Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 Moskan mikla — oxuli Múhameöstrúar. I miújum Karrti moskunnar er Kaaha. heltíidúmurinn Helgispjöllin í Mosk- unni miklu og Iíaaba VOPNUÐ árás á Kaaba, mcsta hclKÍdóm 800 milljóna manna, heíur vakið gífurlcga reiði í öllum löndum Múhamcðstrúarmanna. Enn liggur ckki ljóst hverjir árásarmennirnir eru, sem cnn hafa hluta Moskunnar miklu í Mekka á valdi sínu, en framan af degi benti flest til þess að þarna væru að verki íranskir Khomeini-sinnar. Er Hða tók á daginn fóru að herast yfirlýsingar, m.a. frá Saudi-arabísku konungsfjölskyldunni, um að árásarmennirnir væru „mahdistar“, sem eru ofsatrúarhópur innan greina ba-ði Sunnita og Shiita, sem eru fjölmennastir innan Múhameðstrúar. í yfirlýsingu stjórnar Saudi-Arabíu um málið er fullyrt að hór sé um að ræða „mahdista", en þeir eru til i flestum iöndum þar sem Múhameðstrú er rikjandi. „Mahdistar“ trúa á endurkomu „mahds“, lausnara, sem komi þeirra erinda til jarðarinnar að skira Múhameðstrú cnda hafi árásarmennirnir hafið einn úr sinum hópi á loft. hrópað að hér væri kominn „mahd“ og ógnað pilagrímum i moskunni til að falla fram fyrir honum og biðja til hans. Eftir því sem næst verður komizt voru árásarmenn hundr- uðum saman, en sumir telja að þeir hafi verið allt að þúsund talsins. í yfirlýsingu stjórnar Saudi-Arabíu segir að her lands- ins sé í árásarstöðu, en ekki verði fyrr en í lengstu lög ráðizt til atlögu við árásarmennina, sem enn hafi hluta Moskunnar miklu á valdi sínu, því að vart geti þá farið hjá því að helgidómurinn verði fyrir skemmdum og mann- tjón verði. Eitt helzta boðorð Múhameðstrúarmanna er að í helgidómnum megi ekki bera vopn og ekki lífláta nokkra skepnu. Ekki er ljóst hversu marga gísla árásarmenn hafa á valdi sínu í moskunni, en þar á meðal mun vera fjölskylda Yam- anis olíumálaráðherra Saudi- Arabíu. Af fundi Arababandalagsins í Beirút hafa þær fregnir borizt að árásarmennirnir hafi enn á valdi sínu hluta af efri hæð Moskunnar miklu. Hafi flestir gísla þeirra verið frelsaðir og innrásar- mönnum hafi öllum verið bægt frá Kaaba og steininum helga, sem eru æðstu helgidómarnir. Sömu heimildarmenn, sem taldir eru áreiðanlegir, segja að árásar- mennirnir hafi komið óvopnaðir að Moskunni miklu, en flutn- ingabíll hafi komið þangað og úr honum hafi verið dreift allmiklu af rifflum og öðrum skotvopnum. Menn sem sluppu út um hlið moskunnar áður en árásarmenn náðu að loka þúsundir pílagríma inni, segja að árásarmennirnir hafi sveiflað rússneskum skot- vopnum. „Guðlast", „viðurstyggð", „ódæði, sem verður að hefna grimmilega", — slík ummæli voru algeng meðal óbreyttra Múslima víða um heim eftir að fregnin um árásina á helgidóminn barst. Múslimar líta á Kaaba sem aðset- ur Allah á jörðu, og inn í Kaaba fara engir nema meðlimir saudi- arabísku konungsfjölskyldunnar, sem er Allah til aðstoðar við sérstök störf í mannheimi. Hinir konunglegu aðstoðarmenn fara inn í Kaaba einu sinni á ári þeirra erinda að hreinsa hana. Við hlið Kaaba er steinninn helgi, sem er svartur að lit, en silfursleginn. Æðsta takmark óbreyttra múha meðstrúarmanna er að snerta steininn sem oftast er þeir hring- sóla eftir settum reglum í kring- um Kaaba. I lögmáli Múslima er afdrátt- arlaust kveðið á um refsingar við brotum af flestu tagi. Fyrir helgi- spjöll verður samkvæmt lögmál- inu ekki refsað nema með aftöku, hvað þá ef helgispjöllin eru fram- in í Moskunni miklu, við Kaaba, sem 800 milljónir snúa sér að og lúta fimm sinnum á degi hverjum. „Hvernig get ég skað- að Sovétríkin?