Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979
Halldór Ibsen, Keflavik:
Höfnin - lífæð
atvinnulífsins
Lífæð hvers sveitarfélags sem
byggir við sjávarsíðuna er höfnin,
þetta skynjuðu menn fljótlega
eftir að ísland byggðist, bæði
vegna lífsbjargarinnar sem sótt
hefur verið í sjóinn frá því land
byggðist svo og þeirra aðfanga
sem sækja hefur þurft til annarra
landa.
Víða í kringum landið hefur
náttúran séð þannig fyrir hafnar-
stæðum að tiltölulega auðvelt er
að byggja fyrirmyndar hafnir.
Á Suðurnesjum er þessu ekki
þannig farið, þar er strandlengjan
öll fyrir opnu hafi og engin vík eða
fjörður sem dregur úr hafróti,
aðeins skerjagarður og klettótt
ströndin til landtöku. Þrátt fyrir
þetta hófu frumbyggjar sókn á
gjöful fiskimið undan ströndum
Suðurnesja.
Það var og er harðgert fólk sem
byggt hefur Suðurnesin, fólk sem
taldi sig ekki hafa olnbogarými
fyrir athafnaþrá sína, fólk sem
vildi berjast við náttúruöflin og
sigrast á þeim.
Halldór Ibsen
Það er gæfa Suðurnesja að til
forustu hafa valist menn sem
byggt hafa á frelsi einstaklingsins
til orðs og æðis, menn sem hafa
hvatt einstaklingana til dáða sér
og sveitarfélögunum til hagsbóta.
Svo tekin séu dæmi um forustu
skal nefnt að athafnamaðurinn
Einar Einarsson í Garðhúsum
Grindavík stóð að fyrstu fram-
kvæmdum að gerð hafnar inn í
Hópinu í Grindavík, að vísu hafði
um aldamótin ríkisstjórn sú er þá
sat farið þess á leit við Bjarna
Sæmundsson fiskifræðing að hann
kannaði möguleika á hafnarstæð-
um á Suðurnesjum. Bjarni skilaði
skýrslu til ríkisstjórnarinnar þar
sem hann benti á Hópið í Grinda-
vík og Njarðvík sem líklegasta
staði til hafnargerða.
í Sandgerði ruddu brautina þeir
Matthías Þórðarson, Loftur
Loftsson og Haraldur Böðvarsson.
Allt voru þetta miklir athafna-
menn sem byggðu sín lífsviðhorf á
frelsi einstaklingsins.
í Keflavík er það athafna-
maðurinn Óskar heitinn Hall-
dórsson sem á frumkvæðið að
hafnargerð við Vatnsnes.
í Njarðvík eru það dugmiklir
athafnamenn sem ríða á vaðið
með bryggjugerð og sama er að
segja um aðra útgerðastaði á
hús
Sjálfstæðisflokkurinn býður til
opins húss kl. 14.00—17.00
laugardaginn 24. nóvember í
Valhöll
ÓFLOKKSBUNDNIR — FLOKKSBUNDNIR
VELKOMNIR MEÐ ALLA FJÖLSKYLDUNA
Frambjóðendur taka þátt í
gríni og gleöi dagsins.
Heimsfrægir skemmtikraftar
Lukkumiöar
Kaffi, kökur og gosdrykkir
• Módel ’79 sýnir vetrartízkuna
frá Pelsinum, Kirkjuhvoli
r Pelsar — loöskinnshúfur —
leöurkápur
Haraldur og Skrýplarnir ÞeSSÍT SkemiTlta m.a.!
Halli, Laddi og Jörundur. Magn-
ús Jónsson og Ólafur V. Al-
bertsson Grettir Björnsson, Har
aldur og strumparnir
I og Jttrundur
f-
Magnús Júnaaon
Yj
011
fjölskyldan
í Valhöll
Sjálfstæðisflokkurinn
Halldór Ibsen sýnir hér Matthiasi Á. Mathiesen uppbyggingu
grjótgarðsins i Njarðvikurhöfn. Ljósm. Mbl. Heimir Stígsson.
