Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979
5
Nýkjörin stjórn Eddu í Kópavogi.
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda Kópavogi:
Ásthildur Pétursdóttir
endurkjörin formaður
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Eddu var hald-
inn 5. nóv. s.l. þar var Ásthildur
Pétursdóttir einróma endurkjör-
in formaður sem og aðrar í stjórn
félagsins en þær eru: Sigríður
Pétursdóttir varaform., Jónína
Júlíusdóttir gjaldkeri, Guðrún H.
Kristjánsdóttir ritari, Ingibjörg
Ólafsdóttir meðstj., til vara Stein-
unn Sigurðardóttir og Sigrún
Guðnadóttir.
Starf Eddu stendur með miklum
blóma og var mikið starfað á
síðasta ári. Fram kom í skýrslu
formanns að auk pólitísks starfs
var unnið að líknar- og mannúð-
armálum í bæjarfélaginu og
leggja félagskonur þar á sig óeig-
ingjarnt starf sem ber að þakka.
Þá kom fram að félagið hélt
tvisvar sinnum barnabingó í byrj-
un barnaárs og var þeirri
nýbreytni vel tekið.
25. nóvember n.k. er fyrirhugað
opið hús með kaffisölu og mun
ágóðinn renna til söfnunar vegna
hjúkrunarheimilis aldraðra í
Kópavogi, sem nú stendur yfir.
Einnig mun félagið verða starfi
eldri borgara í bænum innan
handar eins og undanfarin ár.
Framundan er mikil vinna
vegna kosninganna 2. og 3. des-
ember n.k. en hinn 7. des. verður
jólafundur sem verður kvöldverð-
arfundur með ávörpum og jólalegu
efni. Meðal gesta okkar á jóla-
fundi vera Birgir ísleifur Gunn-
arsson og frú.
Þá er orðin árviss hefð að
Eddukonur komi saman ásamt
fjölskyldum sínum í desember til
laufabrauðsgerðar og í ár verður
laufabrauðsgerðin sunnudaginn 9.
desember n.k. og er allt sjálfstæð-
isfólk velkomið í Hamraborg 1, 3.
hæð.
Eftir áramót hefjast svo aftur
hin vinsælu opnu hús, félagsmála-
fundir af ýmsu tagi og stjórn-
málafundir að ógleymdum nám-
skeiðum og margskonar fræðslu.
Jólabasar
Yinahjálpar
BASARINN verður að þessu sinni
haldinn laugardaginn 24. nóv. á
Hótel Sögu kl. 1 e.h. Eins og flestum
er kunnugt er ágóðinn af basarsölu
og happdrætti félagsins notaður ár
hvert til líknarstarfa, m.a. má nefna,
að síðastliðið ár voru gefnar til
fæðingardeildar Landspítalans um 4
milljónir króna til kaupa á monitor-
tæki.
Félagið var stofnað árið 1963 af
sendiráðskonum og íslenzkum vin-
konum þeirra og hefur það vaxið ár
frá ári. Mikið er unnið af fallegri
handavinnu og jólaskreytingum.
Einnig verður mjög glæsilegt happ-
drætti. Það vorgar sig að líta inn á
Hótel Sögu á laugardaginn kemur.
Stúdentaíélag Reykjavikur:
Fullveldisfagnaður 1. des.
STÚDENTAFÉLAG Reykjavíkur
heldur fullveldisfagnað í
Víkingasal Hótels Loftleiða laug-
ardaginn 1. desember n.k. og
hcfst fagnaðurinn með borðhaldi
kl. 19:30.
Aðalræðu kvöldsins flytur Guð-
mundur Benediktsson, ráðuneytis-
stjóri. Veislustjóri verður Bjarni
Bragi Jónsson, hagfræðingur.
Meðal skemmtiatriða verður
spurningakeppni milli stjórn-
málaflokka, Ólöf Harðardóttir
söngkona syngur við undirleik
Jóns Stefánssonar, pianóleikara,
og fjöldasöngur verður undir
stjórn Valdimars Örnólfssonar.
Stiginn verður dans fram eftir
nóttu.
Miðasala og borðapantanir í
gestamóttöku Hótels Loftleiða
mánudag 26. nóv., þriðjud. 27.
nóv., miðvikud. 28. nóv., og
fimmtud. 29. nóv. frá kl. 17.00—
19:00 alla dagana.
Fáskrúðsfjörður:
Nýr Þorri í stað
þess sem fórst
FáskrúðsfirAi, 21. nóvember.
NÝR BÁTUR bættist í
flota Fáskrúðsfirðinga í
lok síðustu viku, er það
Þorri SU 402, áður Jón á
Hofi ÁR 41. Þetta er rúm-
lega 200 lesta stálskip,
byggt á ísafirði 1969.
Eigandi er Pólarsíld hf. á Fá-
skrúðsfirði, en skipið er keypt í
stað Þorra SU, sem sökk austur af
Ingólfshöfða í haust. Báturinn fór
á síldveiðar um helgina og landaði
í gær 90 lestum. Auk þess landaði
Guðmundur Kristinn SU 90 lest-
um, þannig að saltaðar voru hér í
gær 1485 tunnur hjá Pólarsíld hf.
og heildarsöltun er þá orðin um
11.500 tunnur. Báðir bátarnir eru
á miðunum í dag.
