Morgunblaðið - 22.11.1979, Side 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEIftBER 1979
Mikil fjöldaganga var við bandaríska sendiráðið i Teheran i gær í tilefni af því, að nú halda
Múhameðstrúarmenn upp á aldamót og varð mjög róstusamt við sendiráðið. Myndin sýnir nokkra úr
fjöldanum bjarga einum félaga sinna, sem meiðzt hafði i mannþrönginni. (Simamynd AP)
Þúsundir flóttamanna
fluttar frá Kambódíu
Bankok, 21. nóv. Reuter. AP.
ÞÚSUNDIR flóttamanna frá
Kambódiu voru í dag fluttar yfir
landamærin til Thailands i nýjar
flóttamannabúðir, sem reistar
hafa verið á vegum Rauða kross-
ins. Búizt var við þvi að um 5
þúsund manns yrðu flutt í búð-
irnar í dag, en þar er gert ráð
fyrir að rúm verði fyrir allt að
200 þúsund manns.
Þessi flutningur fer fram á
sama tíma og bardagar hafa mjög
aukizt skammt innan landamær-
anna milli hermanna hinnar nýju
ríkisstjórnar landsins og skæru-
liða Pol Pots. Að sögn yfirvalda í
Thailandi var ákveðið að flytja
fólkið í búðirnar þar sem hætta
var á því að það mundi streyma
stjórnlaust inn í landið á næst-
unni færist bardagarnir enn í
aukana.
Pólitískum flóttamönnum
snúið heim frá V-Þýzkalandi
MUnchen, 21. nóvember. AP. Reuter.
PÓLITÍSKT hneykslismál virðist
í upplýsingu í Bæjaralandi eftir
að uppvíst hefur orðið að yfirvöld
þar hafi vísað úr landi a.m.k. níu
pólitiskum flóttamönnum frá
Austur-Evrópuríkjum og sent þá
aftur til síns heima. Stjórnarand-
staðan í fylkinu hefur óskað eftir
opinberri rannsókn á máli þessu,
sem talið er líklegt til að valda
forsætisráðherranum, Franz-
Josef Strauss, erfiðleikum. Tals-
maður Frjálslynda flokksins í
Ævisaga Katsjatúr-
íans ný metsölubók?
Vinarborg. 21. nóvember. AP.
ÆVISAGA tónskáldsins Aram
Katsjatúríans verður að öllum
likindum metsölubók, er hún
kemur út á Vesturlöndum, segir
Die Presse í Vínarborg.
Blaðið
segir að handriti bókarinnar hafi
verið smyglað frá Sovétríkjunum
nýlega.
Að sögn blaðsins eru lýsingar
Katsjatúríans á Sovét-kerfinu og
kjörum sovézkra listamanna ekki
jafnömurlegar og lýsingar starfs-
bróður hans, Dmitri Sjostakóvits,
sem nýlega komu út og líka hafði
verið smyglað vestur yfir járn-
tjald, enda hafi Katsjatúrían verið
sovézkum yfirvöldum þóknanlegri
en hann.
Þetta gerðist
1975 — Juan Carlos prins verð-
ur konungur Spánar.
1974 - PLO fær
áheyrnarfulltrúa hjá SÞ.
1972 — Nixon afléttir 22 ára
banni við ferðum til Kína.
1967 — Ályktunartillaga örygg-
isráðsins um frið ísraels og
Arabaríkja.
1963 — John F. Kennedy forseti
ráðinn af dögum í Dallas.
1962 — Rússar hætta viðbúnaði
vegna Kúbu-deilunnar.
1956 — Ólympíuleikarnir í Mel-
bourne settir.
1943 — Kaíró-fundur Chur-
chills, Roosevelts og Chiang-
Kai-sheks.
1941 — Þjóðverjar taka Rostov.
1927 — Aibanir ganga í varnar-
bandalag með ítölum.
1922 — Cuno verður kanzlari
Þýzkalands.