Suðurnesjum, svo sem Hafnir,
Garð og Voga.
í dag standa mál þannig að í
kjölfar þessara manna sem getið
er hér að framan, hafa Suðurnesin
átt á alþingi menn á borð við
þingskörunginn Ólaf heitinn
Thors og aðra á eftir honum sem
kjörnir hafa verið til alþingissetu
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að
byggðar hafa verið á Suðurnesjum
hafnir sem talist geta í hópi bestu
hafna landsins, svo sem hafnirnar
í Grindavík, Sandgerði, Keflavík
og Njarðvík. En allar þessar
hafnir eru stórvirki miðað við þær
aðstæður sem hér eru.
En það er enn brýn nauðsyn á
því nú að veita Sjálfstæðisflokkn-
um það brautargengi sem þarf, til
þess að sú uppbbygging sem átt
hefur sér stað, að frumkvæði
heimamanna en með dyggum
stuðningi þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins, stöðvist ekki heldur
haldi áfram.
Verum minnug þess að þeir
menn, sem hér hafa verið nefndir,
hafa varðað leiðina til betra og
fegurra mannlífs við brimsorfna
ströndina, og til að feta þá braut
áfram er forustu Sjálfstæðis-
flokksins best treystandi.
Leiftursókn gegn verðbólgu
Leiftursókn gegn kjaraskerð-
ingu.
Gunnar Helgi Hálfdánarson viðskiptafræðing
ur, forstöðumaður Verðbréfamarkaðar Fjárfest-
ingafélags íslands h.f.:
Um helztu fjárfesting-
arkosti almennings
spariskirteini, fasteign-
ir og vaxtaaukainnlán
Sunnudaginn 4. nóvember s.l.
birtust viðtöl við Ragnar Tómas-
son hjá Fasteignaþjónustunni,
Þorleif Guðmundsson hjá Fyrir-
greiðsluskrifstofunni, Jón Frið-
steinsson hjá Seðlabankanum og
undirritaðan, þar sem spurt var
um hvort hagkvæmara væri að
fjárfesta í spariskírteinum eða
fasteign.
Þar sem margt villandi kemur
fram í svörum þeirra Ragnars og
Þorleifs þykir mér rétt að taka
eftirfarandi fram:
1. Spariskírteini ríkissjóðs eru
auðseljanleg. S.l. 3'/2 ár, sem
Verðbréfamarkaður Fjárfest-
ingarfélags íslands hefur starf-
að, hefur sölutími þeirra verið á
bilinu 1—3 dagar. Andvirði
þeirra er ætíð staðgreitt við
sölu. Innlausnartími og inn-
lausnarverð Seðlabankans hafa
hverfandi þýðingu, þar sem
spariskírteinin eru góð og gild
markaðsvara og seljast á hærra
verði en innlausnarverð Seðla-
bankans er.
2. Spariskírteini ríkissjóðs eru
100% verðtryggð með bygg-
ingarvísitölunni og bera auk
þess a.m.k. 3,5% vexti umfram
verðbólguna. Spariskírteini
veita því fullkomna vernd gegn
verðbólgunni. Síðustu 12 mán-
uðina var arðsemi spariskírt-
eina á bilinu 52,4—58,3% (verð-
hækkanir síðustu 12 mánuðina
voru tæp 48%).
3. Spariskírteini ríkissjóðs krefj-
ast ekki neinnar sérþekkingar
kaupenda þar sem vísitala
tryggir fyrirfram verðtrygg-
ingu og arðsemi þeirra. Spari-
skírteinin eru því ákaflega
hentug fjárfesting fyrir al-
menning. Ennfremur má geta
þess að umstang í sambandi við
spariskírteinin er hverfandi og
þarf aðeins að gæta, að þau séu
geymd í bruna- og þjófheldri
hirslu t.d. bankahólfi.
4. Spariskírteini gefa þeim, sem
hafa árstíðabundnar sveiflur í