Morgunblaðið - 22.01.1980, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 22.01.1980, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 - En fjórum leikjum var frestað í 1. deild ÞAÐ GENGUR ekki allt Liver- pool í haginn þcssa dagana og eftir að hafa tapað 0—1 fyrir Coventry, hefur efsta lið 1. deildar aðeins hlotið eitt stig af síðustu 4 mögulegum. Man- chester Utd. lék ekki á laugar- daginn, leik liðsins gegn Aston Villa var frcstað. Enn skilja því tvö stig liðin að, en nú hafa þau leikið jafnmarga leiki. Arscnal sem er í þriðja sæti, er hins vegar 5 stigum á eftir Liverpool en hefur leikið tveimur leikjum meira. Það er því að sjá að baráttan um meistaratignina verði æsispennandi einvígi Liv- erpool og Manchester Utd. Það er merkilegt með Liverpool, að liðinu gengur oft mjög illa í janúarmánuði. hverju sem um er að kenna. Það gæti verið skýringin, að þá eru vellirnir hvað verstir yfirferðar. Sigurmark á 6. mínútu Fréttamenn BBC voru sam- mála um það, að Coventry átti sigurinn fyllilega skilið og það hefði jafnvel ekkí verið ósann- gjarnt þó að mörkin hefðu orðið fleiri heldur en þetta eina. Sig- urmarkið kom strax á 6. mínútu leiksins og var þar ungur nýliði að nafni Paul Dyson að verki. Skoraði hann með skalla af stuttu færi. Lundúnaliðin í ham Lundúnaliðin sem leika í 1. deild áttu góðu gengi að fagna að þessu sinni, öll unnu góða sigra. Arsenal treysti þriðja sætið með 2—0 sigri gegn einu af botnlið- unum, Derby. Leikurinn þótti þunglamalegur og lélegur, en engum blöðum var um að fletta, að mun betra liðið sigraði. Liam Brady skoraði fyrra mark Ar- senal úr víti snemma í síðari hálfleik og áður en yfir lauk hafði Willy Young bætt öðru marki við. Tottenham vann frekar óvæntan sigur á útivelli gegn Brighton sem hafði aðeins tapað einum leik af síðustu ellefu. 1. DEILD Liverpool 24 14 7 3 50-16 35 1 Manrh. U. 24 13 7 4 37-17 33 Arsenal 26 10 10 6 30- 20 30 1 Southampt. 26 12 5 9 41-31 29 I Ipswich 26 13 3 10 37- 30 29 | Nott. Forest. 25 12 4 9 38 - 31 28 1 Norwieh 25 9 10 6 38-33 28 | Crystal P. 25 9 10 6 28-25 28 | Aston Villa 23 9 9 5 29- 23 27 Leeds 0. 26 9 9 8 30-32 27 Middlesbr. 21 10 6 8 25- 22 26 Tottenh. 25 10 6 9 32-36 26 Coventry 26 12 2 12 38-43 26 Wolves 24 10 5 9 29-30 25 Manch. C. 25 9 5 11 27—10 23 Everton 25 6 10 9 30 - 32 22 1 Briiíhton 25 8 6 11 33 -38 22 WBA 24 6 8 10 32-35 20 Stoke 24 6 7 11 26-35 19 Bristol C. 26 5 8 13 20- 39 18 Derby C. 26 6 4 16 23-39 16 Bolton 24 1 9 14 16-42 11 2. DEILD Neweastle 26 14 7 5 41-28 35 Chelsea 25 15 3 7 44 - 28 33 Leicester 26 12 9 5 41-27 33 Luton T. 25 11 10 4 43-27 32 Sunderl. 26 12 6 8 41-34 30 West Ham 24 13 3 8 32- 23 29 Birminxh. 