Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 Andrea Þórðardóttir: Vorið 1978 samþykkti bæjar- stjórn Hafnarfjarðar að minna á rétt fatlaðra samkvæmt 16. gr. endurhæfingalaga frá 1974 í at- vinnuauglýsingum frá bænum, til- efnið var bréf, sem bæjarstjórn- inni hafði borist frá félagsmála- ráðherra. Við skyldum nú ætla að ráðherra, sem sendir slíkt bréf gætti þess að ráðuneyti hans færi sjálft að settum lögum, en ekki er því nú þannig farið. Eg hef ekki rekist á eina einustu atvinnuaug- lýsingu í þessa átt frá neinu ráðuneytanna. Ég geri ráð fyrir því að öllum bæjar- og sveita- stjórnum hafi borist áðurgreint bréf, og sömuleiðis er mér ekki Fleiri dæmi gæti ég tekið, til að sýna fram á hvað hægt er að gera til þess að hjálþa fötluðum tií að vera meðal okkar úti í þjóðfélag- inu. Þetta þarf ekki að kosta mikla peninga, heldur fyrst og fremst vilja og hugkvæmni til að gera hlutina. En eitt er víst að það kostar mikla peninga að hafa svona fólk á stofnun. Fyrir þeim sem eru skilningssljóir um hag þessa fólks hef ég stundum reynt að lýsa því hvernig tíminn líður á svona stað með orðum manns sem er fatlaður: Ég var klæddur á morgnana, þveginn, mataður, síðan var stóln- um og mér komið fyrir einhvers- staðar uns komið var fram á hádegi, þá var stólnum mínum Aðstoð við fatlaða kostar fyrst og fremst vilja og hugkvæmni kunnugt um að þær geti um þennan rétt fatlaðra í auglýsing- um sínum, þó er mér kunnugt að borgarstjórn Reykjavíkur felldi þessa beiðni ráðuneytisins. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort við í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, séum eitthvað sérstakt fyrir- brigði, að vilja fara eftir lögum og virða rétt fatlaðs fólks, eða hvort aðrar bæjarstjórnir og ríkisfyrir- tæki séu hrædd við að hjá þeim muni allt yfirfyllast af fötluðu fólki? Það væri e.t.v. ástæða til þess að greina aðeins nánar frá því hvernig að þessum málum hefur verið staðið í Hafnarfirði, síðan bréfið var samþykkt í bæj- arstjórn. Tvisvar hafa fatlaðir sótt um starf, og var í bæði skiftin tekið tillit til fötlunar viðkomandi. Fólk þetta hefur svo reynst hinir ágætustu starfsmenn, og voru þeir ráðnir uppá sömu kröfur og aðrir, og fengu sinn reynslutíma. Margir hafa haft á því orð við mig, að þó fatlað fólk reyndist ekki góðir starfsmenn, þá myndi þeim ekki vera sagt upp starfi, vegna meðaumkunar. Þessari skoðun vísa ég algerlega á bug. Frá mínum sjónarhól eiga fatlaðir sama rétt og aðrir, ekki neinn umframrétt. Það á að gera kröfur til hins fatlaða, alveg eins og annarra. Fatlaðir hafa ekkert að gera með meðaumkun, það eykur ekkert á sjálfsvirðingu þeirra. Þegar ég skrifa orðið sjálfsvirðing kemur mér dæmi í hug, þegar margir hjálpast að við að leysa neyð fatlaðs manns, svo hann gæti komist úr einangrun og jafnframt öðlast sjálfsvirðingu. Ungur maður héðan úr Hafnar- firði lamaðist upp að mitti eftir slys, hann lá lengi á sjúkrahúsi, en svo kom að því að starfsfólk spitalans taldi hann hæfan til að fara heim til sín, en þá reyndist það ókleift því auðvitað var íbúðin heima hjá honum ekki ætluð fyrir mann í hjólastól. Sjúkraþjálfarinn sem annaðist hann, sendi bréf til Félagsmálastofnunar Hafnar- fjarðar og tiltók hvað þyrfti að gera og spurðist jafnframt hvort hægt yrði að fá aðstoð við breyt- ingarnar. Undir þetta var vel tekið og breytingar gerðar, ungi maður- inn útskrifaðist síðan af sjúkra- húsinu, en ekki var nú allur vandinn leystur með þessu. Auð- vitað þurfti að reyna að útvega honum eitthvað starf, og eins og þeir vita, sem hafa kynnst því hvernig það er að útvega fötluðum vinnu, þá er það ekki auðvelt. En sem betur fer eru til góðir menn hér á landi og einn þeirra er sparisjóðstjórinn í Hafnarfirði. Hann bauð þessum unga pilti að reyna sig hjá þeim sem og hann gerði. Síðan var lagfærð innkom- an í Sparisjóðinn og jafnframt lagfært innandyra til þess að auðvelda piltinum að komast