Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 11 mála í flestum stórmálum, sem komið hafa upp vestan- hafs. Kennedy studdi þá ákvörðun Carters að viður- kenna Kína. Hann hefur stutt SALT II samkomulag Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. Hann studdi samning Banda- ríkjanna og Panama um Pan- amaskurðinn. Hann hefur stutt stefnu Carters í deilunni fyrir botni Miðjarðarhafs í meginatriðum. Hann hefur lýst stuðningi við stefnu Cart- ers í mannréttindamálum. Hann hefur beitt sér gegn afnámi vopnasölubanns á Tyrkland. Hann hefur beitt sér gegn því, að viðskipta- banni á Ródesíu verði aflétt. Kennedy hefur verið borinn þeim sökum, að hann vilji aukin umsvif ríkisins. Um það sagði hann nýlega í viðtali, að hann styddi stefnu Carters í fjárlögum. „Eini munurinn er forgangsröðun verkefna," sagði hann. Hann segist ekki hafa nein töframeðul í barátt- unni gegn verðbólgu eða þeim afturkipp í efnahagslífi Bandaríkjanna sem nú ríkir. Það sem skiptir máli, hefur hann sagt, er hvernig tökum málin eru tekin. Kennedy hef- ur stutt þá ákvörðun Carters að stefna að 3% aukningu framlaga til varnarmála, jafn- framt því að SALT II sam- komulagið verði samþykkt. Hann kallaði veru sovéskra hermanna á Kúbu „ögrun" en vildi ekki tengja það mál SALT II samkomulaginu. Það verður því ekki sagt að Kennedy hafi reynt að not- færa sér hið „óvinsæla mál“ Carters sér til framdráttar — þvert á móti hefur hann í megindráttum stutt stefnu forsetans. Kennedy hefur aflað sér mikils álits meðal þjóðarinnar jafnt sem innan þingsins. En tvennt kann þó að verða hon- um fjötur um fót í baráttu sinni fyrir forsetaframboði. Það er annars vegar hjóna- band hans, sem hefur gengið fremur skrykkjótt. Síðustu ár- in hefur hann ekki búið með konu sinni Joan. Hún hefur verið til meðferðar vegna áfengissýki sinnar. Þegar hann lýsti yfir forsetafram- boði sínu, þá stóð hún hins vegar við hlið hans. En það sem verður þó fyrst og fremst haft gegn Kennedy er Chappa- quiddick. Fyrir liðlega tíu ár- um ók Kennedy fram af brú yfir ána Chappaquiddick. Með honum var Mary Jo Kopenhne. Hún drukknaði en Kennedy tókst að bjarga sér en til- kynnti ekki um atburðinn fyrr en mörgum klukkustundum síðar. Nýlega ræddi Kennedy um þetta atvik í blaðaviðtali. Þá sagði hann hegðun sína hafa verið „óábyrga og óskyn- samlega. Ég tek fulla ábyrgð á fleiðingum slyssins," sagði hann. Aðspurður sagðist hann ekki álíta að ógæfan við Chappaquiddick rýrði hæfi- leika hans til að sitja í forseta- stóli. Hann sagðist vonast til að fólk dæmdi sig ekki af þessum eina atburði — heldur öllum ferli hans. „Bandaríkin þarfnast leið- toga. Almenningur skilur, að ekki eru til nein töframeðul í baráttu við verðbólgu og aft- urkipp í efnahagslífinu. En það sem fólk ætlast til er, að í Hvíta húsinu sitji maður, sem getur leitt þjóðina," sagði hann í blaðaviðtali fyrir skömmu. Fjölvi gefur út þrjár íslenzkar skáldsögur BÓKAÚTGÁFAN Fjölvi mun gefa út þrjár skáld- sögur fyrir jólin, tvær nýj- ar skáldsögur, Bílabullur eftir Þorstein Antonsson og Ferð undir fjögur augu eftir Aðalstein Ásberg Sig- urðsson og loks kemur út í endurútgáfu skáldsagan Vorið hlær — Dætur Reykjavíkur eftir Þórunni Elfu. í frétt frá útgáfunni segir svo: „Líklegt er að Bílabullur eftir Þorstein Antonsson veki töluverða athygli. Hún er byggð upp af ólíkum sögum, en viss undir- straumur er undir þeim öllum, sem vitnar um ferð íslensku þjóð- arinnar frá fornum sveitalífshátt- um til nútíma-borgarlífs. Heiti eins kaflans er Bílabullur, en jafnframt vitnar það um vissa þróun nútímans. Erum við nú- tímafólk ekki öll orðin Bílabullur, sem böðlumst áfram? Hin skáldsagan er eftir ungt skáld, Aðalstein Ásberg Sigurðs- son, og heitir Ferð undir fjögur augu. Höfundurinn hefur áður gefið út tvær ljóðabækur, en nú birtist í þessari skáldsögu hans nýr seiðmagnaður stíll. Hún segir frá leit ungs manns að staðreynd- um tilverunnar í henni nútíma Reykjavík. Þá hefur Fjölvi ákveðið að gefa nú út að nýju skáldsögu Þórunnar Elfu, — Vorið hlær — Dætur Reykjavíkur. Þar segir frá lífi ungs fólks og ástum þess á Alþing- ishátíðinni 1930 og er hún nú gefin út vegna þess að á næsta ári verða 50 ár frá Alþingishátíðinni. Þetta verður í endurútgáfunni sérstök skrautútgáfa og er hún skreytt af Sigrúnu Eldjárn." Þórunn Elfa EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al'GLYSINGA- SÍMINN ER: 22480 Þorsteinn Antonsson Þú kemur bara meö gamla svart/ hvíta tækiö þitt — viö metum þaö og þú labbar út meö nýtt litsjónvarpstæki aö eigin vali, frá NORDMFNDE, ASA eöa Bang & Olufsen. P.s. Við tökum líka ónýt svart/hvít tæki uppí! BUÐIN Skipholti19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.