Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 34

Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 Birgir G. Albertsson: Ferðalög útlendinga á Hornströndum Lastaranum likar ei neitt lætur hann ttanxa róginn. Finni hann laufhlaó fólnaó eitt t>á fnrda mir hann skóginn. Stgr. Th. Þessi orð gætu vel náð yfir þau blaðaskrif, sem átt hafa sér stað s.l. haust vegna hópferða Dick Phillips til Jökulfjarða og Hornstranda undanfarin ár. Vestfirska fréttablaðið gerir þessar ferðir að fréttaefni í for- síðugrein 18. okt. s.l. Morgunblað- ið birtir nokkru síðar útdrátt úr sömu grein og loks skrifar Málfríður Halldórsdóttir grein í Mbl. 1. nóv. Þar sem Vestfirska fréttablaðið hefur mjög takmarkaða útbreiðslu þykir undirrituðum full ástæða til að biðja Morgunblaðið fyrir nokkrar athugasemdir. Nær allt það sem hefur verið skrifað um Dick Phillips hefur haft á sér neikvætt yfirbragð og miðað að því að gera manninn tortryggilegan í augum ókunn- ugra. Agæt grein Þórðar Tómassonar, safnvarðar á Skógum, í Mbl. 28. nóv. s.l. er því óvænt undantekn- ing, skrifuð af þekkingu og rétt- sýni, þörf lesning þeim sem láta dylgjur og þekkingarleysi sitja í fyrirrúmi. Hornstrandir og Jökulfirðir eru að verulegu leyti friðlýst land, þar sem öllum er heimilt að koma, fylgi þeir settum reglum. Útlend- ingar jafnt og íslendingar eiga því fyllsta rétt á því að njóta sann- mælis. Undirritaður hefur um rúmlega 20 ára skeið skomið næstum á hverju sumri á áðurnefndar slóðir, þar sem náttúrufegurð og stór- brotið landslag eiga vart sinn líka. Ótrúleg breyting til hins betra hefur átt sér stað hin síðari ár. Aður fyrr voru þeir ýmsir sem litu á landsvæðið sem almenning, þar sem hver fór sínu fram. Hús voru brotin upp, rúður brotnar og ýmiss konar innanstokksmunir teknir ófrjálsri hendi. Þeir sem slíka iðju stunduðu skákuðu i því skjólinu að mannaferðir voru litl- ar sem engar og því óhægt um vik fyrir húseigendur að ná rétti sínum. Á þessu hefur orðið mikil breyting síðan friðsamir ferða- menn og náttúruunnendur tóku að venja komur sínar á þessar slóðir í vaxandi mæli. Það er því lág- markskrafa, að menn njóti sann- mælis um umgengnishætti á áður- nefndu landsvæði, hvort sem i hlut eiga íslendingar eða útlend- ingar. Nokkur undanfarin ár hafa 2—3 skipulagðar hópferðir Englend- inga á vegum Dick Phillips verið farnar á áðurnefndar slóðir. Vest- firska fréttablaðið segir orðrétt í grein sinni: „Margt er á huldu um Phillips þennan en hann er titl- aður prófessor og íslenskir kunn- ingjar hans segja að hann búi í kastala einum á Suður-Englandi.“ Hér virðist því um enskan huldu- mann mað prófessorsnafnbót að ræða og heimatilbúnir kunningjar fréttablaðsins koma honum fyrir í kastala í Suður-Englandi. Sam- kvæmt staðreyndum er hins vegar engin von um prófessorsstöðu á næstunni og kastali fréttablaðsins er gamalt steinhús í Alston í Norður-Englandi. Hvar blaðið hefur krækt sér í þessar furðulegu upplýsingar er ýmsum ráðgáta og séu aðrar heimildir álíka, við hverju má þá búast. Engin leynd hvílir yfir starf- semi D. Ph. en vanþekking og hugarburður greinarhöfundar sitja í fyrirrúmi. Dick Phillips gefur árlega út lítinn, stuttorðan og hnitmiðaðan bækling um Island og ferðir sínar hingað. Þar eru réttar, nákvæmar upplýsingar fyrir væntanlega ferðamenn og þeir sérstaklega hvattir til að hafa besta útbúnað, þar sem allra veðra er von og yfirleitt ekki dvalist í húsum. Dick Phillips kom hingað fyrst 1955 sem óbreyttur ferðamaður. Hann tók þá þegar ástfóstri við land og þjóð og bjó hér allt árið um langt skeið. Hann hefur reynst