Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.11.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 47 r, ÞAÐ FÓR lítið íyrir snilldartökt- um í leik Hauka og ÍR í leik liðanna í 1. deildinni i hand- knattleik i íþróttahúsinu i Hafn- arfirði í gærkvöldi. Var oft engu likara en leikmenn liðanna væru frekar að ljúka leiðinlegu skyldu- verki en að reyna að ieika góðan og skemmtilegan handknattleik. Varla er hægt að ætlast til að áhorfendafjöldi aukist þegar önnur eins vitleysa sést til 1. deildarliða og boðið var upp á í Firðinum í gærkvöldi. Haukar sigruðu i leiknum með 23 mörkum gegn 20, eftir að staðan hafði verið 11—9 fyrir þá i hálfleik. Sigur Hauka var sann- gjarn þeir voru lengst af yfir í leiknum og hefðu þeir sýnt af sér hörku og leikgleði þá hefðu þeir átt að geta yfirspilað slakt ÍR-lið. Fyrri hálfleikur var afarsveiflu- kenndur hjá liðunum. Eftir 10 mínútna leik var staðan jöfn, 3—3, þá tóku Haukar góðan sprett og náðu þriggja marka forskoti, 6—3. En það dugði skammt, ÍR jafn- aði 6—6. Þá var komið að Haukum aftur og þeim tekst að breyta stöðunni í 9—7, á þeim tíma var mikið um ótímabær skot úr ólík- legustu færum hjá ÍR. ÍR tókst þó að minnka muninn niður í eitt mark, 10—9, en Haukar áttu síðasta orðið og höfðu tvö mörk yfir í hálfleik. Sami tröppugangur var í síðari hálfleiknum. Haukar ná þriggja marka forystu um miðbik hálf- leiksins, en tekst aldrei að hrista ÍR-inga alveg af sér enda afar- mistækir í sóknaraðgerðum sínum. Þegar sjö mínútur eru til leiks- loka, skilur aðeins eitt mark, staðan er 19—18 fyrir Hauka. ÍR Haukar—ÍR 23:20 er með boltann og hefur alla möguleika á að jafna leikinn, en bráðlæti Bjarna Bessasonar var of mikið, hann reyndi að fara inn úr hægra horninu úr vonlítilli stöðu og markvörður Hauka varði iétt. Árni Hermannsson kom svo Haukum tvö mörk yfir með því að skora fallega í næstu sókn Hauka. Þá lét Guðmundur Þórðarson verja hjá sér víti og eftirleikur Hauka var auðveldur. En vitleys- an í lok leiksins var engu lík. Hvert upphlaupið af öðru rann út í sandinn af hreinni vitleysu hjá báðum liðum. Lið ÍR lék þennan leik mjög illa. Leikmenn verða að taka íþrótt sína alvarlega. Skástu menn liðs- ins voru Þórir Flosason markvörð- ur og Sigurður Svavarsson. Bjarni Bessason skoraði sjö mörk í leikn- um, en hann gerði sig sekan um mikið skotæði úr ótrúlegustu fær- um og gerði margar vitleysur. Lið Hauka var jafnt í leiknum alls skora fjórir menn fjögur mörk. Enginn einn skar sig úr í leiknum. Má liðið sýna betri hand- knattleik en þetta ætli það sér að blanda sér í baráttuna um efstu sætin í 1. deildinni. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. íþróttahúsið í Hafnarfirði. Haukar - ÍR 23-20 (11-9) Mörk Hauka: Árni Her- mannsson 4, Árni Sverrisson 4, Guðmundur Haraldsson 4 (lv), Hörður Harðarson 4 (3v), Ingimar Valsmenn áttu ekki svar við endaspretti Fram Haraldsson 3, Andrés Kristjáns- son 1, Sigurgeir Marteinsson 1, Stefán Jónsson 1, Júlíus Pálsson lv. Mörk ÍR: Bjarni Bessason 7, Sigurður Svavarsson 7 (4v), Guð- mundur Þórðarson 3 (lv), Ársæll Hafsteinsson 2, Bjarni Hákonar- son lv. Brottrekstur af leikvelli: Árni Hermannson Haukum í 4 mín. Hörður Harðarson Haukum í 2 mín. og Bjarni Bessason ÍR í 2 mín. Misheppnuð vítaköst: Þórir Flosason ÍR varði vítakast hjá Herði Harðarsyni á 28. og 59. mínútu leiksins. Ólafur Guðjóns- son varði vítakast hjá Sigurði Svavarssyni á 28. mínútu og Bjarna Hákonarsyni á 40. mínútu. Júlíus Pálsson skaut í stöng á 33. mínútu og Gunnlaugur. Gunn- laugsson Haukum varði víti hjá Guðmundi Þórðarsyni á 59. mínútu. Dómarar voru Björn Kristj- ánsson og Rögnvaldur Erlingsson og voru þeir