Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 30

Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 PÖKKUN IKgVERÐ IÞVNGO IVERD BRAGOSTYRKUR .MILDUR HRÁEFNI Mjolk, undánrenna AUKAEFNI Oslahleypir, salt. saltpetur NÆRtNGARGILDI 1100g er u þ b Proteín 27g Miolkurfita 26g Kalsium 0 8g Hitaeinmgar 350 UDA 45-4- W |VEM> »<5a gamali 00 I OAGSÞÖRF Prótefn 45-65g 50 I Katoum 08-1,40 m Merkingum osta breytt: Nú miðað við heildarfitumagn „BREYTINGIN er íyrst og fremst í því fólgin að ostarnir koma nú gieggra merktir í hendur neytenda, verið er að breyta forsendum fyrir efna- innihaldinu eins og gerist með aðrar matvörur,“ sagði Óskar Gunnarsson framkvæmdastjóri Osta og smjörsölunnar er Mbl. innti hann eftir þeim breyting- um sem gerðar hafa verið á pakkningum osta til neytenda. Ostar eru eina vörutegundin sem miðuð hefur verið við þurr- efnisinnihald, þ.e. fituinnihald í ostinum sjálfum. Þessar breytingar hafa farið fram í flestum nágrannalöndum okkar á undanförnum árum, t.d. Svíþjóð 1973, Kanada fyrir tveimur árum og Norðmenn eru um þessar mundir að gera breyt- inguna. Ostur sem mest er seldur á íslandi og hefur verið merktur 45+ er raunverulega 26% feitur, en ekki 45% eins og neytendur hafa yfirleitt haldið. Sá ostur sem merktur hefur verið 30+ er raunverulega 17% feitur og sá sem merktur hefur verið 20+ er raunverulega 11% feitur," sagði Óskar ennfremur. Hagstæðast að verzla í New York „STAÐREYNDIN er sú að New York er ein alhag- stæðasta borgin í dag til þess að verzla í og mjog margir farþega okkar til Flórída hafa gjarnan ein- hverja viðdvöl þar á leið heim,“ sagði Kristín Aðal- steinsdóttir hja Ferða- skrifstofunni Útsýn, er Mbl. innti hana eftir því hvort rétt væri að íslend- ingar legðu nú helzt leið sína til New York ef þeir væru í verzlunarhugleið- ingum. „Það hefur hins vegar ekki komið upp ennþá að skipulagðar hafi verið sérstakar hópferðir til New York, eins og gert hefur verið til dæmis til London. Fólk fer hins vegar ekki lengur til London til þess að verzla, heldur fer það í leikhús og þess háttar. Varðandi New York hef ég trú á því að ferðastraumurinn eigi eftir að aukast til muna á næstu mánuðum og árum,“ sagði Kristín ennfremur. Flugleiðir: Fokkervélarnar á leið frá Kóreu FOKKER ílugvélarnar fjórar, sem Flugleiðir keyptu í Kóreu eru nú á heimleið, þ.e. tvær þeirra eru væntanlegar til lands- ins á morgun, miðvikudag, en seinni tvær vélarnar leggja upp frá Kóreu 30. janúar og eru væntanlegar til Reykjavíkur 8. eða 9. febrúar. Upphaflega var áætlað að þær yrðu báðar afhentar á sama tíma og kæmust til landsins sl. helgi, en af því gat ekki orðið að sögn. Sveins Sæmundssonar blaðafull- trúa Flugleiða. Lögðu fyrri tvær vélarnar upp þann 12. og voru í gær staddar í Dubai við Araba- flóa. I síðasta áfanganum fara þær frá Luxemborg til Reykja- víkur með viðkomu í Glasgow og er ráðgert að þær lendi í Reykjavík síðdegis á morgun. Flugstjórarnir Gylfi Jónsson og Ríkharður Jónatansson fljúga vél- unum heim, en Gylfi er jafnframt leiðangursstjóri hópsins er sækir vélarnar. Snýr hann aftur til Kóreu frá Luxemborg til að sækja hinar vélarnar en annar flugstjóri tekur við af honum í Luxemborg. Auk flugmanna er einn vélamaður í hverri vél. Vélarnar fljúga heim með talsvert magn varahluta og varahreyfla. Fokker vélarnar, sem koma til landsins á morgun bera einkenn- isstafina TF—FLS og FLT og hafa þær verið seldar Finnair. Verður sett nýtt mælaborð í þær hér áður en þær verða afhentar Finnum og er gert ráð fyrir að finnskir flugliðar komi hingað til þjálfunar og taki vélarnar til Finnlands. Vélarnar sem Flugleiðir koma til með að eiga bera einkennisstafina FLR og FLO og þarf einnig að gera nokkrar breytingar á þeim og mála og kvaðst Sveinn Sæmunds- son ekki vita hvort þær færu strax í áætlunarflugið hér innanlands eða hvort ráðist yrði í breyt- ingarnar fyrst. Önnur vélin tekur 56 manns í sæti, þ.e. er nokkru lengri en fyrri Fokker vélar Flug- leiða, sem taka 48 farþega og kvaðst Sveinn gera ráð fyrir að hún yrði einkum notuð á Akureyr- arleiðinni. 