Morgunblaðið - 22.11.1979, Síða 20

Morgunblaðið - 22.11.1979, Síða 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 Atvinnustefna Sjálfstæðisflokksins: 20 milljarðar frá ríkinu til f ólksins Hér fer á eftir í heild samþykkt sú um atvinnumál, sem kynnt var á blaðamannafundi Sjálfstæðisflokks- ins í fyrradag: Atvinnustefna Sjálfstæðis- flokksins byggist á grundvallar markmiðum flokksins í efna- hagsmálum, en þau eru: • Aukin þjóðarframleiðsla og bætt lífskjör almennings. • Næg atvinna handa öllum landsmönnum. • Stöðugleiki í atvinnu- og efna- hagslífi. • Efnahagslegt sjálfstæði þjóð- arinnar. • Jöfnuður í utanríkisviðskipt- um. Til þess að ná þessum mark- miðum er nauðsynlegt að auka framleiðsluna í landinu og það verður einungis gert með öflugu og heilbrigðu atvinnulífi. Fram- farir í atvinnuvegum þjóðarinn- ar eru forsenda aukinna þjóðar- tekna og um leið forsenda hærri grunnlauna og betri lífskjara. Skapandi atvinnustarfsemi, sem byggist á framtaki einstaklinga og frjálsum viðskiptaháttum, tryggja vöxt framleiðslunnar og betri lífskjör í stöðugu og traustu efnahagskerfi. Frelsi til framfara Aðgerðir sem hafa þessi markmið að leiðarljósi, krefjast gerbreytts búskaparlags hér á landi. Ríkisvaldið verður að hætta lamandi afskiptum af atvinnulífinu og innleiða þess í stað almennar reglur, sem veita einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum svigrúm til sjálf- stæðra ákvarðana á eigin ábyrgð. Á þann hátt vill Sjálf- stæðisflokkurinn nýta kosti frjáls viðskipta- og markaðs- kerfis og fá heilbrigðu framtaki og þekkingu einkaaðila nýtt svigrúm. Með því að byggja efnahags- starfsemi þjóðarinnar á frelsi og framtaki einstaklinga er hægt að draga stórlega úr kostnaði ríkisins. Afskipti og hentistefna stjórnvalda af atvinnulífi þjóð- arinnar hefur leitt af sér sóun á verðmætum landsmanna. Snúa þarf af þessari óheillabraut og fá einstaklingunum sjálfum í hend- ur ráðstöfun á þeim verðmætum sem þeir skapa. Þróttur íslenzks atvinnulífs fær fyrst að njóta sín þegar ríkisvaldið hættir að hamla gegn eðlilegri þróun at- vinnustarfsemi. Niðurskurður ríkisútgjalda 20 milljarðar frá ríkinu til fólksins Fyrsta skrefið til framfara í atvinnuvegunum og betri lífskjara er að draga stórlega úr ríkisútgjöldum og ríkisafskipt- um. Sjálfstæðisflokkurinn vill þannig leysa framtak einstakl- inganna úr læðingi, losa um höft og draga úr ríkisumsvifum og skattlagningu. Þess vegna hefur Sjálfstæðisflokkurinn boðað 35 milljarða króna niðurskurð á ríkisútgjöldum þegar á næsta ári samfara afnámi skatta vinstri stjórnarinnar. Niður- skurður ríkisútgjalda verður byggður á fjórum höfuðþáttum: 1. Lækkun niðurgreiðslna. 2. Niðurskurði á fjárframlögum til fjárfestingalánasjóða at- vinnuveganna. 3. Samdrætti í opinberum fram- kvæmdum. 4. Hagræðingu í opinberri starfsemi. Þessi stefna felur í sér að ráðstöfun þeirra verðmæta, sem þjóðin skapar, verður í auknum mæli færð til einstaklinganna sjálfra. Samhliða niðurskurði ríkisútgjalda þarf að stuðla að auknum sparnaði og hagkvæm- ari fjárfestingu. í því skyni er nauðsynlegt að dregið verði úr opinberri íhlutun í starfsemi fjármagnsmarkaðarins, hann efldur og aðstæður á hverjum tíma fái að hafa eðlileg áhrif til jafnvægis milli framboðs og eftirspurnar. Starfsemi ríkis- banka og opinberra fjárfest- ingalánasjóða þarf að endur- skoða meA það fyrir augum, að styrkja stjórnun þeirra, auka aðhald, koma á eðlilegri verkaskiptingu og tryggja, að fé sé ráðstafað til þjóðhagslega arðvæniegrar fjárfestingar og reksturs. Öllum atvinnugreinum verði gert jafn hátt undir höfði við lánveitingar. Fjár til fjár- festingalánasjóða atvinnuveg- anna