Morgunblaðið - 22.01.1980, Side 22

Morgunblaðið - 22.01.1980, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 Eftir 20 mínútna leik var staðan 1—1, og í hálfleik var staðan 5—6 ÞEIM gekk ekki vel að íinna leiðina í markið leikmönnum Aftureldingar og Þórs írá Vest- mannaeyjum er liðin mættust í íslandsmótinu i handknattlcik í 2. deildinni á laugardag að Varmá í Mosfellssveit. Þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 1 — 1, já 1 — 1 í meist- araflokki í handknattleik. Og þcgar 25 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleiknum var staðan 3— 2 og tvö af þessum fimm mörkum voru skoruð úr vítaköstum. Stað- an í hálfleik var svo aftur 6—5 fyrir Eyja-Þór. Markvarsla beggja liða var góð i fyrri hálfleiknum svo og varnarleikur- inn, eins og markatalan bendir til. Leiknum lauk hins vcgar með sigri Aftureldingar sem er nú komin í baráttusætið í 2. deild og á liðið góða möguleika í deildinni ef svo heldur sem horfir. Þjálfari liðsins, Pétur Jóhannsson hefur gert með það góða hluti, og er liðið sterkara og nær betri ár- angri en nokkur þorði að vona. UMFA — 10-17 Þór Ve lUi I I Liði Þórs frá Vestmannaeyjum gengur hins vegar afar illa að ná sér í stig. Liðið er skipað góðum einstaklingum og það hefur frá- bæran markvörð, Sigmar Þröst, en það er eins og að hinn rétti taktur í leik liðsins láti standa á sér. Liðið er nú sem stendur neðst í 2. deild og er í mikilli fallhættu ef það tekur ekki á honum stóra sínum í síðari hlutanum í mótinu. Fyrri hálfleikur að Varmá var afar jafn og mátti ekki á milli sjá hvort liðið lék betur. Nokkur harka var í leiknum allan tímann og áður en leiknum lauk hafði átta leikmönnum verið vísað af leik- velli. Þegar síðari hálfleikur var hálfnaður var staðan 13—12 fyrir lið UMFA og með góðum leik síðasta korterið tókst þeim að síga fram úr og sigra nokkuð örugg- lega. Lokakaflann varði Emil mark- vörður vel, þar á meðal vítakast á örlagaríku augnabliki. Lið Aftureldingar er í stöðugri sókn, og leikur oft á tíðum mjög góðan handknattleik. Bestu menn liðsins voru að þessu sinni þeir Sigurjón og Gústaf ásamt Emil í markinu. Lárus var mjög öruggur í vítaköstunum og brást þar aldrei bogalistin. Lið Þórs frá Eyjum á að gata gert betur, það hefur á að skipa mörgum góðum leikmönnum. Þá er góð barátta í liðinu, en það er eins og meiri útsjónarsemi vanti í sóknarleikinn. Besti maður liðsins að þessu sinni var tvímælalaust Sigmar Þröstur Óskarsson mark- vörður, sem varði mjög vel. Þá var Ásmundur góður bæði í vörn og sókn. MÖRK Aftureldingar: Lárus 5 (4v), Gústaf 4, Sigurjón 5, Steinar 2, Þórður 2, Ingvar 1. MÖRK Þórs: Ragnar 5 (2v), Gúst- af 5 (2v), Ásmundur 4, Böðvar 2, Albert 1. - þr. fslandsmðtlð 2. delld J ENN versnar staða Þórs frá Vestmannaeyjum í 2. deild ís- landsmótsins í handknattleik, en á sunnudaginn mátti liðið enn þola tap. Á Þór enn eftir að hala inn fyrsta stigið. Ekki er þó öil nótt úti enn, því að næstu Iið eru ekki langt undan, t.d. nafninn frá Akureyri, sem hefur aðeins hiotið eitt stig. Eyja-Þór tapaði að þessu sinni