Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 + Móðir okkar, tengdamóöir og amma STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, Miöfelli, sem lést þann 19. nóvember, verður jarösungin laugardaginn 24. nóvember kl. 14.00 frá Hrepphólakirkju. Bílferð verður austur sama dag kl. 12.00 frá Umferöamiðstööinni. Helgi Jónsson, Anná Siguröardóttir, Siguróur Jónsson, Jón Helgason. + Jaröarför móöur okkar GUDRÚNARJÓNSDÓTTUR Reykjum, Skeiöum, fer fram frá Ólafsvallakirkju, laugardaginn 24. nóvember kl. 2 e.h. Bílferð veröur frá Umferöamiöstööinni kl. 12. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á sjúkrahús Selfoss. Börnin. + Fööurbróðir minn JÓNAS JÓNASSON, Óöinsgötu 20 A, lést í Borgarspítalanum að kvöldi 20. nóvember. Anna Sigurjónsdóttir. Útför eiginkonu minnar, SIGRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR frá Kambshóli í Svínadal, Ljósheimum 18A er andaöist 15. nóv. s.l., hefst meö kveöjuathöfn í Háteigskirkju laugardaginn 24. þ.m. kl. 10.30 f.h. Jaröaö veröur sama dag aö Saurbæ á Hvalfjaröarströnd. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ólafur Björgvin Ólafsson. + LOFTUR ANDRÉSSON Vestri Hellum, er lést 15. nóvember, veröur jarösunginn frá Gaulverjabæjarkirkju, laugardaginn 24. nóvember kl. 14.30. Helga Guölaugsdóttir, Guörún Loftsdóttir. + Ástkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, STEFÁN VILHJÁLMSSON Meltröö 10, Kópavogi. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 23. nóvember kl. 3 síödegis. Sigrún Siguröardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, dóttur og tengdadóttur, móöur, tengadamóður og ömmu, ELINAR ELIASDÓTTUR Vallholti 17, Akranesi. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki sjúkrahúss Akraness. Björn Agústsson, Ólína Ólafsdóttir, Björnfríöur Björnsdóttir, Björnfríóur Björnsdóttir, Oddur Gíslason, Ágústa Björnsdóttir, Magnús Hannesson, Ólína Björnsdóttir, Ólafur Jónsson, Ólöf Björnsdóttir, Magnús Teódórsson, og barnabörn. + Innilegt þakklæti færum viö öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og útför litla drengsins okkar, HAUKS LEIFSSONAR, Regína Leifsdóttir, Leifur Teitsson. + Þökkum alla auösýnda samúð og vinarhug við andlát og jaröarför, JÓNS GUÖBRANDSSONAR, bónda, Saurbse, í Fljótum, Hjúkrun og umönnun hans þökkum viö öllum á Sjúkrahúsi Siglufjaröar. Guóbjörg Margrét Jónsdóttir, Guðbrandur Þór Jónsson. Minning: Bogi Sigurösson framkvœmdastjóri Fæddur 27. ágúst 1906. Dáinn 14. nóv. 1979. Með Boga Sigurðssyni er fallinn í valinn góður drengur og gegn. Það dregur enginn í efa, sem til þekkir. Hann lét ekki mikið yfir sér, en óx við kynningu og níddist aldrei á neinu, sem honum var til trúað, og það var í reynd ekki svo fátt, því síður lítilvægt. Kennari var Bogi að menntun, en kunnastur sem framkvæmda- stjóri barnavinafélagsins Sumar- gjafar, enda gegndi hann því starfi um langt árabil: frá fertugu til sjötugsaldurs, og reyndi þar bæði á lipurð og hyggindi. Bogi Sigurðsson fæddist að Rauðholti í Hjaltastaðarþinghá á Fljótsdalshéraði. Voru foreldrar hans Sigurður Jónsson bóndi þar og Sigurbjörg Sigurðardóttir kona hans, er missti heilsuna skömmu eftir fæðingu sveinsins og andað- ist þegar hann var á 6. ári. Bogi ólst því upp hjá vandalausum, séra Vigfúsi Þórðarsyni, presti á Hjaltastað, síðar í Eydölum, og konu hans, frú Sigurbjörgu Boga- dóttur Smiths frá Arnarbæli á Fellsströnd. Var honum því gefið nafn föður hennar sakir tryggðar þeirrar, sem hún tók við drenginn. Má segja um Boga, að fjórðungi bregður til fósturs, því að ósjaldan minntist hann fósturforeldra sinna og æskustöðva þar eystra, enda átti hann hvoru tveggja gott að gjalda. Hann sýndi það m.a. í því, að inni í stofu þeirra Ingi- bjargar að Hamrahlíð 7, þar sem þau bjuggu lengst af, eftir að þau fluttust til Reykjavíkur, hékk mynd af Eydölum, sem hann hafði sjálfur málað, því að honum var ýmislegt til lista lagt: hög hönd og fleiri listrænar gáfur, eins og síðar verður sagt frá. Á yngri árum kenndi Bogi á ýmsum stöðum, m.a. í Ketilsstaða- hreppi við Arnarfjörð og á Hell- issandi, þar sem hann var oddviti um skeið og var í ýmsum nefndum og félagsstörfum, svo sem hrepps- nefnd Neshrepps utan Ennis um tíu ár, skattanefnd fjögur ár og í stjórn Samvinnu-útgerðarfélags- ins frá stofnun þess, 1936—1941. Bogi Sigurðsson var tvíkvæntur. Fyrri konu sinni, Brynhildi Jóns- t Móðir mín og tengdamóöir SÓLVEIG ANDRÉSDÓTTIR fró Þrúöardal lést 14. nóv. