLAÐINU. HAGTRYGGING HF. Suöurlandsbraut 10, Reykjavík. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? I>1 Al'GLYSIR l M Al.LT LAXD ÞEGAR Þl Al'GLÝSIR I MORGINBLAÐIXU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.