Fjölvi gefur út ritsafn
um uppruna mannsins
BÓKAÚTGÁFAN Fjölvi gefur út
margar bækur íyrir þessi jól og
hefur nokkurra þegar verið getið
hér í blaðinu. Hér á eftir er skýrt
frá nokkrum bókum til viðbótar,
eins og þeim er lýst í fréttatil-
kynningu frá útgáfunni.
„Þegar er komin út Stóra
heimsstyrjaldarsaga Fjölva, ann-
að bindið sem segir frá Seinni
heimsstyrjöldinni og þar að finna
á einum stað flest sem skiptir
máli. Önnur samstæð bók um
Fyrri heimsstyrjöldina er á leið-
inni, en óvíst að hún komist
tímanlega fyrir jólamarkað. Bæk-
ur þessar eru fyrstu íslensku
bækurnar sem prentaðar eru í
Hong Kong í Kína og eiga því eftir
að fara langa ferð kringum hálfan
hnöttinn.
Fjöldi gefur í ár út óvenjulega
stórt og glæsilegt safn um upp-
komu mannsins. Út eru komin eða
um það bil að koma út þrjár
bækur. Frumlífssagan sem rekur
upphaf lífsins og hið fjölbreytta
forndýralíf, forneðlurnar miklu.
Þá eru komnar út tvær bækur um
forfeður mannsins, og mættum við
Islendingar allir halda þeim veg-
legt ættarmót. Það eru bækur um
Neandertalsmanninn og Kró-
magnonmanninn, en nú er sannað
að þeir eru báðir skilgetnir forfeð-
ur okkar. Væntanleg er einnig bók
um Týnda hlekkinn, sem fjallar
um nýjustu rannsóknir á Sunnep-
ingum Afríku.
Nýlega er komin út Ævisaga Vai
Goghs, þessa mikla meistara mál-
aralistarinnar. Hún er með hundr-
uð litmynda. Áður hefur Fjölvi
gefið út ævisögur Laonardos,
Goya, Manets og margra fleiri og
eru þetta vönduðustu listaverka-
bækur, sem hafa komið út hér á
landi.
í tilefni barnaárs hefur Fjölvi
gefið út sérlega unaðslega barna-
bók. Hún heitir Vía litla, eftir
sænsku listakonuna Önnu Marí
Lagercrantz. Hún segir frá lang-
víuungá í háu bjargi og snertir
mjög á vandamáli sjómengunar.
Listakonan segir söguna og
myndskreytir hana fagurlega.
Þá má loks geta um tvær bækur
um Frækna landkönnuði, sem eru
væntanlega á næstunni. Önnur
þeirra fjallar um ferðir Víkinga til
Vínlands og Væringja um sléttur
Rússlands. Hin fjallar um ferðir
Markó Póló til Kína og frá Ibn
Battúta hinum fræga förumanni
Islams. Síðar eru væntanlegar
bækur um Kólumbus og Vaskó da
Gama og fleiri frækna landkönn-
uði.
Fjölvi hefur tekið upp þann hátt
vegna óðaverðbólgu, að bjóða fólki
allar nýjar útgáfubækur á lægra
byrjunarverði, sem gildir fram að
áramótum. Þá fyrst mun hið
raunverulega verðbólguverð koma
í gildi."
Byggð á Seyðisfirði kynnt
í Norræna húsinu
SÍÐASTLIÐIN tvö ár hafa
fimm nemar við arkitekta-
skólann í Lundi, Svíþjóð, unn-
ið að verkefni um byggð á
Seyðisfirði. Nemar þessir
heita Árni Kjartansson frá
Höfn í Hornafirði, Björn
Marteinsson frá Selfossi, Páll
Gunnlaugsson frá Reykjavík,
Valdimar Harðarson frá
Kefiavík og Þormóður
Sveinsson frá Reykjavík.
Verkefnið fjallar um mark-
mið og leiðir í skipulagningu
og húsbyggingu bæja, og er
unnið sem lokaverkefni frá
áðurnefndum skóla.
Um síðustu helgi kynntu
þeir félagar hugmyndir sínar á
borgarafundi á Seyðisfirði.
í dag, fimmtudaginn þann
22.11.1979, kl. 20.30 kynna þeir
verkefnið í Reykjavík í stóra
sal Norræna hússins með
litskyggnum og kvikmynd.
Öllum er heimill aðgangur.
HOOVER
ekki bara ryksuga...
Teppahreinsarinn frá HOOVER ekki aðeins
ryksugar teppið, hann hreinsar að auki úr því
margskonar önnur óhreinindi sem ryksuga naer
ekki eins og t.d. • Klístur »Þráðarenda
• Dýrahár • Sand úr botni
• Bakteriumyndandi sveppa- og gerlagróður
Jafnframt ýfir hann flosið svo að teppið er ætið
sem nýtt á að líta, pað á jafnt við um
snöggtsem rya. Fjölþætt notagildi fylgihluta.
Og það er staðreynd að teppið endist þér lengur.
HOOVER
er heimilishjálp.
BB
> ég banka.bursta
C" og sýg...
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
FÁLKINN
1904-1979
—Albert