Morgunblaðið - 15.01.1980, Page 43

Morgunblaðið - 15.01.1980, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 23 Ármann sigraði • Hinn snjalli linumaður KA, Þorleifur Ananiasson, i dauðafæri á linunni. Egill Steindórsson, markvörður Týs, sýnir mikil tilþrif þar sem hann kemur út úr markinu. Egill átti stórleik í markinu. Ljósmynd SOR. Auðveldur sigur KA óhætt er að fullyrða að ekkert lið hefur komið jafnmikið á óvart í vetur i 2. deildinni i handknatt- leik og lið Aftureldingar úr Mosfellssveit. Liðið, sem kom upp úr 3. deildinni í fyrra, hefur svo sannarlega velgt hinum reyndari liðum undir uggum. í siðustu viku sigraði liðið Fylki i Laugar- dalshöllinni með þriggja marka mun, 17—14. Á laugardag mætti liðið svo Ármanni á heimavelli að Varmá og var þar um mikinn hörkuleik að ræða allan timann. Afturelding átti alla möguleika á að sigra í leiknum en féll á eigin bragði. Seint i síðari hálfleiknum lét Pétur Jóhannsson þjálfari U.M.F.A. tvo af leikmönnum sinum taka þá Björn Jóhannes- son og Friðrik Jóhannesson, Ármanni, úr umferð, en við það opnaðist vörn Aftureldingar svo mikið og illa að átakalaust gat Ármannsliðið skorað hvert mark- ið af öðru og náði að tryggja sér sigurinn á síðustu mínútum leiksins. Emil i marki UMFA, sem átt hefur góða leiki með liði sínu í vetur, var óvenju slakur í leiknum og varði varla bolta. Það var því meira fyrir mistök UMFA en gæði Ármannsiiðsins að Ár- menningar gengu með sigur af hólmi i leiknum. Lengst af hafði lið Aftureldingar sýnt betri handknattleik og sóknarleikur- inn var mun beittari og léttari allan timann. Gangur leiksins Fyrri hálfleikur var bráð- skemmtilegur á að horfa þar sem sóknarleikur var í fyrirrúmi og mörg falleg mörk voru skoruð, sérstaklega af hálfu UMFA. Jafn- ræði var með liðunum út hálfleik- inn, en síðustu fimm mínútur hans tókst UMFA að ná forystu og ÞEGAR um 3 mínútur voru eftir af leik Þórs og Týs og staðan var 21 — 18 Tý í vil brutust út mikil slagsmál. Aðdragandinn var sá að Týrarar voru í sókn og var dæmt aukakast á Tý. Þórsarar sem voru að vinna á ætluðu að flýta sér að taka aukakastið, en þá gerði Kári Þorleifsson sér lítið fyrir og lét boltann ekki af hendi þegar Arnar Guðlaugsson Þórs- ari reyndi að ná boltanum. Arnar •.erði sér hins vegar lítið fyrir og skellti Kára í gólfið og tók síðan boltann. Sigurlás, bróður Kára, sem var nærstaddur, líkuðu eng- an veginn aðfarir Arnars og kom hlaupandi og tók Arnar hálstaki og keyrði hann í gólfið. Á meðan á þessu stóð átti Ragnar mark- vörður Þórs í útistöðum við tvo leikmenn Týs. Á næstu augna- blikum bar að múg og marg- menni, og þar á meðal dómarana, til að stilla til friðar. Tókst að stilla til friðar og ráku dómar- arnir tvo leikmenn Þórs út af en einn úr liði Týs. Litlu eftir að leikurinn hófst aftur, dæmdu dómararnir eitthvað á Tý sem þjálfari þeirra gat engan veginn sætt sig við. Hann lét miður góð Ármann ^ lm*M hafði tvö mörk yfir í hálfleik, 14-12. Þeim tókst svo að halda frum- kvæðinu í leiknum fram undir miðjan síðari hálfleik að Ármanni tókst að jafna leikinn 19—19. Var það greinilega farið að fara nokk- uð í taugarnar á leikmönnum Ármanns hversu illa þeim gekk að hemja lið heimamanna. Var nokk- ur harka kominn í leikinn en góðir dómarar, þeir Óli Olsen og Ólafur Steingrímsson, höfðu nokkuð góð tök á leiknum. Þegar átta mínútur voru eftir af leiknum var staðan jöfn, 21—21, en þá fór UMFA að láta elta tvo menn með fyrr- greindum afleiðingum. Lokakafl- ann í leiknum skora Ármenningar fimm mörk á móti tveimur, það reið baggamuninn. Liðin: Lið Aftureldingar lék þennan leik lengst af vel. Þó sérstaklega sóknina. Varnarleikurinn og markvarslan hjá liðinu voru ekki góð að þessu sinni. Bestu menn liðsins voru