Morgunblaðið - 05.02.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
Islenzku menntaskúlanemarnir frá Egilsstöðum við brottförina til
Færcyja ásamt Vilhjálmi Einarssyni skólameistara og Þorsteini Gunnars-
syni fararstjóra. Ljósmynd Mbl. Jóhann I). Jónsson
*
Nemendaskipti Færeyja og Islands
ÁTJÁN nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum héldu til
Færeyja um helgina, en til Egilsstaða komu hins vegar 24
nemendur frá Högdalamenntaskólanum í Færeyjum. Er um
nemendaskipti að ræða milli þessara skóla og verða þessir fyrstu
hópar í viku tíma hvor á sínum stað.
Albert Guðmundsson:
Hef ákveðið að verja ríkis-
stjórn Gunnars vantrausti
— ókunnugt um innihald málefnasamnings
„ÉG vil að það komi ríkisstjórn
á íslandi og þar sem engin
önnur ríkisstjórn er í boði nú
eftir tveggja mánaða stjórn-
armyndunartilraunir en þessi,
sem Gunnar Thoroddsen vinn-
ur að, þá hef ég ákveðið að
verja þá ríkisstjórn vantrausti.
ef til kemur," sagði Albert
Guðmundsson alþingismaður í
samtali við Mbl. í gær.
Mbl. spurði Albert, hvers
vegna hann tæki ekki þann
kostinn að lýsa yfir stuðningi
við stjórn Gunnars Thorodd-
sens. Albert svaraði: „Vegna
þess að ég hef ekki tekið neinn
þátt í þessum stjórnarmyndun-
arviðræðum. Mér er á þessu
augnabliki ókunnugt um inni-
hald málefnasamningsins og get
þess vegna ekki gerzt beinn
stuðningsmaður stjórnarinnar.
Ég mun hér eftir sem hingað
til taka afstöðu til mála , þegar
þau hafa borizt mér og ég kynnt
mér þau.“
Loðnuaflinn nú rúmlega 180 þúsund tonn:
Frekari ákvarð-
anir um veiðar
teknar í vikunni
©
INNLENT
LOÐNUAFLINN frá upphafi
vertíðar var í gærkvöldi orðinn
rúmlega 180 þúsund lestir, en
búist er við að sjávarútvegsráðu-
neytið gefi í vikunni út tilkynn-
ingu um stöðvun veiðanna við
eitthvert tiltekið mark. Upphaf-
lega gerði ráðuneytið ráð fyrir
100 þúsund lesta veiði í bræðslu í
janúarmánuði, en vegna breyttra
aðstæðna við sölu á loðnuhrogn-
um til Japans var ákveðið að
leyfa veiði á 160—180 þúsund
lestum. Nú er veiðin komin fram
yfir þær tölur og því nýrrar
Jón Þorgilsson um fundinn á Hellu:
Engin yfirlýsing samþykkt
um stuðning Eggerts Hauk-
dals við Gimnar Thoroddsen
JÓN Þorgilsson á Ilellu, einn af
forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Rangárvallasýslu,
sem skipaði 3. sæti L-listans,
lista Eggerts Ilaukdals, í
síðustu kosningum sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
á aðalfundi Sjálfstæðisfélags
Rangæinga á Hellu í fyrradag
hefði engin yfirlýsing verið
samþykkt þess efnis. að Eggert
Haukdal skyldi halda áfram
stuðningi við Gunnar Thor-
oddsen í tilraun hans til stjórn-
armyndunar, eins og Gunnar
Thoroddsen hélt fram í viðtali
við Vísi í gær. Þvert á móti
hefði komið fram einhugur
mcðal fundarmanna um það að
Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði
ekki.
I Vísi í gær segir Gunnar
Thoroddsen eftir fund sjálfstæð-
ismanna á Hellu: „Eggert Hauk-
dal hlaut í dag einróma sam-
þykki kjósenda sinna fyrir
áframhaidandi stuðningi við mig
í sambandi við þessar stjórn-
armyndunartilraunir.“ Jón
Þorgilsson á Hellu var flutnings-
maður fyrrgreindrar tillögu og
spurði Morgunblaðið hann um
túlkun Gunnars á henni og
einnig hver vilji fundarmanna
væri í þessum efnum.
„Ég veit ekki,“ sagði Jón,
„hvort rétt er haft eftir Gunnari
og dreg það í efa, því ummæli
hans geta ekki átt við aðalfund
sjálfstæðisfélags Rangæinga á
sunnudag. Þar var ekki sam-
þykkt nein slík yfirlýsing sem
hann talar um og það er augljóst
að ekkert kom fram á fundinum
um stuðning við Eggert Haukdal
— Ályktun samþykkt
um einingu í Sjálf-
stæðisflokknum
og aðild Eggerts
að þingflokki
Jón Þorgilsson
að öðru leyti en því að hann færi
inn í þingflokk Sjálfstæðis-
flokksins. Á fundinum var ekki
gerð nein könnun á því, hvern
stuðning Eggert Haukdal hefði
þar til þátttöku í tilraunum
Gunnars Thoroddsens til mynd-
unar ríkisstjórnar.
Orðalag og meining tillögunn-
ar fer ekkert á milli mála og í
henni er sá tónn sem var
ríkjandi í máli fundarmanna, en
þar kom það greinilega fram að
fundarmenn væru einhuga í því
að þeir vildu ekki að Sjálfstæðis-
flokkurinn klofnaði.