1921 — Sáttmáli Breta og Af-
ghana gerður í Kabul.
1915 — Orrusta Breta og Tyrkja
við Tsiphon, Mesópótamíu.
1906 — SOS viðurkennt neyð-
arkall skipa í sjávarháska.
1892 — Belgar bæla niður upp-
reisn arabískra þrælasala í
Efri-Kongó.
1830 — Belgía konungsríki.
1699 — Sáttmáli Dana, Rússa,
Saxa og Pólverja um skiptingu
Svíaveldis.
1497 — Vasco da Gama siglir
fyrir Góðrarvonarhöfða.
Afmæli: Charies de Gaulle,
franskur stjórnmálaleiðtogi
(1890—1970) — Andreas Hofer,
týrólskur ættjarðarvinur
(1767—1810) — Thomas Cook,
enskur ferðamálabrautryðjandi
(1808-1892) - André Gide,
franskur rithöfundur (1869—
, 1951) — Benjamin Britten, enskt
tónskáld (1913 - ).
f
Andiát: Robert Clive, faðir
brezka heimsveldisins á Ind-
landi, 1774 — Sir Arthur Sulli-
van, tónskáld, 1900 — Martin
Frobisher, landkönnuður, 1594.
Bæjaralandi sagði í dag að flokk-
urinn hefði upplýsingar um að
rúmlega 50 flóttamenn hefðu
verið sendir til baka.
Innanríkisráðherrann í Bæ-
heimi, Gerold Tandler, staðfesti í
dag, að níu manns hefði verið
neitað um pólitískt hæli í fylkinu
á undanförnum tveimur árum
vegna þess að þeir hefðu ekki
uppfyllt þau skilyrði, sem sett eru
til þess að fólk fái pólitískt hæli,
og ekki getað sannað að þeir væru
raunverulegir flóttamenn. Hér er
um að ræða sex Tékka, tvo Ung-
verja og einn Eþíópíumann.
Af hálfu stjórnarinnar í Bonn
hefur því verið lýst yfir, að
aðgerðir fylkisstjórnarinnar í
Múnchen hafi verið ólögmætar,
þar sem fólk það, sem hér um
ræddi, hafi átt málssókn yfir höfði
sér, eftir að því var snúið til baka.
Innlent: Björn Jónsson ráðherra
víkur stjórn Landsbankans frá
1909 — Úrskurður konungs um
íslenzkan sérfána 1913 — d.
Rafn Oddsson 1289 — Sigurður
Gunnarsson prófastur 1878 — f.
Rasmus Christian Rask 1787 —
Rask hneykslið 1887 — Konung-
ur staðfestir fossalögin 1907 —
Samningur um strandferðir (við
T.E. Tulinius) 1913 - Vest-
mannaeyjar fá kaupstaðarrétt-
indi 1918 — Kosningaaldur 21 ár
1933 — d. Pálmi Hannesson
rektor 1956 — Guttormur J.
Guttormsson 1966 — f. Haraldur
Á. Sigurðsson 1901.
Orð dagsins: Það er betra að
ræða mikilsvert mál án þess að
leysa það en að leysa það án þess
að ræða það. — Ókunnur höf-
undur.
Vegleysur
ogvinstri slys
Umboðslaus
ráðherra í ráð-
herranefnd
MISSÆTTIÐí vinstri stjórninni
reið ekki við einteyming, svo sem
menn rekur minni til. Um miðjan
mal, er ráðherrar Framsóknar-
flokks, Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks, gerðu sér grein fyrir,
að þær efnahagsráðstafanir, sem
þeir hefðu áður staðið fyrir,
dugðu engan veginn tii þess að
koma þjóðarskútunni á réttan
kjöl var gripið til þess gamal-
kunna ráðs, að skipa ráðherra-
nefnd.
