Morgunblaðið - 22.01.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980
31
5.
Til Aflatryggingasjóðs
a) Almenn deild2) ............ 3 234
b) Aflajöfnunardeild ......... —
c) Áhafnadeild ............... 3 822
Til Tryggingasjóðs fiskiskipa og
til úreldingarstyrkja til eigenda
fiskiskipa, skv. reglum sem
sjávarútvegsráðuneytið setur
a) Til greiðslu á hluta af vá-
tryggingarkostnaði fiskiskipa 3 969
b) Til úreldingarstyrkja til eig-
enda fiskiskipa ................. —
Til Fiskveiðasjóðs íslands og
Fiskimálasjóðs
a) Til Fiskveiðasjóðs ........ 3 087
b) Til Fiskimálasjóðs ............ 132
Til sjávarrannsókna og Fram-
leiðslueftirlits sjávarafurða skv.
reglum, sem sjávarútvegsráðu-
neytið setur ..................... 338
Til Landssambands íslenskra út-
vegsmanna ......................... 59
Til samtaka sjómanna .............. 59
Samtals 14 700
2 450
122
61
61
81
81
12 250
13 475
1) Miðað er við verðlag i lok ársins 1979 og að gjaldstofn útfluttra sjávarafurða nemi 245
niilljörðum króna. Hér eru einungis sýndar áætlanir um tekjur af útflutningsgjaldi en auk
þess hafa sjóðirnir tekjur af eignum svo og fá Fiskveiðasjóður og almenna detld Aflatrygg-
ingasjóðs mótframlag úr ríkissjóði. .
2) Við tekjur almennu deildarinnar af útflutningsgjaldi, sem her eru syndar, bætist móttramlag
úr ríkissjóði, sem skv. núgildandi lögum nemur fjórðungi tekna hennar af útflutnmgsgjaldi,
en skv. frv. um breyting á lögum um Aflatryggingasjóð, sem lagt er fram samhliða þessu
frumvarpi hækkaði mótframlagið í 40% útfiutningsgjaldsteknanna.
Útflutningsgjald og aflajöfnunardeild:
Yeiðistýring um
verðuppbætur
Frumvörp til auðveldunar fiskverðsákvörðunar
Frumvarp um olíugjald væntanlegt í vikunni
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA lagði fram í gær tvö
stjórnarfrumvörp, sem tengjast væntanlegri ákvörð-
un um fiskverð, sem gert er ráð fyrir að tekin verði
um eða upp úr miðri þessari viku: frumvarp til laga
um breytingu á Aflatryggingarsjóði sjávarútvegsins
um frumvarp til laga um 5,5% útflutningsgjald af
sjávarafurðum. Frumvarp til laga um olíugjald er og
væntanlegt næstu daga
ákvörðun.
Af latryggi ngar sj óður /
Aflajöfnunardeild
Frumvarp þetta er flutt til
þess að „marka skýran farveg
fyrir greiðslu verðuppbóta á
einstakar fisktegundir í því
skyni að beina sókn fiskiskipa-
flotans frá einstökum fiskteg-
undum að öðrum, sem fremur
eru taldar þola veiðar," segir í
athugasemdum með frumvarp-
inu. „Frumvarpið er ennfremur
flutt í því skyni að greiða fyrir
ákvörðun fiskverðs frá 1. janúar
1980,“ segir og þar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
Aflatryggingarsjóður skiptist í
þrjár deildir: 1) Almenna deild,
2) áhafnadeild og 3) aflajöfnun-
ardeild. Hér er annars vegar um
beina skipulagsbreytingu að
ræða, þar sem er sameining
tengslum við fiskverðs-
almennu deilda báta- og togara-
flotans. Hins vegar er hér lagt
til að stofnuð verði ný deild við
sjóðinn, aflajöfnunardeild.
Aflajöfnunardeild fær tekjur af
útflutningsgjaldi og eignum
deildarinnar. Verðlagsráð sjáv-
arútvegsins eða yfirnefnd þess
skal fyrir upphaf hvers verð-
tímabils gera tillögur um fjár-
hæð aflajöfnunarbóta á einstak-
ar fisktegundir að fengnu áliti
Hafrannsóknastofnunar á
ástandi nytjafiska og aflahorf-
um. Sjávarútvegsráðherra þarf
að staðfesta ákvarðanir hér að
lútandi. Hann setur og nánari
reglur um framkvæmd verðbót-
anna.
Útflutningsgj ald
af sjávarafurðum
Um sl. áramót féllu úr gildi
lög um 5% útflutningsgjald af
sjávarafurðum. Þá komu aftur í
gildi eldri ákvæði um 6% út-
flutningsgjald. Frumvarp þetta
gerir hins vegar ráð fyrir 5,5%
útflutningsgjaldi af f.o.b.
-verðmæti sjávarafurða, þ.e.
Vi% lækkun frá gildandi lögum
(en Vi% hækkun frá lögum er
giltu á liðnu ári).
Tilgangur frumvarpsins er
þríþættur að því er kemur fram í
athugasemdum með því:
•1) Að auðvelda fiskvinnslunni
að greiða olíugjald til fiskiskipa
(með lækkun útflutningsgjalds).
•2) Að afla tekna til aflajöfnun-
ardeildar Aflatryggingarsjóðs
(til að gera henni kleift að
standa undir greiðslu verðbóta á
afla af einstökum fisktegund-
um).
•3) í þriðja lagi er nú ætlað
sérstaklega fé af útflutnings-
gjaldi til úreldingarstyrkja til
eigenda fiskiskipa (til að létta
þeim að taka úr umferð óhentug
skip úr rekstri).
