Morgunblaðið - 11.12.1979, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
bdm gula kippt inn fyrir.
Hluti EyjabyggAar og hafnarinnar sem oft er móðurskip mikils hiuta bátaflota landsmanna.
I pðkkunarsal eins frystihússins i Eyjum, en þar eru nokkur i hópi beirra Htmrstn á landinu.
Á aðalfundi útvegs-
bænda í Vestmannaeyjum
fyrir skömmu lét Björn
Guðmundsson útvegsbóndi
af formennsku eftir 20 ára
starf en kjörinn var Krist-
inn Pálsson útvegsbóndi.
Jákvætt starf
könnunar útvegsbænda
I ræöu Öjorns á fundinum ræddi
hann fjölmörg atriði í starfi út-
vegsbænda í Eyjum og sagði m.a.:
„Aðeins vil ég frekar fara út í
félagsstarfið, og þá kemur fyrst í
huga starf þeirrar nefndar útvegs-
manna er kanna skyldi um s.l.
áramót hag útgerðar í Eyjum og
hvað helzt væri tii úrbóta í þeim I
efnum. Gerði nefnd þessi mjög!
góða úttekt á fjárhag og stöðu
útgerðar hér í Eyjum og voru
niðurstöður í þá veru að afkoman
færi síversnandi og stór hluti
útgerðarmanna nánast kominn í
algjör þrot. Endaniega voru svo af
hálfu nefndar þessarar auglýstir
til sölu 30 bátar, stórir og smáir.
Segja má að nefndin sem slík hafi
ekki haft erindi sem erfiði, þar
sem viðbrögð stjórnvalda við þess-
um upplýsingum og þessu starfi
voru nánast engin. I það heila,
hins vegar, var það starf, sem
þarna var unnið, jákvætt og vakti
athygli á þeim vanda sem útgerð í
Eyjum á við að glíma.
Ymislegt fleira, er nokkuð sér-
stætt var um, kom til umræðu og
aðgerða, svo sem takmörkun á
hleðslu ioðnuskipa og takmörkun
á veiðum með botnvörpu innan
tiltekinna svæða, svo nokkuð sé
nefnt.
Björn Guðmundsson fráíarandí
formaður.
Kristinn Pálsson nýkjðrinn for-
maður útvegsbænda i Eyjum. i
Af fundi
útvegsbænda í
Vestmannaeyjum