Morgunblaðið - 22.11.1979, Síða 35

Morgunblaðið - 22.11.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 35 Finnbjörn Hjartarson: Yestfirðingar söknuðu Sigurlaugar Bjamadóttur Þeir sem gerðu sér ferð til Vestfjarða sl. tvö sumur, komust ekki hjá því að taka eftir því, meðal allra flokka fólks, að Sigur- laug Bjarnadóttir á ítök í hugum Vestfirðinga sem skeleggur full- trúi þeirra á þingi og að henni mikil eftirsjá. Þetta var því eftir- tektarverðara vegna þess, að þessi eftirsjá var ekki á nokkurn hátt bundin við sjálfstæðisfólk eitt, heldur fólk úr öllum stjórnmála- flokkum. Ég er einn þeirra, sem veit vel að Sigurlaug er skörungur á mál- þingum, og gerði mér grein fyrir áhuga hennar á málefnum Vest- firðinga. En að mér kæmi það í hug, að hún ætti slík ítök langt út fyrir raðir sjálfstæðismanna á Vestfjörðum gerði ég mér enga grein fyrir. Þeim sem áhuga hafa á pólitík fer gjarnan svo, á ferðum sínum um landið, að þeir ræða oft stjórnmál við vini sína á þeim ferðum. Og í mörg sumur hefur leið mín legið til Vestfjarða. Veit ég því vel hvað ég er að tala um, þegar ég segi, að Vestfirðingar almennt telji hlut sinn lakari á þingi, eftir að Sigurlaug hvarf þaðan. Brottför Karvels Pálmasonar Þegar Karvel Pálmason bauð fram sjálfstætt á Vestfjörðum, höfðaði það framboð ekki sízt til sjálfstæðisfólks á Vestfjörðum, og olli miklu fjaðrafoki meðal vinstri manna. Það var fróðlegt að fylgjast með þeim pólitísku rökum, sem -þríflokkarnir — Framsókn, Al- þýðubandalg og Alþýðuflokkur beittu gegn því framboði, — ein- ungis sleggjudómar og spádómar um tilgangsleysi framboðsins. Að- eins í Sjálfstæðisflokknum átti slíkt framboð hljómgrunn. — Að menn megi hafa sjálfstæðar skoð- anir, án þess að vera með hótanir um, að slíkir menn yrðu áhrifa- lausir á þingi og annað í þeim dúr, eins og Steingrímur Hermannsson lét í ljós fyrir síðustu kosningar. Annars er Steingrímur Her- mannsson kapítuli út af fyrir sig í pólitískri sögu Vestfjarða. Hann slítur af sér atkvæðin vestra, eins og ölóður maður flíkur, svo tölur og bönd fjúka í allar áttir. Hér í Morgunblaðinu birtust fyrir síðustu kosningar greinar eftir mig um Karvel Pálmason, og tók hann aðra þá grein „Horft til Vestfjarða" óstytta í blað sitt Vestra. Við sjálfstæðismenn get- um vel lyft undir sjálfstæða menn þegar þeir koma fram, eins og varð um Karvel Pálmasori. Ég persónulega, og eflaust margir Vestfirðingar, urðum því fyrir vonbrigðum með að Karvel Pálmason skyldi ekki reyna til þrautar óháð framboð vestra, eða ganga til liðs við sjálfstæðismenn. En til sjálfstæðra manna höfðar framboð sem Karvel kom fram með í kjördæmi sínu, eingöngu. Um það vitna þau nærtæku dæmi, sem ljós urðu í síðustu kosningum. I ljósi þess vil ég halda því fram, að þá urðu Karveli Pálmasyni á mikil mistök að ganga í Alþýðu- flokkinn, og þangað geta ekki sjálfstæðir menn fylgt honum. Enginn flokkur á Islandi hlúir betur að sjálfstæðri hugsun og verkum en Sjálfstæðisflokkurinn. Þess vegna átti Karvel Pálmason að halda áfram á þeirri braut, sem hann var að leggja út á og ganga til liðs við sjálfstæðismenn á Vestfjörðum. Sigurlaug, þingmaður Vestfirðinga á ný Ef Vestfirðingar vilja efla sjálf- stæði í orði og á borði hvar sem þeir annars hafa staðið í stjórn- málum, eiga þeir nú að fylkja sér um Sigurlaugu Bjarnadóttur. Ef Vestfirðingar vilja sjálfstæð- an Vestfirðing á þing munu þeir kjósa Sigurlaugu Bjarnadóttur. Ef Vestfirðingar vilja kvenskör- ung á þing er Sigurlaug svarið. Eins og ég gat um í upphafi er það almennt álit, hafið yfir alla flokkspólitík, að Vestfirðingar álíta Sigurlaugu Bjarnadóttur frá Vigur mjög góðan fulltrúa á þingi. Þeir þurfa því að sameinast um það, að hún verði þingmaður þeirra á ný. — Nú kjósa Vestfirð- ingar Sigurlaugu Bjarnadóttur. Á Vestfjörðum Hverfafélög sjálfstæðismanna í Breiðholti Halda stjórnmálafund að Seljabraut 54 fimmtudaginn 22. nóv. kl. 20.30. Kaffiveitingar veröa á boðstólum Vandamál líðandi stundar eru: • Skefjalaus verðbólga • Versnandi afkoma • Óvissa í launa og atvinnumálum Hvernig vill Sjálfstæöisflokkurinn leysa vandann Ragnhildur Helgadóttir og Pétur Sigurðsson munu hafa framsögu og svara fyrirspurnum fundar- manna. Kosningabaráttan og starfsemi Heimdallar Fundur verður í Fulltrúaráöi Heimdallar, fimmtud. 22. nóv. kl. 20.30, í Valhöll, kjallarasal. Gestur fundarins verður Ellert B. Schram. Fulltrúaráðið er hvatt til að mæta vel og stundvíslega. ■ Sjálfboðaliðar á kjördag D-listann vantar fólk til margvíslegra sjálfboöastarfa á kjördag. Sérstaklega vantar fólk til starfa sem fulltrúar listans í kjördeildum auk margvíslegra annarra starfa. Þeir sem vilja leggja D-listanum liö meö starfskröftum sínum kjördagana 2. og 3. desember næstkomandi, hringi vinsamlegast í síma: 82927. Skráning sjálfboöaliöa fer einnig fram á skrifstofum hverfafélaganna. listinn ■ ■ • ■ X "i ■ ■ Glœsilegir badherbergisskdpar Nýkomnir baöherbergisskápar, margar geröir og stæröir. Höfum einnig stakar rimlahuröir í ýmsum stæröum. diþ Nýborgf O Ármúla 23 — Sími 86755

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.