dyggur mál- svari Islands í heimalandi sínu ekki hvað síst í síðasta þorska- stríði og þeir sem hingað hafa komið á hans vegum — sumir margsinnis — hafa reynst Islandi góðir meðmælendur. Hvers konar fólk er þá hér um að ræða? Að því er ég best veit, yfirleitt úrvalsfólk, oft námsfólk, náttúruunnendur, sem leggja á sig erfiði og kostnað til að vera fjarri skarkala þéttbýlisins. Þessu fólki er borin á brýn slæm umgengni en ég leyfi mér að fullyrða hið gagnstæða. Hún hefur aldrei verið betri en nú og húseig- endum aukið öryggi að dvöl þessa fólks. Oft var ömurleg aðkoma áður fyrr að mannlausum húsum og slysavarnaskýlum, þannig út- lítandi að best er að viðhafa sem fæst orð. Það var áður en ferðaútgerð Dicks Philips á Hornströndum kom til sögunnar. Skotvopn eru algjör bannvara og veiðitæki ekki leyfð. Framámenn ferðafélags hér í Á forsíðu Morgunblaðsins 30. nóvember 1979 birtist frétt frá fréttaritara blaðsins í Osló þess efnis, að Utanríkismálastofnun Kanada hefði lagt til í skýrslu til kanadísku ríkisstjórnarinnar, að vegna vaxandi áhrifa Sovétríkj- anna á Islandi væri nauðsynlegt að efla varnir Islands, sem Kanadamenn ættu að verða reiðu- búnir að taka þátt í, m.a. með staðsetningu kanadískra orrustu- flugvéla og kafbátaleitarflugvéla á Islandi. Þar sem hér er um mjög athygl- isvert mál að ræða, sem ekki hefur komið fyrir almenningssjónir á Islandi áður, er rétt að gera nánari grein fyrir þeirri umræðu sem átt hefur sér stað í Kanada meðal ákveðinna aðila og fjallar um þá hugmynd að færa út varnarsvæði Kanada austur fyrir Island. Þá er rétt að það komi fram hér í upphafi að ofangreind frétt Morgunblaðsins er ekki í öllum atriðum rétt eins og blaðið greindi raunar sjálft frá. Það var ekki Utanríkismálastofnun Kan- ada (Canadian Istitute of Interna- tional Affairs) sem gerði þessa skýrslu fyrir ríkisstjórn Kanada, heldur samdi hana prófessor nokkur í sovéskri utanríkisstefnu við Toronto-háskóla, Franklyn Griffiths að nafni fyrir utanríkis- ráðuneytið. Þá er þess ekki getið í fréttinni, sem er ekki síður mikil- vægt, að skýrslan er dagsett 20. apríl 1978 og var lillögum í henni hafnað umsvifalaust af þáverandi utanríkisráðherra í ríkisstjórn Trudeaus. Skýrsla þessi var gefin út s.l. sumar í bókarformi af Utanríkismálastofnun Kanada undir nafninu „Utanríkisstefna fyrir norðrið" (A Northern For- eign Policy).1’ Island hefur hingað til ekki haft mikilvægu hlutverki að gegna, né verið sýndur mikill áhugi meðal þeirra stjórnmálamanna, embætt- ismanna, hermanna og fræði- manna, sem móta utanríkis- og varnarmálastefnu Kanada. Ýmis teikn eru þó á lofti í Kanada um að á þessu geti orðið breyting í nánustu framtíð, sem hefði það í för með sér að hið skilgreinda varnarhagsmunasvæði Kanada ýrði fært austur á bóginn yfir til Islands og Norður-Noregs. Þegar er hafin umræða í Kan- ada meðal ofangreindra stefnu- mótunaraðila um endurmat á varnarhagsmunum landsins, sem geti leitt til þess að farið yrði framá heimild til að koma á fót sendiráði í Reykjavík og hafa kanadískt herlið á Keflavíkur- flugvelli, og réttilega kemur fram í Morgunblaðsfréttinni, að til eru um það tillögur til ríkisstjórnar- innar. Höfundur þessarar greinar hefur hins vegar fengið ótvíræðar upplýsingar um að þessar tillögur eru ekki einhver einkaskoðun prófessors frá Toronto, heldur hefur þetta verið rætt formlega af helstu herforingjum og æðstu embættismönnum sem fjalla um utanríkismal.2* í þessari grein munu verða raktar þær forsendur sem þessi umræða byggist á og í hverju þær hugmyndir felast sem snerta Island og N-Atlantshaf. Hornsteinninn