í tillögunni eru þrír megin-
póstar þar sem lögð er áherzla á
samstarf og einingu innan Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem skorað
er á þingmenn flokksins að taka
Eggert inn í þingflokkinn og þar
sem mælt er með því að Sjálf-
stæðisflokkurinn taki þátt í
myndun meirihlutastjórnar sé
þess kostur.“
Á aðalfundi Sjálfstæðisfélags
Rangæinga á Hellu sl. sunnudag
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt einróma af um 50 fundar-
mönnum: „Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélags Rangæinga haldin
að Hellu 3. feb. 1980 telur
nauðsynlegt að efla Sjálfstæðis-
flokkinn og stuðla að einingu í
störfum hans. Fundurinn harm-
ar þann misskilning, sem hefur
valdið því að Eggert Haukdal
hefur ekki verið tekinn inn í
þingflokk sjálfstæðismanna.
Skorar fundurinn á flokks-
stjórnina að afgreiða það mál nú
þegar. Jafnframt skorar fundur-
inn á þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins að standa saman um
að nýta þá möguleika sem kunna
að vera fyrir hendi til myndunar
meirihlutastjórnar með aðild
Sj álfstæðisflokksins. „Á fundin-
um fluttu ræður m.a. Eggert
Haukdal alþingismaður sem
fjallaði um stjórnmálaviðhorfið
og Ingólfur Jónsson sem hvatti
til samstöðu meðal sjálfstæð-
ismanna og taldi það grundvall-
arskilyrði fyrir þátttöku þing-
manna úr röðum Sjálfstæðis-
flokksins í mögulegri myndun
ríkisstjórnar að meirihluti þing-
manna flokksins stæði að baki
þeirri ákvörðun.
ákvörðunar að vænta innan
skamms.
Mjög góð loðnuveiði var alla
helgina og er það álit sjómanna, að
mjög mikið sé af loðnu á miðunum.
Loðnan er á stóru svæði, en hefur
lítið mjakast austur á bóginn
síðustu dagana. Frá hádegi á laug-
ardag þar til síðdegis í gær til-
kynntu eftirtalin skip um afla til
loðnunefndar:
Laugardagur: Skarpsvík 600,
Ljósfari 540.
Sunnudagur: Pétur Jónsson 670,
Bergur 450, Bjarni Ólafsson 1000,
Haförn 780, Óli Óskars 1350, Há-
kon 800, Húnaröst 620, Dagfari 520,
Guðmundur 900, Ársæll 440, Helga
II 530, Kap II 620, Rauðsey 600.
Samtals á sunnudag 13 skip með
9280 lestir.
Mánudagur: Þórshamar 580,
Sigurður 1350, Seley 420, Svanur
660, Örn 570, Magnús 520, Jón
Finnsson 600, Huginn 580,
Grindvíkingur 1030, Hafrún 670,
Eldborg 1350. Samtals 11 skip með
8330 lestir þar til síðdegis í gær.
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi tilkynning frá sjávarút-
vegsráðuneytinu:
„Með tilliti til óvissu í frystingu
á loðnu og loðnuhrognum vegna
markaðsaðstæðna hefur ráðuneyt-
ið ákveðið að leyfa að svo stöddu
áframhald núverandi loðnuveiða til
mjöl- og lýsisvinnsiu, þótt áfram sé
gert ráð fyrir nokkru magni til
frystingar og hrognatöku.
Það styður þessa ákvörðun að
enn er mjög óljóst hvort loðna
muni ganga suður á bóginn fyrir
vestan landið eða vesturmeð suður-
ströndinni, en þessi atriði ráða
miklu um það hversu mikið magn
tekst að frysta.
Horfur og aðstæður verða end-
urmetnar í vikunni og frekari
ákvarðanir um veiðarnar teknar
fyrir lok vikunnar."
Kjartan Jóhanns-
son um útfærsluna
við Grænland:
„Hygg að mál-
ið komi inn í
viðræður um
Jan Mayen64
„ÉG geri ráð fyrir því að þessi
mál komi upp í sambandi við
Jan Mayen, þar sem Danir
komi inn í það mál.“ sagði
Kjartan Jóhannsson sjávarút-
vegsráðherra, er Mbl. spurði
hann í gær. hvort íslenzk
stjórnvöld ráðgerðu viðræður
við Dani vegna fyrirhugaðrar
útfærslu við Grænland.
„Þessi útfærsla myndi sneiða
af því svæði, sem Norðmenn
gera tiikall til umhverfis Jan
Mayen, þannig að ég hygg að
þessi mál öll verði tekin upp á
þeim vettvangi milli Norð-
manna, Dana og okkar,“ sagði
Kjartan.
Allt kyrrt
við Kröflu
„ÞAÐ ERU hvorki skjálftar svo
nokkru nemi né landsig eða landris
við Kröflu um þessar rnundir," sagði
Eysteinn Tryggvason í samtali við
Mbl. í gær, en sl. 5 daga hefur mjög
lítil hreyfing verið á svæðinu, aðeins
3—4 mjög litlir skjálftar á dag í
stað 15—20 að meðaltali um langt
skeið. Eysteinn kvað mögulegt að
hræringum á Kröflusvæðinu væri
að ijúka, en þó kvað hann ýmsa
starfsbræður sína í jarðvísindum
vantrúaða á það.
Ólafur íhugar
forseta-
framboð
„ÉG ER að hugsa málið en hef
ekki ákveðið neitt um það ennþá,“
sagði Ólafur Jóhannesson alþing-
ismaður í samtali við Mbl. í
gærkvöldi þegar blaðið innti hann
eftir því hvort hann hygðist bjóða
sig fram til forsetakosninga í vor.
Kvaðst Ólafur væntanlega taka
ákvörðun fyrir 1. apríl svo að
fyrirvarinn væri hæfilegur.
Ólafur Jóhannesson