24 12 5 7 31-24 29 Wrexham 26 13 3 10 33 -28 29 QPR 25 11 5 9 45-32 27 Preston 26 7 11 8 33 - 32 25 1 Swansea 25 10 5 10 26-32 25 1 Cardiíf 26 10 5 11 25 - 32 25 1 Orient 25 8 9 8 29-38 25 | NotLs C. 26 8 8 10 35-32 24 | CantbridKe 26 6 11 9 36-36 23 1 Watford 25 6 9 10 19-26 21 BrÍHtol R. 25 7 6 12 33-41 20 Shrewsbury 26 8 3 15 33-38 19 Oldham 23 6 7 10 24 -30 19 Burnley 25 5 9 11 28 - 43 19 Charlton 25 5 7 13 23-44 17 Pulham 24 6 3 15 25-45 15 • Liverpool gegn Nottingham Forest. Félögin mætast þrívegis næstu vikuna, tvívegis í undanúrslitum deildarbikarsins og einu sinni í 4. umferð FA-bikarkeppninnar. Verður fróðlegt að sjá hvort liðið hefur betur i þessum risaviðureignum. Tottenham skoraði fljótlega tvívegis, Chris Houghton og Ric- ardo Villa, og síðan lögðust leikmenn liðsins í vörn, sem heimaliðinu tókst ekki að brjóta á bak aftur. Crystal Palace vann góðan sigur á liði Úlfanna, sem hafði mætt til leiks með góða sigra að baki. Mick Flannagan skoraði eina mark og sigurmark leiksins. Flannagan hefur lítið verið með að undanförnu vegna meiðsla. Forest að koma til Evrópuméistararnir Nott- ingham Forest eru heldur betur að taka við sér eftir ömurlegt tímabil þegar ekkert gekk í haginn. í annað sinn á skömm- um tíma sigraði liðið Leeds ;í Elland Road, síðast 4—1 í 3. umferð bikarkeppninnar •' byij- un mánaðarins og nú 2—1. Leeds náði þó forystunni í leiknum með marki blökkumannsins unga Terry Connor. Mínútu fyrir hlé tókst hins vegar Gary Birtles að jafna metin og síðan virtist stefna í jafntefli. Svo fór þó ekki og þegar 6 mínútur voru til leiksloka renndi Trevor Francis sér í gegn um vörn Leeds og skoraði sigurmarkið. Ipswich óstöðvandi Ipswich hefur unnið hvern • Liverpool-leikmaðurinn Phil Neal, fær væntanlega nóg að gera í vikunni, er lið hans mætir Forest. sigurinn af öðrum að undan- förnu og hefur uppgangur liðsins verið slíkur, að liðið hefur rokið úr 22. sæti deildarinnar í 5. sætið og er það ekkert smá afrek. Bristol City fékk Ipswich í heim- sókn og átti heimaliðið aldrei glætu. Er Bristol City nú í bullandi fallhættu. Paul Marin- er, Eric Gates og Alan Brazil skoruðu mörk Ipswich og mörkin hefðu getað orðið helmingi fleiri. Enska knatt- spyrnan Nýliðinn skoraði með fyrstu spyrnunni 18 ára nýliði hjá Southampton rak endahnútinn á stórsigur Southampton gegn Manchester City. Steve Moran, en svo heitir strákurinn, kom inn á á 85. mínútu og vart var liðin ein mínúta, er hann hafði sent knöttinn í netið hjá City af stuttu færi. Staðan var þá orðin 4—1 fyrir Southampton og sögðu fréttaþulir BBC það undur mikið að það skyldi taka Southampton 85 mínútur að skora 4 mörk, svo sundurleikið var lið City. „Mörk- in hefðu átt að vera orðin sex fyrir leikhléið" voru orð frétta- mannanna. Mick Channon gerði sínum gömlu félögum hjá City grikk á 10. mínútu, en þá skoraði hann fyrsta mark Southampton og þannig var staðan í hálfleik. Gamla kempan Alan Ball bætti öðru við á 50. mínútu, en síðan var komið að gestunum að svara fyrir sig. Paul Power minnkaði þá muninn eftir hrikaleg varn- armistök júgóslavans Ivan Gol- ac. En yfirburðir Southampton voru algerir. Dave Watson, einn- ig fyrrum leikmaður hjá City, skoraði þriðja markið með þrumuskalla á 81. mínútu og síðan bætti Steve Moran fjórða markinu við eins og áður er getið. Loks má geta frestaðra leikja í 1. deild. Everton — Stoke, Man. Utd. — Aston