Lárus og Steinar. Þá sýndi Gústaf góð tilþrif. í liði Ármanns var Friðrik einna bestur. En lokakaflann í leiknum sýndi Þráinn góðan sprett og skoraði þá þrjú mörk í röð og átti stóran þátt í því að tryggja Ármanni sigur í leiknum. Mörk Aftureldingar: Lárus 8 (4 víti), Steinar 6, Sigurjón 4, Gústaf 3, Ingvar 2, Björn 1. Mörk Ármanns: Friðrik 7, Björn 5 (4 víti), Þráinn 5, Smári 3, Jón Viðar 3, Einar 1, Jón Ástvaldsson orð falla i garð dómaranna sem umsvifalaust ráku hann út úr salnum. Ekki löngu siðar var svo flautað til leiksloka og Týrarar stóðu uppi sem sigurvegarar, þeir höfðu gert 21 mark gegn 19 mörkum Þórsara, staðan í hálf- leik var 11 — 10 Þór í vil. Lítum á gang leiksins. Strax í upphafi leiksins Tóku Týrarar Pálma Pálmason úr umferð og héldu uppteknum hætti allan leik- inn. Þetta gafst vel því Þórsarar voru mjög ráðvilltir og bitlausir án Pálma. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og skiptust liðin á um að hafa forystuna. Leikurinn var Ieiðinlegur á að horfa og fátt sem gladdi augað nema þá helst lagleg mörk sem Hrafnkell Óskarsson gerði úr horninu. Staðan í hálfleik var eins og áður sagði 11—10 fyrir Þór. I upphafi síðari hálfleiks náðu Týrarar að jafna og var jafnt 11—11 og 12—12. Þá kom kafli, sem gerði út um leikinn. í heilar 18 mínútur skoruðu Þórsarar ekki mark á meðan Týrarar gerðu hvert markið á fætur öðru og breyttu stöðunni í 18—12 sér í hag. Þegar svo Þórsarar fundu á ÞAÐ, sem bar hæst í fyrri hálfleik í leik KA og Týs frá Vestmannaeyjum i 2. deild á föstudaginn, var snilldarmark- varsla Egils Steinþórssonar í marki Týs. Hann varði 11 skot. Langskot, úr hornunum og af Iínu. Gauti í KA-markinu varði lika ágætlega, eða 7 skot. Einnig voru varnir liðanna mjög góðar en sóknarleikurinn ekki að sama skapi góður. Sérstaklega var sóknarleikur Týs lélegur og alls ekkert augnayndi. Þeir hafa enga almennilega skyttu í sinum röðum. Sífellt er reynt að hnoðast með boltann inn í vörnina eða reynt að koma honum inn á Iínuna, en það gafst þó ekki vel þar sem KÁ-menn lokuðu þeirri íeið yfirleitt. KA-menn sýndu heldur enga snilldartakta í sókninni í fyrri hálfleik, það var eins og leikur þeirra drægist niður á sama plan og leikur Týrara. KA sigraði þó örugglega í leiknum með 24 mörk- tjr 19:21 ný leiðina í mark Týs var það um seinan og sigur Týs var aldrei í hættu þrátt fyrir að Þórsarar hafi gert síðustu 4 mörk leiksins. I heildina var leikurinn fremur slakur og var fátt um fína drætti. Sóknarleikur beggja liða var mjög bitlaus og virtist hvorugt liðið hafa á að skipa góðum skyttum, og er það mjög bagalegt. Varnirnar voru hins vegar ágætar og mark- varslan oft á tíðum góð, þó einkum og sér í lagi hjá Agli markverði hjá Tý. Það sem réð mestu um sigur Týrara var kaflinn þegar Þórsarar gerðu ekki mark í 18 mínútur. Lið Týs var ekki sannfærandi í þessum leik. Liðið vantar tilfinn- anlega góðar skyttur en þeir hafa ágæta horna- og línumenn. Hjá Tý bar Egill Steinþórsson höfuð og herðar yfir aðra leikmenn, hann sýndi mikið öryggi og varði eins og herforingi. Lið Þórs var hvorki fugl né TKr 24:15 um gegn 16. Staðan í leikhléi var 9:9. Eftir 13 mínútna leik var staðan 4:1 KA í hag og þrátt fyrir lítið skor virtist KA hafa leikinn alger- lega í hendi sér. En á næstu 12 mínútum skoruðu KA-menn að- eins 1 mark en Týrarar aftur á móti 4 og jöfnuðu þar með leikinn, 5:5, er 25 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Skoraði Snorri Jó- hannsson öll 4 mörk Vestmanna- eyinganna á þessum kafla og fékk yfirleitt mjög mikinn tíma til að athafna sig. Síðustu 5 mínúturnar lifnaði mjög yfir leiknum og skoraði hvort lið þá 4 mörk. Staðan í hálfleik var því 9:9 eins og áður sagði. fiskur í þessum leik og virtist það hafa