Ríkisstjórnin skipaði sam-
kvæmt tilmælum þingflokkanna
þriggja manna ráðherranefnd í
maí. I nefndinni sátu Steingrímur
hvatur. Hann sagði einnig af sama
tilefni, að þær tillögur, sem Al-
þýðubandalagið hefði gert til
lausnar efnahagsvandanum væru
„þær tillögur, sem ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar lögfesti
fyrir nákvæmlega einu ári, maí-
lögin."
En þrátt fyrir þetta sat Magnús
H. Magnússon ráðherra sem
fastast í ráðherranefndinni. Hann
sagði um veru sína í nefndinni:
„Umboð mitt felst í því að ég hef
meirihluta þingflokks Alþýðu-
flokksins á bak við mig. Það hefur
ekki verið gengið frá því formlega,
en það er öruggur meirihluti, sem
stendur að baki mér.“
Sighvatur:
Magnús hafði
ekkert umboð
Magnús:
Hafði umboð
meirihlutans
Vilmundur:
Magnús
umboðslaus
Hermannsson og Svavar Gestsson
og af hálfu Alþýðuflokksins Magn-
ús H. Magnússon. Tveir hinir
fyrstnefndu voru tilnefndir af
þingflokkum sínum í nefndina, en
samdægurs og tilnefningin var
kunngerð, lýsti formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins, Sighvatur
Björgvinsson yfir því, að Magnús
hefði ekkert umboð þingflokksins
til setu í nefndinni. „Þingflokkur
Alþýðuflokksins hefur ekki falið
neinum ráðherra sínum neitt er-
indi í ráðherranefnd," sagði Sig-
Einnig var rætt við einn þing-
manna Alþýðuflokksins um þetta
umboð ráðherrans. Vilmundur
Gylfason sagði: „Mér er ekki
kunnugt um, að þingflokkur afsali
sér umboði til örfárra manna og
þingflokkur Alþýðuflokksins hef-
ur ekki veitt neitt umboð til
samningagerðar í efnahagsmál-
um.“
Þetta er lítið dæmi um missætti
í vinstri stjórninni — af mörgu er
að taka.
Vilmundur Gylfason:
Morgunblaðið alveg
óendanlega lítilsiglt
blað þegar nær
dregur kosningum
í MORGUNBLAÐINU
siðastliðinn þriðjudag var
sagt frá því, að Finnur Torfi
Stefánsson hefði á framboðs-
fundi á Blönduósi, skorað á
vinstri menn í kjördæminu að
efla sig til baráttu gegn
Vilmundi innan Alþýðu-
flokksins og efla þannig
vinstri stefnuna i landinu, en
heimildarmaður Morgun-
blaðsins sat þennan fund.
Blaðamaður Mbl. bar þessi
ummæli undir Vilmund Gylfa-
son í gær og fer svar hans við
spurningu blaðamanns hér á
eftir:
— Nú eruð þið í kosninga-
ham og ef ég segi þér alveg
eins og er, þá er Morgunblaðið
alveg óendanlega lítikiglt blað
þegar nær kosningum dregur,
og satt að segja þá held ég, að
ég vilji fá trúverðugri heim-
ilda mann heldur en Morgun-
blaðið fyrir frétt eins og þess-
ari.
— Þannig að þú hefur
ekki hitt eða rætt við Finn
Torfa eftir að þessi frétt
birtist?
— Nei og þegar við Finnur
Torfi hittumst, þá höfum við
annað og merkilegra að ræða
heldur en Morgunblaðið. Mér
hefur satt að segja fundist
Morgunblaðið vera svo ofbjóð-
anlegt að undanförnu og ég er
um margt hissa á því, að menn
eins og t.d. þú, sem vilt láta
taka þig alvarlega sem blaða-
mann, skulir vera að taka þátt
í þessum eltingarleik í flokk-
spólitísku skyni augljóslega.
Svo ég af almennum ástæðum
og eftir að hafa lesið Morgun-
blaðið að undanförnu, þá vil ég
nú hafa trúverðugri heimild
heldur en blaðið áður en ég fer
að svara einhverju, sem þar
stendur.
H t uiH'iiu i joíiui
. > ) (
ííu n i