verði fyrst og fremst aflað á innlendum fjármagnsmarkaði og af eigin fé þeirra, en dregið verulega úr framlögum hjá ríkissjóði. Með markvissri stefnu ríkis- valds er hægt að stórauka afköst atvinnuvega þjóðarinnar. Sjálf- stæðisflokkurinn vill tryggja næga atvinnu fyrir alla lands- menn á þann hátt, að skapa hvetjandi umhverfi fyrir arð- bæra atvinnustarfsemi í land- inu. Það er ljóst, að atvinnulífið getur veitt næga atvinnu og greitt há laun fyrir alla lands- menn um ókomna framtíð, ef stjórnvöld skapa atvinnustarf- semi eðlileg og hvetjandi starfs- skilyrði. Helzta hættan á at- vinnuleysi og landflótta felst í óraunhæfum og þarflausum af- skiptum ríkisvaldsins af atvinnustarfsemi og einstakling- um, sem leiðir til lakari lífskjara alls almennings en annars mætti ná. Atvinnuöryggi og stöðvun landflótta Atvinnuöryggi og stöðvun landflótta er þungamiðja at- vinnustefnu Sjálfstæðisflokks- ins. Á næsta áratug munu um 15 þúsund manns bætast á vinnu- markaðinn. Nauðsynlegt er að tryggja þessu fólki arðbæra vinnu og laun og lífskjör, sem jafnast á við það sem bezt gerist í nágrannalöndum okkar. Þessu markmiði er hægt að ná með því, að beina framkvæmdafé þjóðar- innar til eflingar og framfara í hinum hefðbundnu greinum at- vinnulífsins og til nýrra arð- bærra atvinnugreina. Einungis á þann hátt er unnt að tryggja landsmönnum næga atvinnu og góð lífskjör í framtiðinni. Á undanförnum árum hafa þjónustugreinar tekið til sín um 64% af nýjum starfskröftum, sem þýðir tæplega 10.000 af 15.000 manna viðbót við vinnu- aflið á næsta áratug. En nauð- syn þess að draga úr ríkisum- svifum og auka framleiðslu þjóð- arbúsins krefst þess, að helm- ingur af nýjum störfum eða 7.500 störf verði til í framleiðslu- greinum þjóðarinnar á næsta áratug og önnur 7.500 störf í ýmis konar þjónustustarfsemi. Með markvissri atvinnustefnu geta sjávarútvegur, iðnaður og stórvirkjanir á sviði orkufreks iðnaðar skapað 7.500 störf á komandi áratug. Þjónustugreinar, verzlun, viðskipti, samgöngur, ferðamál, svo og heilbrigðismál, mennta- og menningarmál skapa sam- hliða minnst önnur 7.500 störf, ef grundvöllur efnahagslífsins, framleiðslugreinarnar, er treystur. Landbúnaði er ætlað með enn aukinni hagkvæmni, en án aukins starfsmannafjölda, að sjá fjölmennri þjóð farborða og sinna nýjum útflutningsmögu- leikum. Sjávarútvegur — Aukin verð- mætasköpun Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherzlu á mikilvægi sjávarút- vegsins fyrir íslenzkt efnahagslíf og telur að með endurbótum á fyrirkomulagi veiða og vinnslu sé unnt að auka verðmæti alls sjávarfangs og fjölga með þeim hætti arðbærum störfum í grein- inni. Þau markmið sem flokkurinn leggur höfuðáherzlu á eru þríþætt: I fyrsta lagi að vinna að endurreisn ofveiddra fiskstofna og fullri nýtingu vannýttra stofna í íslenzkri fiskveiðilög- sögu. I öðru lagi að tryggja varan- legan hámarksafrakstur hinna ýmsu fiskstofna og annarra sjávardýra með samræmdum Iíffræðilegum og efnahagslegum aðgerðum. I þriðja lagi, að bæta nýtingu og afköst í fiskiðnaði, m.a. með tæknilegum endurbótum og hóflegri og jafnari vinnutíma starfsfólks. Ef þessi markmið eru höfð að leiðarljósi er hægt að stórauka verðmæti sjávarafla og fjölga þjóðhagslega arðbærum störfum um 3.000 á næsta áratug. Iðnvæðing — 4.500 ný arð- bær störf Iðnaður er framtíðargrein í íslenzku þjóðarbúi og mun á næstu árum gegna stórauknu hlutverki í atvinnulífi þjóðarinn- ar. Innlendum iðnaði þarf að skapa skilyrði til að auka fram- leiðni sína og fara inn á nýjar brautir, bæði til framleiðslu fyrir innlendan markað og til útflutnings. Tafarlausar ráð- stafanir þarf að gera til að iðnaður