í varnarstefnu Kanada hefur verið, allar götur síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk, órjúfanleg samvinna . við Bandaríkjamenn, þar sem litið er svo á að varnir Bandaríkjanna séu jafnframt varnir Kanada. Án efa er mikilvægast þátturinn í varn- arkerfi N-Ameríku hið svonefnda NORAD-kerfi (North American Defence System), sem sett var á fót með samningi milli kanadísku og bandarísku ríkisstjórnarinnar árið 1957. NORAD-kerfinu er fyrst og fremst ætlað að verjast hugsanlegri árás langdrægra flugvéla frá Sovétríkjunum, sem bera kjarnorkuvopn, en geg nr nú jafnframt því hlutverki að verjast hugsanlegri árás langdrægra kjarnorkuflugskeyta. Kerfið er því hugsað sem varnarkerfi í stór- styrjöld Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna þar sem kjarnorkuvopn- um yrði beitt á báða bóga.3) Af þessum ástæðum töldu margir stjórnmálamenn í Kanada að Norad-kerfið væri nóg vörn fyrir Kanada og fullnægði öllum varnarþörfum þess. Töldu þeir því að það væri tilgangslaust fyrir Kanada að vera í NATO. Hófst raunverulega alvarleg umræða, eftir að Trudeau kom til valda árið 1968, um það hvort Kanada ætti ekki að segja sig úr NATO þar sem aðild þjónaði ekki grundvall- arhagsmunum landsins, heldur hefði einungis í för með sér útgjöld. Þá var einnig þeirri skoð- un haldið mjög á loft að hlutverk kanadíska hersins ætti að vera friðargæsla en ekki þátttaka í hernaðarbandalagi.4* Á síðustu árum hefur þeirri skoðun vaxið stöðugt fylgi meðal stefnumótenda og þeirra, sem ákvarðanir taka í NATO-ríkjun- um, að það sé meiri hætta á takmarkaðri styrjöld í Evrópu en á stórstyrjöld þar sem kjarnorku- vopnum yrði beitt takmarkalítið.5) Þessi skoðun hefur haft bein áhrif á hugsunarháttinn í Kanada og hefur ríkisstjórnin á síðustu árum fjárfest meira í nýjum hergögnum en áður. Skammlíf ríkisstjórn íhaldsflokksins í Kanada ákvað jafnfram að auka útgjöld til her- mála, auka hernaðarsamvinnuna við önnur NATO-ríki og aðgreina herinn í landher, flugher og flota.61 Það sem hins vegar hefur eink- um aukið áhuga Kanadamanna á því að endurmeta varnarstöðu landsins óháð hinum sameiginlegu vörnum með Bandaríkjamönnum er ákveðin þróun mála, sem átt hefur sér stað í N-Atlantshafi, sem Kanadamenn telja að hafi aukið spennuna á svæðinu fyrir austan Kanada, sem krefjist beins aðgangs Kanadamanna að upplýs- ingum um þessa þróun. Þessi þróun sem Kanadamenn telja sig varða öryggislega séð byggist á eftirfarandi þáttum: 1. Vaxandi flotaumsvif Sovétríkj- anna í N-Atlantshafi. 2. Deila Sovétmanna og Norð- manna um skiptingu Barents- hafs, þar sem stangast á tillaga Norðmanna um að miðlína verði látin gilda og tillaga Sovétmanna um póllínuna svo- nefndu. Þessi deila gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir samskipti ríkjanna, en miklir hagsmunir eru í húfi sem varða fiskveiðar og olíu og málma á landgrunninu. 3. Deila Sovétríkjanna og Noregs um Svalbarða, en Norðmenn saka Rússa um að auka umsvif sín þar. 4. Útfærsja þjóðanna við N-Atl- antshaf á efnahags- og fisk- veiðilögsögu og þeir árekstrar sem orðið hafa milli íslendinga og Breta annars vegar og nú milli íslendinga og Norðmanna hins vegar. Kanadamenn telja að þessa auðlindadeilur íslend- inga við nágranna sína hafi sett og muni setja framtíð Kefla- víkurstöðvarinnar í hættu. 5. Olíufundir í N-Atlantshafi t.d. fyrir norðan Island og austur af Grænlandi, gætu valdið árekstrum milli þjóða N-Atl- antshafsins, sem gætu kallað á afskiptasemi hernaðarstór- velda eins og Sovétríkjanna. 