Morgunblaðið - 22.01.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980
21
Jon setti
íslandsmet
„ÞAÐ er greinilegt að það er
kraftur í Jóni og þetta er góð
byrjun á Ólvmpíuárinu hjá hon-
um,“ sagði Ölafur Unnsteinsson
í gær er hann færði okkur þær
fregnir að Jón Diðriksson
UMSB hefði nýverið sett nýtt
tslandsmet í 3.000 metra hlaupi
innanhúss á móti í Vestur-
Þýzkalandi, en þar í landi
stundar Jón æfingar og nám.
Jón hljóp á 8:13,8 minútum
og bætti fyrra metið úr 8:26.0
minútum, en það setti Ágúst
Ásgeirsson ÍR í Gautaborg í
marz 1975. Jón hélt uppi hrað-
anum í hlaupinu og fór nokkuð
greitt. Fyrsta kílómetrann
hljóp hann á 2:42 mínútum og
fram hjá 2.000 metrum fór
hann á 5:25 mínútum, en undir
lokin dró af honum og hraðinn
minnkaði. Sagði Ólafur að Jón
stefndi að því að gera betur á
móti í Dortmund í lok janúar og
takmarkið væri að sigrast þá á
átta mínútna múrnum.
ágás.
Hörður Hilmarsson
fær tilboð frá AIK
Ætlar að dveljast í vikutíma
hjá félaginu og kynna sér aöstæður
Hörður Hilmarsson knatt-
spyrnumaðurinn sterki í Val,
hefur fengið boð um að koma og
dveljast í vikutíma hjá sænska
félaginu AIK sem leikur í 2.
deildinni sænsku. AIK sem er
frá Stokkhólmi féll niður
siðasta keppnistímabil og hefur
nú i hyggju að rífa sig upp af
miklum krafti og er að leita sér
að leikmönnum. Hörður Hilm-
arsson sagði í stuttu spjalli við
Mbl. að hann færi út til
Svíðþjóðar næstkomandi föstu-
dag með félögum sínum í Val til
þess að taka þátt í Evrópumeist-
arakeppninni í handknattleik.
En eins og kunnugt er leikur
Hörður einnig með mfl. Vals i
handknattleik.
— Ég mun svo verða eftir í
Svíþjóð og dvelja í eina viku hjá
félaginu til þess að kynna mér
aðstæður og tilboð það sem þeir
hafa gert mér. Ég gæti vel
hugsað mér að leika erlendis i
eitt til tvö ár, sagði Hörður, en
bætti um leið við að allt væri
enn óákveðið í þessum efnum,
að mörgu þyrfti að hyggja áður
en skrifað væri undir samning.
- Þr.
Armann sigraði
á Miillersmótinu
SVEIT Ármanns bar sigur úr
býtum á fimmtánda Mtillers-
mótinu á skiðum sem fram fór i
Hveradölum um helgina. Sigur-
sveitina skipa Tryggvi Þor-
steinsson, Kristinn Sigurðsson,
Ilelgi Geirharðsson og Halldóra
Björnsdóttir, en sveitin fékk
samanlagða timann 268,7.
Fimm sveitir mættu til leiks,
en tvær, sveitir UBK og KR,
voru dæmdar úr leik. Sveit ÍR
hafnaði í öðru sæti, en hana
skipa Guðmundur Gunnlaugs-
son, Örnólfur Valdimarsson,
Jónas Valdimarsson og Hjörtur
Hjartarson. Loks hafnaði sveit
Víkings í þriðja sætinu, en
sveitina skipa Þórður Björns-
son, Samúel Þórisson, Gunnar
Ólafsson og Þórður Hjörleifs-
son.
Aðstæður voru erfiðar, harð-
fenni. Nokkur gola var meðan
mótið fór fram og 3—5 stiga
frost. Illiðin voru 35 talsins og
fallhæðin 150 mctrar.
• Stjórn KSÍ var endurkjörin á ársþinginu um helgina, lengst til hægri er Ellert B. Schram formaður
KSÍ, þá Friðjón Friðjónsson gjaldkeri KSÍ síðustu 8 árin, Jens Sumarliðason og Árni Þ. Þorgrímsson.
(Ljósm. Mbl. RAX). Sjá þing KSÍ á bls 27.
Hið opinbera græddi
10 milljónir á KSÍ
Brottför landsliðsþjálfarans hvorki að ósk KSÍ né
hans sjálfs, sagði Ellert Schram í ræðu á ársþinginu
MÁLEFNI landsliðsins voru
meðal þess, sem Ellert B.
Schram drap á í ræðu sinni á
KSÍ-þinginu á laugardag. Sagði
hann þá meðal annars:
„Enn hefur ekki verið gengið
frá þjálfaramálum fyrir lands-
liðið, en ljóst er að Sovétmaður-
inn Juri Ilitschev verður ekki
með okkur á næsta ári. Þessi
ágæti þjálfari og mikli íslands-
vinur hefur reynst knattspyrnu-
íþróttinni hér á landi drjúgur
liðsmaður. Við erum þakklátir
honum og sendum honum okkar
beztu kveðjur. Það er söknuður
meðal okkar við brottför hans og
þótt bæði hann og KSÍ hafi ekki
óskað eftir þeirri þróun mála,
sem orðið hefur, verður ekki við
það ráðið þegar menn eru ekki
frjálsir ferða sinna. Þetta skilj-
um við ekki alltaf íslendingar,
en mættum þó vera þess minn-
ugir á stundum að frelsið er það
dýrmætasta, sem við eigum.
