Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 48
aujra' FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 V estmannaey jaaðf er ð- in notuð við Kröflu? Þorbjörn Sigurgeirsson með hugmyndir um að leiða vatn að bráðnu hrauni neðanjarðar Á RÁÐSTEFNU Jarðíræðafélags tslands siðastliðinn föstudag var fjallað vitt og breitt um Kröflu og sérfræðingar fluttu 23 erindi. Þor- björn Sigurgeirsson prófessor ræddi um „notkun hraunkviku til framleiðslu háþrýstigufu“ og segir í útdrætti úr erindi hans, að „þar sem hraunkvika er djúpt i jörðu eins og t.d. á Kröflusvæðinu, eru aðstæður fyrir hendi til fram- leiðslu háþrýstigufu, ef takast mætti á annað borð að framleiða þar gufu með hliðstæðum aðferð- um og gert er í Vestmannaeyjum.“ Þorbjörn Sigurgeirsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að ef þetta yrði mögulegt, þá væru við Kröflu náttúrulega hagstæðar að- stæður, en þetta væri á algjöru- óvissustigi. — Það sem ég fjallaði um í þessu erindi, var að leiða líkum að því, að ef vatn væri leitt að bráðnu hrauni neðanjarðar á svip- aðan hátt og við höfum leitt það að hrauninu í Vestmannaeyjum, þá myndi þrýstingurinn, sem er þarna niðri á 3000 metra dýpi, kannski ekki breyta svo miklu, sagði Þor- björn. — Það myndu væntanlega opnast sprungur í storkuberginu, sem gerðu það mögulegt fyrir vatnið að komast í námunda við bráðna hraunið. Sjá nánar bls. 2: Viðtal við prófessor Þorbjörn IIÁHYRNINGARNIR scx i Sædýrasafninu, scm einhvern næstu daga leggja í langferð til Japans, hraggast mjög vel og eru fjórir þeirra farnir að borða úr lófa gæzlumanns. Þessar stóru skepnur heimta mat sinn og engar refjar og eftir þessari mynd að dæma er e.t.v. vissara að verða við kröfum þeirra umyrðalaust. Ljómn. Emiiía. Milljarða vanskil við Fiskveiðasjóð VANSKIL hjá Fiskveiðasjóði nema milljörðum króna, samkvæmt uppiýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér, og munu þær vera meiri nú en nokkru sinni áður. Mbl. bar þessa frétt undir Guðjón Halldórsson hjá Fiskveiðasjóði i gær og sagði hann það rétt að vanskil væru mikil, en nákvæmar tölur um þau væru ekki handbærar. en — Nú liggja ekki fyrir neinar skýrslur um vanskilin, en það vcrður um áramót, sagði Guðjón. — Hins vegar er þetta skoðað fram og til baka og það er mikið í um vanskilum, það er ljóst. Þetta á sérstaklega við um nýsmíðina, en þar eru þó að sjálfsögðu margir aðilar, sem er allt í lagi með, sagði Guðjón. Hann tók einnig fram, að á sínum tíma hefði lögboðin pró- senta á greiðslum í stofnfjársjóð verið lækkuð úr 15% í 10%. Því væri staðan nú þannig, að þó 10% aflaverðmætis dygðu greinilega ekki þá gæti Fiskveiðasjóður ekki krafist þess, að hærra hlutfall væri greitt, til þess hefði Fisk- veiðasjóður ekki völd. Skemmdu nýja bíla á þaki Faxaskála í FYRRINÓTT komust skemmdarvargar upp á þak Faxaskála við Reykjavíkur- höfn, en þar eru jafnan geymdir nokkur hundruð nýinnfluttir bílar. Náungum þessum tókst að gangsetja nokkra bila og óku þeir bílunum fram og aftur á þakinu. Ekki var aksturinn til fyrirmyndar því alloft lentu skemmdarvargarnir í árekstr- um og þegar starfsmenn komu til vinnu í Faxaskála i gær- morgun kom í ljós að 6—7 bilar höfðu verið skemmdir meira og minna. Nemur tjónið mörg hundruð þúsund krónum. Bilarnir voru af gerðinni Mazda og Lada. Steíán Gíslason flugstjóri í Jedda: Taka moskunnar í Mekka tefur píla- grímaflug Flugleiða — SÍÐAN þessir atburðir gerðust í Mekka í gær, að moskan var tekin af herskáum Múhaiheðstrúar- mönnum, hefur enginn þeirra um milljón