Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 Málflutningur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum hófst í MÁLFLUTNINGUR í Guðmundar- og Geirfinnsmálum hófst í Hæstarétti klukkan 10 í gærmorgun. Þetta eru umfangsmestu sakamál. sem komið hafa fyrir réttinn í tugi ára. Ríkissaksóknari hóf sóknarræðu sína í gærmorgun og í gær talaði hann í rúmar fjórar klukkustundir, og var hann staddur í miðju Guðmundarmálinu þegar hlé var gert. Talið er að ræða saksóknara muni standa fram til miðvikudags eða fimmtudags og þá taka verjendur til máls. Er áætlað að málflutningur standi a.m.k. fram í miðja næstu viku. Sem fyrr segir er Þórður Björnsson ríkissaksóknari sækjandi í málinu en dómarar eru Björn Sveinbjörnsson, forseti Hæstaréttar, Benedikt Sigurjónsson, Logi Björns- son, Ármann Snævarr og Þór Vilhjálmsson. Varadómari er Sigurgeir Jónsson. Verjendur eru Jón Oddsson hrl. fyrir Sævar Marínó Ciesielski, Benedikt Blöndal hrl. fyrir Guðjón Skarphéðinsson, Hilmar Ingimundarson hrl. fyrir Tryggva Rúnar Leifsson, Örn Clausen hrl. fyrir Albert Klahn Skaptason, Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl. fyrir Erlu Bolladóttur og Páll A. Pálsson hdl. fyrir Kristján Viðar Viðarsson og er þetta prófmál hans fyrir réttinum. í upphafi las Björn Helgason dómsorð í undirrétti og bréf saksóknara. Að því búnu hóf Þórður Björnsson mál sitt og las upp dómkröfur. Síðan reifaði hann fyrsta ákæruliðinn, sem fjallar um dráp Guðmundar Einarssonar. Sævar, Tryggvi Rúnar og Kristján eru ákærðir um að hafa orðið Guðmundi að bana en Sævar, Kristján og Guðjón Skarphéðinsson eru ákærðir fyrir að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana. Ljósm. Emilia. Saksóknari, Þórður Björnsson, við upphaf sóknarræðu sinnar í gær. Dómarar eru, talið frá vinstri: Björn Sveinbjörnsson, Benedikt Sigurjónsson, Ármann Snævarr og Sigurgeir Jónsson. Guðmund að kvöldi 26. janúar og aðfararnótt 27. janúar. Samkvæmt framburði þessara vitna kom Guðmundur við í tveim- ur húsum áður en hann fór á dansleikinn i Alþýðuhúsinu skömmu fyrir miðnætti. Félagar hans sáu hann á dansleiknum og var hann þá orðinn talsvert öl- vaður og sömuleiðis sáu tvær stúlkur hann á dansleiknum þegar nokkuð var liðið á hann. Þá kvaðust tvær stúlkur, sem voru á ferð í bifreið á Strandgötu í Hafnarfirði umrædda nótt, hafa séð tvo menn við Bæjarbíó, þar sem þeir reyndu að stöðva bíla til þess að fá far. Þekktu þær Guð- mund og síðar töldu þær að hinn maðurinn hefði verið Kristján Viðar Viðarsson. Þekktu þær hann á mynd í myndasafni lögreglunnar og bentu á hann við sakbendingu, þar sem Kristján stóð í röð ásamt átta öðrum mönnum. Taldi ríkis- saksóknari Þórður Björnsson upp- lýst að Guðmundur hefði umrætt kvöld farið á dansleik í Alþýðu- húsinu og eftir dansleikinn, um klukkan 2 um nóttina, verið á gangi á Strandgötu eða neðst á Reykjavíkurvegi ásamt manni, sem var að öllum líkindum ákærði Kristján Viðar Viðarsson. En hvað gerðist síðan? Þessari spurningu varpaði ríkissaksóknari fram og leitaðist við að svara spurningunni með framburði ákærðu í málinu, sem hefur væg- ast sagt verið reikull eins og sjá má glöggt af frásögninni hér á eftir. Hins vegar fer framburður- inn í svipaðan jarðveg hjá öllum hinum ákærðu, a.m.k. á einhverj- um stigum. Framburður Erlu Framburður Erlu í málinu var þessi í stórum dráttum. Við yfirheyrslur 20. desember 1975: Laugardaginn 26. janúar fór ég í Klúbbinn. Þegar dansleikur- inn var búinn, hitti ég konu sem ég kannaðist við fyrir utan dans- staðinn og ók hún mér heim til þekkt Tryggva Rúnar þarna um nóttina en hún hefði séð hann síðar og teldi hún að um væri að ræða sama manninn og var um nóttina að Hamarsbraut 11. Fyrir sakadómi í mars 1977 sagði Erla: Ég var heitbundin Sævari og við bjuggum saman að Hamarsbraut. Aðfararnótt 27. janúar var ég á dansleik í Klúbbn- um