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum samúð og vinarhug. Fanney Jónsdóttir Arngrímur H. Guðjónsson t Útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ÖNNU HELGADÓTTUR fró Stokkseyrí, sem andaöist þann 12. nóvember sl., verður gerö frá Frfkirkjunni föstudaginn 23. nóv. kl. 13.30. Jarösett veröur á Stokkseyri laugardaginn 24. nóv. kl. 13.30. Unnur Siguróardóttir, Ófeigur J. Ófeigsson, Haraldur Sigurósson, Brynhildur Sigþórsdóttir, Georg Sigurösson, Ásta Bergsteinsdóttir, Jóhann L. Sigurösson, Ragnheiður Böövarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn t Þökkum auösýnda samúö, vegna andláts og útfarar fraenda okkar, GÍSLA ÞÓRARINSSONAR, fyrrum bónda Neöribæ, Borgarhöfn. Systkinabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, ÞORGEIRS EYJÓLFSSONAR, Langholtsveg 106. Hólmfríöur Guöjónsdóttir, Aðalsteinn Þorgeirsson, Savanlaug Þorsteinsdóttir, Kristjón Þorgeirsson, Sigríöur Olafsdóttir, Guömundur Þorgeirsson, Guörún Þorsteinsdóttir, Þórunn Þorgeirsdóttir, Þórir Þorlóksson, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúöarþakkir fyrir alla þá miklu samúö og vinsemd, sem okkur var sýnd við andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa okkar, AÐALSTEINS SIGURÐSSONAR, múrarameistara, Baröavogi 17. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild 4C, Landspítalan- um, fyrir alla umönnun í langvarandi veikindum. Helga Bjargmundsdóttir, Sólveig Aóalsteinsdóttír, Sighvatur Blöndahl, Ólafía Aðalsteinsdóttir, Hlynur Möller, örvar Aöalsteinsson, Ævar Aöalsteinsson, og barnabörn. dóttur frá Höskuldsstöðum í Breiðdal, kvæntist hann 1936. Með henni eignaðist hann einn son, Björn Sævar bifvélavirkja í Reykjavík. Þau Brynhildur skildu 1942. Dóttur eignaðist Bogi, Mar- grétu 1948, sem missti móður sína kornung og ólst upp hjá fósturfor- eldrum. Árið 1954 kvæntist Bogi Ingibjörgu Bjarnadóttur, ekkju Hannesar Péturssonar skólastjóra á Hellissandi. Hafa þau Ingibjörg og Bogi ætíð átt heima að Hamra- hlíð 7, eins og áður er getið, og hefur það heimili jafnan staðið opið frændum, vinum og venzla- liði, en ekki sízt börnum og stjúpbörnum Boga frá fyrra hjónabandi Ingibjargar, Bjarna lækni og Hönnu húsfreyju. En þeim hefur Bogi jafnan reynzt sem bezti faðir. Samkvæmt mínum kynnum af Boga Sigurðssyni, reyndist hann ávallt bezt, þegar mest á reið. Og við höfðum þó nokkuð saman að sælda í áratugi. Hér skal þó aðeins nefnt eitt dæmi, en það lýsir honum vel. Sem inngangsorð að þeirri frásögn skal aftur getið æskustöðva hans austur á Fljóts- dalshéraði og í Breiðdal. Ungur gekk Bogi Sigurðsson í Eiðaskóla, sem stendur í næstu sókn við fæðingarsveit hans. Vegna þess að ég var eitt sinn tengdur þeirri stofnun, hittumst við Bogi í fyrsta sinn á skrifstofu Sumargjafar. Það atvikaðist þannig, að til mín kom gamall nemandi minn frá Eiðum, Helgi Hóseasson frá Höskuldsstaðaseli í Breiðdal, og bað mig að koma með sér á fund Boga Sigurðssonar, því að hann hefði hug á að gróður- setja trjáplöntur í Eiðalundinn á Heiðmörk, en Bogi var þá og síðar formaður Eiðamannafélagsins í Reykjavík. Ég varð við þessum tilmælum sem áhugamaður um trjárækt og vinveittur Eiða- mönnum. Bogi tók okkur Helga af mikilli alúð á skrifstofu sinni, og málinu var borgið. Hann útvegaði trjáplöntur og fór með okkur fáein vorkvöld austur í Heiðmörk. Mörgum árum síðar bauð Bogi mér svo austur í bíl sínum til að sjá, hvernig hríslurnar hefðust að — og hafði mikið yndi af. En Bogi Sigurðsson hafði ekki aðeins unað af ungviði úr gróð- urríkinu og þroska þess. Hann var og mikill barnavinur og bar gæfu til að lenda á rétta hillu í lífi sínu. Og sú alúð hans náði langt út fyrir skyldustörfin, eins og sagan um gróðursetningu trjáplantnanna á Heiðmörk ber gott vitni um. Bogi var alltaf að hlúa að gróðri, fyrst og fremst mannlífsgróðri — börn- unum. Alúð hans náði langt út fyrir skyldustörfin, þ.e. til allra þeirra barna, sem hann komst í kynni við, Hann skildi börnin, Ieiðbeindi þeim og var félagi þeirra. Og í því sem öðru var hans ágæta Ingi- björg honum samhent: að veita lítilmögnum lið. En ef til vill hefur hann staðið börnunum nær, af því að hann fór á mis við móðurást í æsku, þó að hann raunar nyti frábærs atlætis hjá fósturforeldrum sínum á Hjalta- stað og í Eydölum. Bogi Sigurðsson var maður greindur og gæddur listrænum hæfileikum, eins og áður er að vikið. Sú grein, sem hann hafði mestan áhuga á, auk dráttlistar, var leikritun, þótt eigi legði hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.