Villa, Norwich — Middlesbrough og WBA — Bolt- on. Newcastle á toppinn á nýjan leik Ekki staldraði Chelsea lengi við í efsta sæti 2. deildar, leik Jiðsins gegn Birmingham var frestað og Newcastle endur- heimti efsta sætið með öruggum sigri 2—0, gegn Orient. John Barton og John Connelly skor- uðu mörk liðsins. • Alan Ball skoraði eitt af mörkum Southampton í stór- sigri gegn Manchester City. Það er mikill grautur á toppi deildarinnar og munar fáum stigum hjá mörgum liðum. Leic- ester er þó sem stendur í þriðja sætinu, vann mikilvægan sigur á útivelli gegn Notts County með marki Strickland. Um aðra leiki 2. deildar er þetta að segja: Cambridge 3 (Finney, Falon og Christie) — Sunderl. 3 (Maran- goni, Brown og Cummins). Fulham 0 — QPR 2 (Waddock og Burke). Shrewsbury 1 (Dungworth) — Cardiff 2 (Buchanon og Moore). Watfor 0 — Bristol Rovers 0. West Ham 2 (Stewart og Allen) — Preston 0 Wrexham 3 (Jones, McNeil og Vinter) — Charlton 2 (Oster- gaard og Robinson). Loks fékk Liverpool skell Knatt- spyrnu- úrslit 1. deild: Arsenal—Derby 2—0 Brighton—Tottenham 0—2 Bristol City—Ipswich 0—3 Coventry—Liverpool 1—0 Cr. Palace—Wolves 1—0 Everton—Stoke fr. Leeds—Nott. Forest 1—2 Man. Utd.—Aston Villa fr. Norwich—Middlesbrough fr. South.—Man. City 4—1 WBA—Bolton fr. 3. deild: Blackpool—Southend 1—0 Blackburn—Wimbledon 3—0 Brentf.—Sheffield Wed. 2—2 Bury—Exeter 3—0 Colchester—ChesterfieldO—1 Gillingham—Carlisle 1—1 Mansfield—Barnsley fr. Millwall—Chester 3—1 Plymouth—Grimsby 1—1 REading—Oxford fr. Sheffield Utd.-Hull C. 1-1 Swindon—Rotherdam fr. 4. deild: Darlington—Hartlepool 0—1 Newport—Huddersfield 2—2 Torquai—Doncaster 2—2 Spánn: Barcelona—Almeria 2—0 Rayo Vall.—Zaragoza 0—1 Valencia—Real Betis 2—2 Bilbao—Real Madrid 3—0 Las Palmas—Salamanca 1—0 Atl. Madrid—Real Soc. 1—1 Sevilla—Hercules 2—1 Malaga—Sporting Gijon 0—3 Burgos—Espanol 0—0 Real Sociedad og Real Madrid eru efst og jöfn með 26 stig hvort félag, fyrr* nefnda liðið hefur betri markatölu. Sporting er í þriðja sætinu með 23 stig. Ítalía: Ascoli—Torina 1—0 Avellino—AC Milanó 1—0 Cagliari—Napólí 1—0 Fiorentina—Lazíó 0—0 Inter—Udinese 2—1 Juventus—Catanzarro 1—0 Perugia—Bolognia 1—1 Roma—Pescara 2—0 Það er ekki mikið skorað á Ítalíu frekar en fyrri daginn. Inter hefur nú náð afgerandi forystu, hefur 25 stig, en meistarinn frá síðasta ári og nágrannalið Inter, AC Míl- anó er í öðru sæti með 20 stig. Roma hefur hljóðlega skotið sér í þriðja sætið og hefur nú hlotið 19 stig. Belgía: Charleroi—Hasselt 2—0 Anderlecht—Berchem 3—0 FC Brugge—Molenbeek 1—2 Waterschei—C. Brugge 3—1 Waregem—Lierse 0—0 Beveren—Standard 0—0 FC Liege—Lokeren 1—0 Antwerpen—Beerschot 1—1 Beringen—Winterslag 0—2 Þrátt fyrir tvo ósigra í síðustu þremur leikjum sínum, heldur Ixikeren for- ystunni, þar aem næsta liði, FC Brugge, hetur eínnig orð- ið lítið ágengt í leikjum sínum Lokeren hefur hlotið 30 stig að loknum 20 leikjum, FC Brugge hefur 28 stig, Molenbeek hefur 27 stig og Standard hefur 26 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.