“ spyr Victor Korchnoi Amsterdam, 21. nóvember. AP. 10,6.RÚSSNESKI skákmeistarinn Victor Korchnoi höfðaði í dag til almennings um ailan heim og ósk- aði hjálpar við að fá son sinn leystan úr fangelsi í Sovétríkjun- um. Sonur Korchnois, Igor að nafni, sem er tvítugur að aldri, var tekinn fastur 13. nóvember sl. fyrir að hafa neitað að gegna herþjón- ustu. Korchnoi sagði í dag á fundi með fréttamönnum í Amsterdam, að hann hefði sent bréf til Brezhnevs forseta Sovétríkjanna, Carters Bandaríkjaforseta, Jóhannesar Páls páfa 2. og fleiri leiðtoga og beðið þá um aðstoð, en án þess að hafa fengið nein svör. Korchnoi sakaði Sovétmenn í dag um að halda konu sinni og syni í gíslingu að tilefnislausu. „Ég er ekki mikilvægur maður," sagði Korchnoi, „ég þekki engin kjarnorkuleyndar- mál og hef ekki stundað eldflauga- njósnir. Einu leyndarmálin, sem ég Veður víða um heim Akureyri 3 skýjað Amsterdam 8 skýjað Aþena 18 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Berlín 5 skýjað BrUssel 4 skýjað Chicago 20 heiðakírt Feneyjar 12 téttskýjað Frankfurt 7 skýjað Genf 8 skýjað Helsínki 6 skýjaö Jerúsalem 26 heiöskírt Jóhannesarborg 23 heiðskírt Kaupmannahöfr i 6 skýjað Las Palmas vantar Lissabon 18 heiðskirt London 6 þoka Los Angeles 20 skýjað Madríd 31 heiðskírt Malaga 20 léttskýjað Mallorca 22 skýjað Miami 24 heiðskírt Moskva 2 skýjað New York 16 heiðskirt Ósló 4 heiöskírt París 8 heiðskírt Reykjavfk 2 léttskýjað Rio de Janeiro 27 skýjað Rómaborg 13 skýjaö Stokkhólmur 3 skýjað Tel Aviv 27 heiðskirt Tókýó 31 heiðskírt Vancouver 10 skýjað Vínarborg 3 rigning þekki eru hvernig byggja á upp öfluga peðastöðu. Hvernig get ég skaðað Sovétríkin?" Skákmeistarinn flýði sjálfur frá Sovétríkjunum á árinu 1976 og býr nú í Sviss. Kona hans og sonur hafa margoft leitað eftir leyfi til að flytjast úr landi, en aldrei fengið það. Korchnoi sagði að Igor hefði verið kallaður í herinn, þegar hann hætti skólanámi, en hann hefði ekki viljað gegna herþjónustu fyrir land, sem komið hefði jafnilla fram við föður hans og Sovétríkin hafa gert. Spægi- pylsu- raunir Mílanó, 21. nóvember. AP. KONA Ambrogios Molteni, sem kallaður hefur verið „spægipylsukóngur Ítalíu,“ var í morgun við störf sín í einni kjötvinnslustöð þeirra hjóna. Vildi þá svo til að henni skrikaði fótur, með þeim af- leiðingum að hún sló hendinni á rofa á kjötsög. Sögin fór í gang, en i fallinu lenti konan með hálsinn á sagarblaðinu, og varð saga hennar öll með þessum hætti. Olga Sala Molteni tók við stjórn spægipylsuveldisins þeg- ar maður hennar flúði land svo hann yrði ekki dreginn fyrir rétt og sennilega dæmdur í fangelsi fyrir útflutningsbóta- svik. í september s.l. fór fram réttarhöld í máli Moltenis, að honum fjarstöddum og var hann þá dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Lögreglumenn myrtir á Ítalíu Genova, 21. nóv. AP. FJÓRIR hryðjuverkamenn