Morgunblaðið - 15.01.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANUAR 1980
21
Itlorjjimlilníiiíi
Fóru á fyllerí!
MIKIÐ hóf var haldið í Bremen
á föstudaginn og komu þar
saman öll liðin sem þátt tóku i
keppninni. Það vakti athygli og
það ekki litla, að á sama tima
og flest liðin sátu undir borði
snæðandi nokkuð frambæri-
legan svínarétt, voru leikmenn
A- og B-liða Vestur-Þýskalands
við áfengissölu vietingahússins.
Barst ómurinn af fjöldasöng
þeirra inn í matsalinn þar sem
ýmsir menn freistuðu þess að
flytja frumsamdar ræður. Þeg-
ar að var gáð, kom i ljós að um
allsherjar fylleri var að ræða
hjá þeim þýsku.
Þessi hegðun Þjóðverjanna
daginn fyrir elik kom öllum i
opna skjöldu, en skýringin mun
hafa verið sú, að fyrst að
hvorugt liðið keppti um efsta
sætið, þótti Þjóðverjum það
smánarlegt að A-Iiðið skyldi
ekki leika betur en svo að það
yrði hlutskipti þess að mæta
B-liðinu i leik um 3.-4. sætið.
152 hlutu vinning
í 20. leikviku getrauna komu
fram 6 raðir með 11 réttum og
var vinningur fyrir hverja röð
kr. 354.000.-. Með 10 rétta voru
152 raðir og vinningur fyrir
hverja kr. 6.000.-
All langt er um liðið síðan
komið hefur fram seðill með 12
réttum, og að þessu sinni hefur
jafnteflið hjá Liverpool sett
strik í reikninginn. Eftir
margra vikna sigurgöngu kom
Southampton i heimsókn og
með því liði leikur hinn kunni
landsliðsmaður, Alan Ball, sem
hefur líklega oftar en nokkur
annar leikmaður i Englandi í
dag verið í sigurliði gegn Liver-
pool á heimavelli þess. Hann
kom þangað fyrst sem táningur
fyrir 18 árum mcð Blackpool,
sem sigraði, og síðan lék hann
lengi með Everton og Arsenal,
sem bæði hafa haft sérstök tök
á hinu sigursæla Liverpool-liði í
gegnum árin. En ekki cr ósenni-
legt, að Liverpool hafi tekið
daginn rólega, því að miðviku-
daginn 16. janúar skal liðið
mæta sínum erfiðasta andstæð-
ingi, Nottingham Forest, í und-
anúrslitum deildabikarsins.
Sveinbjörn
til Sundsvall
BLM. MBL. rakst á Sveinbjörn
Hákonarson knattspyrnumann
á Kastrup-flugvelli á sunnudag-
inn. Kom í ljós að kappinn var á
leið til Svíþjóðar, nánar tiltekið
til sænska 1. deildar liðsins
Sundsvall. Þar er áætlað að
hann dvelji næstu vikuna og
skoði aðstaeður. Er nú óhætt að
fara að taka undir þær raddir,
að þróunin í þessum málum sé
að verða uggvænleg. Svo tugum
skiptir eru ungir og efnilegir
knattspyrnumenn að leita fyrir
• Sveinbjörn Hákonarson.
sér í Svíþjóð og reyndar víðar.
Enginn álasar þeim, þetta er
afleiðingin af því aðstöðuleysi
sem hér ríkir.
Sá þýski
skrifaði undir
hjá Val
VESTUR-þýski knatt-
spyrnuþjálfarinn sem
dvaldist hjá Val um helg-
ina eins og sagt var frá í
Mbl. á laugardaginn hef-
ur gert samning við fé-
lagið. Stjórnaði hann æf-
ingu hjá félaginu og
líkaði öllum vel, var því
eftir engu að bíða.
Eins og skýrt var frá í
Mbl. heitir maðurinn
Volker Hoffenberg. Ilann
er 31 árs og hefur nýlok-
ið námi við knattspyrnu-
deild íþróttaskólans
mikla í Köln. Ilonum
hefur þegar verið boðið
að starfa sem aðstoðar-
þjálfari hjá Bayern,
Stuttgart og Fortuna
Diisseldorf, en það þykir
mikill skóli að þjálfa á
íslandi og því kaus hann
Val frekar.
Sveitakeppni J.S.Í fór fram um helgina. Keppendur tóku hraustlega á hver öðrum eins og sjá má á
þessari mynd. Það var Júdófélag Reykjavíkur sem sigraði í keppninni en á bls. 22 má sjá allt um
keppnina.