gegn Fylki og urðu lokatölur 20—16 fyrir Árbæjar- liðið. Sýndi Þór það í leik þessum svo og að Varmá gegn UMFA á laugardaginn, að ekki er ioku fyrir það skotið að liðið hreppi stig áður en langt um líður. Þó að margt megi enn laga, lék liðið mun betur heldur en í flestum leikjum sínum á gamla árinu. Þetta var þæfingsleikur og var sóknarleikur beggja liða til- viljanakenndur. Fylkismenn virk- uðu þó sterkari aðilinn, en hristu Þór ekki af sér fyrst og fremst vegna markvörslunHar, sem var mjög góð hjá Sigmari í marki Þórs, en Jón Gunnarsson náði sér ekki á strik hjá Fylki. Er skemmst frá fyrri hálfleik að segja, að jafnt var á öllum tölum upp í 6—6 og hafði Þór meira að segja tvívegis yfir, 1—0 og 6—5. En undir lok skreið Fylkir fram úr og hafði mark yfir í hálfleik, 10—9. Þór missti Fylki tveimur mörk- um fram úr í upphafi síðari hálfleiks, en tókst síðan að jafna 13—13. Þá var komið að vendi- punktinum í leiknum. Það var einkum tvennt sem réð úrslitum. í fyrsta lagi höfðu orðið mark- varðaskipti hjá Fylki og í markið var kominn kornungur og aug- sýnilega bráðefnilegur markvörð- ur að nafni Ólafur Hilmarsson. Hann lokaði markinu á löngum köflum. Og þegar staðan var 13—13, brá stórskytta Fylkis, Gunnar Baldursson sér í framandi hlutverk, fór inn á línuna og skoraði þrjú mörk í röð og breytti stöðunni í 16—13. Lét Gunnar lítið í sér heyra í leiknum að öðru leyti. 20:16 Voru úrslitin nú ráðin, ekki síst vegna þess að Fylkismenn létu ekki staðar numið þó að Gunnar hefði þurrausið sig í bili, þeir bættu fleiri mörkum við og staðan var 19—13 þegar Þór skoraði i.oks aftur. Meðan á þessari orn iríð stóð, varði Ólafur í Fylkismarkinu m.a. tvö vítaköst. Ólafur Hilmarsson var maður þessa leiks; er þar mikið efni á ferðinni. Markvarsla hans í síðari hálfleik var þung á metunum er Fylkir seig fram úr. Aðrir leik- menn áttu misjafnan dag, flestir gerðu laglega hluti, en síðan vitleysur á milli. Magnús Sigurðs- son kom þó mjög vel frá leiknum. Hjá Þór bar Sigmar Þröstur af, en sem fyrr í vetur dugði markvarsla hans ekki til. Varnarleikur Þórs var oft í betra lagi, enda sókn Fylkis lengst af einhæf. í sókninni bar mest á samvinnu fyrrum Frammaranna Ragnars Hilmars- sonar og Gústafs Björnssonar. En þeir gerðu rúmlega sinn skammt af villum að auki. MÖRK Fylkis: Magnús 6/2, Gunn- ar 4, Einar 3, Guðni 3/1, Ragnar 2, Óskar og Hafliði 1 mark hvor. MÖRK Þórs: Ragnar 4, Gústaf 4/2, Albert 3, Karl 2, Böðvar 2/2 og Þór eitt mark. — gg- STAÐAN Staðan í 2. deild er nú þessi: Fylkir 9 6 1 2 184-161 13 Þróttur 7 5 0 2 157-146 10 UMFA 7 4 1 2 142-133 9 Ármann 8 3 2 2 191 —174 8 KA 7 3 2 2 120-125 8 Týr 5 2 1 2 99-99 5 ÞórAk. 6 1 0 5 115-128 0 ÞórVe. 