um í hjólastólnum sínum. Þetta fram- lag Sparisjóðsins er til fyrirmynd- ar, og þeim sem þar ráða ríkjum til hins mesta sóma, hafi þeir þökk fyrir. Að lokum var piltinum útveguð bifreið, því án bíls hefði hann ekkert komist. aftur ýtt að matarborðinu. Síðan lá leiðin í rúmið til smáhvíldar að afstöðnum málsverði. Aftur í stól- inn, þá miðdegiskaffi, en einu sinni fór stóllinn og ég á einhvern stað, og þar dvaldi ég uns kvöld- matur var framreiddur. Eftir kvöldmat var búið um mig fyrir nóttina og ekki gleymdust þá lyfin mín. Æfingar fékk ég sjaldan og ekki var ég spurður hvar setja skyldi stólinn og mig. Þá daga er ég þurfti að liggja í rúminu, en það kom oft fyrir, þá kom enginn til þess að tala við mig, utan þess sem nauðsynleg umönnun krafð- ist. Þá mánuði er ég dvaldi þarna bauð mér enginn að rúlla stólnum mínum út, þrátt fyrir það að oft væri ég dapur yfir því að sjá sólina skína, ég óskaði þá oft að Guð vildi miskunna sig yfir mig og taka mig til sín, því mér fannst lífið óbærilegt. Svona upplifði þessi maður að vera innilokaður. Að lokum þetta, ég sá nýlega í dagblaði sagt frá nefnd sem sett var á laggirnar af fötluðum til að fá svör frá stjórn- málaflokkunum um það hvernig þeir ætluðu að vinna að jafnrétt- ismálum fatlaðra. Ekki efa ég að svörin verði falleg og jákvæð, en reynslan sýnir okkur að það er enginn vandi að gefa loforð. Hitt er verra að standa við þau. Við sem heilbrigð erum skulum vera minnug þess, að ekki þarf oft mikið út af að bera til að ég eða þú lesandi minn góður skjögrum um á hækjum eða ferðumst um í hjólastól. Fræðiæði Góðir landsmenn. Hvert erum við að láta teyma okkur á tímum fræðimennskunnar? Ofsatrú fólks almennt er mikil á þessu fræðiæði. Ætla mætti að sjávar útvegsráðherra okkar álíti að Guð hafi gefið fiskifræðingum okkar einum óskoraðan rétt til að ráðskast með þjóðarhag. Sú skýring sem ég kemst næst, á þessu fræðiæði hins almenna borgara, er að hann vill sýna með þessu hversu vel gefinn hann er að skilja fullkomlega alla fræðimennsku, samanber nýju fötin keisarans. Tilefnið til þess að ég settist niður til að skrifa, var samtal við nokkra sjómenn. Ég skynj- aði uppgjöf þessara manna fyrir þeirri ofstjórn sem nú er beitt og hún virðist heldur í sókn. Þess verður ekki langt að bíða með sama áframhaldi að við missum harðduglegustu sjó- mennina í land. Mjög vinsælt er að auglýsa og hampa mikið hlut úr mettúr, en svo er steinhaldið sér saman þegar tregar gengur. Mettúrinn verður oft að brúa langa landlegu og tímabil þegar verr gengur. Óvissan sem sjó- menn búa við er fyrir neðan allar hellur. Störf þeirra eru svo lítilsvirt að það má reka þá heim með litlum eða engum fyrirvara, eða gera þvílíkar afla- takmarkanir að launin skerðast verulega. Það er ekki langt síðan þjóðin stóð saman sem einn maður að útfærslu fiskveiðilandhelginnar og miðin voru friðuð fyrir erl- endum fiskiskipum. Svo nú þeg- ar því takmarki er náð er eins og þetta hafi ekkert að segja. — Aldrei verið vælt annað eins, fyrir utan það niðurdrepandi andrúmsloft sem þessu skömmt- unaræði fylgir og drepur allan áhuga og spenning sem sjó- mennskunni hefur fylgt. Höfum við efni á að láta fara svona með sjávarútveginn á sama tíma og glymur í eyrum okkar að þjóðin sé svo illa á vegi stödd fjár- hagslega að óvíst sé hve lengi við höldum sjálfstæðinu. Gam- alreyndir sjómenn muna vart aðra eins fiskgengd og núna í vetur. Á þá er ekki hlustað. Starfsreynsla þeirra er einskis metin af fræðiæðingum. Það virðist ekki mikill vandi að stilla sér á stall og vera mikill kall á meðan á mann er trúað eins og spámann. En guð hjálpi þeim trúuðu þegar allt er komið í rúst og þjóðin vaknar af fræðiæði- draumnum. Elísabct María Gunnlaugsdóttir Fjarðarstræti 2 ísafirði. MYNDAMÓTHF PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI • SÍMAR: 17152-17395 Hjalti Elíasson hættir sem forseti Bridgesambandsins FORSETI Bridgesambands