Ársæll Sveinsson hefur gert eins árs samning við sænska félagið
Jönköping. Ársæll mun halda utan til Sviþjóðar ásamt fjölskyldu
sinni í lok mánaðarins. Ljósm. Sigurgeir.
Ársæll til Jönköping
„Gat ekki slegið
hendinni á móti
svo góðu tilboði"
ÁRSÆLL Sveinsson markvörð-
urin snjalli úr ÍBV, sem kjörinn
var leikmaður síðasta íslands-
móts í knattspyrnu af Morgun-
blaðinu hefur nú ákveðið að
halda utan til Svíþjóðar og
leika með Jönköping. í spjalli
við Mbl. í gærkvöldi sagði
Ársæll meðal annars.
— Ég hafði verið úti að
kynna mér aðstæður hjá félag-
inu og hafði fengið gott tilboð.
Samt var ég á báðum áttum
hvort ég myndi fara til þeirra.
Síðan skeður það að þeir hafa
samband við mig og hækka
verulega tilboðið. Það gerði
útslagið. Ég mun halda til
Svíþjóðar ásamt fjölskyldu
minni 27. janúar n.k.
— Það er æft úti fjórum
sinnum í viku og leikið á laugar-
dögum eða sunnudögum. Liðið
mun svo fara í 10 daga æfinga-
ferð til Ungverjalands í marz.
Fyrsti leikur okkar í deildinni
verður svo við Örgryte og þar
mun ég mæta fyrrum félaga
mínum Erni Óskarssyni, en
hann leikur með því liði.
Það verður mikill missir fyrir
ÍBV að Ársæll skuli fara til
Svíþjóðar. Ársæll hefur verið í
mikilli sókn sem markmaður og
aldrei leikið jafn vel og síðast
liðið sumar. Það fer nú að horfa
til stórvandræða hjá íslenskum
félögum hversu margir leikmenn
halda utan.
- þr.
Stórleikur í körfunni:
Valur og UMFN
á Ijölunum
EINN leikur fer fram í
íslandsmótinu í körfuknattleik
i kvöld, er það viðureign Vals
og Njarðvíkur. Fer leikurinn
fram í Laugardalshöllinni og
hefst hann klukkan 19.00.
Þarf ekki að fjölyrða um
mikilvægi þessa leiks og má því
reikna með mikilli spennu. Til
að slaka á henni, munu Halli og
Laddi stjórna fjöldasöng í hálf-
leik. Gæti það hæglega orðið
hvalreki fyrir einhvern plötu-
framleiðandann.
Seppi
hættir
GAMLA kempan Sepp
Maier, markvörður vestur-
þýska landsliðsins i knatt-
spyrnu í mörg ár, hefur að
læknisráði tilkynnt að hann
sé hættur knattspyrnuiðk-
un. Sem kunnugt er hlaut
Maier alvarlcg innvortis
meiðsl í bilslysi fyrir nokkr-
um mánuðum og hafa eftir-
köstin haft þessi áhrif.
Kemur
Hilpert
ekki?
TALIÐ er að Klaus Hilpert
sjái um þjálfun ÍA í íslands-
mótinu í knattspyrnu i
sumar. Hafa báðir aðilar
lýst áhuga sinum á þvi. Nú
er Ililpcrt hins vegar sam-
kvæmt góðum heimildum i
þannig vinnu í Þýskalandi,
að skyndilega er ekki alveg
eins vist að hann geti komið.
Er málið sagt á því stigi nú,
að brugðið geti til beggja
vona.
Eyjamaður
til Reynis
REYNIR í Sandgerði hefur
ráðið til sin þjálfara fyrir
komandi keppnistimabil i
knattspyrnu. Er þar um að
ræða Kjartan Másson, sem
var aðstoðarþjálfari
íslandsmeistara ÍBV á
siðasta keppnistimabili.
Kjartan er ekki með öllu
ókunnugur i Sandgerði, því
hann þjálfaði liðið fyrir
nokkrum árum.
Pétur bætir
í safnið!
PÉTUR Pétursson skoraði
17. mark sitt í hollensku
deildarkeppninni er hann
skoraði fyrra mark Feyen-
oord gegn Pec Zwolle um
helgina. Feyenoord sigraði
2—1 og var það Jan Van
Deinsen sem skoraði siðara
mark Feyenoord.