Morgunblaðið - 15.01.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 15.01.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 Reikulir framburðir sakborn- inga í Guðmundarmálinu Athugasemd hagfræð- ings Seðlabankans við blaðaskrif um ágrein- ing við Þjóðhagsstofnun einnig verið viðstaddir. Þegar átökin voru áfstaðin hafi Guð- mundur legið kyrr og þeir talið hann meðvitundarlausan en síðar hafi þeir reynt að finna púls og þreifað við gagnauga en engin merki fundið um að lífsmark væri með Guðmundi. Skelfing hafi gripið þá og síðar um nóttina hafi þeir komið líki hans fyrir úti í hrauni. Kristján dregur framburðinn til baka Kom nú Kristján til yfirheyrslu nokkrum sinnum og stóð við framburð sinn í aðalatriðum en 27. september 1977 söðlaði hann alveg um og óskaði eftir að bókað yrði: „Ég veit ekkert um hvarf Guð- mundar Einarssonar. Ég fór fram á það 12. maí og 6. júlí að þetta yrði bókað en því var hafnað. Fyrri skýrslur mínar gaf ég vegna þess að lögreglumennirnir fóru fram á það og við sem sátum inni vegna málsins vorum látin hjálp- ast að við að muna atburði, sem aldrei skeðu en lögreglumennirnir töldu að hefðu gerst. Ég var ekki í Hafnarfirði nóttina sem Guð- mundur Einarsson hvarf. Og aftur kom Kristján fyrir í yfirheyrslu 29. september og þá endurtók hann það sem hann sagði hér að framan og kvað allan framburð sinn í málinu tóman þvætting. Framburður Tryggva Rúnars Næst víkur sögunni til Tryggva Rúnars og framburðar hans í málinu. Hann kom fyrst í yfir- heyrslu 23. desember 1975 og þá var bókað eftir honum: Hef enga hugmynd um það hvernig maður sá sem talað er um lézt. Daginn eftir kom hann aftur fyrir og þá var bókað: Er ekki viðriðinn hvarf Guðmundar Ein- arssonar. Það var svo 9. janúar að Tryggvi Rúnar gefur eftirfarandi skýrslu hjá lögreglunni: Ég hef mikið hugsað um þetta mál. Ég man nú að ég var staddur í húsi með Sævari, Kristjáni Viðari og ein- hverjum öðrum, sem ég man ekki hver var. Ég man nokkuð vel herbergjaskipan þarna. Lýsti Tryggvi nú af nokkurri nákvæmni herbergjaskipan að Hamarsbraut 11. Mér virtist á tali ókunna mannsins og Kristjáns að hann þekkti hann. Eitthvað ósamkomu- lag kom upp, ábyggilega milli Kristjáns og hins óþekkta, þetta byrjaði með fúkyrðum en endaði með átökum. Sævar lenti í átökum við hann en ég kom til hjálpar. Ég fékk högg frá manninum en sló hann til baka. Þá féll maðurinn og virtist dasaður. Hann reyndi að standa á fætur en þá sá ég að Sævar stökk fram og sparkaði í höfuð mannsins rétt aftan við eyrað. Maðurinn hreyfði sig ekki. Það var stumrað yfir honum en ekkert lífsmark fannst. Okkur brá í brún því við vorum þess fullvissir að maðurinn væri látinn. Hann var nú lagður í geymsluherbergið en ég man ekki hvað við gerðum við manninn. Tryggvi kom fyrir sakadóm 11. janúar og þar skýrði hann sjálf- stætt frá málsatvikum og var skýrslan að mestu í samræmi við fyrri skýrslu. 22. mars kom hann aftur fyrir dóm en kvaðst þá ekki hafa neinu við að bæta. Aftur kom hann fyrir 30. apríl og hafði enn litlu við að bæta, nema hvað hann sagðist hafa slegið manninn niður. 17. september kom hann enn á ný fyrir og kvaðst þá ekki muna frekar hvert farið var með lík Guðmundar. Tryggvi snýr við blaðinu 30. marz 1977 kom Tryggvi Rúnar fyrir dóm eftir að ákæra lá fyrir og óskaði þá eftir að bókað yrði að hann hefði ekki ráðist að Guðmundi Einarssyni og mis- þyrmt honum svo að hann hlaut bana af. Kvaðst hann aldrei hafa komið að Hamarsbraut 11. Gaf hann þá skýringu að hann hefði verið mjög illa fyrir kallaður í desember 1975 enda honum verið borin á brýn mjög alvarleg sakar- efni svo sem manndráp. Kvaðst Tryggvi ekki hafa getað sofið og honum hefði verið neitað um að fá svefntöflur. Læknir hefði komið og sprautað hann niður og hefði hann alls ekki verið í jafnvægi. Þar að auki hefðu yfirhéyrslur staðið yfir allt að 12 tíma á dag. Lögreglumennirnir hefðu lagt hart að honum að játa þar sem allir aðrir væru búnir að játa og því hefði hann játað á sig brotin í von um að sannleikurinn kæmi síðar í ljós. Framburður