6. Heimastjórn á Grænlandi. Þau skref, sem Grænlendingar eru að stíga til fullveldis, gætu haft þær afleiðingar að vera banda- rísku herstöðvanna þar verði talin óæskileg af grænlenskum yfirvöldum. Fullvalda Græn- land gæti einnig aukið áhuga Sovétríkjanna á að koma sér upp þar einhvers konar að- stöðu.^ Hvort þessir þættir eru raun- hæfir eða ekki þá er það staðreynd að kanadískir stefnumótendur hafa ekki lokað augunum fyrir þeim og telja þeir að þetta séu einkum þeir þættir, sem áhrif hafi á endurmatið á varnarstefnu landsins á næstu árum, og þar sem þessir þættir eru samkvæmt þeirra mati spennuskapandi, þá telja þeir nauðsynlegt að hafa beinan aðgang að upplýsingum um þróunina á N-Atlantshafi. Það verður ekki framkvæmanlegt nema með staðsetningu diplómata og hersveita á svæðinu.81 Á síðustu 3—5 árum hafa Kan- adamenn stigið nokkur skref sem koma til með að vera stefnumót- andi fyrir stjórn landsins varð- andi þetta heimsveldi. Fyrir 3 árum var sett á fót nefnd háttsettustu hersöfðingja kanadíska hersins sem hafði það hlutverk að skoða hvaða valkosti Kanada hefði hernaðarlega varð- andi varnarhagsmuni á Noður- Atlantshafi. Nefndin einbeitti sér fyrst og fremst að möguleikum á staðsetningu hersveita í N-Noregi og könnun á því ástandi sem þar Þórður Ingvi Guðmundsson: Stefnu í Kana varðar ö málís er. Samkvæmt upplýsingum, sem formaður þessarar nefndar veitti greinarhöfundi, þá töldu nefnd- armenn að staðsetning kanadísks herliðs á Grænlandi og íslandi þjónaði varnarhagsmunum Kan- ada.91 Tveir fundir hafa verið haldnir milli kanadískra og íslenskra embættismanna á s.l. 3 árum, nú síðast s.l. haust í Reykjavík, þar sem ræddir hafa verið öryggis- hagsmunir íslands og Kanada. Nokkrir fræðimenn á þessu sviði hafa verið ráðnir af varnar- og utanríkisráðuneytinu til að setja á blað valkosti Kanada og gera tillögur um leiðir, þ.á m. er skýrsla Franklyn Griffiths, sem er getið var að ofan. Auk hennar má nefna ritgerð prófessors Nils Or- viks, „Nágrannar okkar í austri" (Our Neighbours to the East), en éinmitt hann var kallaður til skrafs og ráðagerða við kanadísku sendinefndina, sem fór til íslands s.l. haust og getið var hér að framan.101 Þær tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þá, sem með valdið fara í utanríkisstefnumótun Kanada og hafa verið ræddar sameiginlega af kanadískum embættismönnum, herforingjum og fræðimönnum, eru efnahagslegar, pólitískar og hernaðarlegar að eðli. Hér á eftir fer stutt yfirlit yfir þær, sem snerta ísland. — Kanada ætti að sækjast eftir náinni samvinnu við íslendinga á sviði fiskileitar, fiskirannsóknar og framleiðslu.1 1 — Kanada á að veita íslending- um fjárhagslega aðstoð til að styrkja stöðugleika efnahagslífs og stjórnmálaþróun landsins. Pen- inga þessa á að fá með því að minnka þróunaraðstoð Kanada við lönd þriðja heimsins.121 —Tækni og vísindasamvinna Islands verði stór- kanadísks sendiráðs i Reykjavík, þar sem stjórnmála- legar og menningarlegar stofnanir á vegum Kanada myndu hjálpa til að styrkja þátttöku íslands í Nato og hafa jákvæð áhrif á almenn- ingsálitið. Á sama hátt mun það þjóna þeim tilgangi að minnka áhrif sovéska sendiráðsstarfsliðs- ins, losa um þrýstinginn á Keflavík og tjá þær sameiginlegu ímyndir, sem þessar þjóðir norð- ursins hafa um sjálfar sig.141 — Kanada ætti ekki að hafa sendiherra á íslandi, heldur ein- ungis embættismann frá utan- ríkisráðuneytinu og ritara sem hefðu dagleg samskipti við sendi- ráðið í Osló. — Kanada ætti ekki að bjóðast til að hafa hersveitir eða hergögn frá Kanadíska hernum á íslandi, Kanada og efl—Stofnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.