Meðfylgjandi er tafla er sýnir
áætlanir um tekjur sjóða sjávar-
útvegsins af útflutningsgjaldi og
fjárþörf á árinu 1980.
Þingfréttir í stuttu máli
Staðfestingar Alþingis leitað:
Bráðabirgða-
lög gegn far-
mannaverkfalli
— Búvara, húsnæði og fuglafriðun
Óverðtryggð búvara
I gær var fram haldið í neðri
deild umræðu um frumvarp 9
sjálfstæðismanna um 3ja millj-
arða króna lán til að bæta bænd-
um að nokkru halla af
óverðtryggðum útflutningi bú-
vöru, er greitt verði niður úr
Byggðasjóði á næstu þremur árum
með jöfnum fjárhæðum.
Pálmi Jónsson (S) taldi að
sjálfstæðismenn hefðu verið til
viðræðu um lausn af þessu tagi
allar götur síðan þessi vandi var
séður, en framsóknarmenn hefðu
komið í veg fyrir að mál yrðu leyst
á þessum forsendum þegar í
haust. Miklar umræður urðu um
þetta mál í deildinni, sem snerust
upp í almennar umræður um
landbúnað.
Á dagskrá deildarinnar voru 7
mál, en önnur komu ekki til
umræðu.
Húsnæðisfrumvarpið
til þingnefndar
I efri deild Alþingis voru eftir-
talin 7 mál afgreidd til 2. umræðu
og viðkomandi þingnefnda:
• 1) Stjórnarfrumvarp um Hús-
næðismálastofnun ríkisins,
sem gerð hefur verið grein
fyrir hér á þingsíðu Mbí.
• 2) Frumvarp um staðfestingu
bráðabirgðalaga vinstri
stjórnar „um stöðvun verk-
falls á farskipum og verk-
bannsaðgerða V.í.“ frá því í
október 1979.
• 3) Stjórnarfrumvarp til laga
um fuglaveiðar og fuglafrið-
un, sem nú er flutt í fjórða
sinn. Frumvarpið er í 6
köflum: 1) Um veiðirétt og
stjórn friðunar- og veiði-
mála, 2) Friðunarákvæði og
veiðitímar, 3) Um fugla-
veiðisamþykktir, 4) Um
veiðitækni og veiðiaðferðir,
5) Um inn- og útflutning,
kaup og sölu fugla og 6)
Refsiákvæði og réttarfar.
Vilmundur Gylfason mennta-
málaráðherra mælti fyrir frum-
varpinu. Stefán Jónsson (Abl)
gagnrýndi frumvarpið harðlega,
taldi það ofsókn á hendur tiltekn-
um fuglategundum og sneiða að
hagsmunum annarra þegna en
þeirra, sem hagsmuni hafa af
æðarvarpi. í frumvarpið vantaði
og nánari ákvæði um veiðirétt.
• 4) Þrjú frumvörp er fjalla um
breytingar á almennum
hegningarlögum: 1) til stað-
festingar á Evrópusamningi
um varnir gegn hryðjuverk-
um, 2) um hækkun hámaiks
fésekta í 30 m. kr., 3) um
fyrningar sakar (öll brot
séðu háð fyrningu nema þau
er ævilangt fangelsi liggur
við — og fyrningarákvæði
rýmkuð); og um líkamsárás-
ir og líkamsmeiðingar.
Iðnþróunarfélag
Skagafjarðar stofnað
STOFNFUNDUR Iðnþróunarfé-
lags Skagafjarðar var haldinn
14. desember s.l. Félagið er sam-
eignarfélag með heimili og varn-
arþingi á Sauðárkróki en starfs-
svæði þess er Skagaf jarðarhérað.
Stofnaðilar félagsins eru: Skaga-
fjarðarsýsla, Sauðárkrókskaup-
staður og Búnaðarsamband
Skagafjarðar.
Markmið Iðnþróunarfélags
Skagafjarðar er að efla iðnað og
styðja framtak einstaklinga og
fyrirtækja í héraðinu öllu.
Stjórn félagsins skipa: Jón Guð-
mundsson Oslandi, formaður,
Egill Bjarnason, Sauðárkróki,
varaformaður, Pálmi Jónsson,
Sauðárkróki, gjaldkeri og Guðrún
L. Ásgeirsdóttir, Mælifelli, ritari.
Rauðsokkahreyfingin:
Æ'
Atelur seinagang
borgaryfirvalda
Á FUNDI i Rauðsokkahreyfing-
unni 17. jan. s.l. var samþykkt
samhljóða eftirfarandi ályktun:
„Ársfjórðungsfundur Rauð-
sokkahreyfingarinnar, haldinn 17.
janúar 1980, átelur harðlega
seinagang borgaryfirvalda varð-
andi kaup á fasteigninni Holts-
gata 7b, til nota fyrir dagvistar-
stofnun.
Fundurinn skorar á borgarráð
að ganga nú þegar frá húskaupun-
um og hraða sem mest opnun
dagheimilis, sem brýn þörf er
fyrir eins og alkunnugt er.“
FUF fordæmir innrás Sovét-
ríkjanna í Afganistan
EFTIRFARANDI tilkynning
barst frá Félagi ungra framsókn-
armanna í Reykjavík:
„Aðalfundur Félags ungra
framsóknarmanna í Reykjavík,
haldinn 12. janúar 1980, fordæmir
harðlega innrás Sovétríkjanna í
Afganistan og varar við yfir-
gangsstefnu stórveldanna. Krefst
fundurinn þess að herir Sovétríkj-
anna verði samstundis dregnir til
baka.“