íslands. Hjalti Eliasson, hefir ákveðið að gefa ekki kost á sér að nýju í starf forseta þess. Þetta kemur fram í bréfi, sem hann hefir sent aðildarfélögum BSÍ í tilefni þings Bridgesam- bandsins, sem haldið verður i veitingahúsinu Gaflinum í Hafnarfirði 24. nóvember n.k. Þar segir Hjalti m.a. „Mér finnst rétt að geta þess, að ég hef ákveðið að taka mér frí frá stjórnarstörfum. Vera mín þar hefur orðið lengri en ég áætlaði þegar ég tók við störfum Hjalti Eliasson fyrir 5 árum. Þó að ekki hafi öllu verið komið í verk, sem hugur stóð til, en það er víst það eðlilega í félagsstarfi, þá vona ég að í rétta átt hafi stefnt. Þess vegna sem félagsmála- maður kveð ég þetta starf með söknuði, en sem einstaklingur og bridgespilari með tilhlökkun." Undirritaður þykist vita, að Hjalti hefir unnið vel fyrir Bridgesambandið á undanförn- um árum en það verður að segjast, að það hefir mest verið bak við lokuð tjöld og fátt eitt frétzt af gerðum BSÍ á undan- förnum árum. Samskipti BSÍ og fjölmiðla hafa verið minni en þau minnst geta verið. Dagskrá þingsins verður sem hér segir, en þingið hefst kl. 10.30: 1. Setning þingsins og skipan starfsmanna. 2. Kosin kjörbréfanefnd og kjörbréf úrskurðuð. 3. Skýrsla forseta. 4. Reikningar lagðir fram til samþykktar. 5. Kosin uppstillingarnefnd. Matarhlé 6. Keppnir og keppnisreglur. 7. Kosning aðalstjórnar, vara- stjórnar samkv. 4. gr. laga. 8. Kosning endurskoðenda og varaendurskoðenda samkv. 10. gr. laga. 9. Ákvörðun árgjalds. 10. Önnur mál. 11. Þingslit kl. 18.00. Ath. Stutt kaffihlé verða fyrir og eftir hádegi. Skrá yfir meistara- stig. Nýlega er komin út skrá yfir hæstu einstaklinga í meistara- stigaskrá BSÍ. Efstur á blaði í skránni er Þórarinn Sigþórsson með 290 stig í spaðagráðu. Aðrir í spaðagráðu eru Guðlaugur R. Jóhannsson 242, Örn Arnþórsson 241, Hörður Arnþórsson 222, Hjalti Elíasson 219, Stefán Guð- johnsen 211, Sigurður Sverrisson 192, Einar Þorfinnsson 187, Óli Már Guðmundsson 183 og Ás- mundur Pálsson 154. Við munum væntanlega segja nánar frá meistarastigum síðar. Landství- menningur 1979 Nýlega bárust þættinum úrslit í Landstvímenningi 1979 en þar sigruðu Stefán Sigurðsson og Magnús Steinþórsson af Fljóts- dalshéraði. Hlutu þeir félagar 3285 stig. í öðru sæti urðu Suðurnesjamenn, Sævar Þórar- insson og Gunnar Sigurgeirsson, með 3254 stig. Hornfirðingar hlutu svo þriðja sætið en það voru tvær konur, Svava Gunn- arsdóttir og Gunnhildur Gunn- arsdóttir. Hlutu þær 3208 stig. Svo virðist sem 190 pör hafi tekið þátt í keppninni að þessu sinni og er það allmiklu færra en undanfarið. Þó má geta þess, að undirritaður taldi sig hafa verið meðal þátttakenda en var ekki í skrá þeirri, sem nýlega barst. Bridgefélag Selfoss Urslit í meistaramóti í tvímenningi, sem lauk 15. 11. 1979. Meðalskor 780: Sigfús Þórðarson — Vilhjálmur Þ. Pálsson 916 Hannes Ingvarsson — Gunnar Þórðarson 867 Sigurður Sighvatsson — Kristján Jónsson 861 Erlingur Þorsteinsson — Bjarni Jónsson 846 Kristmann Guðmundsson — Jónas Magnússon 822 Haukur Baldvinsson — Oddur Einarsson 807 Brldge Umsjónt ARNÓR RAGNARSSON Ingvar Jónsson — Árni Erlingsson 781 Halldór Magnússon — Haraldur Gestsson 778 Gunnar Andrésson — Brynjólfur Gestsson 733 Sigurður S. Sigurðsson — Leif Österby 720 Grímur Sigurðsson — Friðrik Larsen 713 Örn Vigfússon — Ástráður Ólafsson 712 Stefán Larsen — Guðjón Einarsson 705 Anton Hartmannsson — Gestur Haraldsson 659 Hraðsveitakeppni hefst í kvöld, fimmtudag. Bridgedeild Fram Staðan í tvímenningskeppn- inni er nú þessi: Dagbjartur — Ingólfur 691 Valtýr — Þorkell 671 Hilmar — Ólafur 660 Hannes — Reynir 604 Gunnar — Júlíus 594 Svan — Guðni 590 Eiríkur — Baldur 577 Jón Ö. — Erna 557 Hilmar — Eyjólfur 539 Ásgeir — Ágúst 538 Friðgeir — Birgir 528 Júlíus — Agnes 521 Jón — Sæmundur 520 Sigurður — Helgi 508 Næsta umferð er 26.11. ’79 kl. 7.30 stundvíslega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.