mikil áhrif á leikmenn að Pálmi var tekinn úr umferð. Þegar Pálmi svo losnaði voru samherjar hans ekki með á nótunum og það nýttist því lítið. Liðið lék nú á ný leiðinlegan gönguhandbolta sem bar lítinn árangur. Enginn skar- aði fram úr, en Pálmi gerði ágæta hluti þegar hann losnaði en hon- um urðu þó á mistök eins og öðrum leikmönnum. Hrafnkell Óskársson gerði einnig falleg mörk úr horninu. Dómarar voru þeir Stefán Arn- aldsson og Guðmundur Lárusson. Þeir dæmdu ágætlega framan af leiknum en þegar líða tók á leikinn slöppuðust þeir hins vegar mjög í dómgæslunni. Mörk Týs: Óskar Ásmundsson 6 (1 v), Þorvarður Þorvaldsson 4, Magnús Þorsteinsson 4 (1 v), Kári Þorleifsson 3, Ingibergur Einars- son 2 og Logi Sæmundsson og Sigurlás Þorleifsson 1 hvor. Mörk Þórs: Hrafnkell Óskars- son 5, Benedikt Guðmundsson 5 (2 v), Pálmi Pálmason 3, Árni Stef- ánsson 2, Sigtryggur Guðlaugsson 2 og Valur Knútsson og Arnar Guðlaugsson 1 hvor. í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum framan af og jafnt á öllum tölum upp í 13:13. Þá skoruðu KA-menn 4 mörk í röð og breyttu stöðunni í 17:13 á aðeins 2 mínútum. Við þetta brotnuðu Týr- arar algjörlega og áttu sér aldrei viðreisnar von. Öskar Ásmunds- son minnkaði muninn í 3 mörk en Alfreð svaraði með 2 mörkum í röð fyrir KA. Sigurlás skoraði næst úr víti fyrir Tý og Alfreð skoraði fyrir KA, einnig úr víti. Staðan var þá orðin 20:15 fyrir KA eftir 23 mín. og nánast formsatriði að ljúka leiknum. KA-menn létu þó ekki þar við sitja, heldur skoruðu þeir næstu 4 mörk og komust í 24:15. Snorri Jóhannsson skoraði síðan síðasta mark leiks- ins fyrir Tý, þannig að leiknum lauk eins og áður sagði með yfirburðasigri KA, 24 mörkum gegn 16. KA-liðið hefur oft leikið betur en í þessum leik, þrátt fyrir auðveldan sigur. Fyrri hálfleikur- inn var frekar slakur, en um miðjan seinni hálfleik tók KA leikinn algjörlega í sínar hendur og réðu Týrarar ekkert við hraða- upphlaup KA-manna. Þá áttu þeir í miklum erfiðleikum með að stöðva Alfreð Gíslason sem átti mjög góðan leik. Þeir Þorleifur og Jóhann áttu einnig ágætan leik og Magnús Birgisson kom á óvart, en hann skoraði 3 góð mörk úr hornunum. Þá varði Gauti vel. Lið Týs vantar tilfinnanlega góða skyttu, því svo virðist sem enginn leikmanna liðsins geti skorað mörk með langskotum. Spilið byggist mjög mikið í kring- um Sigurlás, en ekki sýndi hann nein glæsitilþrif í leiknum. Vörnin er greinilega sterkari hluti liðsins og var hún mjög góð á köflum, sérstaklega þó í fyrri hálfleik. Aðeins 1 leikmaður í liði Týs á skilið hrós fyrir leik sinn, en það er Egill Steinþórsson markvörður. Hann varði frábærlega í fyrri hálfleik en ekki eins vel í þeim síðari þegar vörnin fór að opnast meira. Góðir dómarar leiksins voru þeir Guðmundur Skarphéð- insson og Gunnar Jóhannsson. Mörkin: Fyrir KA skoruðu: Alfreð Gíslason 10(3v), Jóhann Einársson 4, Þorleifur Ananíasson 3, Magnús Birgisson 3, Gunnar Gíslason 2 og þeir Guðmundur Lárusson og Guðmundur Guðmundsson 1 mark hvor. Fyrir Tý skoruðu: Snorri Jóhannsson 5; Sigurlás Þorleifs- son 5(lv), Óskar Ásmundsson 4(2v) og þeir Þorvarður Þorvalds- son og Benedikt Guðbjartsson 1 mark hvor. -þr, Staðan í 2. deild EFTIR leiki helgarinnar í 2. deild í handknattleik er staðan orðin mjög tvísýn og spennandi í deildinni. Er hún opin í báða enda og allt getur gerst í þeim leikjum sem eftir eru, svo jöfn eru liðin að styrkleika. Staðan er nú þannig í 2. deildinni: Fylkir Þróttur Ármann Afturelding KA Týr Þór, Ak. Þór, Vest. 8 5 1 2 164-145 11 6 4 0 2 131-123 8 7 3 2 2 168-148 8 3 1 2 123---116 7 6 3 1 2 90-113 7 5 2 1 2 99-99 5 6 1 0 5 116-128 2 4 0 0 4 72-106 0 Allt á suðupunkti í leik Þórs og Týs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.