Óþarfi er að halda því leyndu,
að framkvæmdastjórn KSÍ hefur
leitað hófanna hjá Guðna Kjart-
anssyni, margreyndum lands-
liðsmanni og viðurkenndum
þjálfara, að hann taki að sér
þjálfun landsliðsins, og raunar
er aðeins eftir að undirskrifa
samninga, sem af eðlilegum
ástæðum hefur verið dregið þar
til ný stjórn hefur tekið við. Sú
ráðning yrði jafnframt hugsuð
sem þáttur í frekari uppbygg-
ingu í fræðslu- og unglinga-
starfi."
Ellert vék í ræðu sinni nokkuð
að fjármálum sambandsins og
kom fram hjá honum að velta
sambandsins var um 122 millj-
ónir króna, aðsókn að leikjum í
1. deild jókst um 35% eða úr 65
þúsund manns í 84 þúsund.
Unglingastarfið hefur aldrei
verið jafn blómlegt og á síðasta
starfsári en til þess eins var
varið um 20 milljónum króna.
Síðar í ræðu sinni sagði formað-
urinn:
„Ef reikningar KSÍ eru skoð-
aðir, kemur í ljós, að af 122
milljón króna veltu nema styrkir
frá hinu opinbera 3,6 milljónum
króna og á sama tíma og íþrótta-
hreyfingin berst í bökkum fjár-
hagslega, greiðir KSÍ á síðasta
ári vegna fjögurra landsleikja,
13 milljónir króna í vallarleigu.
Með öðrum orðum. Ríki og
Reykjavíkurborg hafa 10 milljón
króna hagnað af starfi KSÍ einu
sér, á sama tíma og sífellt verður
erfiðara að láta enda ná saman."
Kist þrengir
að Petri
• Pétur Pétursson var
enn á skotskónum fyrir
lið sitt Feyenoord um
helgina, er Nec Nijmegen
var lagt að velli. Skoraði
Pétur sigurmarkið og
hefur þá skorað 18 mörk
í hollensku deildarkeppn-
inni. Hann er þar mark-
hæstur, en Kees Kist hjá
Alkmaar skoraði þrennu
og hefur skorað 14 mörk
á keppnistímabilinu. Allt
getur því gerst enn.
PÉTUR Pétursson bætti
átjánda marki sínu i hollensku
deildarkeppninni við, er hann
skoraði sigurmarkið íyrir
Feyenoord gegn Nec Nijmegen.
Rene Notten skoraði fyrra
mark Feyenoord, en Albert
Helsper svaraði fyrir Nec. Pét-
ur er sem fyrr markhæsti leik-
maðurinn i hollensku deildinni,
en Kees Kist sækir nú fast að
honum eftir að hafa skorað
þrennu fyrir lið sitt AZ’67
Alkmaar. Kist hefur nú skorað
14 mörk. Alkmaar vann stórsig-
ur gegn MVV Maastricht.
Fjórða og fimmta mark liðsins
skoruðu Jan De Graaf og Peter
Tol, en Leo Keerstegens skoraði
eina mark MVV.
Úrslit leikja í Hollandi urðu
AZ’67 Alkm. - MVV Maas. 5-1
Nac Breda — Ajax 0—1
Willem 11 — Tvente 1—0
Roda JC — Pec Zwolle 2—1
Feyenoord — Nec Nijmegen 2—1
FC Utrecht - PSV Eindh. 2-1
Haarlem — Den Haag 1—1
Vitesse Arnhem — Sparta 2—1
GAE Deventer — Excelsior 0—2
Ajax var heppið að sigra Nac
Breda, sem sótti látlaust allan
leikinn. Hvað eftir annað sluppu
leikmenn liðsins með skrekkinn
og síðan þegar aðeins tíu mínút-
ur voru til leiksloka skoraði
Martin Val Geel ódýrt mark sem
reyndist vera sigurmark Ajax.
Tap PSV Eindhoven kom á
óvart, en Utrecht hefur hins
vegar staðið sig betur en áður
það sem af er þessu keppnistí-
mabili. Markvörður liðsins,
Hans Van Breukelen var þó sá
sem mest kvað að, en hann varði
hvað eftir annað af mikilli
snilld. Leo Van Veen og Ton De
Kruik skoruðu mörk Utrecht, en
Mic E1 Valke svaraði fyrir PSV.
Staðan í deildinni er nú
þessi:
Ajax 19 15 2 2751- -19
Feyenoord 19 10 8 1 38- -15
AZ’67 Almaar 18 11 4 3 37- -17
PSV Eindhoven 19 8 6 5 36- -24
FC Utrecht 19 8 6 5 27- -23
Roda JC 19 9 3 7 28- -26
Excelsior 19 8 5 6 33- -34
FC Den Haag 18 6 7 5 22- -23
FC Twente 19 7 5 7 23- -27
Go Ahead Eagles 18 7 4 7 29- -24
Willem II 19 5 7 7 22- -37
MVV Maastricht 19 :l 91 7 24- -30
Pec ZwoIIe 19 5 5 9 20- -26
Vitesse 19 4 G 9 22- -35
Sparta 18 5 3 10 24- -30
Haarlem 19 3 7 9 21- -37
Nec Nijmegen 18 5 2 11 19- -30
Nac Breda 18 2 5 11 12- -32