98.543 atvinnuleysis- dagar á síðasta ári Atvinnuseysisdagar voru samtals 98.543 á landinu á s.l. ári, þar af langflestir ír Reykjavík, eða 30.643. í lok ársins voru alls 797 atvinnulaus- ir á landinu, þar af 156 í Reykjavík og á Ilúsavík. Á átta stöðum á landinu voru atvinnuleysisdagar yfir 3000 á s.I. ári auk Reykjavíkur. Á Akureyri 7507. Húsavík 6561, Hafn- arfirði 5805, Siglufirði 4807, Keflavík 3946, Sauð- árkróki 3537 og í Bakka- gerði 3203. í lok ársins voru flestir atvinnu- lausir í Reykjavík og á Húsavík eins og áður sagði, en auk þessara tveggja staða voru atvinnulausir í Hafnarfirði 52, Vopnafirði 51, Djúpavogi 25, Stokkseyri 22, Kópáskeri 22, Selfossi 17, Rauf- arhöfn 16, Bakkagerði 16, Þórs- höfn 13, Drangsnesi 13, Kópavogi 13, Hvolshreppi 12, Seyðisfirði 10, Rangárvallahreppi 8, Bakkafirði 7, Njarðvík 7, Neskaupstað 7, Blönduósi 6, Árskógshreppi 6, Hofsósi 4, Dalvík 3, Vestmanna- eyjum 3, Egilsstöðum 3, Djúpár- hreppi 3, Akranesi 2, Þorlákshöfn 2, Hvammstanga 2, Skagaströnd 2. Eskifjörður: Ibúðarhús eyði- lagðist í eldsvoða Líffræðifélag íslands stofnað Líffræðistofnun Háskól- ans gekkst fyrir ráðstefnu íslenzkra líffræðinga 9.— 10. des. sl. Tilgangurinn með ráðstefnuhaldinu var að veita innsýn í þær rannsóknir á sviði líffræði, sem eru stundað- ar hérlendis. Mjög margar rannsóknastofnanir hér á landi stunda rannsóknir í einhverjum greinum líf- fræðinnar og á ráðstefn- unni mætti íólk frá 14 stofnunum til að halda fyrirlestra um rannsóknir sínar. Haldin voru 35 er- indi, sem snertu flestar greinar lífíræði. Á ráðstefnunni var stofnað Líffræðifélag íslands. Tilgangur þess er að efla þekkingu í líffræði, m.a. með því að auka samskipti hinna fjölmörgu aðila sem stunda líffræðirannsóknir hér á landi, en einnig að auðvelda tengsl ís- lenzkra líffræðinga við erlenda aðila með svipuð áhugamál. Líf- fræðifélagið hefur þegar skipulagt röð fyrirlestra um líffræði og eru þeir auglýstir í fréttabréfi félags- ins. Fyrirlestrarnir eru haldnir kl. 20.30 annan þriðjudag hvers mán- aðar í stofu 158 í húsi Verkfræði- og raunvísindadeildar Háskólans, Hjarðarhaga 2—4. ^Eskifirði, 21. janúar. Á sjötta tímanum í morg- un kom upp eldur í ibúð- arhúsinu við Réttarstíg 3b á Eskifirði. Slökkvilið bæj- arins kom fljótlcga á vettvang og var þá allmik- ill eldur logandi í húsinu, logaði m.a. út um glugga og ris. Gekk vel að slökkva eldinn Leiðrétting Myndirnar af Jóni Þorlákssyni, Ólafi Thors og dr. Magnúsi Jóns- syni, sem birtust með grein Hann- esar Gissurarsonar, „Frjálshyggj- an sameinaði sjálfstæðismenn", í blaðinu sl. laugardag, eru teknar úr bók Agnars Kl. Jónssonar, „Stjórnarráð Islands". Mynda- textarnir eru á hinn bóginn ekki þaðan teknir, heldur eru þeir frá höfundi greinarinnar. og var því lokið á sjöunda tímanum, en húsið sem er lítið steinhús með risi skemmdist mjög mikið bæði utan og innan, en það var timburklætt að innan. Er það með öllu óíbúðarhæft. Gamall maður, Tryggvi Eiríksson, er eigandi hússins og var hann vaknaður þegar eldurinn kom upp. Hann komst í næsta hús og gat gert viðvart. Sem fyrr segir er húsið mjög mikið skemmt og tjón gamla mannsins því mjög mikið. — Ævar. Ein sala ytra SUÐUREY frá Vestmannaeyjum seldi afla sinn í Englandi í gær, fyrir 43,5 lestir fengust um* 20 milljónir króna. Ingi Hrafn sýnir 28 vatnslitamyndir INGI Hrafn Hauksson myndlist- armaður opnaði í gærdag sýn- ingu í Studío 5 við Skólastræti 5 á 28 vatnslitamyndum, sem hann málaði allar á síðasta ári. Allar myndirnar eru til sölu. Ingi hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlend- is auk þess sem hann hefur haldið sjö einkasýningar, síðast í apríl á s.l. ári þegar hann sýndi skúlptúr. Sýning Inga stendur ti! 3. febrúar n.k. og er opin frá klukkan 16.00 til 22.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.