afar slakir. Það vakti furðu undirritaðs að undantekn- ingarlaust fengu leikmenn að brjótast i gegn um varnir liðanna og skjóta á markið. Ef skotið heppnaðist ekki þá var flautað og dæmt vítakast á brot sem var í mörgum tilvikum smávægilegt. En það var ekki gert fyrr en löngu síðar. — þr. Ljósin. Mbl.: Emilta. • Rikharður Ilrafnkelsson Val stekkur upp og reynir skot í leik Vals og Fram. Haukar sigruðu IR í afar slökum leik Holland HOLLENDINGAR sigruðu Austur-Þjóðverja 3—2 í Evrópu- keppni landsliða í gærkvöldi. Fór leikurinn fram í Leipzig að við- stöddum 100.000 áhorfendum. Þar með hafa Hollendingar tryggt sér rétt til að leika í úrslitakeppninni sem fram fer á ítaliu næsta sumar. Það voru Austur-Þjóðverjar sem voru fyrri til að skora i leiknum og var þar að verki Ruediger, skömmu siðar bætti Joachim Streich öðru marki við, staðan 2—0, og ekki þótti blása byrlega fyrir Hollend- ingum. Tveimur leikmönnum var vísað af leikvelli í fyrri hálfleikn- um eftir að þeim hafði lent illa BELGÍA sigraði Skotland 2-0 í Evrópukeppni landsliða i gær- kvöldi. Leikurinn fór fram í Brussel. Aðeins 12.000 áhorfendur sáu góðan leik Belgiumanna. Mörk Belgiu skor- uðu Vander Elst á 5. minútu og Deckers á 47. minútu. Leik Englendinga og Búlgariu sem fram átti að fara á Wembl- ey-leikvanginum i gærkvöldi varð að fresta vegna þoku. Ekki sást frá miðju vallarins til mark- anna. Leikurinn á að fara fram í kvöld. Vestur-Þjóðverjar sigruðu Rússa i vináttulandsleik sem fram fór í Moskvu i gær 3-1. Mörk Þjóðverja skoruðu Rumm-1 sigraði saman. Var það Hollendingurinn La Ling og Þjóðverjinn Konrad Weise. Fengu þeir báðir rautt spjald. Rétt yfir lok hálfleiksins skoraði svo Frans Thijssen og staðan því 2—1 í hálfleik. í siðari hálfleiknum sýndi holienska liðið stórleik og yfirspilaði lið Þjóð- verja algjörlega. Kees Kist jafn- aði á 50. minútu og Rene Van De Kerkhof skoraði svo sigurmarkið á 67. minútu. Lokastaðan í riðlin- um varð þvi þessi: Holland 8 6 1 1 20-6 13 Pólland 8 5 2 1 13-4 12 A-Þýzkaland 8 5 12 18-11 11 Sviss 8 2 0 6 7—18 4 ísland 8 0 0 8 2—21 0 2—0 enigge 2, og Fischer 1. Mark Rússa skoraði Markiovikov. Fram burstaði FH .. .............. kvenna í gærkvöldi. Fram sigraði FH með miklum yfirburðum 22—10, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 13—6. Fh skoraði fyrsta mark leiksins en síðan hafði Fram algera yfirburði og um tíma var staðan 12—3, Fram í hag. Markahæst hjá Fram var Guðriður með 7 mörk. En hjá FH skoraði Katrin flest mörk eða 7. -þr. „VIÐ verðum með í toppbarátt- unni i vetur. Þessi úrslit stað- festa það. Við erum nú að átta okkur á úrvalsdeildinni. Komum upp úr 1. deild þar sem keppnin er sáralitil og það háði okkur í fyrstu leikjum okkar. Það má segja að við höfum áttað okkur á hinni hörðu keppni i úrvalsdeild- inni,“ sagði Simon ólafsson, hinn sterki leikmaður Fram eftir óvæntan sigur nýliða Franr gegn Reykjavikurmeisturum v'als í Hagaskóla i gærkvöldí. Fram sigraði 86—85 og sýndi nú allt aðrar og betri hliðar á sér en í fyrstu leikjum sinum í úrvals- deildinni — og orð Simons eru að sönnu. Leikmenn Fram eru að læra að fikra sig áfram í hinni hörðu keppni í úrvalsdeildar. Hvort Fram vinnur eitthvað í vetur skal ekkert fullyrt um. Enn vantar margt hjá hinum ungu leikmönnum Fram en með sigrin- um staðfestu þeir að Fram er til alls liklegt — ekkert lið úrvals- deildarinnar getur bókað sér sigur gegn Frömurum. Já, sigur Fram var óvæntur en það sem ef til vill er merkilegast við hann er baráttan, sú sam- heldni sem leikmenn sýndu. Þeir neituðu að leggja árar í bát þó að Valsmenn virtust með unninn leik þegar skammt var eftir. Höfðu náð sjö stiga forystu þegar