Morgunblaðið - 15.01.1980, Page 37

Morgunblaðið - 15.01.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 45 . 1 TD ^ 7S VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA I0100KL. 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI "h w ujjqmPi'UH'ij it Jólasveinar ganga um gólf með gildan staf í hendi. Móðir þeirra sópar gólf og hýðir þá með vendi. Jólasveinar einn og átta ofan koma af fjöllunum. í fyrrakvöld þeir fóru að hátta fundu hann Jón á Völlunum. ísleif hittu þeir utan gátta og ætluðu að færa tröllunum. En þá var hringt í Hólakirkju öllum jólabjöllunum. Þórarinn Eldjárn Kristjánsson á Tjörn í Svarfaðardal, var lengi kennari í Tjarnarsókn. Þórarinn var frábær stærðfræðingur. Sem dæmi um kennslu hans var haft eftir Sigurður Guðmundssyni þá- verandi skólameistara Mennta- skólans á Akureyri, að mestu stærðfræðingar og bestu skrifarar kæmu frá Þórarni á Tjörn. Því minnist ég á Þórarin hér, að ég hygg að sá nemandi hans hefði ekki verið hátt skrifaður, sem ekki vissi skil á tug, þ.e.a.s. upphafi og endi. Það er eða á að vera auðskilið mál. Að nú er níundi tugur tuttugustu aldarinnar eftir fæðingu Krists hafinn. Mér virðist svo sem Helgi Hálf- danarson sé í miklum vafa um það. Með fyrirfram þökk, virðingar- fyllst, Þorsteinn Jónsson, Hvassleiti 30.“ Þessir hringdu . . . • Bændur ofaldir? Fyrrum bóndi rabbaði við Velvakanda um málefni bænda og var honum m.a. tíðrætt um ýmis konar styrki og fyrirgreiðslu, sem honum fannst bændur njóta og sagði hann m.a.: „Að undanförnu hefur nokkuð verið rætt í þjóðfélagi okkar um bændur og hvernig staða þeirra er. Talað er um að þeir eigi í erfiðleikum vegna of mikillar framleiðslu á síðustu árum, fram- leiðslu, sem þeir geti ekki selt m.a. vegna þess að búið sé að reka svo mikinn áróður gegn henni að við séum hætt að leggja okkur land- búnaðarafurðir til munns. Mér hefur alltaf fundist þetta óþarfa viðkvæmni hjá bændum, en hitt er sjálfsagt að nokkru leyti rétt að áróður gegn landbúnaðar- vörum hefur verið full óvæginn og ekki alltaf réttmætur. En kannski mættum við neyta minna af dýra- fitu en við höfum lengi gert. En ég vildi hins vegar tala örlítið um fyrirgreiðslu þá sem bændur flest- ir njóta. Nú þegar um offram- leiðslu er að ræða eru vörur þeirra seldar úr landi fyrir gjafverð og þurfum við því að borga með vörunum. Hvers vegna er ekki hægt að geyma þessar vörur hreinlega nokkuð lengur og draga jafnframt miklu hraðar úr fram- leiðslu en við höfum þegar gert ? Síðan eru landbúnaðarvörur niðurgreiddar og fylgja því ýmis útgjöld að sjálfsögðu og þannig SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu i Dort- mund í V-Þýskalandi í sumar kom þessi staða upp í skák þeirra Georgadze, Sovétríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og V-Þjóð- verjans Böhmfeldts. 31. Hxh6+! og svartur gafst upp, því að 31... Kxh6 yrði auðvitað svarað með 32. Dh3+ og svartur er mát. mætti e.t.v. halda áfram að telja ýmsan kostnað sem við höfum af því að framleiða landbúnaðarvör- ur. Nú er ég ekki að leggja til að við kaupum þessar vörur frá útlöndum, éins og stungið hefur verið upp á, en væri ekki hægt að söðla hraðar um og taka upp nýjar búgreinar ? Til eru alls kyns ráðunautar og rannsóknarstofn- anir sem eiga að ýta undir fram- leiðniaukningu og hagkvæmni hvetja til nýbreytni o.s.frv. hjá bændum og því ekki að leggja nú mikla áherslu á þessa þætti, að taka upp nýjar greinar í landbún- aði, sem við getum rekið með hagnaði. Þessi mál finnst mér þurfa að skoða almennilega og jafnframt fljótt, því ekki er hægt að láta þessi mál dankast í sífellu. Vona ég svo að fleiri komi á eftir með umræður um málið og taki það til meðferðar af meira viti þar sem ég hefi ekki fylgst nógu mikið með að undanförnu. HÖGNI HREKKVÍSI Ásgeir í Garði 15 ára:_ Fjölmenn veisla í samkomuhúsinu Garði. 