og hitti konu fyrir utan, sem ók mér heim. Þetta hefur verið um klukkan 3.30. Ég skreið inn um glugga í þvottahúsi en þar var enginh. Ég lagðist til svefns og tók þá eftir að lakið vantaði í rúmið. Ég vaknaði og var þá búið að kveikja ljós í ganginum og menn voru í þvottahúsinu. Þekkti ég að þar voru Sævar, Kristján og einn ókunnur maður. Ég sá inn í geymsluna og þar var einhver hlutur vafinn inn í lak, mér var ljóst að það var mannslíkami. Hluturinn var borinn eftir gang- inum og út úr íbúðinni en um leið rakst Sævar á mig svo að ég féll. Sævar reisti mig við og sagði að ég skyldi aldrei segja frá þessu. Ég heyrði aldrei í nefnum bíl né sá ég Albert Klahn Skaptason eða Gunnar Jónsson. Daginn eftir fór ég út í öskutunnu og fann þá lakið. Framburður Sævars Fyrsta lögregluskýrslan var tekin af Sævari Marínó Ciesielski 4. janúar. Þar sagði í stórum dráttum þetta: Skömmu eftir ára- mót kom ég heim til mín að Hamarsbraut að nóttu til og var þetta um helgi. Voru þá Kristján Viðar og Tryggvi Rúnar þar fyrir og voru þeir staddir í geymslonni. Sá ég að þeir voru með lík í laki. Um þetta leyti kom Erla þarna að líka. Þeir Kristján og Tryggvi fóru með líkið út í bifreið. Ekið var suður fyrir Hafnarfjörð og beygt til vinstri við Álverið. Bifreiðin var stöðvuð og þeir Kristján og Tryggvi hurfu út í náttmyrkrið með líkið. Við yfirheyrslur 6. janúar segir Sævar: Síðast í janúar 1974, senni- þar sem atburðir Guðmundarmálsins eiga að hafa gerst, þ.e. Hamarsbraut 11 i Hafnarfirði, i kjallaraíbúðinni. mín að Hamarsbraut 11 í Hafnar- firði. Þangað hef ég líklega komið kl. 3.30 til 4. Ég fór beint í rúmið en sá þá að lakið var horfið og þótti það skrýtið. Nokkru síðar vaknaði ég við eitthvað þrusk og fór fram. Heyrði ég raddir úr geymslunni og þekkti raddir tveggja manna, Sævars og Krist- jáns Viðars og einnig heyrði ég þriðju röddina, sem ég þekkti ekki. Þeir voru að bera eitthvað þungt á milli sín í hvítu laki. Ég var fullviss um að þetta væri manns- líkami, því að ég sá móta fyrir sitjanda og fótum. Sævar kom til mín og spurði hvort ég hefði séð nokkuð og hann sagði að ég mætti ekki segja frá neinu. Daginn eftir fór ég út með rusl og fann þá lakið í ruslatunnunni. Erla staðfesti þennan framburð fyrir dómi. Þá sagði hún ennfrem- ur við lögreglu að hún hefði ekki Tryggvi Rúnar Leifsson (t.v.) í fylgd lögreglumanna. Myndin var tekin við réttarhöldin í sakadómi Reykjavikur í októ- ber 1977, en Tryggvi var ekki viðstaddur réttarhöldin í Hæstarétti í gær. Guðmundur hverfur Upphaf Guðmundarmálsins var það, að faðir Guðmundar Einars- sonar, Hraunprýði við Blesugróf, kom til lögreglunnar og tilkynnti hvarf sonar síns. Hafði hann farið að heiman laugardagskvöldið 26. janúar 1974 og ætlað á dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Vitn- eskja fékkst um það að sést hefði til Guðmundar sömu nótt en rannsókn á hvarfi hans og víðtæk leit bar ekki árangur, en rann- sóknina kvað saksóknari því mið- ur ekki hafa verið jafn ítarlega og þurft hefði. Lýst var eftir Guð- mundi í fjölmiðlum en það bar heldur ekki árangur. Einkahagir Guðmundar voru kannaðir en það skýrði ekki hvarf hans, en Guð- mundur var talinn maður heil- brigður og mjög óáreitinn, eins og kom fram í máli saksóknarans. Gerist nú ekkert í málinu fyrr en 20. desember 1975, að yfir- heyrslur yfir Erlu Bolladóttur og Sævari Ciesielski standa sem hæst vegna 950 þúsund króna svikamáls hjá Pósti og síma að rannsóknar- lögreglunni berst vitneskja um það að Sævar sé hugsanlega við- riðinn hvarf Guðmundar Einars- sonar. í framhaldi af þessu var Erla yfirheyrð og eftir að fram- burður hennar lá fyrir hófst rannsóknin af fullum krafti. Voru skýrslur teknar af ákærðu í mál- inu, svo og fjölda fólks, sem sá Reikulir framburðir sakborn- inga í Guðmundarmálinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.