aðeins rúmar tvær mínútur voru eftir. Rétt eins og hendi væri veifað náðu leikmenn Fram að jafna, 79—79, og gerðu gott betur. Þeir komust yfir, 82—79. Skoruðu hvorki fleiri né færri en tíu stig án svars frá Valsmönnum. Valsmenn náðu að minnka muninn í eitt stig þegar rétt mínúta var eftir, 82— 81. John Johnson, sem var í banastuði jók muninn í þrjú stig á ný, 84—81. Aftur svaraði Valur 84—83 en Johnson svaraði á ný, 86—83 og tæplega hálf mínúta var eftir. Valsmenn í sókn en misstu knöttinn — dómarar dæmdu upp- Valur—Fram 85—86 kast. 19 sekúndur voru eftir, — Jón Otti Ólafsson kastaði knettin- um upp og leikmenn börðust um knöttinn. Aftur á ný uppkast, 15 sekúndur eftir og eftir baráttu var enn á ný kastað upp og í þetta sinn unnu Framarar knöttinn. Stríðsdans var stiginn á fjölum Hagaskóla. Valsmenn reyndu allt hvað þeir gátu að ná knettinum og það tókst — þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Tim Dwyer komst inn í sendingu. Látið hann vera hrópuðu Framarar og svo sannarlega létu þeir hann vera — til að eiga ekki á hættu að Dwyer skoraði og fengi dæmda villu og jafnaði leikinn þannig. Hann tróð í körfuna og um leið gall flautan. Það var einfaldlega ekki nóg — Fram hafði sigrað 86—85 og það varð þeirra að fagna. Dýrmæt stig í höfn sem gefa hinu unga liði byr undir báða vængi. Hvort Fram hefur styrk til að blanda sér verulega í baráttuna um íslandsmeistaratign skal ósagt látið. Sannleikurinn er að það vantar alla breidd sem sést best af því að aðeins þrír leikmenn skora hvorki fleiri né færri en 80 af 86 stigum liðsins. Þeir John Johnson sem skoraði 46 stig, Símon Ólafs- son 16 og Þorvaldur Geirsson 18. Björn Magnússon er að vísu sterk- ur varnarmaður en ekki að sama skapi sterkur í sókninni. Sannleik- urinn er að aðrir leikmenn eru nánast statistar. Það kann ef til vill að hljóma harðneskjulega gagnvart landsliðsmanninum Birni Jónssyni — hann skortir reynslu og ekki síður sjálfstraust. Með hvoru tveggja gæti hann reynst „týndi hlekkurinn". Valsmenn áttu í gærkvöldi við sama vandamál að stríða — raun- ar einkennandi fyrir íslenzkan körfuknattleik. Það er einfaldlega ekki nógu mikil breidd. Aðeins fjórir leikmenn skoruðu öll stig liðsins — utan fjögur. Það var mikil blóðtaka fyrir Val að missa Torfa Magnússon út af á 9. mínútu. Hann hafði fram að þeim tíma skorað 10 af 12 stigum Vals í síðari hálfleik. Tim Dwyer var drjúgur að vanda, Ríkharður Hrafnkelsson sterkur í fyrri hálf- leik og eins og alltaf var hægt að stóla á Kristján Ágústsson. Aðrir leikmenn léku nánast aukahlut- verk. Valsmenn sakna sannarlega Þóris Magnússonar sem er meidd- ur. Leikurinn í stuttu máli — Valsmenn náðu undirtökunum í fyrri hálfleik. Eftir 11 mínútna leik höfðu þeir náð tíu stiga forustu, 30—20. Fram náði að jafna, 32—32, en Valsmenn sigldu aftur fram úr og höfðu yfir í leikhléi, 49—40. Framan af síðari hálfleik höfðu Valsmenn undir- tökin en Fram náði að minnka muninn í eitt stig á 7. mínútu, 57—58. Og síðan að jafna, 68—68. Þá virtist reynsla Valsmanna fleyta þeim áfram, þeir komust í 79—72 en ólíkt í fyrri leikjum Fram þá neituðu strákarnir í bláu peysunum að gefast upp. Þeir skoruðu tíu stig í röð og tryggðu sér sigur — 86—85. Stig Fram skoruðu: John Johnson 46, Þorvaldur Geirsson 18. Simon Ólafsson 16. Björn Jónsson 4, Ómar Þráinsson 2, Stig Vals, Tim Dwyer 33. Kristján Ágústsson 19, Rikharður Hrafnkelsson 15, Torfi Magnús- son 14, Jóhannes Magnússon 4. Dómarar — Kristbjörn Albertsson og Jón Otti Ólafsson. Áhorfendur i Hagaskóia — 200. H.Halls. Kðriuknattielkur .......... ....... -..... v Skotar töpuðu í Belgíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.