13. janúar. í DAG, sunnudag. var haldið veglegt kaffisamsæti í samkomu- húsinu. Var það fyrirtækið Ás- geir hf. sem stóð fyrir því en um þessar mundir eru 15 ár síðan fyrirtækið var stofnað. Alls komu um 150 manns en hrepps- nefndarmönnum og bankastjór- um Útvegsbankans í Keflavík var boðið ásamt núverandi og nokkrum fyrrverandi starfs- mönnum. Ásgeir Hjálmarsson rakti sögu fyrirtækisins í stórum dráttum. Þá var þremur starfsmönnum veitt viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu fyrirtækisins í allt að 15 ár. Þeir, sem viðurkenningu fengu, eru Hjálmar Hjálmarsson, Óli Ragnarsson og Jón Hjálmars- son. Verkstjórar og starfsfólk færðu fyrirtækinu málverk að gjöf j og ýmiss konar glens og söngur * var viðhafður. ' Umsvif fyrirtækisins Ásgeirs j hf. hafa aldrei verið meiri á 15 ára starfsferli en sl. ár og nú vinna milli 50 og 60 manns hjá fyrirtæk- inu. 1 Eigendur Ásgeirs hf. eru i Hjálmar Magnússon, Ólafur Ág- ústsson og Ásgeir Hjálmarsson og makar þeirra. Arnór r Ungmennafélag Stafholtstungna: Sýnir „Fjölskyld- una46 á nýju sviði LEIKDEILD Ungmennafélags Stafholtstungna mun á föstu- dagskvöldið frumsýna leikritið FJÓLSKYLDAN i Héraðsheimil- inu að Varmalandi. Er þetta i fyrsta sinn sem sýnt er á leiksviði þessarar glæsilegu byggingar. sem nú er smátt og smátt verið að taka í notkun. Leikritið „Fjölskyldan" er ann- að verkefnið sem leikdeildin fæst við. Fyrir tveimur árum sýndi hún „Nakinn maður og annar í kjólföt- um“ eftir Dario Fo. Leikritið „Fjölskyldan", sem sýnt var í Iðnó fyrir skömmu er eftir sænskumælandi Finna, Claes Andersson. Á yngri árum starfaði hann sem hljómlistarmaður en hóf síðan nám í læknisfræði með geðlækningar sem sérgrein og hefur síðan starfað sem geðlækn- ir. Leikritið gerist aðallega á heim- ili fjölskyldu nokkurrar sem á við ýmis vandamál að stríða. Heimil- isfaðirinn er drykkfelldur og veld- ur það vandkvæðum í fjölskyldu- lífinu bæði hjá konu hans og börnum en einnig út í frá, í vinnu og í skólanum. Lýsir leikritið á sannfærandi hátt ýmsum hliðum mannlegra samskipta í gleði og sorg, blíðu og stríðu. Leikstjóri er Þórir Steingríms- son og Gunnar Þórðarson gerði tónlistina. Leikmynd gerði Jón Þórisson en Heimir Pálsson þýddi leikritið. Leikendur eru Sigurjón Valde- marsson og Sjöfn Ásbjörnsdóttir sem leika hjónin, Anna Lea Björnsdóttir, Guðmundur Sig- urðsson og Valgerður Björnsdóttir sem leika börn þeirra, hið yngsta 16 ára, en einnig koma fram í sýningunni Guðmundur Finnsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. Eins og áður sagði verður frum- sýning á leikritinu föstudaginn 18. janúar, 2. sýning laugardaginn 19. janúar og 3. sýning þriðjudaginn 22. janúar kl. 21.00 í Héraðsheim- ilinu að Varmalandi. (Fréttatilkynning) Leikararnir í FJÖLSKYLDUNNI, sem frumsýnd verður á föstudag- inn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.