njóti jafnrar aðstöðu og starfsskilyrða og aðrar innlend- ar atvinnugreinar og erlend iðn- fyrirtæki. Aðgerðir á sviði skatta-, lána-, verðlags-, tolla- og gengismála ásamt tækni- legum endurbótum, geta gert iðnaðinum kleift að taka við 3.000 manns í ný þjóðhagslega arðbær störf á næsta áratug. Á næsta kjörtímabili verði áframhaldandi uppbyggingu þeirra stóriðjufyrirtækja, sem fyrir eru hér á landi hraðað og undirbúningur að nýju stórfyr- irtæki á sviði orkufreks iðnaðar hafinn og stefnt að því, að framkvæmdir við það geti hafizt á kjörtímabilinu. Undirbúningur og framkvæmdir við uppbygg- ingu stórfyrirtækja í iðnaði verði miðaður við, að stóriðja skapi 1.500 ný störf á næsta áratug. Stefnt verði að því, að almenningur eignist hlutafé í þeim stóriðjufyrirtækjum, sem fyrir eru í landinu og nýjum stórfyrirtækjum, en að öðru leyti ráðist samstarf við erlenda aðila á þessu sviði, af því sem hagkvæmt er talið á hverjum tíma. LOCKHEED ELECTRA — Á þessari mynd má sjá flugvél af gerðinni Lockheed Electra, en flugfélagið Iscargo hefur fest kaup á flugvél af þessari gerð i Bandaríkjunum vegna vöruflutninga sinna. Kosningaútvarp fyrir sjómenn og Islendinga í Norður-Evrópu KOSNINGAÚTVARP vegna al- þingiskosninganna 2. og 3. desem- ber verður sent út á stuttbylgju. Notuð verður sama bylgja og há- degisútvarp er venjulega sent út á 12175 khz (24.6 metrar) og auk þess ein til tvær aðrar bylgjur. Fjarskiptastöðin i Gufunesi ann- ast þessar sendingar og er nú verið að kanna á vegum stöðvarinnar hvaða bylgjur aðrar koma til greina. Verður tilkynnt um það siðar. Við alþingiskosningarnar 1978 heyrðist • stuttbylgjuútvarp frá Reykjavík víða í Norður-Evrópu, og um borð í skipum á leið til og frá landinu. Nauðsynlegt er að hafa góð útvarpstæki með góðu loftneti til þess að ná útsendingunni. Sem kunnugt er, þá er gert ráð fyrir því að kosningu verði fram haldið þriðjudaginn 3. desember, ef veður hefur hamlað kjörsókn hina tvo dagana. Þess vegna gæti dregist fram á þriðjudag að talning hæfist í öllum kjördæmum landsins. Ef hins vegar kosningu lýkur alls staðar á mánudagskvöld, er gert ráð fyrir að hefja útvarp á stuttbylgju klukkan 19:00 gmt. mánudaginn 3. desember. Kosningaútvarp hefst svo klukkan 23:00. Utvarpað verður á stuttbylgju alla nóttina og fram á þriðjudag eftir því sem ástæða þykir til. Magnús Torfi ólafsson form. SVF: Óbreytt afstaða til varnarliðsins „STEFNA Samtakanna í sam- bandi við öryggismál og herset- una er óbreytt og ekkert hefur verið ályktað um þetta síðan stefnuskráin var samþykkt i nóv- ember 1977“, sagði Magnús Torfi óiafsson formaður Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, er Mbl. spurði hann i gær um afstöðu Samtakanna nú til varn- arliðsins. Magnús vísaði til stefnuskrár- innar, en í kaflanum um örygg- ismál og hersetu segir m.a.: „Sam- tökin berjast fyrir uppsögn her- verndarsamningsins og gegn herstöðvum hér á landi, fyrir brottvikningu hersins og að þjóð- Tnnlent aratkvæði skeri úr um framhald á þáttöku íslands í NATO“. Færri hross á fæti flutt út en í fyrra ÚTFLUTNINGUR Búvörudeildar Sambandsins á hrossum á fæti hefur dregizt saman á þessu ári. Til októberloka í fyrra seldi deild- in 408 hesta úr landi, en í ár 240, þannig að samdrátturinn nemur 40%. Aftur á móti hefur orðið verðhækkun á hestunum, sem nemur rúmlega 66%. Helztu skýringar á þessum samdrætti eru taldar vera vorkuldar á meginlandinu og einnig ýmsir hrossasjúkdómar, sem herjað hafa í aðalmarkaðslöndunum, m.a. V-Þýzkalandi. Nú er talið að um 15 þúsund íslenzk hross séu í V-Þýzka- landi og um 5 þúsund í öðrum Evrópulöndum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.