Alberts Hér hefur verið rakið það sem fram kom hjá ríkissaksóknara í gær um framburði Erlu Bolladótt- ur, Sævars Marínós Ciesielskis, Kristjáns Viðars Viðarssonar og Tryggva Rúnars Leifssonar. Eins og frásögnin ber greinilega með sér hefur framburður þeirra verið ákaflega reikull en hefur þó fallið í sama meginfarveg. Síðan gerðist það, sem kemur fram hér á undan að þeir Sævar, Kristján og Tryggvi hafa alveg dregið fram- burð sinn til baka og segjast ekkert við málið kannast. Hins vegar hefur Erla Bolladóttir ekki dregið framburð sinn til baka né Albert Klahn Skaftason, sá sem talinn er hafa ekið þeim félögum með lík Guðmundar suður í Kap- elluhraun nálægt Alverinu. Hans framburður stendur enn, en sak- sóknari rakti hann skilmerkilega í ræðu sinni í gær. Þar kom fram að Albert ók Kristjáni og Tryggva til Hafnarfjarðar í þann mund er dansleiknum var að ljúka í Al- þýðuhúsinu og setti þá út neðst á Reykjavíkurvegi við Strandgötu. Komu þeir aftur eftir u.þ.b. 10 mínútur með mann sem Albert þekkti ekki óg síðar kom í ljós að var Guðmundur. Vildi Albert ekki taka þá upp í bílinn aftur né Guðmund. Kom Albert síðan að Hamarsbraut 11 seinna um nótt- ina og var að nokkru leyti vitni að átökunum þar, sem leiddu til dauða Guðmundar. Sýndist hon- um að þeir Kristján, Tryggvi og Sævar tækju allir þátt í þeim átökum. Síðan lýsti Albert líkflutningr.um út í hraun og hvernig þeir félagar hurfu með líkið út í myrknð en Albert sat einn eftir í bílnum og beið þess að þeir kæmu aftur. Sömuleiðis stendur enn fram- burður Gunnars Jónssonar sem áður er á minnst og var með Albert í bílnum um kvöldið og fór með honum inn í Hamarsbraut 11 í þann mund er átökin hófust. Þegar málið kom upp var Gunnar staddur á Spáni og var hann þangað sóttur til að gefa skýrslu fyrir dómi. Gaf hann skýrslu um atburði næturinnar og minnist á skýrslu Kristjáns Viðars, sem honum fannst gefa góða mynd af því sem gerðist.. í lok ræðu sinnar í gær gat Þórður Björnsson ríkissaksóknari þess að allmörg vitni hefðu verið kölluð til í máli þessu. M.a. hefði stúlkan, sem Erla sagðist hafa fengið far með úr Klúbbnum til Hafnarfjarðar, staðfest frásögn Erlu að þessu leyti. Sömuleiðis hefur vinkona Sævars í starfs- mannahúsi Kópavogshælis stað- fest samband sitt við hann og man eftir að félagar Sævars hafi komið þangað kvöld eitt á föstudegi eða laugardegi. Sagði hún að Sævar hefði verið undarlegur um þetta leyti, ætt um gólf og eitt sinn sagðist hann hafa drepið mann. Kvað hún Sævar hafa grobbað sig af því að auðvelt væri að láta menn hverfa. Saksóknari kvað yfirheyrslur yfir nágrönnum á Hamarsbraut og leigubílstjórum ekki hafa varpað frekara ljósi á málið. Sýnileg sönnunargögn ekki mikil Þá sagði ríkissaksóknari efnis- lega: Lík Guðmundar hefur ekki fundist og framburðir ákærðu um það hvar líkið er að finna reikulir og óljósir. Þrátt fyrir mikla leit hefur staðurinn ekki fundist. Sýnileg sönnunargögn eru ekki mikil, enda ber að hafa í huga að tæp tvö ár liðu frá hvarfi Guð- mundar þar til grunur beindist að ákærðu. Nefndi saksóknari athuganir á blóði, sem fannst í frakka þeim sem Kristján Viðar var í kvöldið sem átökin áttu að hafa átt sér stað. í frakkanum fannst blóð, sem greint var í rannsóknarstofu vestur-þýzku lögreglunnar. Fannst út að blóðið væri af A-flokki, sem gæti verið flokkur Guðmundar heitins, en hann var í flokki A eða AB. Hins vegar gat blóðið ekki verið úr flokki Krist- jáns. — Þetta segir ekki mikið en er frekar í áfellisátt, sagði sak- sóknari. Þá fannst blóð í teppi kjallara íbúðarinnar á Hamarsbraut 11 og ennfremur í Volkswagenbíl Al- berts Klahn Skaftasonar en ekki reyndist unnt að greina það. Ríkissaksóknari mun halda áfram sóknarræðu sinni klukkan 13.30 í dag fyrir Hæstarétti og mun þá fjalla áfram um Guð- mundarmálið. - SS. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd hag- fræðings Seðlabankans. Dagblöð helgarinnar fluttu mönnum þá nýlundu, að upp væri kominn ágreiningur milli hag- fræðideildar Seðlabankans og Þjóðhagsstofnunar um túlkun til- löguhugmynda til umræðu við tilraunir til stjórnarmyndunar. Einkum er bitastætt á fréttum þessa efnis í Þjóðviljanum á laug- ardag 12. þ.m. og Morgunblaðinu á sunnudag 13. þ.m. Fréttum þessum er það sameig- inlegt, að sagt er, eða látið að því liggja, að hagfræðideild Seðla- bankans hafi gert sjálfstæða út- reikninga á kjaraskerðingaráhrif- um hinna mismunandi tillöguhug- mynda og fengið niðurstöður veru- lega frábrugðnar þeim, sem Þjóð- hagsstofnun lét frá sér fara. Þetta er misskilningur og missir marks um meginefni þess álits, sem hagfræðingur Seðlabankans lét í té. Hagfræðideildin hefur enga slíka útreikninga gert að þessu sinni. Að vísu hefur deildin komið sér upp reiknilíkani áþekkrar gerðar og Þjóðhagsstofnun notar, en það hefur sýnt mjög svipaðar niðurstöður og því engin ástæða þess að ætla, að það muni sýna aðra mynd að gefnum sömu for- sendum og Þjóðhagsstofnun hefur fengið upp í hendurnar. Mergurinn málsins er hins veg- ar sá, að hér er um að ræða reiknilíkan til þess að ráða í Þorlákshofn, 14. janúar. NÚ ER að hefjast hér vetrarvertíð. Bátarnir eru sem óðast að byrja róðra og allt er að fara í gang. Útlit er fyrir að hér muni landa 25 bátar á komandi vetrarvertíð eða líkur fjöldi og í fyrra. Níu bátar eru þegar byrjaðir með net og fjórir með línu. Á sl. ári sem var metafiaár, kom hér sennileg viðbrögð markaðar og verðákvörðunaraðila eftir venju- bundinni hegðun, miðað við áorðin kostnaðartilefni og tímatafir í kerfinu. Útkoman sýnir þá vænt- anlegan feril verðlags og kaup- máttar. Stjórnvöld geta hins veg- ar tæpast tekið slíka niðurstöðu sem gefna, heldur hljóta að meta hana út frá raunverulegum efna- hagslegum og þjóðfélagslegum að- stæðum. Þegar söðla skal um af háskalegri verðbólgubraut, getur það einmitt orðið meginefni opin- berrar stefnumótunar að brjótast út úr vítahring vanabundinnar verðbólguhegðunar. Við þau orð, að ekki væri unnt að taka niður- stöður vélrænna utreikninga af þessu tagi alvarlega sem stefnu- ráðgjöf, hefði verið ástæða til að bæta því við, að slíkt væri sjálf- sagt heldur ekki ætlan Þjóð- hagsstofnunar. Hið fyrsta var stofnuninni falið að meta tillög- urnar á þann kvarða, sem hér um ræðir og henni er tiltækur. En í framhaldi af því vann stofnunin að víðtækari athugunum tillagn- anna, og lágu niðurstöður þeirra ekki fyrir, þegar tilvitnuð orð voru rituð. Rétt er að taka fram, að álits- gerð undirritaðs var ekki samin með það fyrir augum að birtast í fjölmiðlum, en í því tilviki hefði að ýmsu leyti verið ástæða til fyllri skýringa og fyrirvara. Reykjavík, 14. janúar, 1980 Bjarni Bragi Jónsson á land af bolfiski miðað við áramót bátafiskur 17.871 tonn og togarafisk- ur 6.496 tonn eða samtals 24.367 tonn. Togárarnir hafa nú fiskað vel það sem af er þessu ári og hér er nóg vinna fyrir alla. Um það hvenær loðna berst hingað er allt í óvissu ennþá. Raiínheiúur Sólin brosti á rétt- um tíma á Eskifirði EskifirAi — 14. janúar í DAG sáum við sólina í fyrsta sinn á "þessu nýbyrjaða ári og var hún stundvís því hciðskírt var. Menn fengu því snlarpönnukök- urnar árvissu á réttum degi. Sól hafði ekki sézt síðan 20. desem- ber, en nú hætist hamufetið við á hverjum degi og ef að líkum lætur léttist á mönnum brúnin í sam- ræmi við það. Agætis tíð hefur verið það sem af er árinu, varla komið frost og hitinn farið allt upp í 14 stig, eins og var síðastliðinn laugardag. Sem dæmi um veðursældina má geta þess að þeir áhugasömustu spiluðu golf á golfvellinum við Byggðar- holt allan þann dag og fátt minnti á að samkvæmt almanakinu er miður janúar og því hávetur. Línubátar hafa lítið getað róið vegna brælu þótt gott hafi verið til landsins. Allgóður afli er þó þegar þeir komast á sjó eða allt að 7 tonn í róðri. — Ævar Logmenn, talið frá vinstri: Hilmar Ingimundarson, Benedikt Blöndal, Örn Clausen og Páll A. Pálsson. Bak við þá situr Kristján Viðar Viðarsson milli tveggja lögreglumanna. Allmargt manna fylgdist með réttarhöldunum í gær. Frá höfninni. Þorlákshöfn: Næg atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.