úr Rauðu herdeildunum á ftaliu réð- ust i dag inn i kaffihús i Genova og hófu skothrið á tvo lögreglumenn, sem þar sátu. Menpirnir létust báðir, en árásarmennirnir, sem voru ódulbúnir, flúðu i bíl, sem beið fyrir utan. Skömmu eftir atburðinn var hringt í eitt dagblaðanna í borginni og sagt að Rauðu herdeildirnar hefðu verið hér á ferðinni til að hefna Francesco Berardi, eins úr herdeildunum, sem dæmdur hafði verið til fangelsisvistar, en framdi sjálfsmorð í síðasta mánuði. Alls hafa 20 lögreglumenn á Ítalíu fallið fyrir hendi hryðjuverkamanna á síðustu tveimur árum. Forsætisráðherrarnir vissu um mál Blunts Lundúnum. 21. nóvember. AP. MARGARET Thatcher forsætisráðherra Breta lýsti því yfir i dag að gagnstætt því sem áður hefði komið fram hefði brezka leyniþjónustan á sinum tíma ekki haldið Blunt-málinu leyndu fyrir æðstu stjórn ríkisins. Thatcher skýrði frá því að þrír fyrirrennarar hennar í forsætisráðherraembætti hefðu haft vitneskju um að Biunt viðurkenndi árið 1964 að hafa stundað njósnir í þágu Sovétríkjanna. Þá lýsti forsætisráðherrann þvi yfir, að upplýsingarnar, sem Blunt lét Sovétmönnum i té á sinum tíma, hefðu sennilega ekki orðið til þess að stofna í hættu lifi brezkra þegna. Þá benti ekkert til þess að athæfi hans hefði orðið til þess að hernaðaraðgerðir Breta hefðu ekki náð tiigangi sinum. „Á hinn bóginn,“ sagði Thatcher, „er ekki vafi á þvi að athæfi hans hefur skaðað hagsmuni brezku þjóðarinnar.“ Thatcher vísaði á bug gagnrýni hefðu fleiri verið settir undir um að yfirmenn brezku leyniþjón- ustunnar hefðu staðið ranglega að málinu, en hún undirstrikaði að nú hefði hún búið svo um hnútana að forsætisráðherra brezku stjórnarinnar fylgdist gjörla með framvindu mikilvægra mála er snertu öryggi ríkisins og undan- þágur í því sambandi. Þá sagði forsætisráðherrann, að auk Blunts smásjá í sambandi við mál Burg- ess, MacLeans og Philbys. Hefði ótiltekinn fjöldi manna þá „horfið úr opinberri þjónustu eða verið látnir hefja störf, sem ekki kröfð- ust þess að viðkomandi hefðu aðgang að leyniskjölum". Thatch- er vildi ekki skýra frá nöfnum þessara manna eða hversu margir þeir hefðu verið, og vísaði þannig á bug kröfum þingmanna, sem vildu vita hvort aðrir landráða- menn gengju enn lausir án þess að mál þeirra hefðu verið gerð opin- ber. „Ég er þess fullviss, að allt var gert til að tryggja öryggi ríkisins," sagði hún, um leið og hún lýsti því yfir að léyniþjónust- an hefði enn þann dag í dag ekki umráð yfir nauðsynlegum gögn- um, sem hægt væri að leggja til grundvallar málshöfðun á hendur Blunt. Þá benti hún á að Blunt hefði veitt mikilvægar upplýs- ingar, sem stuðluðu að því að upplýsa mál Burgess, Macleans og Philbys, auk annarra mála er snert hefðu njósnir í þágu Sov- étríkjanna. Ummæli Blunts í gær hafa vakið mikla reiði í Bretlandi, en mál hans vekur sívaxandi athygli. „Til fjandans með samvizku þína, Blunt, Bretar eiga betra skilið en svona tvískinnung og fals“, er fyrirsögn Daily Express í morgun, og önnur blöð taka í sama streng þótt ekki taki þau svo óvægilega til orða. Viskí handa njósnaranum, stóð undir þessari mynd á forsíðu eins Lundúnablaðanna í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.