Morgunblaðið - 22.01.1980, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 22.01.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1980 7 Krónprins komma- kjarnans Jón Baldvin segír í leiö- ara Alþýóublaösins á laugardag: „Gamli kommakjarninn f Alþýðu- bandalaginu viröist þó ekki geta unnt Ragnari (Arnalds) þessa hlut- skiptis (að leiða stjórnar- myndunarviðræöur). Krónprins gamla kjarn- ans er Svavar Gestsson. Tillaga um að Svavar Gestsson stýrði stjórnar- myndunarviðræöum af hálfu Alþýðubandalags- ins klauf þingflokkinn f tvennt. Þrátt fyrir endur- teknar atkvæðagreiöslur skildu þeir Ragnar og Svavar jafnir... Svavar Gestsson er því tilvon- andi forsætisráðherra islendinga samkvæmt hlutkesti." Víst getum viö, segja kratar Síðar víkur Jón Baldvin að skrifum Mbl., þar sem tvenns konar rök eru færð gegn því, að lýð- ræðisflokkar taki sæti í ríkisstjórn undir forsæti kommúnista: 1) Að Al- þýðubandalagið stefni að afnámi borgaralegs þjóð- fólags lýðræðis og þing- ræðis. 2) Að ekki sé við hæfi að forsætisráðherra hafi gagnstæöar skoðanir við meirihluta þjóðarinn- ar og væntanlega sam- starfsflokka í utanríkis- og öryggismálum. Um þetta segir ritstjóri Alþýðublaðsins: „Af þessu tilefni er rétt að taka það skýrt fram, að Mbl. talaði ekki í umboði Alþýðuflokksins". Síðan segir hann efnis- lega, að Alþýðuflokkurinn sé ekki andvígur for- sætisráðherraefni á þeirri forsendu að hann sé Alþýðubandalagsmaður, heldur komi slíkt því að- eins til, aö skoðanir nái ekki saman. Þetta segir ritstjórinn vitandi um stefnu Alþýðubandalags- ins í öryggismálum og endanlegt markmið þeirra um breytta þjóð- félagsgerð. Eðlilegt er að menn staldri við slík orð og hugleiði hvað við er átt. Smámál og afsökun Svavar Gestsson kom á sjónvarpsskjá um helg- ina og ræddi stöðu og líkur í stjórnarmyndunar- viðræöum. Hann fjaliaöi nær einvörðungu um efnahagstillögur Alþýðu- bandalagsins en sté á önnur stefnumál. Frétta- maður spurði hann, hvort ekki væri ágreiningur um utanríkismál og hver yröi forsætisráðherra. Það eru smámál, sagði Svavar, og gaf í skyn, að efnahags- málin væru möndullinn, hitt algjör aukaatriði. Skömmu síðar í sama fréttatíma kom eins kon- ar leiðrétting frá Svavari, þar sem sagði m.a., að víst hefði Alþýðubanda- lagið reifaö önnur mál í stjórnarmyndunarvið- ræðum, ekki sízt „her- stöðvamálið“. Þá kvikn- uðu skammdegisbros. Framangreind við- brögð, bæði Svavars og ritstjóra Alþýðublaðsins, minna óneitanlega á póli- tíska „akróbatík", en íþróttir koma nú mjög inn á pólitískar bylgjulengdir vegna innrásarinnar í Afganistan og væntan- legra Olympíuleika í Moskvu. Máske Svavar leiði nýja vinstri stjórn til pólitískra loftfimleika á skoðanalegum heima- vettvangi innan tíðar? En til hvers „sprengdu“ þá Kratarnir í haustskugg- um? Samstaöa lýöræöis- flokkanna Á laugardaginn efndi Varöberg, félag ungra áhugamanna um vest- ræna samvinnu, til fund- ar undir heitinu ísland og Afganistan. Þar samein- uðust fulltrúar íslensku lýðræðisflokkanna Sjálf- stæöisflokks Alþýöu- flokks og Framsóknar- flokks um kröftuga and- úð á hernámi Sovétríkj- anna og litu til þess, hvaða lærdóm íslending- ar mættu af því draga. Eiður Guðnason alþingis- maður sagði, aö þessir hörmulegu atburðir sönnuðu betur en áður nauðsyn þess, að ísland væri aðili að Atlantshafs- bandalaginu og ekki væri hvikað frá þeirri utan- ríkisstefnu, sem fylgt hefði verið á lýðveldis- tímanum. Hörður Einars- son ritstjóri Vísis sagði, að þaö fælist í yfirgangs- stefnu kommúnismans að bíða aðeins færis til að láta til skarar skríða, hvar sem möguleiki væri tal- inn á því að geta komist til áhrifa og valda. Þess- ari staðreynd mættu íslendingar ekki gleyma á þeim óvissu tímum, sem nú ríktu. Og Jón Sigurðsson ritstjóri Tím- ans benti á, að ísland væri í raun ekki annað en sker í hafnarmynni Sovétríkjanna, þegar litið væri á ferðir sovéska flotans um Norður- Atlantshaf. Kremlverjar gætu þvi talið sig hafa jafn mikilla hagsmuna að gæta hér á landi og í Afganistan ef ekki meiri. VARAHLUTAMIÐSTÖÐ 1 BELGÍU Áður en þið festið kaup á japönskum bílum, þá spyrjið um varahlutamiðstöð fyrir ísland, því leiðin frá Japan er löng og ströng ef þið lendið í óhöppum. SMIDSHÖFDA 23 simar: 81264 og 81299 BÍLABORG HF LJOÐALESTUR í Norræna húsinu Finnsk-sænska leikkonan May Pihlgren les upp Ijóö eftir Edith Södergran, Elmer Diktonius, Solveig v. Schoultz, Lars Huldén og Per-Hakon Páwals, þriðju- daginn 22. janúar kl. 20:30. Veriö velkomin. NORRíNA HÖSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS VÖTIAT LAUGALÆK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.