6 0 0 6 105-145 0 Og markhæstu menn eru: Sigurður Sveinsson Þrótti 60 Alfreð Gíslason KA 38 Friðrik Jóhannesson Árm. 37 Lárus Halldórsson UMFA 32 Guðni Hauksson Fylki 31 Gústaf Baldvinsson UMFA 30 Páll Ólafsson þrótti 28 Steinar Tómasson UMFA 28 Ragnar Hermannsson Fylki 28 Þráinn Ásmundsson Árm. 25 Björn Jóhannsson Árm. 24 Ragnar Hilmarsson Þór Ve. 23 Sigurður Sigurðsson Þór Ak. 20 STAÐAN STAÐAN í 1. deild kvenna í handknattleik er nú þessi að loknum leikjum helgar- innar. Fram 6 6 0 0 113-64 12 KR 7 4 0 3 109-81 8 Víkingur 7 4 0 3 120-100 8 Valur 6 4 0 2 105-101 8 Haukar 7 4 0 3 99-100 8 Þór 5 2 0 3 84-85 4 FH 7 2 0 5 109-134 4 Grindavík 7 0 0 7 94 — 156 0 Knattspyrnumenn - Þjálfarar U.M.F. Víkingur, Ólafsvík óskar eftir að ráða þjálfara fyrir n.k. sumar. Nánari uppl. í símum 6199, og 6413. • Markvörður Þórs-liðsins Sigmar Þröstur Óskarsson átti mjög góða leiki með liði sínu um helgina og varði eins og berserkur. Naumur sigur Hauka yfir KR KR-STÚLKURNAR í meistara- flokki urðu að bita í það súra epli að tapa fyrir Haukum í 1. deild- inni á laugardag 11 — 10, í mjög jöfnum og spennandi leik. KR hafði náð yfirburðastöðu í fyrri hálfleiknum komst í 6 mörk gegn 1, en Haukum tókst að jafna metin áður en flautað var til hálfleiks. Jafnt var svo á öllum tölum í síðari hálfleik og jafntefli hefði verið sanngjörnustu úrslitin í leiknum. En þegar ein mínúta og 20 sekúndur eru eftir af leiknum er dæmt vítakast á KR og skoraði Margrét úr vítinu fyrir Hauka og reyndist það vera sigurmark leiks- ins. Lokamínútuna léku KR-stúlk- Haukar 9l10 urnar maður á mann en allt kom fyrir ekki, þær töpuðu tveimur dýrmætum stigum. Bestar í liði Hauka voru þær Halldóra og Margrét, en í heildina átti liðið ágætan leik. Hjá KR var Hansína atkvæðamikil svo og Karólína. — MÖRK Hauka: Margrét 5 (2 v), Halldóra 3, Kolbrún, Sesselía og Sjöfn eitt mark hver. MÖRK KR: Hansína 3, Olga 2 v, Karólína 3, Birna og Anna eitt mark hvor. - þr. Víkingar sigruðu FH: iMÆ Víkingur GÓÐUR endasprettur Víkinga færði liðinu sigur gegn FH í 1. deild íslandsmótsins í hand- knattleik kvenna, en liðin mætt- ust í Hafnarfirði á laugardaginn. Um miðjan síðari hálfleik hafði FH fjögurra marka forystu, 13— 9, en þá var úr FH-stúlkunum allur vindur og Víkingur skoraði hvert markið af öðru, 8 stykki gegn einu og sigraði Reykja- víkurliðið því 16—14, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10-8 fyrir FH. Víkingur hafði forystu upp í 2—1, en síðan ekki aftur fyrr en í lokin og lengst af benti fátt til þess að Víkingur myndi hirða bæði stigin, því að FH hafði yfirleitt 3—4 marka forystu. Varnarleikur og markvarsla var oft með ágætum í leiknum, báðir markverðirnir, Jóhanna hjá Víkingi og Álfhildur hjá FH vörðu mjög vel. En sóknarleikur beggja liða var yfirleitt í molum og féllu bæðu liðin í þá gryfju að ætla að gera allt í einum grænum. Sókn- arlotum lauk yfirleitt jafnharðan og þær hófust og oft með ótrú- legum vitleysum. Inn á milli gerðu bæði liðin síðan laglega hluti, en því miður báru vitleysurnar allt það góða ofurliði að þessu sinni. Auk markvarðanna áttu fram- bærilegan leik þær Kristjana Ara- dóttir hjá FH og Eiríka og Ingunn hjá Víkingi. MÖRK FH: Kristjana 7/4, Svan- hvít 4, Katrín 2, Ellý 1 mark. MÖRK Víkings: Ingunn 5, Eiríka 4, íris 3/1, Sigurrós 2, Sigrún og Guðrún 1 mark hvor. gg. íslandsmótið 1. deild kvenna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.