Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979
39
Basar og
kaffisala
BARNAHEIMILIÐ Sólheimar í
Grímsnesi heldur sýningu og sölu
á munum, unnum af vistmönnum
heimilisins, sunnudaginn 25. nóv.
á Hallveigarstöðum kl. 2. Seld
verða ofin teppi og ýmislegt annað
úr vefstofu, einnig bývaxkerti,
dúkkur, bangsar, tréleikföng og
ýmislegt fleira.
Aðstandendur vistmanna verða
einnig með kaffisölu og kökubas-
ar.
Breið-
holtsbúar
Skáldsaga eftir
Guðjón Albertsson
Breiðholtsbúar er safn tíu
sagna, tengdra saman í tíma
og rúmi, eða skáldsaga í tíu
sjálfstæðum köflum, eftir því
hverning lesandinn lítur á
málið, segir aftan á nýrri
skáldsögu eftir Guðjón Al-
bertsson sem Bókaútgáfan
Örn og Örlygur hefur gefið
út. Sagan gerist í Breiðholts-
Garðabær:
Vinstri menn á móti úthlutun
byggingarsvæðis tfl ungs fólks
Bæjarstjórn Garðabæjar úthlutaði fyrir skemmstu
BYGGUNG — Byggingarfélagi ungs fólks í Garðabæ
og Bessastaðahreppi — svæðinu Kjarrmóum, sem
staðsett er í útjaðri væntanlegs miðbæjarsvæðis, neðan
við safnaðarheimilið á Hofsstaðahæð. Við afgreiðslu
málsins í bæjarstjórn greiddu viðstaddir fulltrúar
vinstri flokkanna, þ.e. fulltrúar minnihlutans, atkvæði
gegn úthlutuninni, en meirihlutinn, fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, með. Hefur þessi afgreiðsla vinstri
manna á málinu vakið mikla umræðu og undrun íbúa
Garðabæ.
byggð í Reykjavík, en Breið-
holtshverfin eru sem kunn-
ugt er fjölmennasti og jafn-
framt yngsti hluti borgarinn-
ar, ný borg í þeirri gömlu.
Ibúar Breiðholts eru að
stærstum hluta ungt fólk eða
fólk innan við miðjan aldur
og vandamál þess eru því
vandamál líðandi stundar. í
þessari bók er í skáldskapar-
formi lýst lífsháttum, sam-
búðarvandamálum og neyslu-
venjum Breiðhyltinga. En sé
grannt skoðað er Breiðholt
auðvitað ísland nútímans í
smækkaðri mynd og Breið-
holtsbúinn hinn íslenski nú-
tímamaður. Höfundurinn,
Guðjón Albertsson, gjör-
þekkir persónur sínar og
sögusvið, enda borinn og
barnfæddur Reykvíkingur —
og sjálfur Breiðholtsbúi.
Bókin Breiðholtsbúar er
filmusett, umbrotin og prent-
uð í prentsmiðjunni Odda hf.,
en bundin í Sveinabókband-
inu hf. Kápumynd gerði Pét-
ur Halldórsson.
Stjórnmála-
fundur
með stúdentum
Almennur stjórnmálafundur
verður haldinn í Félagsstofnun
stúdenta í kvöld, fimmtudags-
kvöld, klukkan 20.30. Frambjóð-
endur stjórnmálaflokkanna munu
koma og ræða um lánamál stúd-
enta, fjárveitingar til Háskóla
íslands og auk þess ræða almennt
um stefnu flokkanna í kosningun-
um nú í desember.
Ástæða þess að vinstri menn
greiddu atkvæði gegn úthlutun-
inni er að þeirra sögn sú, að þeir
töldu að verið vaeri að veita ungum
Garðbæingum í BYGGUNG betri
kjör á gatnagerðargjöldum en
öðrum íbúum. Þegar úthlutað hef-
ur verið byggingarsvæðum í bæn-
um, s.s. til Ibúðarvals h/f, hefur
sami háttur og nú er afhafður
verið tíðkaður, og var því ekki
andmælt af vinstri mönnum þá.
Mjög hefur borið á því að undan-
förnu, að skort hefur í Garðabæ
húseiningar viðráðanlegar ungu
fólki, þ.e. litlar ódýrar íbúðarein-
ingar, og því var BYGGUNG
stofnað.
BYGGUNG fékk Róbert Pét-
ursson arkitekt til að gera skipu-
lagshugmyndir að svæðinu og
hafa teikningar frá honum verið
samþykktar af skipulagsnefnd
bæjarins. Á svæðinu verða 48
raðhús, að stærð frá rúmum 70
fermetrum upp í 140 fermetra.
Ákveðið hefur verið að byggja í
fyrsta áfanga 25 hús. Áætlaður
byggingartími er 24 mánuðir og
kostnaður, miðað við bygg-
ingarvísitölu i sept. 1978 frá 15
millj. kr. upp í 30 millj. kr. eftir
stærð húsanna. Húsin verða af-
hent fullfrágengin að utan sem og
innan.
BYGGUNG í Garðabæ var
stofnað fyrir rúmu ári. Félagar
geta þeir einir orðið sem lögheim-
ili eiga á félagssvæðinu. Nú þegar
eru félagsmenn orðnir á annað
hundrað.
í stjórn BYGGUNG eiga sæti:
Bragi Henningsson formaður,
Fríða Proppé varaformaður, Guð-
jón Torfi Guðmundsson gjaldkeri,
Davíð Einarsson ritari og Ey-
steinn Haraldsson. Framkvæmda-
stjóri félagsins er Örn Kærnested.
BASAR
Laugardag 24. nóv. kl. 14—18 verður árlegur basar Kristniboðsfé-
lags kvenna í Reykjavík haldinn í Betaníu, Laufásvegi 13 í
Reykjavík. Margs konar handavinna verður á boðstólum svo og
kökur auk föndurvinnu sem stúlkur hafa unnið. Allur ágóði rennur
til íslenska kristniboðsstarfsins í Kenýa og Eþíópíu. Þá verður um
kvöldið kl. 20.30 haldin samkoma á sama stað og talar þar Margrét
Hróbjartsdóttir kristniboði.
Lestin brunar með
Róbert og Gylfa
ÖNNUR plata þeirra Róberts Arnfinnssonar og Gylfa b. Gislasonar er
nú komin út hjá Fálkanum og nefnist hún Lestin brunar. Þar syngur
Róbert lög eftir Gylfa við Ijóð eftir mörg helztu skáld þjóðarinnar.
Undirleik á plötunni annast meðlimir úr Sinfóniuhljómsveit íslands
undir stjórn Jóns Sigurðssonar.