Morgunblaðið - 02.02.1980, Side 40

Morgunblaðið - 02.02.1980, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1980 VI MORö'd^ KAFr INÚ Eí þú einhvern tíma gleymir kódanum, þá gefðu hurðinni drag þar sem ég hef merkt með krossinum! taifior Ertu viss um að hann sé bara kominn í heimsókn, en ekki til að flytja inn? t r - Á _ 11 ffr :• 2 i m. pt h «\ m fi ) ; \} «s i Hvenær linnir mannfalli götunnar? „Ekki faerri en 650 íslendingar slösuðust í umferðinni á árinu 1979. Þar af voru 274 meiriháttar slys og 27 dauðaslys. Fyrir fáum árum sagði mér umferðarlög- reglumaður, sem var sendur til Kaupmannahafnar til að kynna sér umferðarmál, að í þeirri stór- borg væri slysatíðni í umferð miklum mun minni en hér eða um 40—50% minni miðað við fjölda fólks og farartækja. Hann er næstum óskiljanlegur hinn mikli steinaldarsvefn, sem yfirmenn umferðarmála virðast haldnir um þessi stóralvarlegu mál og vart í sjónmáli að þeir rumski á næstunni. Svefnsýki gagnvart hinni hryllilegu tíðni umferðarslysa hér er þeim mun alvarlegri vegna þess að flestar aðrar slysavarnir eru hinar full- komnustu jafnvel á heimsmæli- kvarða. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Óhagstætt gengi sænsku krón- unnar orsakar, að fremur fáir erlendir spilarar taka þátt í Philip Morris keppni Svía, sem haldin er árlega í baðstrandarbænum Tylö- sand við Eyrarsund. En sænskur bridge er hátt skrifaður og keppni þessi nýtur álits í Philip Morris keppniskeðjunni. Gott spil frá Tylösand, vestur gaf, allir á hættu. Norður S. ÁD103 H. 4 T. G9843 L. D64 Vestur Austur S. 84 S. KG9762 II. Á52 H. 1073 T. ÁK72 T. 105 L. G953 L. A7 Suður S. 5 H. KDG986 T. D6 L. K1082 Vestur Norður Austur Suður 1 Grand P 2 Tíglar 2 Hjörtu P P 2 Spaðar P I' Dobl P 3 Hjðrtu P P Dobl Allir P Sagnirnar eru gott dæmi um baráttuna í tvímenningnum. Allt gert til að þrýsta andstæðingnum upp og síðan doblað til að ná hærri tölu en í eigin spili. Tveir tíglar voru beiðni um tvö hjörtu en síðan ætlaði austur að segja og spila bútinn í spaðanum. Suður sagði hjörtun fyrir vestur og norður stakk upp á að spila tvo spaða doblaða. En gegn þrem hjörtum dobluð- um tók vestur fyrsta slaginn á tígulkóng og skipti síðan í spaða, sem tekinn var með ás. Þá tromp- aði suður spaða og spilaði hjarta- gosa, fékk slaginn en hjarta- drottninguna tók vestur. Hann virtist gera vel þegar hann tók á tígulás áður en hann spilaði þriðja trompinu því ekki vildi hann þurfa að spila laufi sjálfur seinna. Suður var þá orðinn nokkuð viss um skiptingu spilanna og að austur hafði átt í upphafi annað- hvort 6-3-2-2 eða 6-3-3-1 og þegar hann spilaði laufkóngnum frá hendinni voru möguleikar varnar- innar búnir. Tæki austur slaginn yrði drottningin innkoma á blind- an og ef ekki myndu lág lauf frá báðum höndum grípa ásinn á þurru landi. Unnið doblað spil og góð skor fyrir. COSPER ®)PIB cortmcfn 8212 COSPER Hún lofaði að koma út i gluggann, kæmi ég og syngi eina serenöðu. Maigret og vínkaupmaðurinn 35 áfram eins og ekkert væri eðlilegra. — Ég heí alltaf haft áhuga á viðskiptum. Og maðurinn minn spurði mig iðulega ráða. — Ætlið þér að fá yður skrifstofu í byggingunni á Avenue de l’Opera? — Já. Ég ætla þó ekki að hafa sameiginlega skrifstofu með Louceck eins og Oscar gerði. Enda er nóg pláss þarna. — Og þér ætlið sem sagt að fylgjast með þessu öllu — líka starfseminni á Quai de Charen- ton? — Já, því ekki það? — Þér búizt við að gera einhverjar breytingar á starfs- liði? — Ég sé í fljótu bragði enga ástæðu til þess? Af hverju? Af þvi að maðurinn minn hefur haft mök við flestar starfsstúlk- urnar? Nei, þá yrði ég víst að hætta að umgangast flestar kunningjakonur minar. Ung kona kom inn. Hún fleygði sér um hálsinn á frú Chabut. — Elsku Jeanne mín. — Ég bið yður að hafa mig afsakaða, lögregluforingi. — Já, þó nú væri. Maigret gekk niður útitröpp- urnar og þerraði svitann af enni sér. Ilann tautaði fyrir munni sér: — Sérkennileg kona! Þegar hann var kominn nokkrum þrepum neðar bætti hann við: — Ég held að málinu sé langt frá iokið. En honum fannst Jeanne Chabut vera gædd þeim eigin- leika að vera ærleg. Væntan- lega skjátlaðist honum ekki. 4. kafli Klukkan var langt gengin í fimm þegar barið var gætilega að dyrum. Án þess að bíða svars kom Josef gamli, elzti skrif- stofumaðurinn. inn og rétti lögregluforingjanum blað. Nafn: Jean Luc Caucasson. — Hver er ástæðan fyrir komu yðar: Chabut-málið. — Ilvar létið þér hann bíða? — í fiskabúrinu. Biðstofan var nefnd þessu nafni, en þar voru glervcggir á alla vegu og jafnan einhverjir þar sem sátu og biðu. — Látið hann biða fáeinar mínútur enn og vísið honum svo inn. Maigret snýtti sér hressilega, dreypti á koníaki sem hann hafði hjá sér. Hann var enn slappur og fannst hann eitt- hvað utan við sig. Hann stóð við skrifborðið og var að kveikja i pípu þegar Josef tilkynnti: — Hr. Caucasson. Maðurinn virtist ekkert upp- næmur af andrúminu á Quai des Orfevres. Hann rétti fram höndina i átt að lögreglufor- ingjanum og sagði: — Er það Maigret lögreglu- foringi sem ég hef þann heiður að... Eftir Georges Simenon Jóhanna Knstjónsdóttir sneri á íslensku En Maigret tautaði aðeins: — Gerið svo vel að fá yður sæti. Svo gekk hann að skrifborð- inu og settist á sinn vanastað. — Þér eruð forleggjari og geíið einkum út listaverkabæk- ur, ekki satt? — Jú. Þér kannist kannski við verzlunina sem forlagið rekur I Rue Saint Andre de Arts? Maigret svaraði honum engu, en horfði hugsi á manninn scm sat andspænis honum. Þetta var gjörvilegur maður, hár og vel vaxinn með snyrtilega greitt grátt hár. Fötin hans voru einnig grá, frakkinn líka og um varir hans lék bros fullt af sjálfsánægju sem virtist eins og límt á andlit hans. — Ég verð að biðja forláts á því að baka yður ónæði, einkum þegar þess er gætt að erindi mitt vckur sjálfsagt ekki telj- andi áhuga hjá yðar. Ég var vinur Oscars Chabuts. — Ég veit það. Ég veit líka að á miðvikudaginn voruð þér við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.