Morgunblaðið - 15.01.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 15.01.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 11 Þorvaldur Mawby: Eru byggingarfyrirtækin ekki tilbúin til að leggja íbúðaverðið undir dóm Húsnæðismálastjórnar? • Svar við grein Gunnars S. Björnssonar, form. Meistarasambands byggingarmanna í ÁRSBYRJUN 1977 fékk Bygg- ingarsamvinnufélag ungs fólks fyrirheit um lóð við Eiðisgranda. Með vorinu voru síðan gerðir kaupsamningar við félagsmenn, en greiðslur vegna 2ja herb. íbúða voru sem hér segir: Verð fyrrnefndra 2ja her- bergja íbúða er 8.1 milljón kr., húsnæðismálalán 5.4 millj. og er vægi húsnæðismálaláns þá 67% og 104% sé 3ja millj. króna lífeyrissjóðslán einnig tekið. Júní 1977 kr. 900.000.0 Júlí - des. 1977 kr. 6X50.000.- 300.000.- Jan. — júlí 1978 kr. 6x60.000,- 360.000,- Júlí — des. 1978 kr. 6x72.000,- 432.000.- Jan. ’79 — febr. 1980 kr.14x96.000- 1.344.000,- ásamt umboði fyrir húsnæðis- Samtals 3.336.000,- Væri því fróðlegt, ef Gunnar S. málalán. íbúðunum er skilað fullfrá- Björnsson gæti bent á hliðstæðu í Reykjavík þar sem greiðslukjör gengnum með öllum innrétting- hafa verið jafngóð svo og vægi um, hreinlætistækjum og elda- húsnæðismálalána jafn hátt. vél, þó fylgja ekki gólfefni svo sem teppi og gólfdúkar. íbúðun- um fylgja sérgeymslur í kjallara svo og 6 fm. svalir og er íbúðin 212 rúmm. Sameign er skilað fullfrágenginni ásamt 110 fm. hjóla- og vagnageymslu, 110 fm. barnaheimili, en því fylgja leik- föng, húsgögn og leiktæki. Sam- eigninni fylgir gufubað svo og stórt þvottahús með tilheyrandi tækjum. í húsinu eru 59 íbúðir, 25 2ja herbergja, 25 3ja her- bergja og 9 4ra herbergja. Dýrustu liðir við byggingu hússins voru grunnur, en 8 metrar voru á fast frá óhreyfð- um jarðvegi en þar af voru 3 metrar undir meðal-sjávarhæð, sem olli ýmsum erfiðleikum, svo sem að dæla þurfti miklum sjó. Einnig reyndist lyfta mjög dýr og kostar hún uppsett u.þ.b. 30 milljónir en heildaverð hússins nemur 596 milljónum króna. Byggingarframkvæmdir hóf- ust í marz 1978, húsið varð fokhelt í ágúst 1979, en verið er að ljúka málningu innanhúss og uppsetningu innréttinga og mun því ljúka í marz næstkomandi. Ekki skal um það deilt hér, hvort 8.1 millj. er gott eða vont verð, læt ég lesendur fella um það sinn dóm. Stjórn Byggungs er ljóst, að ekki er um neitt kraftaverk að ræða og eflaust er hægt að byggja enn ódýrara með því t.d. að fella niður meistara- prósentur, en þær námu kr. 4000.000 - pr. 2ja herbergja íbúð. í grein sinni verður Gunnari tíðrætt um framkvæmdalán. Þykir mér það sæta furðu, að maður í hans stöðu skuli vera jafn illa upplýstur um það mál og raun ber vitni, en hann segir: „Byggung fær framkvæmda- lán úr Byggingarsjóði ríkisins (húsnæðismálastofnun), sem venjuleg byggingarfyrirtæki fá ekki.“ Til fróðleiks fyrir Gunnar eru nú nokkur byggingarfyrirtæki með framkvæmdalán og fjöldinn allur hefur notið þessarar fyrir- greiðslu undanfarin ár auk þess sem Byggingarsjóður hefur veitt ýmsum byggingarfyrirtækjum sérstaka fyrirgreiðslu með kaup- um á stórum víxlum. Samkvæmt lögum Húsnæð- Þorvaldur Mawby ismálastofnunar ríkisins eiga þeir einir rétt á framkvæmda- lánum, er skila íbúðum fullbún- um og á því verði, er stofnunin getur fallist á. Er ekki kjarni málsins sá, að byggingarfyrirtæki eru ekki til- búin að leggja verð sín undir dóm Húsnæðismálastofnunar né skila íbúðum fullbúnum. Rýrir það ekki gróðavon þeirra sjálfra? Hvað varðar framkvæmdalán til Byggungs þá námu þau kr. 183.014.000,- 1. des. s.l., en eru í heild kr. 318.600.000.- ógreiddur mismunur kr. 135.586.000.-, en eins og áður er getið verður framkvæmdum lokið i marz n.k. Félagið hefur einnig átt óaf- greidda framkvæmdalánaum- sókn vegna Boðagranda 1 — 3 — 5 frá því 20. des. 1978, en fjárfesting er nú þegar 72% af byggingarkostnaði. Vart fæ ég séð að þetta geti kallast sérstök fyrirgreiðsla framkvæmdalána. Á liðnum árum hefur undirrit- aður gert sér það til dundurs, I...■" líkt og sumir safna frímerkjum, að safna auglýsingum, er birzt hafa um sölu nýrra íbúða og aflað sér upplýsinga um stærð, frágang, verð og greiðslukjör. Þar kemur fram, að markaðs- verð er látið ráða söluverði íbúðanna án tillits til fram- leiðsluverðs og sambærilegar íbúðir í sama húsi seldar á mismunandi verði til að tryggja gróða byggjenda sem mestan. Ur safni þessu mætti taka ýmis dæmi, en slíkt yrði sjálfsagt túlkað sem gróf árás á ýmsa framkvæmdamenn innan Meist- arasambands byggingarmanna og verður það því látið ógert að Reykjavík, 10. janúar 1980. Þorvaldur Mawby framkvæmdastjóri Byggungs Keisarinn vill fara frá eynni Panamaborg. 13. janúar. AP. SJÓNVARPSSTÖÐIN ABC segir, að Reza Pahlevi fyrrverandi íranskeisari vilji fara frá Pan- ama og muni skora á Bandaríkja- stjórn að aðstoða hann við að íinna nýtt heimili, en talsmaður keisarans segir að engin áform scu á prjónunum um að hann fari á Contadoraeyju þar sem hann hefur búið síðan 15. desember. Talsmaðurinn, Robert Armao, staðfesti þá frétt ABC, að hann færi til Bandaríkjanna eftir nokkra daga en neitaði að segja hvert hann færi og hvað hann ætlaði að gera. ABC sagði,. að hann færi til Washington að ræða við Hamilton Jordan, ráðunaut forsetans, um nýjan dvalarstað handa keisaranum. Að sögn ABC telur keisarinn að þar sem brottför hans frá Banda- ríkjunum hafi ekki orðið til þess að gíslarnir í bandaríska sendi- ráðinu i Teheran hafi verið látnir lausir skipti ekki máli hvar hann búi. Bandaríkjastjórn hefur neitað að láta hafa nokkuð eftir sér um málið, en ABC segir að samkvæmt áreiðanlegum heimildum sé frétt- in rétt í aðalatriðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.