pílagríma, sem þar eru, fengið að yfirgefa Mekka, sagði Stefán Gíslason flugstjóri hjá Flugleiðum er Mbl. ræddi við hann i Jedda í gærkvöldi. Um 70 kílómetrar eru á milli Mekka og Jedda. — Artnars eru mjög litlar fréttir hér af þessum atburði og reynt er að halda öllu leyndu fyrir fjölmiðlum, sagði Stefán. — Hér í Jedda ber óvenju mikið á hermönnum, lögreglu og alls Rikisstjórnin boðar lækkun tekjuskatta: „Breytir ráðuneytunum í kosningaskrifstofur“ — segir Geir Hallgrímsson og telur skatta- lækkunina ganga allt of skammt MINNIHLUTASTJÓRN Alþýðu- flokksins tilkynnti í gær, að hún hefði ákveðið að leggja fyrir Alþingi, er það kemur saman, tillögur um 7,2 milljarða króna niðurskurð rikisútgjalda og ætlar að lækka tekjuskatta, sem því nemur. Geir Hallgrímsson sagði i gær, að þessar tillögur væru léleg eftiröpun á stefnu Sjálfstæðis- flokksins og megingaíli þeirra væri að þær gengju allt of skammt. Hann kvað og rikis- stjórn Alþýðuflokksins með fréttatilkynningu sinni i gær, hafa verið að gera ráðuneytin að kosningaskrifstofum Alþýðu- flokksins og þar með misnotaði Alþýðuflokkurinn ríkisfjölmiðl- ana, sem sæktu ekki blaðamanna- fundi annarra stjórnmálaflokka. Geir Hallgrímsson sagði enn- fremur, að liti Alþýðuflokkurinn á þessa fréttatilkynningu sem stjórnarathöfn, þá væri hún brot á skuldbindingum, sem Alþýðuflokk- urinn hefði gengizt undir við myndun stjórnarinnar, en hann hefði heitið því að framkvæma engin stefnumótandi nýmæli í löggjöf „eða á annan hátt“. Samkvæmt fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins í gær verða gerðar ýmsar breytingar á áætluð- um útgjöldum ríkissjóðs á árinu 1980 frá því, sem ráðgert er í fjárlagafrumvarpi vinstri stjórn- arinnar, sem Tómas Árnason lagði fyrir Alþingi í októbermánuði. Þessar breytingar eru tíundaðar í fréttatilkynnungu ráðuneytisins í 6 liðum. Lagt er til, að framlög til vegagerðar lækki, niðurgreiðslur, lögbundin útgjöld til fjárfest- ingasjóða, og gert er ráð fyrir auknum sparnaði í rekstri Land- helgisgæzlunnar og við rekstur hafrannsóknaskipa. Þá er í síðasta lagi rætt um, að dregið verði úr ýmsum einstökum framlögum og eru nefnd framlög til tilraunabúa með fækkun þeirra fyrir augum, flýtigreiðslur vegna framræslu og framkvæmdir vegna ríkisspítala. Sjá fréttatilkynningu fjár- málaráðuneytisins i heild á bls. 26 og viðtal við Geir Hallgrímsson á bls. 25. konar eftirlitsmönnum. Her- mennirnir ganga með alvæpni um götur og veifa vélbyssum sínum, á flugvellinum er t.d. mjög ströng vopnaleit og eins og ég sagði áður fær enginn enn að fara út úr Mekka meðan þetta ástand varir, sagði Stefán. Aðspurður um hvort röskun hefði orðið á pílagrímaflugi Flugleiða vegna þessa ástands, sagði Stefán, að DC-10 þota Flugleiða hefði verið stöðvuð vegna óvissunnar í Surabaya í Indonesíu í gær. I gærkvöldi hefði henni verið flogið til Dubai til að vera nær Jedda ef ástand- inu létti og sagði Stefán, að menn reiknuðu með að það yrði í nótt eða snemma í dag. Flug- leiðir eiga eftir að fljúga 13 ferðir með pílagríma frá Jedda og eru 380 pílagrímar í hverri ferð. Þar sem ekkert var flogið í gær vegna töku moskunnar hef- ur pílagrímaflugið tafist sólarhring. Pílagrimaflugi frá Alsír hins vegar að ljúka og annað kvöld eru liðlega 40 flugliðar væntanlegir heim í gegnum Du- bai og Luxemborg. Einnig koma á morgun 8 flugliðar aðrir, sem nú taka til við önnur störf hjá Flugleiðum. Þess má geta að áætlað er að um 2 milljónir pílagríma ferðist til Mekka í ár. um er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.